Vísir - 18.01.1922, Side 2

Vísir - 18.01.1922, Side 2
v i M 1» Höfmn fyrirliggjandi: .Z“ gerduft, F’loryiin þnrger, Rásinur, STeskjur, heiiaa Kanel, Stearin k.erti, Eimskipafélagið átta ára. Eimskipáfélag tslands var átta ára í gær. pað var stofnað 17. janúar 1914 og hefir þess dags oft verið minst síðan, bæði í ræðu og rili og kallaður ham- ingjudagnr þessa lands. Aldrei hafa íslendingar ráðist í stærra fyrirtæki en stofnun Eimskipa- félagsins, aidrei unnið af jafn- uaiklu kappi eða þvílíkri ein- dyægni að nokkrum félagsskap og ef til vill aldrei fest meiri vonir við nokkurt fyrirtæki. En hvert gagn hefir þá orðið að þessum félagsskap og hvern- ig hafa þær vonir raist, sem bundnai’ voru við stofnun fé- lagsins? Hagurinn hefir verið bæði beinn og óbeinn og í raun og veru ómetanlegur. Iiinn beini hagur er fyrst og fi-emst gróði félagsins eða hluthafanna xmd- anfarin uppgangsár og sú mikla atvinna, sem félagið hefir veitt og veitir og er sérstaklega mik- ilsverð nú í deyfð þeim og at- vinnuleysi, sem hvervetna rík- ir. Félagið h’efir nú í sinni þjón- ustu um 200 fasta menn, á skip- unum og í landi, sem það sér fyrír daglegri atvinnu og eru margir þeirra fjölskyldumenn, sem eiga fyrir mörgum að sjá. Auk þess veitir félagið mikla at- vinnu við ferming skipa og af- fermingu, bæði hér og víðsveg- ar um land og greiddi til dæm- is i vinnulaun hér í bænum 123 þúsundir króna árið sem leið og til skijjshafnarinnar á einu skip- inu (Gullfossi) voru greiddar 173 þúsundir króna árið sem leið, en þar í er talinn fæðis- kostnaður. Margt manna hafði atvinnu hjá félaginu hér í bæn- um, meðan það var að reisa hið mikla hús sitt og kom það sér mjög vel, auk þess sem bærinn , er þar ríkari að einu sínu stærsta og vandaðasta húsi. pá hefir fé- lagið greitt yfir 150 þúsundir króna í opinber gjöld, þ. e. i útsvar í Reykjavik og skatt til ríkissjóðs og auk þess mikil vinnulaun úti um land. petta er sá hagur, sem sýna má í tölum, en hitt verður aldrei metið, hvað landið hefir grætt á þvi, að félagið gat nokkrii ráðið um flutningsgjöld hingað til lands þau árin, sem erfiðast var að fá skip til nauðsynleg- ustu flutninga, þegar farmgjöld hækkuðu upp úr öllu valdi úti um allan heim. Miklu er þó erfiðara að meta það gagn, sem télagið hefir unn- ið sjálfstæði landsins þessi ár. pað hefir ekki að eins haldið up])i strandferðum hér við land, heldur tekið upp nýjar sam- gönguleiðir við umheiminn og gert ísland kunnugt bæði í Vest- urheimi og ýmsum slöðum í Európu, þar sem islensk skip höfðu aldrei áður komið og ís- land var rneð öllu óþekt. Og á öllum þessum stöðum hafa skip félagsins vakið athvgli og hlotið lofsamleg ummæli, — ekki fyrir stærðar sakir, sem að líkindum lætur, heldur vegna þess, hve snotur þau eru og vel hirt og vel við haldið. Og hvað eftir ann- að hafa Bandaríkjamenn dá- samað hugprýði islenskra sjó- manna, er þeir hafa séð þá koma um hávetur austan um haf á hinum litlu skipum, þegar mai’g- falt staérri skip hafa komisl í hann fullkrappan. Hvernig mundi hafa farið á styrjaldarárunum, ef félagið hefði ekkert skip átt og hvað mundi sjálfstæði landsins þá líða? Ætli landið hefði ekki stundmn orðið að sæta ærið þungum kjörum í skipaleigum, ef alt hefði verið undir högg að sækja hjá öðrum þjóðum? Og hvemig væri það jafnvel nú? Ætli mörg félög langi til að hætta skipum og mönnum i strandferðir austan lands og norðan unr þetta leyti árs? Ætli þau létu sig ekki litlu skifta, þó að þeim bærist skeyti frá ein- hverri útkjálka-höfn milli Horns og Langaness, sem ségði bjarg- arlaust og yfirvofandi neyð, ef ekkert skip kæmi ? Mundu nokkr- ir útlendingar telja sér skylt að hlaupa eftir slíkum beiðnum? En slíkar heiðnir berast Eim- skipafélaginu oft og iðulega og sinnir það þeim eftir bestu getu og liefir meira að segja — eitt ísavorið — Jagt skip i hættu til þcss. Ekki má gleyma því, að Eim- ski])afélagið hefir haft á hendi umsjón og afgreiðslu landssjóðs- slcipanna og sparað landssjóði