Vísir - 06.02.1926, Page 3

Vísir - 06.02.1926, Page 3
« iLih WWMWI—I Það sem eftir er af Vetrarkápuefni verður selt með miklum afslætti I Egill Jacobsen. „Iil vopn' Skallagrímur kom af veiðum í gærkveldi; fór til Englands í nótt. Slökkviliðið gábbað. Um kl. 2 í nótt var slökkviliöið kallað inn á Laugaveg 76; hafði brunaboði verið brotinn þar, en • eldur var enginn, og vita menn ekki, hver valdur er að þessum hrekk. Hljómsveit Reykjavíkur leikur í Nýja Bíó á morgun kl. 4, eins og auglýst hefir verið áður. Aðalæfingin var i gærkveldi. Var fult hús áheyrenda, og þótti mikið til hljómleikanna koma. Leikhúsið. Dansinn í Hruna verður leikinn annað kveld. Niðursett verð. Xausn frá embætti hefir Stefán læknir Gíslason í Vík fengið frá 1. þ. m. Aðalfundur Dýraverndunarfélags íslands var haldinn í gærkveldi. Stjórn félags- ins var endurkosin: Jón Þórarins- son (form.), síra Ólafur fríkirkju- prestur Ólafsson (varaform.), Hjörtur Hansson (ritari), Leifur Þorleifsson (gjaldkeri), Samúel Ólafsson og Emil Rokstad. Vara- menn: Þorleifur Gunnarsson og frú Ingunn Einarsdóttir. Mótorbátur Gissur hvíti, frá Isafirði, kom af veiðum í nótt með liðug 80 skp. Hefir hann þá á tæpum mánuði veitt 240 skpd. af fiski, og mun það mesti afli, sem línubátur hefir fengið hér við 1and á svo skömmum tíma. Sado fór héðan í gærkveldi vestur og 'norður um land til útlanda. Fylla kom úr eftirlitsferð í morgun. Enskur botnvörpungur ,kom í morgun með veikan mann; einnig þýskur með veikan -mann. Áheit á Strandarkirkju, afhent Vísi: 2 kr. frá Þ. J., xo kr. frá E., 10 kr. frá S. Til fólksins á Sviðningi, .afh. Vísi, 10 kr. frá P. Cengi erl. myntar. Sterlingspund .. 100 kr. danskar 100 — sænskar 100 — norskar Dollar .......... 100 frankar franskir 100 — belgiskir 100 —. svissn. . 100 lírur............. 100 pesetar........... 100 gyllini........... 100 mörlc þýsk (gull) kr. 22.15 112.44 122.11 92.82 4.56% 17.32 20.80 87.98 18.55 64.65 183.16 108.56 í 25. tbl. Vísis 30. f. m., ritar Jakob skáld Thorarensen grein, með fyrirsögninni „111 vopn“, og er um dýrahald Ólafs- Friðriks- sonar, og svo ]>að að nokkrum ref- um Ólafs hafi verið hleypt út úr girðingunni, rétt fyrir bæjarstjórn- arkosningarnar. — Grein þessi er öll furðulega fávísleg, og svo ill- gjarnleg, að úr hófi ekur. Skáldið dróttar því, sem sé ótvírætt að Borgaraflokknum, að af hans völd- um hafi refunum verið sleppt út. — Nú vil eg spyrja skáldið : Hvert gagn mátti Borgaraflokkurinn af því hafa, að refunum var sleppt? kghygg, að skáldið hljóti að svara þessari spurning hiklaust með orð- inu ekkert, og þá er rétt svarað. — En hitt er víst, að hann mátti hafa ógagn af því á þann hátt, að einhverir gikkir yrði nógu vitlaus- ir til þess að kenna einhverjum úr flokknum um þetta, og nota það til að sverta hann með, eins og komið er á daginn. — Alþýðubl. í gær prentar upp töluvert úr grein skáldsins, en í annari grein segir það frá, að þeirn refurn Ölafs, sem eftir voru, hafi verið slept út á þriðjudagsnóttina, og