Vísir - 19.03.1924, Qupperneq 4
VlSIR
Tóbaksemkasalan.
Á fundi ]>eim. sem haldinn var í
.Verslunarmannafélagi Reykjavíkur
33. þ. m. voru svohljóSandi tillögur
samjjyktar. í fundarlok, með öllum
greiddum atkvseðum:
„Fundurinn skorar á Veislunar-
ráð íslands að hlutast til um það
við Alþingi er nú situr, að lög nr.
40. 27. júní 1921 um ríkise'mkasölu
á tóbaki, verði tafariaust numin ik
gildi, af ástæðum þeim, er nú skai
greina;
Ríkiseinkasala á tóbaki er stofn-
sett í þeim eina úlgangi að afla rík-
issjóði tekna, án þess þó að hækka
verðlag vörunnar að nokkrum muiu
— Nú er það komið í Ijós
1) a3 tekjur þær sem ríkissjóður
hefir fengið a£ þessu fyrirtæki
nema að eins %—Vn af þeim
tekjum er Alþingi upphaflega
ætlaðist til að ná,
2) að tollhækkun sem aflar ríkis-
sjóði sömu tekna og tóbaks-
einkasalan gerir nú, hækkar
verð vörunnar hingað í hús
komnar um 10—15%, en fyrr-
nefnd lög fyrirskipa 25—75%,
3) að með því að afnema einka-
söluna, losar ríkissjóður um 400
þús. krónur, sem nú liggja
bundnar í þessu fyrirtæki, og
Josnar við áhættu þá, sem slík
verslun hefir altaf í för með sér.
4) a8 síðan tóbakseinkasalan tók
til starfa hefir áætlaður tóbaks-
tollur í fjárlögunum hvergi nærri
staðist áætlun.
5) að slíkt' verslunarfyrirkomulag
útilokar alla samkepni um verð
og vörugæði."
„Fundurinn skorar á Verslunar-
xáð íslands að hlutast til um þaíð
við landsstjórnina, að allir reikning-
ar Landsverslunarinnar frá byrjun
'verði birtir almenningi sundurlið-
aðir.“
!
SIRIUS
SÍTRÓN.
SlMI 1305.
HÚSNÆÐI
Herbergi með húsgögnum til
leigu. Fasði á sama stað. Vestur-
gqtu 18. (314
Gott, raflýst herbergi óskast, helst
nálægt Frakkastígnum. Uppl. bak-
aríinu Frakkastíg 12. (305
2—3 herbergi og eldhús óskast
1. eða 14. maí. Egill Vilhjálmsson,
Bifreiðastöð Reykjavíkur. (302
Skrifstofustúlka óskar eftir sól-
riku herbergi meö hita og Ijósi,
frá 1. eöa 14. maí. Tilboö sendist
afgreiöslunni fyrir 20. þ. m. merkt:
Hiti. (114
Nýja Ijósinyndaslofan, Kirf(ju-
slrœii 10. AfgreiSir best og fljótast
allar passamyndir og tækifæris-
myndir. (303
Johs. Korðfjörð, Austurstræti
12, (inngangur frá Vallartræti) :
Selur ódýrastar tækifærisgjafir.
(127
TAFAÆt-TuNÐHö^
2 Yalelyklar á keðju töpuðust á
mánudagskvöld. Finnandi er vin-
samlega beðinn að skila þeim á
Laugaveg 7. (301
FélagsprentomiCjan.
VINNA
Unglingsstúlka, 14—16 ára, ósk-
ast á fáment heimili. A. v. á. (317
Stúlka óskast í vist frá 1. apríl.
Lilla Möller, Tjarnargötu 11. (313
Dugleg stúlka óskast í vist upp
í Borgarfjörð. Uppl. á morgun frá
kl. 1—3, Laugaveg 53 B, uppi.
