Vísir - 24.08.1921, Side 3
VÍSIJE
<ér þa5 vegna verðlaunanna, sem Jón
æfir íþróttir, heldur vegna íþróttar-
innar sjálfrar.
—- Ættu íþróttamenn vorir að
minnast þess, að manngildi og
menning er eigi undir verðlaun-
um og viðurkenningu komið. —
pá má geta þess, að íslenski fán-
inn hefir oftar en einu sinnj blaktað
við hún á dönskum íþróttamótum,
lil heiðurs Jóni, og er enginn efi á
þvi, að hinn ungi fáni vor mundi
oftar sjást á erlendum íþróttamót-
um, ef þeir íþróttamenn, sem utan
fara, hefðu farið að dæmi Jóns;
fullnumað sig í þeirri íþrótt, sem
þeir lögðu stund á hér heima.
Fyrsta hlaupmót, sem Jón tók
þátt í, var víðavangshlaup íþrótta-
félags Rykjavíkur 1916, og bar
hann sigur úr bítum.
Hann hefir nú í hyggju að keppa
á íþróttamóti því, sem háð verður
á íþróttavellinum 27. og 28. þ. m.
Og þar sem allir bestu þolhlaupar-
ar vorir (porkell Sigurðsson, sig-
Uivegarinn frá Alafoss-hlaupinu,
Guðjón Júlíusson, methafínn í 5
rasta hlaupi og Ingimar Jónsson,
sem best hefir hjálpað til þess að
isl.met væru sett) taka þátt í þessu
móti, má búast við sögulegu móti.
22. ágúst 1921. B.
p Baejsrfrétti
i
Knaitspyrnufél . Víl(ingur
fer með íslandi til ísafjarðár.
pað á að keppa þar við tvö knatt-
spyrnufélög og þriðja leikinn við úr-
valsflokk þeirra félaga.
Veðrið í morgun.
Hiti hér 6 st., Vestm.eyjum 9,
Grindav. 6, Stykkish. 9, ísaf. 8,
Ak. 9, Grímsst. 7, Raufarh. 10,
Seyðisf. 9, Hólum í Hornaf. 9,
pórsh. í Færeyjum 11 st. Loftvog
lægst fyrir norðvestan land, fallandi,
Suðvestlæg átt. Horfur; Sama vind-
staða.
Finnur Ólafsson,
verslunarmaður, er hér staddur.
Hann hefir verið í London og
borgum þar í nánd síðastliðin 12
ár, en er nú kominn í kynnisferð
til föður síns, Ólafs á Fellsenda í
Dalasýslu, sem þar býr rausnarbúi.
Var hann þar vestra síðastliðinn
mánuð ög fer nú öðru sinni vestur
í vikulokin. Hann ráðgerir að fara
til Londonar í haust og hefir í
hyggju að stunda þar umboðsversl-
un, bæði til að selja enskar vörur
hingað og íslenskar vörur þar.
E.s. Island
kom síðdegis í gær. Meðal far-
þega voru: Halldór Sigurðsson úr-
smiður og kona hans, A. Obenhaupt
stórkaupm., Aðalsteinn Kristinsson
fulltrúi, Madsen skrifstofustj., Dick-
sön barón frá Svíþjóð, Funk verk-
fræðingur, ungfrú Kristjana Jóns-
dóttir, Guðrún porkelsdóttir, Mar-
grét Guðmundsdóttir, Jónína Jóns-
dóttir o. fl. Einnig nokkrir farþegar
frá Vestmannaeyjum.
SíldveiSarnar.
Kveldúlfsskipin fjögur hafa nú
aflað um 10 þús. tunnur, og heyrst
hefír að þau eigi að hætta veiðum
um næstu helgi.
Barn daít í sjóinn
við Kveldúlfsbryggju í gærmorg-
un og var nær druknað er brautar-
vörðurinn Hans Pétur Hansson
bjargaði því.
KolaverS.
í Englandi er nú, að því er Vísir
hefir heyrt, komið niður í 17 shill-
ings smál. þar á höfn, en dýrustu
skipakol um 30.
Gullfoss
fór frá Höfn í gær á leið til Leith
og Islands.
M.b. Skaítfellingur
bieður tii Vittur og Vestmanua-
eyja Á morgun.
Vörur aflienciist »em fyrst.
Nic. Bjarnason.
Laukur
Kartöflur, nýjar
Rúgnajöl
í versíun
Hverfiígötu 64.
A morgun
fer e.s. ísland héðan til ísafjarð-
ar og Akureyrar. Snýr þar við og
heldur hingað.
E.s. GoSafoss
'er á Seyðisfirði í dag. Búist er
við, að hann verði kominn til Ak-
ureyrar 28. þ. m.
Ungfrú Unnur Ólafsdóttrr
kom með s.s. Botninu síðast frá
Höfn og hefir nú aukið hannyrða-
verslun sína að miklum mun, sbr.
auglýsing í blaðinu í gær.
Ólafur Hvanndal
prentmyndasmiður, var ekki
fluttur á sjúkrahús, eins og sagt var
frá í Vísi, heldur var hann fluttur
á heimili sitt, Lindargötu 1 B, og
liggur hann þar sjúkur.
