Vísir - 29.05.1922, Qupperneq 1
Rkstjóri og eigandí
JAKOB IÖLLER
Simá 117.
AígreiÖsla í
AÐALSTRÆTI 9B
Sími 400
Landskjörið.
Laugardagúnn 8. júlí eiga a'5
iara fram kosningar á þrem land-
kjömum þingmönnum. Veröa þeir
kosnir til 8 ára. Jafnframt veröa
kosnir þrír varaþingmenn. í kjöri
vertSa 5 listar, og eru þessir efstu
menn þeirra: Á A-lista Þorvarö-
ur Þorvarösson, á B-lista Jónas
Jónsson, á C-lista Ingibjörg H.
Bjarnason, á D-lista Jón Magnús-
son, á E-lista síra Magnús Bl,
Jónsson.
E-listinn er listi sjálfstæ'öis-
manna, og eru á honum þessir
menn:
1. Síra Magnús Bl. Jónsson, prest-
ur í Vallanesi.
2. Þórarinn Kristjánsson, hafnar-
stjóri í Reykjavík.
3. Sigur'öur Sigurðsson, lyfsali,
Vestmannaeyjum.
4. Siguröur E. Hlíðar, dýralækn-
ir, Akureyri.
5. Sira Eiríkur Stefánsson, Torfa-
stö'öum.
í>. Einar G. Einarsson, útgeröar-
maöur i Garöhúsum.
Vísir átti nokkurn þátt í því, aö
þessi listi kom fram, og þorir ó-
hikaö aö mæla hið besta meö hon-
um.
Efsti maðurinn á listanuni, síra
Magnús Bl. Jónsson í Vallan'esi, er
þjóðkunnur dugnaðarmaður. Hann
hefir aldrei setiö á þingi og lítil
afskifti haft af stjórnmálum. Þó
-er vafasamt, aö unt hefði verið aö
fá annan mann, sem líklegri væri
iil að vinna sér alment traust
landsmanna, sem þingman'nsefni.
Nú er mest um fjármálin talað hér
á landi, eins og víðar, utan þings
og innan. En allir, sem nokku'ö
þekkja til síra Magnúsar, vita, að
hann er afburðamaður á því sviði.
Jíann er nákunnugur báðum aðal-
atvinnuvegum landsmanna Sjálf-
ur hefir hann rekið landbúskap,
frá þvi hann varð -prestur, og af
svo miklum dugnaði, að sem bóndi
er hann í fremstú röð. En síðari
árin hefir hann einnig fengist við
fiskiútgerö og er nú í stjórn,eins
togarafélagsins hér i Reykjayík og
nýtur þar hins mesta trausts. Var
4. d. i vetur kosinn í nefnd útgerð-
armanna, einn af þrem. til að
semja um viðskifti við bankana.
Er því við brugðið, hve fljótur
hann hafi verið að átta sig á öll-
um útgéröarmájunum, er hann fór
að fást við þau, í fyrstu vitanlega
þeim hnútum alókunnugur. — Því
má hér við bæta, að eitt mesta
þjóðþrifafyrirtæki okkar, Eim-
skipafélagið, á dugnaði síra Magn-
úsar mikið að þakka. Er það vafa-
samt, að nokkur maður á landinu
hafi gert rneira til að vekja áhuga
manna fyrir stofnun félagsins, en
hann, og af einstökum mönnum
mun hann hafa safnað langmestu
af hlutafé til þess, er verið var að
stofna það. — Af því, sem hér
hefir verið sagd, er auðsætt að síra
Magnús muni vel kjörinn til aö
vera fulltrúi aðalatvinnurekenda
iandsins, bænda og útgerðar-
manna, á Alþingi, og fáurn mönn-
um mundi betur trúandi til að
finna leiðir út úr fjárhagsörðug-
leikunum, sem nú eru mesta á-
hyggjuefni landsmanna.
