Vísir - 08.05.1922, Page 2
V I s I R
)
99
Leo 33”
er nú aftur fyrirliggjandi.
Góður, ódýr matur:
Nautakjöt, soöið, í x kg\ dósum, á
kr.,3-75-
Náutakjöt, steikt, í i kg. dósum, á
kr. 3.85.1
Kindakjöt, steikt, í % kg. dósum,
Kæfa, afar ljúffeng. Fiskadellur og
Fiskabollur, stórar dósir, kr. 3.10
Verslun B. H. Bjarnason.
ímskeyti
frá fréttaritara Vísis.
Khöfn, 7. maí.
Zita keisaraekkja.
Frá London er sírna'S, aö Alfons
Spánarkonungur hafi boðiö Zitu
keisaraekkju frá Austurríki dval-
arsta'ð, en anpar þjóöhöfðingi í
Norðurálfu (Bretakonungnr ?)
hafi veitt henni fjárhagslega að-
stot5.
Samningar og deilur stórþjóðanna,
Frá París er símað, aS breskt
steinolíufélag, „Shell-félagið", hafi
fengið einkarétt til að starfrækja
allar olíulindir Rússa. Það fylgir
fregn þessari, á'S Belgía telji þetta
ósamrýmanlegt sínum hagsmun-
um og hafi því neita'ö að undir-
skrifa hiö sameiginlega ávarp
bandamanna til Rússa, sem samið
var á Genúaráöstefnunni. Fullyrt
er, a'S Bandaríkin muni hallast á
sveif meö Belgíu, sem og Frakk-
land.
Mjög ákveðnar sagnir ganga um
það i Berlín, að þeir Lloyd George
og Wirth ríkiskanslari hafi sín á
milli gert samninga um fjárhags-
viðskifti Breta og Þjóðverja.
Spánarsamningar Norðmanna.
. í „Vísi“, 6. apríl var sagt frá
því, að sú fregn hefði borist hing-
að í einkaskeyti, að „norska þing-
ið hafi samþykt með 4 atvæða
meiri hluta, að slaka í engu til við
Spánverja".
Aðalræðismanni Norðmanna hér
hefir nú borist símskeyti frá utan-
ríkisráðaneytinu riorska, á þá íeið,
að fregn þessi sé ekki á rökum
bygð. — Einkaskeyti það, sem hér i
um ræðir, var frá Kaupmannahöfn |
og til kaupsýslumanns hér í bæn- í
um; er vafalaust um einhvern mis- i
sfcilning að ræða á einhverri at- :
kvæðagreiðslu Stórþingsins.
Fjárhagurian.
Það virðist vera að koma betur
og betur í ljós, að í raun og veru
hafi fjárhag vorum aldrei verið
svo illa komið ‘ undanfarin ár, að
það hefði átt að geta valdið þeirri
„viðskiftakreppu", i viðskiftum
við önnur lönd, sem vér höfum
þó átt við að búa. Þetta sést ljós-
lega af niðurstöðu verslunar-
skýrslnanna Tyrir árið 1919, sem
birt var hér í blaðinu á föstudag-
inn, eftir Hagtíðindunum.
Niðurstaðan var sú, að verðmæti
útfluttra afurða landsins á því ári
hafi numið 13 .milj. kr. meira en
verðmæti aðfl. vara. A því ári
var að vísu flutt út eitthvað tals-
vert af afurðum næstu ára á und-
an, sem þegar voru seldar og a-nd-
virðið greitt fyrirfram. ’Næstu tvö
ár á undan hafði kafbátahernað-
urinn tálmaö mjög útflutriingnum,
enda var vöruinnflutningur á þeim
árum, samkvæmt verslunarskýrsl-
unum, viðlíka miklu meiri en út-
flutningurinn eins og útflutningur
var meiri en innflutn. á árinu 19x9.
En öll þrjú árin, 1917—'19, hefir
út- og innflutningur staðið svo að
segja í járnurn.
Hvað er það þá, sem valdið hefir
viðskiftakreppunni ? Að útfluttar
afurðir ársins 1919 hafi selst eitt-
hvað lægra verði en talið er i
verslunarskýrslunum, og eitthvað
alls ekki selst ? Vísir hefir spurst
fyrir um þetta hjá hagstofunni, en
svarið er á þá leið, að þetta sé
ekki liklegt; að minsta kosti sé
ólíklegt, að söíuverðið ’hafi yfirleitt
orðið til muna lægra en verslunar-
skýrslurnar telja, því að skýrslurn-
ar hafi verið gefnar svo löngu eftir
á, að sala hefði átt að vera um
garð gengin. Og fullyrt er, að í
skýrslunum sé yfirleitt ekki talin
síldin frá árinu 1919, sem hrapal-
legast tókst til um söluna á; sú
síld, sem skýrslurnar telja útflutta
þetta ár, er mestmegnis frá næsta
ári á utidan (1918), og var öll seld
fullu verði.
Það er sennilegt, að eitthvað af
fiski, sem se'ndur var til Spánar í
umboðssölu, hafi selst eitthvað
lægra verði en talið er í skýrslun-
um. (Eitthvað af honurn ef til vill
ekki selst ?) En þá ber þess að
gæta, að árin fyrir 1917, sérstak-
lega árin 1915—16, hafði útflutn-
ingurinn numið talsvert tneira en
innflutningurinn. Landið átti að
eiga, og átti áreiðanlega talsverða
fúlgu inni' erlendis effir þau ár.