K. F. U. M.
jj' x
Ftmdur verður haldía á Jarð
ræktarsvæði í kvöld ki 8. Allir
piltar 14—17 ára velkomnir.
Nýtt slátur og
dilkakjöt
fæst á morguu (fimtudag)
„Isbjömmn1* víö skoth.veg.
8imi S59,
Ef yis.lx.ur
vantar vöruflutningabiiieið i
ferðalög eða innanbæjarvinnu,
þá t&liö fyrst við mig, Kristján
Jóhann88on,Þórsgötu2l, sími 518.
O dýrt
má það ni kallast að ferðast,
ef þér notið bifreiðina R. E. 216.
Bringið i síma 728 eða komið á
Laugaveg 22 A.
STELLA «9
„Aldrei, nei, aldrei,“ greip hún fram í fyrir
honurn.
Hann hörfaði undan og studdi annari hendinni
á stólbakið. „Munið!“ sagði hann. „Með þessum
orðum kveðið þér upp dóm yfir þessum dreng;
með þessum orðum látið þér sverðið falla, og þér
leiðið gamlan mann með harmi og svívirðingu til
grafar!“
Hún fleygði sér á gólfið, náföl og trtrandi, rétti
fram báðar hendur og leit til hans bænaraugum.
Hann horfði á hana skjálfandi hjarta og varirnav
tÍtruðu. pví næst tók hann hendi til bjöllu, sem
var á borðinu.
„Ef eg hringi þessari bjöllu, þá geri eg það til
þess að kalla hingað lögregluþjón, sem fer með
drenginn í fangelsi fyrir fölsun. Honum verður ekki
unt að sleppa; sakirnar eru svo óhrekjandi “
„Hægan!“ sagði Stella og stóð upp og gekk
til hans. „Hringið ekki!“
Hann slepti af bjöllunni og horfði hugfanginn
og athugull á hana. „pér — þér failist á það?“
spurði hann hásum rómi.“
„Segið mér,“ sagði hún lágt, og hægt, „segið
mér alt, alt, sem eg verð að gera, til þess að
frelsa hann.“
Angist hennar rann honum til rifja, en hann
sýndist rólegur og óhrærður. „pað er fljótsagt,“
mælti hann. „pér segið við mig: .Jasper, eg ætla
að verða konan yðar!‘ Eg heiti því í móti, að af-
henda yður á brúðkaupsdegi okkar, þetta blað,
— sem forlög hans velta á. pegar það hefir verið
ónýtt, þá er hann allra sinna ferða frjáls.“
„Eg ætla að gera það,“ sagði hún ósjálfrátt.
Hann setti dreyrrauðan. „Stella! Stella mín!“
kallaði hann upp yfir sig.
Hún leit á hann. „Snertið mig ekki,“ sagði hún,
„annars, — annars get eg ekki borið ábyrgð gerða
minna.“
„Eg — eg er ánægður!" svaraði hann. „Eg
treysti loforði yðar. Eg treysti yður ofvel til þess,
að eg láti mér til hugar koma, að þér bregðið
því. A sínum tíma — jæja, eg ætla ekki að segja
fleira.“
Síðan gekk hann að borðinu og hringdi bjöll-
unni. í sama bili opnuðust dyrnar og inn kom
Scrivell og Frank á hæla honum, og hratt hann
Scrivell úr vegi og hljóp fram fyrir Jasper, orðlaus
af reiði.
„Hvernig stendur á þessu?“ spurði hann stam-
andi. „Hvað eigið þér við, herra Adelstone? —
Hvers vegna beitið þér þessum svívirðingum ? Vit-
ið þér, að eg hefi verið hér í varðhaldi —“
Jasper greip rólega fram í fyrir honum, brosti
blíðlega og mælti stillilega. „pér eruð ekki fangi
lengur, kæri Frank minn!“
„Hvernig dirfist þér að gera þetta?“ hrópaði
drengurinn upp yfir sig, hamslaus af reiði og reiddi
stafinn til höggs, og hefði hann fallið þvert yfir
£ er full-prentuð i bi&ðinu
laust eftir mán&ðamótin
næstu, og fæst þá eér-
prentuð, Stærð á 4. hundr-
að bls. í sama broti og
tyrri sögurnar. t’arð til næstkomandi október
gegn pönt-
uu kr. 4,00
Fæ»t eftir
það 1 bóka-
versl á kr
5,00 Send-
ið pöntauir
yðar á afgt
Vísis
Afgreiftsla Vísis, Reykjavík
Glerið svo vel að senda mór
eint, af sögunni „Stellau
Nafn .........................
Heimili ...........
andlit Jasper, e fStella hefði ekki hlaupið í millí,
því að hann bar ekki hönd fyrir höfuð sér.
„Frank," sagði hún stynjandi, með grátstaf í
kverkunum, „þú — þú mátt þetta ekki. HlustaSu
á mig. Hann — herra Adelstone — hafði, —
hafði á réttu að standa. Hann hefír gert alt, eins
og okkur — var fyrir bestu. Við, Verðum að
hverfa heim aftur.“
„Hverfa aftur?“ Ekki til Leycesters?“ spurði
hann forviða. „Veistu, hvað þú ert að segja?“
Stella brosti og brosið var átakanlegra en nokk-
ur tár. „Já, eg veit það. Sýndu mér meðaumkun,
Frank.“
f
t