Vísir - 21.10.1921, Blaðsíða 2
b*8fM
Uðfum fyrirligg|&fidi:
0 M A-ss|irltki
K«kkepi|e palsii
Símskeyti
fr| fréttoritara Yial&
V Khöfn 18. okt.
Bœndakúgun bohhvík'mga.
Frá Riga er símað, að ráðstjórn-
in rússneska hafi lagt svo nefndan
vinnuskatt á alla bændur, vegna þess
hve tregir þeir hafa verið til þess
að inna af hendi afurðaskattinn, sem
þeim var áður gert að greiða —•
Vinnuskatturinn er ákveðinn J?ann-
ig, að hver bóndi á að vinna 100
dagsverk í þágu ríkisins á ári
Bœjarstjórnarl(osnirgar í Berlín.
Jafnaðarmenn í minni hlula.
Frá Berlín er símað, að við ný-
afstaðnar bæjarstjórnarkosningar
J?ar, hafi jafnaðarmenn orðið í
minni hluta, 842000 atkv. greidd
með borgarafiokknum en ekki nema
815000 með jafnaðarmönnum. —■
F'ylgi þjóðernisflokksins (afturhalds-
manna) hefir vaxið ákaflega, eða
um 80% frá J?ví við síðustu kosn-
ingar.
Verðbréf öll hafa hœkkað af-
skaplega í verði í kauphöllinni, sum
um 1000%, en samtímis hefir marks
gengið fallið gífurlega og er það nú
2,90 (danskar krónur fyrir 100
mörk).
pjáSverjar flýja úr Efri-Sléstu.
Frá Berlín er símað, að þýskir
íbúar Efri-Slésíu flýi þaðan þús-
undum saman, J?rátt fyrir margvís-
Segar tilraunir alj;jóðanefndarinnav
til að stöðva }?ann flótta. (Ástæð-
an vitanlega ákvörðun pjóðbanda-
lagsins um skiftingu landsins milli
Póllands og pýskalands).
Khöfn 19. okt.
Úlsterbúar vígbúast.
Frá London er símað, að Ulster-
}>ingið hafi samþykt að vígbúa á
ný sjálfboðaliðsher sinn, sakir fjand-
skaparsniðs þess, sem Sinn-Feinar
sífelt hafi á sér.
Sk'ifting Efri-Slésíu.
Reuters-fréttastofa tilkynnir, að
allar stjórnir bandamanna hafi sam-
};ykt tillögur pjóðbandalagsins um
skifting Efri-Slésíu án nokkurs fyrir-
vara. Enn er óráðið til lykta ýms-
um fjárhags- og fyrirkomulags-at-
riðum.
Ludvig Bcyernskcnungur dauður.
vig fyrv. konungur í Bayern, hafi
látist í gær.
Khöfn 21. okt.
Pólverjar ráðast inn í Efri-Slésíu. i
Frá Berlín er símað, að pólskar 1
hersveitir hafi r§ðist inn í Efri- f
Slésíu, en verið hraktar þaðan aftur
með handsprengjum og vélbyssum.
Pólska stjórnin hefir fullvissað
bandamenn um, að hún vilji fús-
lega styðja að framkvæmd skift-
ingarinnar. Ákvörðun pjóðbanda-
lagsins um landamærin var birt í
Berlín og Varsjá í dag, og á
landamæranefndin þýsk-pólska J?eg •
ar að taka til starfa við merkja-
setninguna.
Bylting t Portúgal.
Frá Lissabon er símað, að her-
mannabylting hafi orðið í Portúgal
og tekist að óskum, gamla ráðu-
neytið sagt af sér og uppreisnar-
foringinn, Manuele Opelle, mynd-
að nýtt ráðuneyti.
pó að ekki hafi enn verið birtar
tillögur pjóðbandalags-ráðins, um
skiftingu Efri-Slésíu, má telja það
víst, að lausafregnir þær, sem um
þær hafa borist, séu réttar. Hefir
því máli þá lokið á alt annan veg
en búist var við, og hafa Bretar
af því hina mestu hneysu.
pað var af því látið, hve „borg-
inmannlega“ enski forsætisráðherr-
ann hefði borið sig í þessu máli á
ráðstefnu „æðsta -ráðs“ banda-
manna í sumar. Hann hafði barið
þar í borðið og lýst því yfir af
miklum móði, að „breska alríkið"
væri með öllu ófáanlegt til þess, að
styðja bandamenn sína (Frakka)
að því að fremja rangindi. Og fyr-
ir þessa skörulegu frammistöðu sína
hlaut hann almanna lof, utan Pól-
lands og Frakklands, og ekki síst
heima á Englandi, að því er sagt
var. — En skörungsskapurinn sá
varð heldur endasleppur. Fyrst strik-
aði hann undir stóru orðin með
því að Peggja það til, að málið
yrði lagt undir úrskurð pjóðbanda-
lagsins. pað var samþykt, og með
því er lokið opinberum afskiftum
hans af málinu. En ekki öllum af-
skiftum. — pegar málið kom til
kasta pjóðbandalagsins, var það
i falið Kínverja, Japana, Spánverja,
Belgíu- og Brazilíu-manni, að gera
Frá Munchen er símað, að Lud- út um það! pað átti að vera svo
ros*
Adeius ílokitd vörar.