Enda kunnugt, að jafnvel í árslok
1918 áttu bankarnir allmikið fé
inni í erlendum bönkurn. Það átti
því að vera talsvert „upp á að
hlaupa“. Og niðurstaðan af þessu
virðist híjóta að verða sú, að við-
skiftakreppa undanfarinna ára
hafi stafað nær eingöngu af því,
hvað afurðir landsins 1919 og ’20
seldust seint, en ekki svo rnjög af
því, að minna hafi verið aflað en
eytt. — Eða þá að verslunarskýrsl-
urnar eru algerlega óábyggilegar.
Sterlmg;
næst ekki á flot.
Á laugardaginn barst Trolle &
Rothe svolátandi símskeyti frá
Seyðisfirði:
„Geir hættur við björgun.
Kafarinn segir, að botninn í
stórlestinni sé algerlega eyði-
lagður."
Farþegaflutningur mun allur
hafa bjargast úr skipinu og um
15 smálestir af farmi þess, en
giskað á, að 60 til 65 snxálestir af
ýmiskonar vörum muni enn í skip-
inu og næst sennilega lítið eða
ekkert af því úr þessu.
fflareooi-firStal.
Neðanskráð bréf er þýtt úi
Manchester Guardiaix og er frá
fréttaritara blaðsins í Lundún-
um:
Hr. Godfrey Isaacs, ráðsmað-
ur Marconi-félagsins, hefir sagl
mér, að félag hans hafi nú með
höndum stórfeldar ráðagerðir til
þess að útbreiða notkun firðtals
í Englandi.
Alt til þessa hefir einstökum
mönnum nálega verið vamað
þess að eignast móttöku tæki
Marconi firðtals, vegna þess að
póststjómin hefir haldið fast við
gamla venju um veitingu slíkra
leyía. En hr. Isaacs fullyrðir, að
póststjórnin sé nú að því kom-
in, að breyta um stefnu i mál-
inu og ætli framvegis að greiða
sem mest fyrir útbreiðslu Mar-
coni-firðtals. Er búst við, að til-
kynning um þetta efni verði
hirt, þegar þing kemur næst
saman.
þegar þær hömlur, sem nú
eru, verða afnumdar eða úr
þeini dregið, þá mun ekkerl
tálma stórmikilli útbreiðslu. —
Ráðagei-ðir Marconi-félagsins
eru ekki fullgerðar en mér skilst,
áf orðum hr. Isaacs, að félagið
ætli að setja á stofn miðstöð, er
senoi öllum ,,áskrifendum“ orð-
sendingar á tilteknum tímum
dags. —. Móttökutæki félagsins
verða leigð fyrir gjald, er senni-
lega fer ekki fram úr venjulegu
símagjaldi.
Félagið er við því búið, að láta
smiða miljónir þessara móttölcu-
tækja, sem svo eru úr garði gerði
að hvert flón á að geta hand-
leikið þau, sér að skaðlausu, og
án þess að þau skemmist.
Félagið hefir um langan ald-
ur látið gera tilraunir til undir-
Ininings þessu fyiirtæki, og hef-
ir nú alt til taks, sem til þarf, en
hér verður að eins um móttöku-
tæki að ræða; notendur geta
ekki sent skeyti frá sér.
Hr. lsaacs taldi engum efa
undirorpið, að móttökutæki
þessi yrðu bráðlega notuð, bæði
í heimahúsum og skrifstofum.
Hann sagði, að eigendur slíkra
tækja gætu setið heima hjá sér
og lilustað á stjórnmálaræður
leikrit og samsöngva. Tækin
verða lítil og svo létt, að þau
má hæglega hera úr einni stofu
í aðra.
Hr. Isaacs drap á þá afarmiklu
útbreiðslu, sem tæki þessi hefði
náð í Bandaríkjunum. pau eru
nú í þúsundum húsa viðsvegar
um landið og allskonar orðsend-
ingar herast daglega inn á hvert
heimili. Jafnvel markaðsverð er
tilkynt um land alt með þess-
um tækjnm.
Dánarfregnir.
í nótt andaðist hér i bænum frú
Jóhanna Bjarnadóttir, kona Lud-
vigs kaupmanns Hafliðasonar, en
systír Þórðar kaupmanns Bjarna-
sonar og þeirra systkina.
Látinn er 5. þ. m. Jón Einarsson,
dannebrogsmaður í Hemru í Skaft-
ártungu. Hann var bróðir síra
Bjarna Einarssonar, fyrrum prests
á Mýrum.
Veðrið í morgun.
Reykjavík o st„ Vestmannaeyj-
um 1, Grinckvík 1, Stykkishólrpi
1, ísafirði o, Akureyri -4- 3, Grims-
stöðum -f- 8, Raufarhöfn -4- 4,
Seyðisfirði 4-1, Hólum í Horna-
firði 1, Þórshöfn i Færeyjum 7,
Kaupmh. 7, Bergen 7, Tynemouth
(Englandi) 13, Leirvík (Hjalt-
landi) 8, Jan. Mayen 4- 5 st. Loft-
vog lægst fyrir austan Jan Mayen,
norðlæg átt, allhvöss á Austur-
landi. Horfur: Sarna vindstáða;
kyrrara veður.
Minningarhátíð
heilagrar Jeanne d’Arc halda
Frakkar hér i dag.
Skipafregnir:
Sirius kom frá Noregi í morg-
un. Meðal farþega var Smith,
símaverkfræðingur.
ísland er væntanlegt hingað í
nótt.
Gullfoss er að koma til Leith.
Lagarfoss er að koma til Grims-
by ; telcur þar kolafarm til Austur-
landsins.
Björgunarskipið „Geir“ fer til
Kaupmannahafnar, beina leið. frá
Seyðisfirði. Skipshöfnin af „Ster-
ling“ kemur því ekki hingað fyrr