______________________________(312
J7eir sem vilja taka að sér að
grafa fyrir húsi. vitji uppl. til Krist-
ins Sigurðssonar. (310
Ungur maður, vanur verslunar-
störfum, óskar eftir atvinnu nú þeg-
ar eða í vor. Mjög sanngjörn kaup-
krafa. Meðmæli ef vill. Kynni ein-
hverjir að vilja sinna þessu, geri
þeir svo vel og leggi tilboð, auð- I
kent: „Box 102“ í póstkassa. (309
Flutningavinna fyrir 1 menn með
1 vagnhest óskast. Borgun sann-
gjörn. A. v. á. (300
Vanan mann vantar til sjóróðra *
suður í Garð. Uppl. á milli 6 og 7 |
í kveld á Vitastíg 10. pormóður 1
Sveinsson. (320
Veggmyndir og innrömmun ó-
dýrust á Freyjugötu n. (429
.Dragtir, kjólar, kápur, upphlut-
ir og upphlutsskyrtur, einnig telpu
og dengja frakkar, saumað. Vest-
urgötu 24. íngibjörg Albertsdóttir.
_____________________________ (290
Stúlka óskast í vist 1. apríl. —
Guðm. M. Björnsson, Vesturgötu
23 B. Sími 553. (292
iW' Fólk segir: Langbestar
ng ódýrastar gúmmíviðgerðir og
skósólningar hjá Einari Þórðar-
syni,. Vitastíg 11. (241
Uppblutur til sölu. Verð 35 kr.
A. v. á. (318
Tvöfalt skrifborð, helst úr eik,
óskast til, kaups strax. A. v. á.
(319
Smokingföt til sölu. Verð 80 kr.
A. v. á. (316
Fallegur barnavagn til sölu á
Lokastíg 4, uppi. (315
íslensk frímerki (notuð) keypt
háu verði. Njálsgötu 19, eftir kl. 4.
(311
Líl(kistur, þær vcnduðustu og ó-
dýrustu, sem fáanlegar eru, fásí:
altaf á trésmíðavinnustofunni á
Freyjugötu 9. Komið og skoðið.
(308
Ilmburhús óskast til kaups. Má
vera í útjaðri borgarinnar. parf að
vera laust til íbúðar í maí eða júní.
Tiiboð auðkent: „117“ sendist af-
greiðslu Vísis. (307
Dálítið notað flygel til sölu.---
Uppi. Óðinsgötu 11. (306
Bestu stofuborð til sölu með tæki-
færisverði á Hverfisgötu 59. (304
Svört dragt til sölu ódýrt. Vest-
urgötu 24, uppi. (291
__________l______ I, ■
Notuð föt til sölu ódýrt. Laufás-
veg 25. O. Rydelsborg. (295
Lítið, sólríkt hús til sölu. Uppl.
á Framnesveg 19 B. (294
Snemmbær kýr, gallalaus, tií
sölu. Uppl. Hverfisgötu 89. (275
Skóhlífar. Góöar o£ ódýrar karl-
mannsskóhlífar nýkomnar. Sími
1089. Jón Þosteinsson. Aðalstræti
14- (14S'
1
Skálðsagu eftir
P. Feval.
Á miðju hausti árið 18f6 stóðu tveir ungir
menn og hölluðu sér fram á veggsvalir á fyrsta
lofti í húsi, sem stóS alveg upp við kirkjuna á
torginu Saint-Gerrnan-de-Prés. Peir voru að
reykja vindla cg tala saman. pað var sunnu-
dagur og klukkan var 4.
peir voru báðir báir vexti og fríðir sýnum,
en mjög svo ólíkir að svip og andiitsfalli. Sá
eldri var dökkbrúnn á hörund, sýndist á tak-
mörkum æsku og fullorðinsára, og svipur hans
bar vctt um vorkunnsemi en þó jafnframt um
ókærní og hégómlegt stærilæli.
pessi maður lét alla kalla sig Don Juan de
Carral og þóttist vera spánskur aðalsmaður, en
var sonur svertingja, þræll að fæðingu og hét
réttu nafni Jcnkille. Félagi hans hét blátt áfram
Xavier og var talsvert yngri. Hann hafði hátt
og breitt enni og ljóst hár, hörund hans mátti
heita hvítt í samanburði við hið dökkbrúna hör-
und kynblendingsins. Augu Iians voru stór og
dreymandi; hann var 22 ára.
