Vísir - 25.08.1924, Blaðsíða 4
VISIH
BORTDRIVER
SMERTERNE
SLOAN'S er langútbreidðuta
hL INIM E N T“ f beimi, og þúsund-
Ir manna reiða dg á hann. Hitar stnuc
og linar rerki. Er borinn á án nún-
Ings. Seldnr f öllum lyf jabúSnm. —•
Nákrœmar notknnarreginr fylgja
hyerri flöskn.
son hafa fluit sig i húsið iwr. 78'
við Laugaveg.
Snorri Goði
faeitir nýr botnvörpungur, sem
ih. Kveldúlfur hefir keypt frá Nor-
egi, og kom hann hingað i fyrra-
’ðag. Einar skipstjórí Einarsson
kom með skipið.
Sjötugir
” verða tveir mætir menn hér i
'bæ i haust, báðir sama dag, 28.
september, — þeir Sigurður bók-
suli Kristjánsson og Sveinbjörn
skáld Björnsson. — Sveinbjörn er
uú að gefa út kvæðabók eftir sig
<og verður hún komin á markað-
inn fyrir afmæli hans. Sigurður er
að visu skáld líka, þó að lítið beri
á, en hann er allur i útgáfum forn-
riia, og verða menn líklega að
faiða kvæða sjálfs hans enn um
nokkur ár.
■Véhtjórafélag íslands
heldur framhalds- aðalfúnd annr
aS kveld kl. 8 síSd. í GooStemplara-
faúsinu.
iheit á Strandarkirkju.
10 krónur frá Ragnheiði (afh.
Visi).
Dakjárn Nr. 24 og 26
allar lengdir, fengum við með
Lagarfoss. Yerðið hefir lækkað
Helgi^Magnússon & Co»
Kartöflur
besta tegund
n ý komn&r.
Jónatan Þorsteinsson.
Símar 464 og 864.
TILKTNNIN9
Besta gisting nýður Gesta-
heimilið Reykjavík, Hafnarstr.
2» (174
Rafmagns-verð hækkar.
Samþ. var á bæjarstjórnarfundi
á ffimtudaginn að hækka hemils-
gjald um 10°/e. Sjáaugl.
Stúlka, vöu bósverkum, óskast
mánaðartíma eða iengur ef um
semur. A. v. á. [382
I Stúlka óskast í vist strax á
Ránargötu 30. [385
FUNÐIÐ......|
Peningabudda hefir fundist. Vitj-
ist i Gretti gegn greiðslu auglýs-
ingarinnar. [381
Tapast hefir budda. Finnandi
vinsamlega beðinn að skiia á
afgr. Vísis. [371
Tvö til þrjú herbergi, meS eld-
húsi, óskast leigð 1. sept. TilboS
merkt V. E. sendist Vísi. (386
Gott herbergi með húsgögnum
óskast til leigu nú strax til 1. okt.,
helst i miðbænum. A. v. á. [376
Ibúð óskast fyrir fámenna fjöl-
skyldu. Fyrirfram borgun getur
komið til mála. Guðjón Jónsson,
úrsmiður. Sími 14 eða 1342.
[373
íbúð á góðum stað í bænum
óskast nú þegar eða l.okt. Uppl.
gefur 6skar Lárusson. Sími 882.
[370
1—2 herbergi og eldhús óskast
lil leigu 1. október, fyrir barn-
laus hjón. Tilboð merkt „2“
leggist inn á afgreiðslu Visis. [369
Fékgsprentuniðjux.
Verslunin Baldursbrá, Skóla-
vörðustíg 4, simi 1212, hefir ágætt
silkillauel, kr. 27,00 og 18,00 pr.
meter, baldýringaefni, upphlula-
silki, allskonar ísaumsefni og
mikið úrval af vönduðum og
ódýrum áteiknuðum nærfatnaði.
[379
Lóð til sölu með góðum bygg-
ingar-skilyrðum. Sími 1489. [38Ö
Nýtt liús, fremur lítið, til söluc
A. v. á. [378-
Litið hvítmálað barnarúm (pói-
erað) til sölu. Grettisg. 40 B. [377
Uppdráttur íslands eftir Björn
Gunnlaugsson óskast keyptur strax-
A. v. á. [375-
Nýtt karlmannsreiðhjól, divan
o. fl. til sölu. Baldursgötu 32.
[374-
Verslunarbúð á besta stað til
sölu. A sama stað stór og góð
ba kl óð til sölu. Simi 316. [373
Nokkur þúsund krónur í Veð-
deildarbréfum til sölu. A. v. á.
(348-
Tvær eða fleiri snemmbærar
kýr til sölu. Uppl. gefur Helgi
Bergs. Sími 249.' [329"
Nýir og nýlegir hnakkar og ágæt-
ar kliftöskur, til leigu í lengri og
skemmri ferðir. — SöðlasmíSabúðiœ
Sleipnir, Laugaveg 74. Sími 646-
(295-
Drekkiö Maltextraktöliö frá
Agli Skallagrímssyni. (88
Besta og ódýrasta gúmmíið á
barnavagna, fáið þið í örkinni hans
Nóa. Sími 1271. (317
tfHEILLAGIMSTEINNINN. 74'
rætur eins og áður, þegar hann hélt i bönd
henni.