Annar maöur á listanum er Þór-
arinn Kristjánsson dómstjóra i
hæstarjetti, Jónssonar, Sigurðs-
sonar frá Gautlöndum* Hann er
vel lærður verkfræðingur og sér-
lega vel aö sér um hafnargerð.
Er þeirrár þekkingar næsta mikil
þörf á Alþingi, svo mjög sem
ábótavant er höfnum og lending-
um víða á landinu. Þórarinn er
hafnarstjóri í Reykjavík og gegn-
ir þeirri stöðu með miklum dugn-
aði og forsjálni. Hanu er og vel
kunnugur siglinguni landsmanna
og hefir yel vit á hvers þeim er
þar einkum þörf. Hann er annars
stiltur maður og fámálugur, en
þéttur fyrir og fylginn 'sér. Kjós-
endur landsins mundu njóta heilir
handa, ef þeir fylgdi E-listanum
svo fast, að Þórarinn kæmist einn-
ig að, svo að þessi listi legði til
tvo mennina af þeim þrem, sem
kjósa á.
Þriðji maðurinn á listánum, Sig-
urður Sigurðsson frá Arnarholti,
lyfsaíi í Vestmannaeyjum, er þjóð-
kunnur gáfumaður og skáld. Þarf
eigi þar á að minna, en vera má
aö almenningi sé hitt síður kunn-
ugt, a'ð hann er maður mjog hag-
sýnn og duglegur og leggur alt
kapp á áö bæta atvinnuvegi lands-
manna og varðveita. Að vonum
hefir hann þó einkum unnið að
umbótum og varðveislu íiskveið-
anna, þar sem hann býr í Vest-
mannaeyjum. En að þéssu hefir
hann unnið með óþreytandi elju
og frábærum dugna'ði. Þessu til
sönnunar þarf eigi annað en minna
á afskifti hans af björgunarskipi
og varðskipi Vestmannaeyinga.
Hann hefir verið frá upphafi
fremstur í flokki frá því, er mál
þetta var hafið og má það kalla
eins dæmi, hversu fast og trúlega
hann hefir fylgt því máli fram
síðan, alt til þessa dags, enda er
þetta eitthvert hið mesta þjóð-
þrifafyrirtæki. Ætti menn slíka
menn marga á þingi, þá mundu
þess sjást affarasæl merki.
Allir þrír höfuðmenn listans
eiga sammerkt i því, að þeir hafa
mjög vel vit á aivinnuvegum
landsmanna og hafa mikinn áhuga
á því, að bæta þá, og kunna manna
best skil á því, hvernig það má
best verða, eru og auk þess hyggn-
ir og víðsýnir f.jármálaménn.
Það verður nú liklega svo, þeg-
ar menn fara að bera saman lands-
kjörslistana, að athyglin beinist
mest a'ö efstu nöfnunum á hverj-
um lista. . En vél þolir E-listinn
siikan samanburð, þó að lengra sé
farið. Vara-mennirnir allir eru
slíkum kostum búnir, að mikill
fengur væri að þeim á þingi, Þeir
eru allir dugnaðarihenn, hafa látið
núkið til sín taka, hver í sínum
verkahring, og eru því þegar all-
kunnir orðnir viða um land, þótt
ekki hafi þeir setið á þingi.
Sigurður Ii. Hlíðar, dýralæknir,
á Akureyri, er hinn mesti áhuga-
maður um stjórnmál. Hann stofn-
aöi á sínum tíma blaöið' fslending
og var lengi ritstjóri þess. Var
blaðið vinsælt mjög í hans hönd-
um og hefir Sigurður uú um skeið
verið einhver liinn.mesti áhrifa-
maður i stjórnmálum norðanlands.
enda er hann maður skarpvitur,
viðsýnn og tillögugóður í hvívetna.
Mundu margir hafa kosið, að
hanti hefði verið ofar á listanum,
og víst væri hverjum flokki sæmd
að því, að hafa slikan mann i efsta
sætinu. En það er spá manna, aö
þess verði ekki langt að bíöa, aö
Sigurður verði kosinn á þing, þó
að ekki verði það áð þessu sinni.
