Vísir - 15.07.1922, Side 3
VÍSIR
Crescent
þTottasápu þnr! engin meðaali - Reynslan er ilýgnst
Messur á morgun.
í dómkirkjunni kl. n, síra
Bjarni Jónsson.
í Landakotskirkju: Lágmessa
lil. 6 f. h., hámessa kl. 9 f. h. Eng-
in sí'ödegismessa.
Ðánarfregn.
Hr. stórkaupm. Þóröur Bjarna-
son og frú hans hafa oröi'ö fyrir
þeirri sorg að missa son sinn,
Hinrik aö nafni, Hann andaðist 5.
fvrrinótt úr heilabólgu eftir þunga
legu. Hinrik heitinn var 13 ára að
aldri, og var að taka próf inn í
Mentaskólann þegar hann veiktist.
Veðrið x morgun.
Hiti í Rvik 14 st., Vestmannaeyj -
um 10, Grindavík 14, Stykkishólmi
12, Isafirði 11, Akureyri 13, Gríms-
stöðum 9, Raufarhöfn 7, Seyðis-
firði 8, Hólum í Hornafiðri 13,
Þórshöfn í Færeyjum 10 st. Loft-
vog lægst fyrir sunnan land.
Austlæg átt. Horfur: Austlæg átt
á Suðurlandi, kyrt á Norðurlandi..
Knattspyrnumennirnir
skotsku komu með Gullfossi í
dag og eru 16 að tölu. Foringinn
heitir A. G. Mitchell. Bretar eru
yfirleitt rniklir knattspyrnumenn,
og þó þessi flokkur sé ekki þeirra
besti, þá má gera ráð fyrir að þeir
séu íslendingum miklu fremri og
að talsvert megi af þeim læra. Má
]>ví óhætt búast við góðri skemt-
un. — Knattspyma er og hefir
verið ein allra besta útiíþrótt okk-
ar. — Keppa munu skosku knatt-
spyrnumennirnir við knattspyrnu-
félögin hér 4—5 kappleika. Byrja
nð keppa við Víkinga á morgun.
Skemtun.
í dag skemta þeir sjúklingum á
Vífilsstöðum Páll ísólfsson og
Guðm. Kamban.
Skjöldur
fer á morgun upp í Hvalfjörð
með fólk sem þangað fer á skemt-
un. Skipið fer kl. 8 árd. ef veður
leyfir.
Helgi magri
fór í dag til Siglufjarðar með
margt fólk, sem ætlar að stunda
þar sildarvinnu.
Mb. Reginn
fór til Reykjarfjarðar í morgun,
ætlar að stunda þaðan síldveiðar.
Leiðrétting.
x í augl. um leikmót U. F. M.
A. og D. í gær hafði gleymst að
geta um tímann, sem mótið á að
byrja á. Það á að byrja úr því
ki. er 1.
Þór
fór norður í gærkveldi til land-
helgisgæslu við síldveiðarnar.
Go'ðafoss
fór frá Leith í dag til Austur
og Norðurlandsins.
Villemoes
er á förum frá Leith.
Svanur
fór í dag til Breiðafjarðar.
Saltskip
að nafni Solaas kom í morgun
frá Spáni með saltfarm til H. Bene •
diktsson & Co. og Bernh. Peter-
sen. Skipið flytur saltið á ýmsar
hafnir kringum land.
Vélstjórafélag fslands
heldur fund í kvöld kl. 8.
Gullfoss
kom i dag kl. 1. Farþegar:
Sendiherra Sveinn Björnsson, síra
Þórður Tómasson frá Horsens, A.
Gunnlaugsson skipstjóri, Snorri
Halldórsson, læknir, Sigvaldi
Kaldalóns, læknir og frú, Halldór
Gunnarsson kaupm., Friðþjófur
Thorsteinsson, kaupm., Bolli
Thoroddsen, stúdent, Daníel Fjeld-
sted, læknir, Oscar Clausen, kaup-.
maður, ungfrú Ebba Halldórsson,
Jón Árnason, versl.m., Brynjólfur
Magnússon, Jón Kristófersson,
Kammerjunker Skeel, Dr. Petrus
Beyer og frú;. yfirréttarmálaflm.
Helde, Madsen, verksmiðjueig-
andi, König, forstjóri og frú,
H. Kjær, forstj.,lektorL.Sörensen,
Munch, forstjóri, biskupinn af
Aberdeen, Rev. Cannon W. R.
Majendic, Olgerson skipstj. og frú,
16 skoskir knattspyrnumenn og 10
austurrískir drengir. Alls urn 100
farþegar.
Botnia <
kom hingað í gærkveldi frá
Iíafnarfirði og ísafirði, fer á
morgun til Færeyja, Leith og K->
hafnar, kl. 12 á miðnætti.
