Vísir - 22.08.1925, Blaðsíða 3
V 181 R
listamanna okkar, þegar þess er
.gætt, aS fólk er meS allra fæsta
móti um þessar mundir í bænum.
Haraldur er í röS meistaranna, af-
burSa fimni og listrænn aSlöSun-
•arhæfileiki mynda grundvöllinn
undir eiginleikum lians sem lista-
manns. Hann finnur skyldur gagn-
vart höfundum tónsmíðanna (ob-
jectiv), t. d. ber hann frekar fyr-
ir brjósti tilfinningar og hugsanir
tónskálda þeirra, sem í hlut eiga,
eins og þær birtast í verkinu, held-
ur en þaS aS svala tilfinningum
sjálfs sín. Hann hefir sín persónu-
legu einkenni og vefur glitblæju
skáldskaparins hugsmíSar tón-
skáldanna. Hann gerir mjög mikl-
ar kröfur til sjálfs sín, og leyf-
ir sér lítt aS rifta þeim takmörk-
um, sem hann setur sér meS til-
liti til þess, sem formiS krefur.
Mér finst liggja næst aS líkja spili
ha'ns viS jurt gróSursetta í góSum
jarSvegi, sem hefir þau skilyrSi
frarn yfir þá óræktuSu, aS hún hef-
ir átt viS næma og nákvæma um-
hyggju aS búa.
Skráin var skipuS þrem stór-
verkum. Fyrst var Sonate op. iio
eftir Beethoven, meS stíleinkenn-
um svonefnda þriSja og síSasta
tímabils (periode) verka hans, þar
sem hann hverfur aftur til eldri
tima og tekur höndum saman viS
Bach, þar sem hann leitar hins
sameiginlega hugsjónarheims tón-
listarinnar, og fórnar aS nokkru
leyti persónu sinni fyrir hann. —
Verkinu lýkur meS fúgu.
Næst kom vinsælasta Sonata
Beethovens, svonefnd „Tunglskins-
sónata“.
SíSast var „Waiíderer-Fantasie“
«ftir Schubert, o.fin listauSugum
skáldskap, bygS yfir sönglög og
-danslög höfundar, og í skrautleg-
um og glæsilegum búningi. Var
sem sniSin fyrir Harald.
B. A.
iMessur á morgun.
í dómkirkjunni kl. n, síra FriS-
rik Hallgrímsson.
í fríkirkjunni verSur engin
messa, meS því aS ekki er lokiS
rnálningu kirkjunnar.
í Landakotskirkju : Hámessa kl.
■9 árd. Engin síSdegisguSsþjónusta.
Gamalmennaskemtunin.
Hún verSur haldin á morgun kl.
2—6 á túninu viS Grund, ef veSur
leyfir. Mun verSa reynt aS sækja
-og flytja ellihrumt fólk og las-
hurSa, ef þess verSur óskaS. —
Þeir, sem á þeim flutningi þurfa
■aS halda, eru beSnir aS gera aS-
vart í síma 101.9, kl. 5—7 síSdegis
í dag. — Lesendur blaSsins eru
heSnir aS minna gamalt fólk á
þetta, svo aS þaS gleymist ekki.
— ForstöSunefnd skemtunarínnar
hefir beSiS blaSiS aS geta þess,
aS þakksamlega mundi þaS verSa
J>egiS, ef hljómlistarmenn vildu
.OranierS
,Cora‘ 09
,H‘ ofnar,
email. og
nikkeleraSir.
Fyrirliggjandi:
Þakpappi, m. teg..
Linoleum, Ankermerki, •
Veggpappi,
Filtpappi,
Saumur,
Eldfastur leir og steinar,
Vatnssalerni,
Skolprör,
Eldhúsvaskar, járnemaileraðir,
Vatnskranar, aiisk.,
Gummíslöngur Va”
Fittings, Virnet,
Baðker, Girðinganet,
Biöndunarhanar Gólí-’og veggflisar,
með vatnsdreifara, miklar birgðir.
Þvottapottar, Loftventlar,
Vatnsrör og 011 tæki Hurðarhúnar og
tii miðstöðva, skrár,
Vandaðar vörur! — Lágt verð!
Hinar velþektu
Burg-
eldavélar
hvítemaileraðar,
margar stærðir.
Gaseldavélar, marg-
ar tegundir email.
Verð frá 10 kr.
Gasbökunarofnar,
hvítemaileraðir.
Gasslöngur,
Ðamm-smekklásar.