Síra Eirikur Stefánsson á Torfa-
stöðum í Biskupstungum er Hún-
vetningur að uppruna, sonur hins
þjóðkunna prests, síra Stefáns
Jónssonar á Auðkúlu. Hann er
hæglátur maður, hygginn og ein-
beittur og búhöldur góður. Nýtur
hann hins mesta trausts sveitunga
sinna og er trúnaðarmaður þeirra
í livers konar vandaniálum. F.iga
Arnesingar þar gott þingmanns-
efni.
Einar G. Einarsson útvegsbóndi
í Garðhúsum í Grindavík, er sjötti
maður E-Jistans. liann er svo
kunnur hér um næstu sýslur, að
óþarfi væri þeirra vegna að skrifa
nokkuð um hann. En vegna kjós-
enda í öðrum héruðum landsins
skal farið um hann nokkrum orð-
um og athafnir hans. Er það hæg-
ur vandi. —• Einar hefir um mörg
ár verið meðal hinna allra fremstu
atorkumanna sinnar stéttar. Kem-
ur til þess kjarkur hans, hagsýni
og dugnaður. Hann hefir haft á-
ræði og framkvæmd til þess að
reka atvinnu sína kappsamlega, en
þó kunnað sér hóf, en það verður
mörgum, að þessir kostir fara eigi
sarnan. Flann hefir sjálfur lagt
hönd „á plóginn"; var lengi for-
maður þar i Grindavík, fyrst fyrir
föður sinn, Einar eldra í Garðhús-
um, alkunnan garp og dugnaðaia
mann, og síðan á sjálfs sín íari.
Var jafnan fengsæll og hlektist
eigi á, en það er kunnugt, að þar
er oft illur sjór úti fyrir og brim-
lending. —- Einar hefir rekiö
. nokkra verslun ásamt sjávar-út-
gerðinni. Hefir hann óbilandi
traust viðskiftamanna sinna.
Eigi verður það sagt um Einar
í Garðhúsum, sem Einar skáld
Bénediktssön kveður um suma
„vora jarðar-jarla" í kvæðinu
„Skútuhrauni"
„Alt í kring er kramið, hokiö“
o. s. frv., því aö þótt Einar hafi
komið sér sjálfum vel fram, þá
hafa nágrannar hans eigi goldið
þess. — Gagnkunnugur maður og-
skilgóður hefir nýlega sagt mér,
að hann hafi lielst hvergi séð jafn-
mikil umskifti til hins betra á öll-
um hag manna síöustu þrjátíju ár
sém. i Grindavík. Þar var fyri-um
blásnautt fiskiþorp, bæirnir mjög
íátæklegir og niðurníddir; nú er
þar hin snotrasta bygð, túnblfettir
og matjurtagarðar, þar sem rækt-
un verður við kómið í hraunrönd-
inni, laglega hýst og mimnum
vegnar vel. Allir kunnugir vita, að
þessi umskifti eru að þakka for-
ustu og skörungsskap sveitarhöfð-
ingjans. Sjálfur hefir hann reist
veglegt steinhús með raflýsing og
rafhitun. Útihús eru raflýstú Er
þar ' fyrirmyndarbragur á hýbýl-
mn, bæði úti og inni. —
Lengi heíir Einar verið hrepp-
stjóri og stundum sýslunefndar-
maður, og getið sér góð«m orðstír.
Hafa sýslubúar hans haft auga-
stað á honum til þingmensku, en
liann hefir aldrei gefiö kost á sér.
— Einar er mjög fastur fvrir,
traustur og öruggur í hvívetna.
Og þar sem hann hefir -— samfara
þeim kostum, er að framan getur
— ágæta þekking af eigin raun á
öllu þvi, er varðar sjávarútveg,
12. ár. Mánudeginn 29 maí 1922. 120 A tb .