6!-' - 223^153
EITT HERBERGI og ELDHÚS
til leigu fyrir hreirilega og reglu-
sama konu, sem vill taka að sér
matreiðslu fyrir 1 mann.
Tilboð merkt „33“ sendist af-
gr. Vísis í'yrir 23. þ. m.
fádæma hlutlaus gerðardómur. —
Kína, Japan og Brazílía! Er það
ekki dásamlegt? — Vitanlega var
þess varla að vænta, að Kínverj-
inn, Japaninn og Brazilíu-maðurinn
væru eins nákunnugir staðháttum í
Efri-Slésíu, eins og æskilegt hefði
verið, en hlutleysið var alveg óyggj-
andi, því að vitanlega gat lekki
komið til mála, að þessir menn
kynnu neitt til ,,hrossakaupa“. Og
svo voru þeir svo vænir, Bretinr.
Balfour og Frakkinn Briand, að
hjálpa þeim til, með því að ræða
málið rækilega „sín á milli“. Er svo
sagt í fregnum frá pjóðbandalags-
þinginu, að þeir Briand og Bal-
four hafi verið mjög svo önnum
kafnir, við að ræða mál þetta „sín á
milli.“ Og væntanlega hafa tillög-
ur þeirra „gulu“ og Brazilíumanns-
ins ekki komið alveg „flatt upp á“
Briand, þegar þær að lokum voru
sendar innsiglaðar með hraðboða til
hans til Parísar, eins og sagt var f
skeytinu á dögunum. Og ekki held-
ur ensku stjórninni.
Bretar og Frakkar hafa með öðr-
um orðum ráðið málinu til Iykta
„sín á milli“ með einhvers konar
hrossakaupum, og Lloyd George
hefir alveg „strikað yfii' stóru orð-
in“ frá í ágúst. Og niðurstaðan hef-
ir orðið sú, að skifting Efri-Slésíu
er þannig ákveðin, að það er jafn-
hliða viðurkent, að hún sé í raun
og veru óframkvæmanleg, og þess
vegna verði fyrst um sinn, um 15
ára skeið, að hafa sérstaka fjár-
hagsstjórn yfir nokkrum hluta hins
skifta lands, yfir þýskum landshluta
og pólskum landshluta! ,
pað er og sagt, að þessi niður-
staða pjóðbandalagsins mælist ná-
lega hvarvetna illa fyrir, og er auð-
sætt, að réttur pjóðverja hefir mjög
verið fyrir borð borinn.
Til Hafnarfjai’ðar fara
bifreiðar alla daga oft á
dag. Einnig til Vífilsstaða,
frá bifreiðastöð Sleindórs
Einarssonar. Siniar 581 og
838. J^ægilegar og vissar
fei’ðir.
„SANITAS"
sætsaftir eru gerðar úr berf-
um og sglcri eins og b es tu.
úllendar saftir. — Þær eru
Ijúffengar, þyldcar og lita vel.
Simi 190.
I. O. O. F. 10310218J/2.
Fertugsafmœli
á í dag síra Bjarni Jónsson.
Messað
verður í fríkirkjunni hér kl. 2 á
sunnudaginn. Prófessor Haraldur
Níelsson prédikar.
Veðrið t morgun.
Frost í Rvík 6 st., Vestm.eyjum
2, Grindavík 5, Stykkishólmi I,
ísafirði 2, Akureyri 3, Grímsstöð-
um 7, en hiti á Raufarhöfn 2, Seyð-
isfirði 0, (engin skeyti úr Horua-
firði), pórshöfn í Færeyjurn 2. —■
Loftvog lægst fyrir austan land,
stígandi. Norðlæg átt. Horfur: Kyrt
veður.
Gullfoss
kom að vestan fyrir hádegi í
morgun. Meðal farþega var Sig.
Sigurðsson, cand. jur., frá Vigur„
sem ráðinn er fulltrúi í stjómar-
ráðinu. — Gullfoss fer héðan á
sunnudaginn.
Fundir.
Vélstjórafélagið heldur fund kt
7 í kvöld í Nýja Bíó, uþpi. —
Stýrimannafélagið „Ægir“ á morg-
un kl. 4 í húsi K. F. U. M.