Vísir - 05.04.1922, Blaðsíða 2

Vísir - 05.04.1922, Blaðsíða 2
t' * yisir Höfum fyrirliggiandi: RAgmjöl HLa.fra.mi0l, MaiHmjöl, lioilan 8öda kryntall, Kex, Lncch og Snowílake, Strausykur aðeins lítið óselt. Cacoa frá, Bensdorph E?eiti vaitaalegt neð e s. Itlaadi Sfmskeyt! fri fréttaritara yísie. Kaupm.h. 4. april. Nýi ríkiserflngínn í Ung- verjalandi. Símað er frá Búda-Pest, að konungssinnar í Ungverjalandi hafi tekið til konungs Otto son Karls, hins nýlátna keisara (sem dó i útlegð í Madeira), en drotning móðir hans fer með völd meðan hann er ómyndugur. Stjórnin hefir látið gera strangar varúðarráð- stafanir (til þess að hinn ungi konungur nái ekki konungdómi). Lloyd Ueorge fær trausts- yfirlýsingu. Lloyd George helt ræðu í neðri málstofunni i gær og skýrði þar frá þeirri stefnu, sem hann ætlaði að halda fram í Rússlandsmálum á Genúa-ráestefnunni. Vildi hann viðurkenna Lenin stjórnina, ef hún héldi skilyrðislaust þau loforð, sem hún hefði gefið. Að lokinni ræðu hans var samþykt traustsyfirlýsing til hans með 372 atkv. gegn 94. Hergagna-flutningur. Skip hlaðið vopnum, sem fara átti frá London til Pireus, hefir verið stöðvað í Stafangri, en þangað höfðu skipverjar neytt skipstjórann til að halda, en sjálf- ur hafði hann ætlað að halda til Murmansk við Hvítahaf. Undirróður holsvíkinga í fýzkalandi. Blaðið Vorwarts fullyrðir, að ráðstjórnin i Moskva leggi komm- unistum á Þýzkalandi 5 miljónir marka á mánuði, til undirróðurs. Lenin ekki hættulega sjúkur. Prófessor Klemperer hefir mót- mælt þeim orðrómi, að Lenin hefði krabbamein. Segir að hann hafi að eins lagt of hart að sjer. Fulltrúar Rússa í Genúa. Simað er frá Berlín, að Genúa- fulltrúum Rússa sé veitt mikil eftirtekt i Berlín og búist menn við, að þýzka stjórnin muni bráð- tega viðurkenna Leninstjórnina. Hvort lieldar i x/i kössum, eða skorið eftir máli, er lang ódýr- ast i verslun undirritaðs. er væntan- legt fyrri hluta maím., sem selt verður með atar lágu verði. Pantið. — 20—30 tóm- ir stórir kassar undan rúöugleri fást með gjafverði i Versl. B. H. Bjarnason. Fulltrúar Rússa eru þessir: Tits- cherin, Litvinoff, Radek, .Toffe, Rakowsky, og Krassin. Poincaré fær traustsyiirlýsingu Símað er frá París, að fulltrúa- deildin hafi samþykt traustsyfir- lýsingu til Poincaré með 484 at- kv. gegn 78, er hann hafði lýst stefnu þeirri, sem hann ætlaði að halda fram í Genúa. (Svarræða Bjarna Jónssonar frá Vogi, við 3. umr. fjárlaga.) Niðurl. Hv. þm. N.-ísf. (S. St.) rang- færði orð þm. Dala. (B. J.) um alþýðumentun. Þetta sýnir hið ítrasta röksemdaþrot, þar sem maðurinn hefir áður lýst yfir því, að hann væri mér sammála um það mál. Annars munu menn vita, að eg hefi haldið því fram, að heimiliri mundu fær um að túlka börnun- um opinberun þess visdóms, að lesa, skrifa og reikna. Eg hélt því fram, að eg vildi fá miklu meiri fræðslu í landinu. Til þess vildi eg láta stofna i ung- lingaskóla eða alþýðuskóla í hverri sýslu. Þetta sýnir enn hversu þessi þm. leyfir sér að fara á hundavaði yfir allar röksemdir, og hirðir þá eigi meira um sannleikann eða sinn eigin sóma en það, að hann lætur sér sæma, að segja það sem deildin öll gæti vottað að er rangt. Loks gat hann þess að niðurlagi, að hann gæfi ekki 2 aura fyrir. fullveldiö (! ?). Hann hefir nú áð- ur reiknað út,.að fullveldið hafi ,kostað landið 200.000 kr. og taldi þær þá eftir. Hefði hann því get- laö sparað sér þessa yfirlýsingu, þvi ölíum þingmönnum er kunn- ugt um að hann hefir margsinnis svikið þann málstað. Það er ann- ars gaman að rifja upp nú hve mikið kapp hann lagði á það, að fjölga embættismönnum, læknum og prestum. Hvar ? — í sínu eigin kjördæmi. Þá var ekki* talað um sparnað, þá var ekkert til sem væri léttlátara eða betra en fá lækni og prest í Bolungarvík. Og þá brá svo við, að sólroði færðist á hið geistlega andlit hans, þegar talað var um að ausa ýt fé úr ríkissjóði i Hesteyrarsímann. En hvar er svo Hesteyri og þessi sími, sem svo nauðsynlegt er að leggja? Mundi hann ekki vera vestur á Ströndum, eða einhversstaðar nærri þm. N.- ísf. (S. St.)