Vísir - 29.07.1925, Side 2
VtSIR
Vörumerki
Ullarlitnrmn „OPAL“
er ódýr,
lialdgóður,
blæfallegur.
BiðjiS um „Opal“. þá fáið þér ábyggilega
fyrsta flokks vöru.
Símskeytf
Khöfn, 28. júlí. FB.
Frakkar og Spánverjar sameinast
gegn Abdel Krim.
SímaS er frá París, aö Frakkar
■og Spánverj ar hafi gert samning
sín á milli um samvinnu í Marok-
kó. Þeir mega fara meö her manns
inn í héruS hvors annars. Spán-
verjar hefjá aftur árásir á her Ab-
idels Krim og skulu Frakkar og
Spánverj ar gera friöarsamninga
viS hann í sameiningu.
Williams & Humbert
MOLINO
SHERRY.
til síöustu vikuloka 36698 tunnur,
en á sama tima í fyrra 41469.
Vindlar
hvergi i meira úrvali en í
Landsfjörnnnni
JOH. OLAF88ON & CQ.,
REYKJAVIK.
Um ísland
í þýskum blöðum.
r-O—’
Frá Kína.
Síma'ö er frá London, að útlit
sé á, að samkomulag komist á
milli Kínverja og útlendinga í '
Kína.
Símaö er frá Shanghai, aö kín-
verska verslunarráðið hafi samið
kröfuskjal í 13 liðum., T. d. fer
verslunarráðið fram á, að kín-
verskir fulltrúar eigi framvegis
sæti i bæjarstjórnum í hinum
„evrópisku“ hverfum kínverskra
borga.
Utan af landi
Akureyri, 28. júli. FB.
Um 2500 tunnur af síld komu á
land í gærkveldi hér og álíka i
Hrísey. Aftur á móti kom lítið á
land á Hjalteyri og Svalbarðseyri.
Aflinn mjög misjafin Sum skipin
fengu góðan afla, önnur sama og
ekkert. Reknetabátum gengur vel.
Alls saltað i öllum veiðistöðvum
Isafirði, 28. júlí. FB.
Iiér hefir verið fisk- og bey-
þurkur seinustu 5 daga. Síldveiði
er stöðugt góð i reknet.
Jón Elíasson, ungur maður úr
Bolungarvik, drukknaði í fyrra-
dag. Féll hann út úr bát skamt frá
landi; var að leggja net.
Frá Danmörkn.
(Tilk. frá sendiherra Dana).
—o—
Reykjavík, 28. júlí. FB.
Stúdentasöngvararnir eru komn-
ir heim úr íslandsför sinni. Söng-
stjórinn, Roger Henricksen, fer
hinum hlýlegustu orðum um gest-
risni og vinarþel, er söngvararnir
hvervetna sættu hér. Segir hann,
að íslandsförin verði þeim öllum
ógleymanleg. í greininni er þetta
talin eftirminnilegasta ferðin, sem
stúdentasöngvararnir hafi farið,
síðan „Studentefsangforeningen“
var stofnuð.
Þjóðverjarnir, sem hérna voru á
dögunum á skemtiferðaskipinu,
sögðu að aldrei hefðu þeir áður
séð jafnmikið skrifað um ísland í
þýskum blöðum og nú fyrirfar-
andi. Þegar þeir voru spurðir um
þetta nánara, kom upp úr kafinu,
að sá sem aðaltilefnið hefir gefið
beint og óbeint, er enginn annar
en dr. Adrian Mohr, sá er skrif-
aði bókina. „Það, sem eg sá á ís-
landi“. Bók þessi kvað vera til-
tölulega mikið keypt og lesin á
Þýskalandi, og< vildu Þjóðverjar
halda því fram, að þrátt íyrir alla
ónákvæmni og broslegt sjálfsálit
höfundarins, þá hefði bókin sjálf
og það sem um hana hefði verið
skrifað, orðið tilþessaðvekjamjög
mikla athygli á hinu nýja riki í
norðurhöfum, sem menn alment
hefðu ekki verið búnir að átta
sig á að komið væri á laggirnar.
