Vísir - 03.08.1925, Side 2
VfSIR
"Vorumerki
UUarliturmn „OPAL“
er ódýr,
haldgóður,/
hlæfallegur.
Biðjið um „Opal“, þá fáið þér ábyggilega
fyrsta flokks vöru.
Hjörtur Snorrason
alþingismaöur,
andaöist a‘ö heimili sínu, Arnar-
holti, siöastliöinn laugardag, I. þ.
m. Banamein hans var innvortis
krabbamein.
Æviatriöa hans veröur síöar
minst hér i blaöinu.
Slys.
—o—
Síöastliöinn laugardag vildi til
það sorglega slys, að' ungur mað-
ur datt út úr síldarbát vestyr á
Húnaflóa og drukknaöi. Hann hét
Jón Grímsson, sonur hjónanna
Gríms Jónssonar og Sumarlínu
Pétursdóttur á Laugveg 66 hér í
bænum. Hann var elstur átta syst-
kina og var nær 18 ára: gamall,
íæddur 6. ágúst 1907, góður og
efnilegur piltur, hjálpfús og hug-
ulsamur foreldrum sínum og syst-
kinum. — Hann hafði veriö við
sildveiöar í sumar á skipinu Blaa-
hvalen frá Siglufiröi.
Símskeytf
Khöfn, 1. ágúst. FB.
Járnbrautarslys enn í Frakklandi.
Símað er frá París, að hraðlest
er þaðan fór, hafi hlaupið af spor-
unura.. Fór hraölestin þá með 95
km. hraða. Eimreiðin steyptist
kollhnís. Tuttugu biðu bana og
fjöldi særðist.
Kolanámur Þjóðverja.
Símað er frá Berlín, að ástand
það, er af leiðir kolaframleiðslu
í landinu, fari hríðversnandi, því
geipilega miklar kolabirgöir eru
íyrirliggjandi, en markaður fyrir-
finst.hvergi fyrir þær sem stendur.
Kolavinslumönnum er sagt upp
vinnu í þúsundatali.
Khöfn, 1. ágúst. FB.
Kolaverkbanninu frestsað.
Símað er frá London, að á síð-
ustu stundu hafi Baldwin hepn-
ast með aðstoð Chamberlain, að
fá frestað úrslitum í kolaþrætu-
málinu um hálfan mánuð, gegn því
loforði stjórnarinnar, að hún greiði
tekjuhalla af námuiðnaði þar til
1. apríl 1926. Nákvæm rannsókn
á að fara fram á rekstursfyrir-
komulagi námanna, þar sem full-
víst er, að aðferðir allar eru úr-
eltar.
Skuldaskifti Breta og Frakka.
Símað er frá París, að fulltrú-
ar, er sitja á fundi og áttu að finna
grundvöll til þess að semja við
Breta á um skuldir Frakka, hafi
skifst í tvo flokka, og séu líkur
litlar fyrir samkomulagi.
Setulið Frakka farið úr Rúhr.
Símað er frá Berlín, að nú séu
seinustu setuliðshermennirnir farn-
ir frá Esssen.
Hiti i Reykjavík 12 st., Vest-
mannaeyjum 8, fsafirði 12, Akur-
eyri 10, Seyðisfirði 8, Grindavík
10, Stykkishólmi 13, Grímsstöðum
10, Hólum í Hornafirði 7, Þórs-
höfn í Færeyjum II, Angmagsa-
lik 9, Utsire 15, Tynemouth 13,
Leirvík 12 st. (Mestur hiti í gær
15 st., minstur 8 st.) Loftvog lægst
fyrir sunnan land. Veðurspá: Hæg
austlæg átt. Þurrviðri á Norður-
landi og Vesturlandi.
Sextugsafmæli
á í dag Jón Pálsson, aðalféhirð-
ir Landsbankans.
Fimtugsafmæli
á í dag húsfrú María Sæmunds-
dóttir, Hvítárvöllum í Borgar-
fjarðarsýslu.
Botnía
kom frá útlöndum í morgun.
Meðal farþega voru Dr. Johs.