Torgið fyrir neðan þá var autt og tómt. Á
þrepinu við kirkjudyrnar stóð ölmusumaður og
síuddist við Iangan staf. Hann var svertingi,
og bar enn þá meira á hinu kolsvarta andliti
hans af því, að hár hans og skegg var snjó-
hvítt Hémn var hár og beinvaxinn, þótt gam-
all væri, og þótt föt hans væru bætt og léleg,
var látbragð hans og limaburður tígulegt. Allir
þektu þennan svarta ölmusumann, sem var van-
ur að biðjast ölmusu þarna við kirkjudyrnar.
Aldrei talaði hann orð frá munni, heldur rétti
þegjandi fram hönd sína, og þegar honum voru
gefnir peningar, þakkaði hann fyrir með því
að hneigja sig. pegar ung og fögur stúlka lét
pening í lófa hans, brosti hann lítið eitt og lagði
höndina á hjartað.
„Xavier!“ sagði Don Juan de Carral alt í
einu, og fleygði frá sér vindlinum. „pér eruð
ástfanginn, vinur minn.“
„Af hverju haldið þér það?“
„Sjáum til! pér neitið því ekki. Af hverju
held eg það? Af svo mörgu. Við Spánverjar
— skal eg segja yður, — erum ákaflega at-
hugulir. Eg hefi tekið eftir —.“
„Hverju þá?“ gall Xavier við.
Don Juan fór að hlæja. „Syona nú! pér
komið upp um yður. pað væri synd af mér
að vera að veiða meira upp úr yður.“
Ölmusumaðurinn hafði heyrt hlátur Don
Juans og sneri sér við. Hann lyfti slráhattin-
um af höfðinu og rétii lófann uþp að veggsvöl-
unum.
Xavier tók nokkra smápeninga úr pyngju
sinni og fleygði til hans. Síðan horfði hann hik-
andi og sorgbitinn á félaga sinn. pað var eins
og hann væri knúinn af þeirri þrá, sem Býr £
hjarta hvers manns, til þess að trúa einhverj-
um fyrir högum sínum. Hann greip hönd kyn-
blendingsins og sagði:
„Carral! pér eruð vinur minn, eða svo held í
eg að minsta kosti, og eg ber traust til ýðar.
Ur því að þér hafið getið rétt til um eitt leynd-
annál mitt, ætla eg að segja yður alt eins og
er. — Mér líður illa.“
„pað sé eg, elsku vinur, en af hverju líður
yður illa?“
„Eg er fátækur —.“
„Við það eiga nú margir að búa! Eg þekkt
vel það mein.“
„Og eg heiti að eins Xavier."
„pað er fallegt fornafn,“ sagði Carral, „eu
eg skal játa, að það hefði verið myndarlegra,
að ættarnafn hefði komið á eítir. Hvað þvi
viðvílcur þarf eg ekki að barma mér.“
En í því hann sagði þetta, opnaðist hurðin
á kirkjunni og söfnuðurinn streymdi út á torg-
ið. Vinirnir hættu því þessu samtali.
Svarti ölmusumaðurinn stóð við dyrnar og
rétti fram höndina; hann leit ót eins og líkneski
úr íbenviði. F lestir gáfu honum eitthvað, þv£
allir þektu hann.
Xavier hallaði sér frarn á veggsvalirnar og
starði á kirkjufólkið. Ung stúlkra, forkunnar fög-
ur, gekk í þessari svipan út ura kirkjudyrnar
og henni fylgdi kenslukcna í þokkalegum en
látlausum búningi. pegar unga stúlkan gekk