bæði fé og fyrirhöfn með þvi starfi. En hvað er þá um vonirnar ;ið segja og framtíð félagsins? iershey’s átsúkkulaði oy Hersh ey’s coeoa í 1, Vs og V5 Ibs. dÓ3um, höfum viö fyrirliggjandi, Jóh. Olaísson & Co. S mar 584 & 884 Sínmehii „Juwel" Hei mstyrjöldin var ófyrirsjá- anleg þegar félagið var stofnað og engan óraði þá fyrir hinum miklu uppgangsárum félagsins, sem nú eru um garð gengin. Meðan alt lék í lyndi, félagið stórgræddi og hluthafar fengu , álitlegan ársarð, flaug vist sum- , um í hug, að svona mundi það l altaf verða. En þvi er ver, að , nú mega menn fara að búast við j „mögrum árum“, sem margir | óttuðusl í upphafi og héldu að mundu verða fyrstu ár félags- ins, meðan það væri að, byrja „búskapinn“. Nú er skipakost- urinn orðinn nógur úti um heim, fax-mgjöld stórlækkuð og svo dregur úr aðflutningi til lands- ins, að skipin fá ekki fullfermi og auk þess er félaginu mikill hnekkir að þeini örðugleikum, sem á þvi eru, að fá yfirfærða peninga til að greiða erlendar skuldir. Nú fer að reyna á þolrifin og samheldi félagsmanna. Nú verða menn að bera í brjósti sama hugarfar, eins og þegar félagið var stofnað. pá sagði einn maður, sem lagði mikið fé í félagið: „Eg geri það ekki til þess að græða á því. Mér er nóg ef félagið ber sig, þvi að óbeini gróðinn verður aftaf mikill og svo er þetta metnaðarmál, sem eg vil styðja eftir bestu getu.“ Svipað þessu hugsuðu víst flesl- ir þá. J?eim var stofnun félags- skaparins ekki gróðavon, fyrst og fremst, heldur metnaðarmál. Og ef mönnum var augljós nauðsyn félagsins fyrir átta ár- um, þá ætti liún elcki síður að vera það nú, eftir þá reynslu, sem fengin er. Allir landsmenn verða að vaka yfir heill Eim- skipafélagsins, verða að gera sér Ijóst, hve h'agur þess er nátengd- ur hag alls landsins og verða að styrkja það á allan hátt, og fyrst og fremst með því að nota ís- lensku skipin fremur en útlend til flutninga fjTÍr sig, jafnvel þó að svo væri, að örlítill stundar- hagnaðjar kynni að vera að því að skifta við aðra. Skip félagsins ganga nú eftir fastri áætlun, svo að menn geta I séð, hvenær þau eiga að ferma í hverjum stað, og ættu að haga pöntunum sínum svo, að þeir gætu sjálfir ákveðið fyrirfram, með hvaða ferð þeir fá vörur sínar. Sú trú er rík hér á landi, að Islendingar geti aldrei verið sammála um nokkurn hlut tS lengdar. Kn þá hjátrú lofuðu menn að kveða niður með stofn- im Eímskipafélagsins því að um félagið ætluðu þeir altaf að standa sem einn maður. Til þessa dags hefir það verið auð- velt, en búast má við, að meiri staðfestu þurfi til þess á næstu árum. Landsmenn lögðu mikiS í sölumar þegar Eimskipafé- lagið var stofnað og sú þjóðlega vakning og eindrægni, sem þá kom i ljós, má ekki dvína, þrí ; að hennar hefir ef til vill aldrei ! verið meiri þöi-f en nú. Símskeytf frá fréttaritara Vísis. Kaupmannahöfn, 17. jan. Nýja stjómin í Frakklandi. Símað er frá Paris: Poincaré er orðinn stjómarformaður og utanríkisráðherra, Rarthou dómsmálaráðherra og Reibel endurreisnarráðherra. Lloyd George hefir átt fund með Poin- caré og urðu viðræður þeirra hinar hjartanlegustu á báða bóga. Flest blöð hafa tekið nýju stjóminni forkunnar vel. Collins kosinn forseti Irlands. Símað er frá Dublin, að Col- lins hafi verið kosinn forseti fr- lands (í stað de Valera). Influensan magnast. Símað er frá London, áð in- fluensan geisi þar og fari vax- andi. Ekkert verður af kosning- um í febrúar. (pær höfðu verið ráðgerðar 14. eða 21. febrúar). I Stokkhólmi hefir helmingur borgarbúa tekið influensu. pýskalandi boðið til Genua- fundarins. Símað er frá Berlín, að ítalia hafi boðið pýskalándi til Genua- rg.ðstefnunnar 8. mars. pjóðverjum boðið að framselja hernaðarsakamenn undir dóm- stóla bandamanna. Vegna hinna mildu dóma, aem * þýskir dómstólar hafa kveðið upp yfir þeim, sem sakaðir voru um hernaðarglæpi, liefir fuli- trúanefnd bandamanna krafíst þess, að dómarnir verði ónýttir

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.