Honum fanst sem hann væri að róa úr
draumheima landi, einhverskonar álfabústöð-
«m, fegri og unaðslegri, en hann hafði áður
órað fyrir. En álfkonan átti hverja hugrenn-
íng hans.
Ronald hafði lifað i sællífi í London nokk-
«r missiri og kynst mörgum konum, ósnort-
inn og ósigraður, en nú hafði hann í fyrsta
sinni verið særður í hjartastað. Svipur og mál-
rómuF stúlkunnar úr heiðarmylnunni hafði
hrifið liann, hver hreyfing hennar vakti hjá
honum unun og aðdáun, svo að hann mátli
«kki um annað hugsa. Hann hætti að róa
svo að hann gæti i næði hugsað um hana
og séð hana i huganum.
Já, hann elskaði hana. Þess vegna mátti
hann ekki um annað hugsa. Hann fann, að
engin hamingja biði sín, nema hann næði
ástum hennar. Hann kendi ákafs hjartsláltar,
þegar hann hugsaði til hennar. — Ná ástum
hennar! Voru nokkur likindi til þess, að hann
ætti slíka hamingju í vændum? Hún hafði
ekki tekið honum jafn kuldalega nú eins og
í fyrsta sinni, sem fundum þeirra bar saman
i mylnunni, en hún hafði bægt honum frá
sér og bannað honum að koma oftar. En
Ronald. fanst, að sér væri jafn nauðsynlegt
að sjá hana oftar, eins og að draga andan.
Hann mátti ekki fremur án hennar vera, en
án ljóss og andrúmslofts.
Hann hafði engar ráðagerðir um framtíð-
ina, — þvi miður! Honum lét ekki að setja
sér fjarlæg takmörk, hann átti oftast fult i
fangi að ráða fram úr þeim vandræðum, sem
steðjuðu að honnm í það og það skiftið. Hon-
um var það eitt Ijóst, að ef hann hefði ekki
þessa stúlku hjá sér, ef hann mætti ekki eyða
ævinni með henni, þá væri ekkert til, sem
fengi honum gleði, — jafnvel ekki fólgnir
fjársjóðir.
Þegar honum flaug i hug hið fólgna fé,
þá mintist hann þess, hverju hann hefði heit-
ið Cöru, — að þegja yfir því,: að hún væri
þarna i eynni,
Honum fanst það ljóta yíirsjónin og hætti
nú að róa og lét bátinn enn reka fyrir straumi.
Hann fann, að þessu hefði hann ekki ált að
lofa, þvi að Vane hlaut að vera nauðsynlegt
að vita, að eyin væri bygð. En þessu hafði
h ann heitið, og frá þvi varð ekki gengið; heit-
ið var honum heilagt.
Þegar Ronald kom heim, vildi svo vel til,
að Vane var kominn inn á undan honum,
og morgunin eptir var hann svo önnum kaf-
inn, að hann virlist hafa gleymt þessum leið-
augri Ronalds, en sjálfur forðaðist iMnn að
vekja máls á honunu
Ronald virtist nú, í fyrsta sinni, að dagur-
inn væri lengi að liða. Hann fór út með
byssu sina um morguninn, en skaut ekkert,--
hann ætlaði sér í raun og veru ekkert að
skjóta. Öðru hverju livíldi hann sig, settist
á steina, réykti i ákafa og mændi sífelt i átt-
ina til eyjarinnar, þar sem Cara var. Sjálfa
eyna sá hann þó ekki, þvi að hún var í
hvarfi við aðra stærri ey.
Seinna um daginn skaut hann báli á ilot
og reri i hægðum sinum til ævintýralandsins,.
sem altaf seiddi hann til sín, og hann mændi
á tréð við Klöppina hjá víkinni, en þar sást
enginn klútúr; hún hafði ekkert merki gefið'
honum. Hann andvarpaði af vonbrigðnm og.;
óþolinmæði og reri heim, hryggur i huga.
Smilhers stóð á bryggjunni, sem skipverj-
ar höfðu smíðað, og heilsaði Ronald glaðlega..
„Gott veður til að róasér tilgamans, herra\
sagði hann og batt bátinn. „Hr. Vane er far-
inn út á skip og ætlar að sofa þar, hugsa.
eg“.
Ronald fanst sem steini væri létt af sér;
honum gæfist þá tækifæri til þess að hugsa
urn stúlkuna i næði, honum væri frjálst að
rifja upp alt, sem þeim hefði farið i milli
kveldinu áður. Hann fór að leita i bókunum.,
sem fluttar höfðu verið heim í húsið úr skip-
inu og valdi sex úr þeim af mikilli vandvirkni
og var sifelt að skifta um og öfundaði bæk- -