Vísir - 19.03.1921, Blaðsíða 2
Fengumjmeð s/a. ísland:
Srísgrjóo
Sóda
Maismjöl
Kafíl — Rio I
Kartöflomjöl
Þaasar vörur eru að mun
átsúkkulaði af mörgum tegundum
Matarkex - Lonch
Snowflake - Cabin
Dósamjólk • ensk • 16 oz. dósir
Cocoa - frá Bernsdorp.
ÓUjí^rÆirl en undanfariö.
Hershey’s
cocoa í % % og 1 Ibs. dósum.
höfum við fyrirliggjandi.
Jöh. Olafsson & Co.
Slmar B84 & 884i
Reykjavík.
Símnefni „Juwel".
StóYmáiia
og vantraustsyfirlýsingin.
í byrjun umræSnanna um van-
traustsyfirlýsinguna á Alþingi sagði
forsætisráSherrann, aS ef frum-
kvöSlar hennar hefSu ekki fullviss-
a8 sig um þaS fyrirfram, að hún
' yrði samþykt, þá væri það óforsvar-
anlegt að tefja þingið með því að
bera hana fram! Og hann bætti því
við, að heill mánuður af þingtím-
anum væri farinn að mestu til ó-
nýtis í undirbúning undir þessa her-
föí' á hendur stjórninni og bolla-
leggingar um nýja stjórnarmyndun.
— pessum ummælum forsætisráðh.
var þegar í stað mótmælt, og gerðu
það bæði ákveðnir andstæðingar
hans og eins hinir, sem ekki vildu
áreita stjórnina. Og allir þingmenn
vita það, að störf þingsins hafa ekki
tafist hið ailra minsta af þessum
sökum fyr en vantraustsyfirlýsingin
kom til umræðu. — En ráðherrann
þjónaði bara 'eðli sínu, með því að
fara með þessar staðlausu staðhæf-
ingar, sem hann mátti vita, að rekn-
ar myndu verða ofan í. hann sam-
stundis
Bergmál stjórnarinnar. Morgun-
blaðið, varð áuðvitað að „flónska
sig“ á sama hátt. í gær birtist greirt
í blaðinu með fyrirsögnjnni „Fyrit-
liyggjuleysi þingsins", og er þar
vaðinn elgurinn um þrumu úr heið-
skíru lofti, sem ekki hafi komið eins
og þruma* úr heiðskýru lofti! Að
öll stærstu .og þýðingarmestu málin
séu óútkljáð, að þingið þurfi á öll-
um sínum kröftum að halda ósundr-
uðum, að brýnustu þarfir þjóðár-
innar krefjist þess, að þingið sinni
fljótt og röggsamlega atvinnu- og
peningamálum landsins o. s. frv.
Blaðið snýr öllu við og gerir af-
leiðingar að orsökum, eins og þeg-
ar það segir, að vantraustsyfirlýs-
ing valdi sundrung, tvídrægni og
valdabraski! — Auðvitað er blað-
inu það alveg hulið, að til þess að
geta ráðið stórmálunum til lykta, er
þinginu nauðsynlegt að vita það,
hver eigi að framkvæma ályktanir
þess. Rétti tíminn til þess að leiða
sannleikann í I.jós um afstöðu stjóm-
annnar til aðalmalanna og þingsins
til stjómarinnar, er einmitt áSúr en
stórmálunum er ráðiS til lykta. En
væntanlega er öllum skynbærum
mönnum það ljóst, að að hálfnuð-
um þingtímanum muni þingmenn
alment vera búnir að átta sig nokk-
urn veginn á aðalmálunum og á-
kveða afstöðu sína til þeirra. En á
hinn bóginn er ekkert betur fallið
til þess að „hreinsa til“, heldur en
einmitt umræður um vantraustsyfir-
lýsingu.
pað liggur aftur í augum uppi,
að það mundi miklti fremur hafa
orðið til að tefja fyrir störfum þings-
ins, og verið þeim óhollara, ef frest-
að hefði verið lengur að leita úr-
slita um það, hvort stjórnarskifti
ættu að verða. — Ef stjórnin fer
frá, og ný stjórn verður mynduð,
þá mun brátt færast sú ró yfir þing-
ið, sem störfum þess er hollust. En
jafnvel þó að það dragist eitthvað.
að mynda nýju stjórnina, þá munu
þingmenn engu síður geta ráðið stór-
málunum tiUykta fyrir því, og yrði
þá nýja stjórnin að myndast í sam-
ræmi við þær niðurstöður og mundi
gera það. Og ef til vill má einmitt
gera ráð fyrir því, að það geri tölu-
vert erfiðara fyrir, að ráða sumum
þeim málum heppilega til lykta, að
ýmsir þingmenn þykjast þurfa að
taka tillit til afstöðu núverandi
stjórnar til þeira mála.
Hvað gerir stjórnin?
Sú spuming er nú efst í hugum
manna. Hvað gerir stjórnin? Ætlar
hún að sætta sig við þau afdrif, sem
traustsyfirlýsingin til hennar fékk í
fyrradag og sitja áfram? pykist hún
geta gert það, án þess að traðka
þingræðinu?
pað er nú alveg víst, að engin
stjórn, í nokkru öðru landi, mundi
láta sér lyndá slíka meðferð. Og
hvergi annarsstaðar mundi stjóm
haldast það uppi að þanga við vold
á þann hátt.