dróttar þvi ótvírætt að burgeisum. — Það mun vera að berja höfðinu við steininn, að reyna að fá rithöfunda sem skáldið og ritstjórn Alþbl. til þess að hugsa rökrétt. En vor- kunnarlaust ætti þeim að vera, að siá hvað það er bæði heimskulegt og fúlmannlegt, að ætla það öðr- um mönnum að þeir vinni spell- virki, sem þeir ætti engan hag af að hafa, en mikinn ótila. Nær rök- réttri hugsun væri að drótta þess- uin spellvirkjum að einhverjum Alþýðuflokksmönnum, sem ynni þau með þeirriætlan.að mótflokks- mönnum þeirra yrði um kent, svo sem orðið er. — Þó dettur mér ekki í hug, að geta þessa til. Eg er viss þess, að þessi spellvirki stafa af alt öðrum ástæðum en pólitískum, og miklu eðlilegri. — En áður en eg geri grein fyrir þeim, ætla eg að segja frá við- burð, sem gerðist hér í bænum ný- lega. í vesturbænum býr í húsi sínu ekkja, sem er eindregin Borgara- flokkskona. Hjá henni eru tvær stúlkur fullorðnar, er fylla sama flokk. — Rétt fyrir bæjarstjórnar- kosningarnar um daginn, var skot- 5ð tveim skotum inn um stofu- glugga á húsi ekkjunnar. Eftir hinunx göfugmannlega hugsunar- hætti skáldsins og ritstjórans, ætti Borgaraflokkurinn að kenna Al- þýðumönnum þetta tilræði, og það væri að því leyti rökrétt, að ef ein eða tvær þeirra kvenna, sem þarna bjuggu, hefði beðið bana eða lemstrast, svo að þær hefði ekki mátt sækja kjörfund, þá var Borgaraflokkurinn sviftur einut at- kvæði eða tveim. Þó er það víst, að engum Borgaraflokksmanni dettur í hug að Alþýðuflokkurinn eða rnenn úr honum eigi sök á þessu. Þetta mál er mjög einfalt og hggur beint við. — Spellvirkj- um þeim, senx hér hafa nefnd ver- ið, og óteljandi mörgum öðrum, valda óknytta-strákar, sem vaða uppi um allan bæinn í fullum friði hinnar bráðónýtu lögreglu. — Og þessum verkum munu strák- arnir halda áfram og auka drjúg- Aeimskipafjeiag 'f Í5LANDS REYKJAVÍK „LAGARFOSS“ fer lxéðan 10. febrúar til Aber- deen, Grimsby og Hull. Fljót ferð og ódýrast flutn- ingsgjald fyrir saltfisk til um- hleðslu í Hull til Miðjarðarhafs- landanna, þar sem skip fer strax suðureftir i lxvert skifti eftir komu „Lagai’foss“. „GULLFOSS“ fer frá Kaupm.höfn 12. febr. og frá Leitb 16. febr. Lúguhlerar af litlum mótorbát, sem sökk á höfninni, hafa tapast. Þeir, sem kunna að hafa fundið, geri aðvart í síma 1226, gegn fund- arlaunum. (io5 Trk að mér andlitsböð og nudd, Lindís EiriksdóUir, Bergslaðastrati 14. Smi 1151. urn, meðan þeir njóta friðarins. Og þeir munu ekki fara eftir stjórn- málum. — Þeir munu hér eftir, sem hingað til, gera jafnhátt undir höfði alsýknum ekkjum úr Borg- araflokknum, og Alþýðuflokks- mönnum, sem ekki hafa annað til saka unnið en að vera „æslnga- skrifli skrílsins hér“, eins og eitt góðskáld vort hefir nefnt Ólaf Friðriksson. Eg hefi gert þá grein íyrir þessu máli, sem ein er eðli- leg, og vænti eg að allir heilvita rnenn verði mér sammála. — í grein skáldsins er önnur að- dróttun svo ósæmileg, að henni er ekki svarandi, ennfremur ein slórvitleysa, og nokkrar smærri, sem