A. EINARSSON & FUNK
Sími 982. — Pósthússtræti 9.
koma vestur á GrundartúniS, með-
an á skemtuninni stendur, og
skemta gamla fólkinu meS list
sinni.
Síra ólafur ólafsson,
fríkirlcjuprestur, tók prests-
vígslu þenna dag fyrir 45 árum.
Síra ólafur ólafsson, præp. hon.
frá Hjaröarholti, veröur 65 ára
á morgun.
Gullfoss
fer héöan til útlanda kl. 4 í dag.
Meöal farþega eru kaupmennirn-
ir Jón Björnsson, Magnús Kjaran,
Flaraldur Árnason, Ingvar Ólafs-
son, móöir hans og tveir bræöur,
praefect Richard, Bjöm Björnsson,
bakarameistari, Steindór Gunnars-
son, prentsmiðjustjóri og frú hans,
ungfrúrnar Ingibjörg Zimsen,
Arpi, Elín Jakobsdóttir, Ásta
Norömann, Ragna Þorvarösdóttir,
Sigurborg Ólafsdóttir (Eyjólfs-
sonar), lyfsalafrú Anna Christen-
sen, Stykkish., Gísli Finsson, járn-
smiSur og frú hans, Schmidt-
Retnecke, fiöluleikari, Mr. Berry
og sonur hans, frú Copland, stúd-
entarnr Steinþór Sigurösson, Helgi
Sigurösson, Sigurkarl Stefánsson,
GuSni Jónsson, Július Björnsson,
Jakob Gíslason, Gísli Halldórsson.
Esja
fór héðan í morgun í hringferð.
MeSal farþega: Siguröur Eggerz
og frú hans, Jón Þórarinsson,
fræSslumálastjóri, Þorgils Ing-
varsson, Jón VíSis, Jón Guð-
mundsson, Skálum, Sig. Kvaran,
Andrés Þormar, Þórarinn Nielsen
o. m. fl.
Páll ísólfsson
og félagar hans 10 úr Lúðrasveit
Reykjavíkur, komu til bæjarins í
gær frá Þingvöllum. Komu þang-
að um Kaldadal frá Akureyri. Þeir
léku víöa á lúðra á leiöinni í sveit-
um og kaupstöðum og Páll ísólfs-
son hélt kirkjuhljómleika þar sem
því varö við komiö. — Þeim var
livervetna fagnaS mæta vel og
gata þeirra greidd á allan hátt.
Sigurður Sigurðsson,
búnaðarmálastjóri, er nýkominn
bingað úr ferS um VestfjörSu.
Nic. Bjamason
hefir flutt skrifstofur sínar úr
Hafnarstræti 15 í hiS nýja hús Ed-
inborgar í Hafnarstrætf (1. lofti
í vesturenda).
Afmæli.
Guðmundur Einarsson, Baldurs-
götu 22, verSur 68 ára á morgun.
Þóra Þorkelsdóttir, Hverfisgötu
100 er 50 ára í dag.
Björg HúnfjörS, ÓSinsgötu 24
| á afmælisdag á morgun.
i Jóhann Kristinn Jóhannsson,
SuSurgötu 8, á afmæli á morgun.
Viðeyjarför
Unglingastúknanna á morgun
verSur frestaS sakir ónógrar þátt-
töku.
Hafnarfjarðarhlaupið.
ÞaS verSur háS á morgún og
hefst kl. 2 e. h. frá HafnarfirSi.
Keppendur eru fjórir. — HlaupiS
endar á gamla Iþróttavellinum.
ÞangaS eru allir velkomnir. AS-
gangur ókeypis.
MR lEGUNMR AFl
ÍHKMRTANSSOHÍI
K.F.U.M.
i
Engin samkoma
anuað kvöld.
Við ölfusá
verSur á morgun mjög fjölbreytt
skemtun aS tilhlutun frk. GuS-
mundu Nielsen. Heyrst hefir aS
hún hafi samiS viS bifreiSastöS
Stemdórs aS hafa áætlunarferSir
þangaS í sínum góSkunu Buick-
bifreiSum, og þar sem útlit er fyrir
gott veSur, er vissara fyrir þá, sem
■þangaS ætla, aS tryggja sér sæti
hjá Steindóri sem fyrst. (Adv.)
Áheit á Strandarkirkjn,
afhent Visi: 2 kr. frá A, 5 kr.
frá IX, 50 kr. frá G.
Gjöf
’ til fátæku hjónanna, afhent Visi,
5 kr. frá ónefndum.
Áheit
j á ElliheimiliS, afhent gjalcíkera,
4 kr. frá E. E.
í
j —
i