? Svo var að minsta kosti að skilja á þakkarávarpi þm til hæstv. atv.málaráðh. (Kl. J.). En eg vil ekki skilja við þennan höfuðpaura sparnaðarnefndarinn- ar, án þess að minna á, ab hann muni segja eins og Skuggasveinn: „Lofið honum aumingja Katli að fylgjast með“. Og er eg þá kom- in að hv. 1. þm. Eyf. (St. St.) sem þó sérstaklega virðist á þing send- ur vegna Ólafsfirðinga. Það er ekki ósennilegt að honum takist að nurla saman í Ólafsfjarðarbryggj- una, ef hann fylgir uppteknum hætti, að drepa alt, sem ekki snert- ir hans kjördæmi að einhverju leyti. Slíkir menn sem hann, eru sparnaðarhugsjón sparnaðarnefnd- ar trúir, og ekki er nema von þó að þeir ætlist til, að aðrir láti alt af höndum, jafnvel atvinnu og lifsuppeldi til þess að sparnaðar- menn geti gengið í landssjóðinn og tekið sem þá lystir handa sér og sínum kjördæmum. Eg hefi þá lofað veslings Katli að fylgjast með, og svarað þess- um hv. herrum. Skal eg því ekki frekar lengja umræður úr því hv. þingmenn hafa látið sér sæma að skera þær niður. Að þeir hafa gripið til þess, hlýtur að byggjast á þvi, að sumir áliti sig sitja hér til skaða fjárhag landsins. Þeir um það, en eg mótmæli því fyrir sjálfan mig og svo munu fleiri gera; en það er altaf hægt að svíkjast að mönnum og skera nið. ur umr. að þeim forspurðum. Og vil eg þá bæta við frá sjálfum mér, að slíkt ætti hvergi að koma fyr- ir, að skornar væru niður umræð- ur um fjárlög. Frá Alþingi. Nýtt viðskiftahaftafrumvarp er fram komið í n. d., flutt af minni hluta viðskiftamálanefndar þingsins (framsöóknarmönnum) og er það á þessa leiö: 1. gr. Ríkisstjórninni veitist heimild til með reglugerðum að banna innflutning til landsins á hverjum þeim vörutegundum, er hún telur ónauðsynlegar eða næg- ar birgðir af í landinu. SömuleiðÍR veitist ríkisstjórninni lieimild -fíl að hafa umsjón með erlendtu* gjaldeyri í eigu landsmanna og með gjaldeyri fyrir útfluttar af- urðir og ef nauðsyn krefur að ráð- stafa slíkum gjaldeyri. 2. gr. Þegar ákvæði 1. gr. koma til framkvæmda, skal skipuð 3ja manna nefnd til að hafa á hencK framkvæmd innflutningshaftanna og ákveða útsöluverð innanlancfe á liinum bönnuðu vörutegundura, er til eru í landinu og hafðar t& sölu, og skal meginregla sú, að út- söluverð sé eigi hærra en það var, er baímið gekk í gildi. Sama nefnd hefir með höndum umsjón gjald- eyris og ráðstafanir viðvíkjandi honum. Nefnd þessi skal skipuS þannig, að Verslunarráð Islands tilnefnir einn mann, Samband ísl. samvinnufélaga annan, en ráðu- neytið hinn þriðja, og er hann for- maður nefndarinnar. Ráðuneytið getur skipað einn mann frá hvor- um bankanna til viðbótar nefnd- inni, þegar um ráðstafanir erlends gjaldeyris er að ræða. 3. gr. Ríkisstjórninni heimilast að taka nauðsynleg lán í þarfir rikisins. 4. gr. í reglugerð skal ákveðið nánar *um framkvæmd laga þess- ara og má þar tiltaka sektir fyrir brot á þeim eða reglugerð, 1000— 50000 krónur. Um meðferð mála út af þeim brotum fer sem um al- menn lögreglumál. 5- gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi lög nr. 1, 8. mars .1920, og lög nr. 76, 27. júní 1921. Á s t æ ð u r: Undanfarið hefir gengi íslenskrar krónu sífelt fari# lækkandi, og er vafalaust ein or sökin of mikill og óþarfur inn- flutningur til landsins hin síðustu missiri, sem og það, að í sambandS við þennan óþarfa innflutning hafa myndast skuldir, meira en góðu hófi gegna, við erlenda lánar- drotna. Innflutningshöft þau, er nú gilda, hafa litlu orkað um tak- mörkun innflutnings, enda hvorki nógu víðtæk, né heldur fram- kvæmd með þeim einbeittleik, að dregið hafi að nokkru ráði úr inn- flutningnum. Jöfnuður viðskifta og gengis verður eigi fenginn nema ástand- ið breytist, og er sú breyting að sjálfsögðu háð ýmsum ósjálfráð- um atvikum, svo sem góðu árferífi og arðvænlegum vertiðum, en er annars vegar komin undir hald- kvæmum viðskiftaráðstöfunum, og eru þær því nauðsynlegri, sem him ósjálfráðu atvik reynast óhagfeld- ari. Fyrir því teljum vér óhjákvæmi- legt að veita ríkisstjórninni þí heimild til að gera viðskiftaráð- stafanir, sem atvikin gefa tilefrn til, og hafa þá heimild svo rúm* um takmörkun innflutnings ög ráðstöfun útlends gjaldeyris, afi fult gagn megi að verða, enda þóff viðskiftaerfiðleikarnir aukist 1x6 því sem nú er.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.