eg nenni ekki að eltast við að þessu sinni. Ámi Ámason, frá Höfðahólum. By g ging arlóðir eru áreiðanlega bestar og ódýTastar á Sólvöllum Lóðir rnóti sólu, að stærð 400—440 fermetrar, kosta kr. 4.500, og smærri lóðir, 288 ferm. kosta kr. 3000. — 1 þessu verði er innifalið götugjald til bæjarsjóðs, sem er 2 krónur pr. fer- meter í lóðunum. — Hagkvæmir borgunarskilmálar. Um kaup ber að semja við: A. J. Johnson, bankagjaldkera. Hvannalindum á Sólvöllum. Sími 611. Styðjið innlendan iðnað og verslið við íslenska kunnáttumenn! Verslunin Áfram (húsgagnaverslun og vinnustofa), Frá Canada. —x— Mr. Mackeuzie King, stjórnar- íormaður í Canada, sagði ekki af sér í haust eftir allsherjarkosning- arnar, þó að flokkur hans væri fá- mennari en íhaldsflokkurinn. Ilann ákvað að bíða þess að þing kæmi sarnan í janúarmánuði og vildi láta þingflokkana sjálfa ákveða, hvor flokkurinn færi með völd. Þegar á þing kom, bar for- maður íhaldsflokksins, Mr. Meig- hen, frarn vantraustsyfirlýsingu á hendur stjórniniii, og eftir mjög langa deilu fóru svo leikar, að vantraustsyfirlýsingin var feld með þriggja atkvæða mun. Þing- menn frjálslynda flokksins eru 101, en íhaldsflokksins 116, en þingmenn bændaflokksins (sem eru 22) giæiddu flestir atkvæði gegn vantraustinu og hafa lieitið frjálslyndu stjórninni fylgi sínu fyrst um sinn. — Verður Mr. King stjórnarformaður eins og áð- ur, þó að hann næði ekki kosningu i haust. Margir flokksbræður hans hafa boðið að leggja niður þing- mensku til þess að hann nái þing- sæti, og mún hann nú hafa náð kosningu. LAUGAVEG 18 hefir nýlega fengið fjöbreytt úrval af: Fellitjöldum (rúllugar- dinum), mörgum litum, glugga- og dyratjaldastöngum, ásamt bringjum og húnum, barnavöggum, rúmstæðum, eins og tveggja manna, matborðum og stólum, margar teg. Af sérstökum ástæðum eru tveir „buffet“-skápar til sölu, mcð tækifærisverði. Brúðukerrurnar eru nýkomnar aftur. Hinir þjóðfrægu bólstruðu legubekkir eru ávalt fyrirliggjandi. Saumaborð 65 kr. stk. Súlur og húsgögn í svefnherbergi og borðstofur. Komið meðan nógu er úr að velja. — Ekki missir sá sem fyrstur fær. Munið HÚSGAGNAVERSLUNIN ÁFRAM, Laugaveg 18, sem býr einnig til allar tegundir af bólstruðum húsgögnum. Trolle & Rothe hf. Rvík, Elsta vátryggingarskrífstofa landsins. Stofnuð 1910. Annast vátryggingar gegn Sjó og brunatjóni með bestu fáanlegu kjörum hjá ábyggilegum fyrgta tlokks vá- tryggingarfélögum, Margar miljónir króna greiddar innlendum vátryggj- endum í skaðabætuT, Látið því aö eins okkur annast allar yðar vátrygging- ar, þá er yður áreiðanlega borgið. i *r, ii ík ‘ 5 . %'.V;I -H'U.v’. -4 S&fi íjMgiIg é JkL “ jA* 't'r í'i 'VT 5} i V1 ý i *K' " " Il' rt&i ' FAKSIMILE PAKKL SLOAN’S er langútbreiddasta „LINIMENT" í heimi, og þúsundir manna reiða sig á það. Hitar strax og linar verki. Er borið á án núnings. Selt í öllum lyfjabúðum. Nákvæmar notkunarregl- ur fylgja hverri flösku. ■*i Tísis-kaffið gerir alla glaða

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.