Hvað á stjórnin þá að gera?
Hún á að gera eitt af tvennu, að
segja af sér strax, eða krefjast á-
kveðinnar traustsyfirlýsingar af
þihgipu, og láta þannig verða skor^
ið úr því á qyggjandi hátt, hvort
þingið vilji hafa hana. Ef stjórnin
á nokkra fylgismenn í þinginu, þá
á hún heimtingu á því, að þeir segi
til sín og styðii hana á þinglegan
hátt með atkvteði sínu. Ef hún á
ekki þann stuðning í þinginu, seni
hún þarf að eiga, til að geta farið
með völdin á löglegan hátt, þá á
hún að fara frá tafarlaust.
Af því sem fram fór í n. d. í
fyrradag, verður ekki annað ráðið,
en að stjórnin sé gersamlega fylgis-
laus. Hún verður því annað hvorr
að gera, að sanna það gagnstæða,
eða segja af sér.
SímskeytJ
frá fréttaritara Vísis.
Uppreisnarmenn flýja Kronstadi.
Símað er frá Helsingfors, að for-
kólfar uppreisnarinnar í Kronstadt
og 500 hermenn hafi flúið og geng-
ið á ísi til Finnlands. Segjast þeir
hafa verið tilneyddir að gefast upp
fyrir hersveitum ráðstjómarinnar,
sem hófu stórskotahríð á þá aðfara-
nótt miðvikudagsins. Sjómennimir
sprengdu í loft upp herskipin. áð-
ur en þeir skildu við þau. Flótta
menn streyma í þúsundatali yfir
finsku landamærin. Rauði kross
Bandaríkjanna hefir tekist á hend-
ur að ánnast særða menn.
Bonar Lan> segir af sér.
Símað er frá London, að Bonar
Law, foringi íhaldsmanna og önn-
ur hönd Lloyd George’s, hafi sagt
af sér ráðherradómi, vegna van-
heilsú. Lloyd George hefir sent út
áskorun til. þjóðarinnar að stofna
nýjan þjóðlegan flokk, til að verj-
ast stefnu verkamanna.
Sffaðakótal(röfurnar.
,
Símað er frá París, að nefnd sú,
sem bandamenn liafa kosjð til að
rannsaka skaðabótkröfurnar, hafi
nú „gert upp“ við pýskaland. —
Reiknast henni svo til, að pjóð-
verjar hafi greitt 8 míljarða gull-
marka, en sjálfir segjast þeir hafa
greitt 2! miljarð.
Cengi erlendrar mpntar.
Khöfn í gær.
100 kr. sænskar .... kr. 131.75 |
100 kr. norskar . . . . -— 93.00 |
100 mörk ................. 9.40 !
100 frankar fr. ..... — 41.00
100 frankar sv.......— 100.75
100 iírur .......... — 23.75
100 pesetar..............— 80.75
100 gyllini' ........ — 199.50
Sterlingspund ...........— 22.65
Dollar ..................— 5.78
(Frá Verslunarráðinu).
«k Itt *t> ilt idt tU th.
if
| Bæjarfréttir.
Pálmasunnudagur
er á morgun og vika til páska.
Hátíðaviðbúnaður hefir verið með
minsta móti hér í bænum að þessu
sinni.
Klul(l(unni
verður flýtt um eina klukkustund
klukkan ellefu í kvöld. Vel er það
farið, að henni er nú flýtt á laug-
ardagskvöldi, en ekki í miðri viku,
eins og áður hefir tíðkast. Slíkt var
ónargætni við alla þá, sem árla
þurftu til vinnu sinnar. Vakti Vísir
máls á því í fyrra, og hefir nú verið
farið að tillögum hans.
íþróltafélag Reykjavíþur
Á morgun (sunnudag) kl. 10
gönguför frá mentaskólanum. —
Munið að klukkunni verður flýtt.
peir félagar, sem byssur eiga,
gefi sig fram við stjórnina fyrir mið-
vikudagskvöld.
Mc.ssur á morgun.
í dómkirkjunni kl. 11 síra Jóh.
porkelsson; kl. 5 síra Bjarni Jóns-
son. (Passíusálmar verða sungnir
í síðdegis-messunni).
í fríkirkjunni hér kl. 2 síra Ólaf-
ur Ólafsson og kl. 5 síra Jakoh
Kristinsson (í stað próf. H. N.).
f Landakotskirkju. Hámessa kl.
9 árd. Guðsþjónusta kl. 6 síðd.
Hjúsþapur.
Magnea G. Pálsdóttir og Árni
Lýðsson, grafmeistari, verða gefin
saman í hjónaband í kvöld af síra
Bjarna Jónssyni.
M áiverþasýning
Ásgríms Jónssonar verður opnuð
í Templarahúsinu á morgun.
Pramhalds-aðalfundur
í fiskiveiðahlutafél. „Kári“ hefst
á morgun á skrifstofu félagsins í
Hafnarstræti 15, upni. (