Einnig hafa birst greinir eftir
dr. Karl Silex blaðamann, er hér
kom i vor. Eru þær ritaðar af mjög
góðum vilja í vorn garð og sann-
girni. Á sumar af þessum greinum
hafa blöðin áður minst. En hin
nýjasta, er hingað hefir borist. er
í „Deutsche Allgem. Zeitung" frá
11. þ. m. og er um dvöl höf. i
„konungsríkinu íslandi“. Segir
hann frá því meðal annars hvernig
íslendingar notuðu tækifærið til að
ná sjálfstæðinu af Dönum þegar
Danir voru sjálíir að ná i Suöur-
jótland og lirópuðu hátt á sjálfs-
ákvörðunarrétt þjóðanna. Fer höf.
einkum lofsamlegum orðum um
Bjarna Jónsson frá Vog:, sem
h.ann kallar „hinn góða arida ís-
lands“, sem ekki einungis sé þýð-
andi Fausts og vel lærður í forn-
um bókmentum, heldur og stjórn-
málaleiðtogi, sem Þjóðverjar meg:
öfunda íslendinga af. Bjarni hafi í
Síldarnet
frá Jolian Hansens Sönner A/s. Bergen eru þekt um alt laud. Umboðsmenn
pórínr Sveintaon & Co.
samningnum komið því svo fyrir
að Danir verði altaf að viðhafa
alla kurteisi í sambúðinni.
Og það minnir hann Dani á, að.
sjálfsákvörðunarrétturinn verði að
r.á út yfir Norðurslésvík og að
þeir ættu að sýna skilning sinn á'
þessu meðal annars með því að
skila þeim skjölum og skrifum sem
þeir hafi náð heiman af Islandi.
Höf. minnist á fiskiveiðar vor-
ar og strandgæslu og bendir á þá
hættu, sem oss hljóti altaf að stafá
af Englendingum. — Að lokum
minnist hann á bók dr. Mohrs, og
á þá óánægju sem hún hafi vakið
hér. Varar hann Þjóðverja við að
dæma framandi þjóðir eftir skrif-
um af þessu tæi.
H.
Jarðarför
frú Sigríðar Pétursdóttur frá
Hlíðarhúsum fór fram í gær og
var mjög fjölmenn. Próf. síra Har-
aldur Níelsson flutti húskveðju, en
sira Bjarni Jónsson líkræðu i dóm-
kirkjunni. Lúðrasveitin lék lög á
Austurvelli meðan kistan var
borin i kirkju og úr henni.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík 12 st., Vest-
mannaeyjum 9, ísafirði 10, Akur-
eyri 10, Seyðisfirði 9, Grindavífc
11, Stykkishólmi 12, Grimsstöðum
12, Raufarhöfn 10, Hólum í Iioma-
íirði 11, Þórshöfn í Færeyjum 10,
Angmagsalik 10, Kaupmh. 17, Ut-
sire 16, Tynemouth 14, Leirvík 13,
Jan Mayen 3 st. — LoftvægishæS
(763) við Jan Mayen. Veðurspá:
Kyrt verður. Smáskúrir sums staö-
ar á Suðurlandi.
Bjarni Jónsson, frá Vogi
er nú orðinn svo hress, að hann
ætlar után annað kveld á E.s. Is-
landi til þess að sækja fundi
dansk-íslensku ráðgjafanefndar-
innar.
N. Wittrup,
skipstjóri, fer héðan alfarinn til
Danmerkur á e.s. Islandi á morg-
un. Hann hefir um mörg ár verið
skipstjóri á björgunarskipinu Geir,
getið sér góðan orðstir í því starfi
og eignast mnrga vini liér í bæn-
um.