Schmidt, prófessor Poulsen, frú
Ellen Guðmundsson, Jón Her-
mannsson, lögreglustjóri og frú
og dóttir þeirra, Direktör Vejby
Nielsen, Mr. Jamesson, Mrs. Mc-
Kenzie, A. P. Bendtsen, Agnar
Johilson, Kurt Heaser og Heinz
Schmidt o.’ fl.
Verslunarmenn
héldu 2. ágúst hátíðlegan í gær
á túni ofan við Sunnuhvol. Skemt-
unin hófst kl. 2, en rétt í því skall
á rigningarskúr, sem hélst nokk-
ura stund og dró það úr skemtun
í bili. Annars var veður gott um
daginn. — Dr. Guðmundur Finn-
8
m
m
Tobler átsúkkuiaði,
Creemelta toffee,
Brítannia carameís,
Bassetts lakkris confect,
Lakkris.
Þórður Sveinsson & Co.
t
bogason mælti fyrir minni íslands,
en síra Friðrik Hallgrímsson fyr-
ir minni verslunarstéttarinnar og
mæltist báðum vel. Þá glímdu níu
tr.enn og var röskleg þeirra við-
ureign. Fyrstu verðlaun hlaut Þor-
geir Jónsson, 2. verðlaun Vagn Jó-
hannsson, sem einnig fekk verðl.
fyrir feguröarglímu, 3. verðlaun
Eggert Kristjánss. Ungar stúlkur
sýndu leikfimi undir stjórn Stein-
dórs Björnssonar. — Lúðrasveit
Reykjavíkur skemti öðru hverju.
•— Dansað var að lokum fram yf-
ir miðnætti. — Veitingar voru í
stórum tjöldum. — Aðgangur var
seldur á 2 kr. og þótti sumum dýrt
og urðu jafnvel frá aö hverfa, af
því að þeir höfðu ekki nægan inn-
gangseyri á sér. Þó var aðsókn
mjög mikil, þegar mest var.
Verðlauna-gripi
hafa Hellyer Bræður i Hafnar-
firði gefið þeim, sem unnu að
björgun skipshafnar af Viscount
Allenby. Þorleifur Guðmundsson
fekk vandað gullúr með áritun, en
félagar hans sitt silfurúrið hver.
Clementina
kom að vestan í morgun til að
leita sér viðgerðar og mun liggja
hér um hríð.
Silfurbrúðkaup
eiga í dag Málfríður Ólafsdóttir
og Jóhannes Kristjánsson, Bald-
ursgötu 3.
Ganílar koparstungur frá íslandi,
II. hefti, er nýkomið út. Útgef-
andi er Sigríður Björnsdóttir; út-
gáfan er snotur og góðra gjalda
Svartur stálpaðnr
kettlingnr
hefir tapast fyrir nokkrum áög-
um. Skilvís finnandi geri svo vel
að skila honum gegn fundarlaun-
um til ólafs Bergm. Erlingssonar,
prentara, Sölvhólsgötu (steinhúsið
fyrir austan Sölvhól).
verð. Myndirnar í þessu hefti
munu vera frá árunum 1840. Af
myndunum má nefna: Reykjavík,
kaupstaðarferð, Mælifellskirkju,
Geysi eftir gos, kirkjuna á Breiða-
bólstað, Eyjafjallajökul frá Hlíð-
arenda, Hvitárferjuna skamt frá
Skálholti, Arnarstapa o. fl.
Innheimtumaður
einn hér í bænum fanst fjötr-
aður suður á Melum, síðastliöið
föstudagskveld. Sá, sem að hon-
um kom, Iosaði um fjötra hans
og gerði lögreglunni aðvart. Var
hann sóttur í bifreið og kvaðst
hafa verið barinn, bundinn og
rændur fé. En við nánari yfir-
heyrslu, játaði hann, að þetta væri
alt uppspuni. Hann hefði fengið
annan ungling til að binda sig og
hefði hann tekið við peningunum.
Þess skal getið, til að varna mis-
skilningi, að sá, sem fann inn-
heimtumanninn, átti engan þátt ?
þessum ráðagerðum.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi, 2 kr. frá S. Á.
Sokkar
karla, kvenna, og
barna í úrvali.
Ull, silki, ísgarn,
bómuli.
Nýtísku litir og
gerðir.