Farþegar með Botniu
til Khafnar: Marteinn Einars-
son kaupm., Björgólfur Stefáns-
son kaupm., Guðrn. Kamban rit-
höfundur, Malmberg og frú og 2
synir. Til Leith: Páll Kolka lækn-
ir frá Vestm.eyjum, Mr. R.
Templeton knattspyrnukennari.
Til Færeyja: Herluf Clausen.
Hrossasala. »
Um hundrað hross fara með
Botníu á morgun. Eru þau seld til
Danmerkur. Sendandi er Jensen-
Bjerg.
Gamalmennaskemtunin
verður haldin 1 Ási á morgun
og byrjar kl. 1 e. h.
Hjúskapur.
í dag verða gefin saman í hjóna-
band ungfrú Sigríður Magnúsdótt-
ir og Prófessor Ólafur Lárusson.
Vísir óskar brúðhjónunum til ham-
ingju.
Trúlofun.
Ungfrú Sólveig Guðmundsdótt-
ir, Stóru-Háeyri, Eyrarbakka og
Jngimar Jóhannesson kennari hafa
birt trúlofun sína.
Inn í Hvalfjörð,
(Hrafneyri), á skemtun þá, sem
Hesta og fylgdarmenn í styttri
og lengri ferðalög útvegar Pálmi
Hannesson, Mensa Academica, kl.
6-7.
Hvernig er það með rafgeymir-
inn í bílnum yðar? Þér vitið að
Willard er sá besti sem hægt er að
fá. Nokkur stykki fyrirliggjandi. j
Sömxileiðis sýrumælar, límbönd, i
sýrur 0. fl.
H f. Rafmf. Hiti & Ljós
- Laugaveg 20 B. Sími 830.
Nýkomið:
Straujárn 3 teg., Suðuplötur 3
teg., Ryksugur, Kaffikönnur nik-
keleraðar (ágætar til tækifæris-
gjafa), Ofnar, Heitvatnsgeymarj
Lampar og Ljósakrónur. Sömu*>
leiðis rafeldavél með fjórum hita-
hólfum og bakaraofni, (sú full-
komnasta sem til landsins hefir
komið). Notið tækifærið og lítið
á úrvalið meðan það er stærst.
Virðingarfylst
H.Í Rafmf Hiti & Ljós
Laugavég 20 B. Sími 830.
þar verður haldin, fer rnk. Úlfur
með fólk, ef nægilega margir
kaupa. farseðla í dag í Bláu búð-
inni, Laugaveg 3. Skipið leggur af
stað frá Elíasarbryggju kl. 7—8
f. h. á morgun. Má búast við að
margir noti sér tækifærið.
ERLEND MYNT.
Khöfn 14. júlí.
Sterlingspund t.... .. kr. 20.66
Dollar ............... — 4.66
100 mörk........ — 1.03
100 kr. sænskar........— 120.75
100— norskar ...... — 77.15
100 fr. franskir ....... — 38.00
100 — svissn. ....... — 89.40
100 lírur ít.............— 21.15
100 pesetar spánv. ...— 72.62
100 gyllini holl. ...... — 181.00
(Frá Verslunarráðinu).
M StemdóFi
BifreiðaferSir næstu daga.
Á morgun (sunnudag):
til Þingvalla og Vífilsstaða.
Á mánudag:
til ölvusár, Stokkseyrar,
Þjórsár, Garðsauka, Þing-
valla og Keflavíkur.
Á þriðjudag:
Austur að Brúará, ölfusá
og Þjórsá,
Til Þingvalla
eru þægilegar ferðir daglega.
t *A*-*&*&n*ism‘™*u~' v.Þ&v/* ■
Bestir bílar! Lægst fargjöld!
Pantið far í tíma.
i
Símar 581—838.
I Steindór. |
I
Farseðlar
1
með 0Qtulifoss“ til Veatfjarða,
sækist á manudag.
H.f. Eimskipafélag íslands.
B S. R.
Heldur uppi hentugum ferð-
um austur yfír Hellisheiði.
Á mánudögum, miðviku-
dögum og laugardögum til
ölfusár, Eyrarbakka og
Stokkseyrar. Þessar ferðir
hefjast frá Reykjavík kl. 10
f. m., til baka frá Eyrarbakka
daginn eftir. Bifreiðarstjóri í
þessar ferðir er Steingrímur
Gunnarsson frá Eyrarbakka.
Á þiðjudögum og föstudög-
um austur að Húsatóftum á
Skeiðum. — Bifreiðarstjóri:
Kristinn Guðnason.
Á mánudögum og fimtu-
dögum að Ölfusá, Þjórsárbrú,
I Ægissíðu, Garðsauka og
Hvoli. - Bifreiðarstjóri: Guð-
mundur Guðjónsson.
Ábyggilegust afgreiðsla, best-
ar bifreiðar og ódýrust
fargjöld hjá
BilreiOasfOð Reykjavfkur.
Símar: 716 — 880 —> 970.