Vísir - 06.03.1926, Qupperneq 3
VlSIR
laanda 1800 manna. Safnið hef-
ir sína prentsmiðju, með 4 setj-
aravélum, 2 stórum hraðpress-
um og nokkurum smærri; þar
er prentað alt, sem safnið þarf
sjálft, miðar, eyðublöð, skrár,
•skýrslur o. s. frv. par er og bók-
bandsstofa og bundnar um 50
þús. bóka á ári. Sérstakur skób
er þar, merk stofnun, handa
bókavörðum, því að geysimilc-
ið þykir undir því komið vestra,
að bókaverðir séu i senn''vel
mentir og kunni vel að leiðbeina
þeim, er í söfnin leita. Mark
almannasafna er, sem sé, ein-
göngu gagnsemi almennings. —
Bandaríkjamenn skilja, hver
hagur þjóðfélaginu er að vel
mentum þegnum; öllum mönn-
um standa slík söfn ekki að
eins opin, beldur liggur við, að
mönnum sé „þrýst“ til að koma
S þau.
pessi alda hefir runnið frá
Bandaríkjamönnum hingað til
‘Norðurálfu; úti í löndum vex
Stefnunni sífelt fylgi. Einnig hér
á landi má sjá visi, sem þaðan
er sprottinn. Alþýðubókasafnið
í Reykjavík er tilraun í þessa
átt. pað var stofnað á sumar-
daginn fyrsta 1923; um starf
þess má vísa til greinar hér í
blaðinu 7. okt. í haust. Bæjar-
stjórn hér má eiga það, að hún
hefir hlúð vel að þessum visi og
sýnt góðan sldlning á þessu mál-
efni yfirleitt. Eftir uncbrtektum
bæjarstjómar í umræðum um
síðustu fjárhagsáætlun, má
vænta, að boðlegt hús verði
komið yfir safnið, áður en 3 ár
eru Iiðin. Við þetta verða menn
að sætta sig, þó að Bandaríkja-
menn fari öfugt að; þeir segja:
„Fyrst húsið; bækurnar koma
af sjálfu sér.“ En einnig í öðr-
um kaupstöðum landsins virðist
vaknaður áhugi i svipaða átt. Á
það virðist það benda, að menn
bafa komið hingað frá hinum
gömlu amtsbókasöfnum á Ak-
ureyri og Seyðisfirði og frá
bókasafninu á ísafirði og kynt
sér þá tilraun til almannabóka-
safns, sem hafin er hér íReykja-
vik. peir, sem fara með stjórn
þessara kaupstaða, hafa einnig
sýnt sig að því að hlynna að
þessari stefnu.
En hvað gerir landið? Hvað
gerir stjórn þess og hvað gerir
alþingi? Vér eigum enga auð-
menn, er geti, sem tíðkast með
Bandaríkjamönnum, tekið að
sér sbkt málefni sem þetta. —
Hrejjpar, sýslur, kaupstaðir
verða hér að leggja mest af
mörkum til eiginþarfa. En þar
má virðast sem landinu sé skylt
að lilaupa undir bagga, er gagn-
ið er sameiginlegt lireppum,
sýslum, kaupstöðum. Úr lands-
sjóði hefir verið veitt um hríð
árlega 3000 kr. til kaupstaða-
bókasafna og 1500 kr. til sýslu-
bókasafna. —- f>etta er sjálfsagt
noklcur uppörvun, en ef btið er
jtil fjárveitinga til skólamála,
þá er auðsætt, að fubtrúar þjóð-
arinnar hafa gleggra skilning á
því, hver heilUþjóðinni stafi frá
skólum en frá bókasöfnum. —
Vafalaust eiga og þessar fjár-
hæðir fyrir dyrum að hækka. —
Kröfur liljóta að koma frá þjóð-
jbni um meira stuðning í þessa
'átt. þar mun koma, að hentast
þykja, að öbum söfnum
landsins í þessari grein (al-
mannasöfnum) sé stjómað sam-
eiginlega, val bóka sé ráðið fyr-
ir þau öll í einu, bókakaup sé
sameiginlega gerð o. s. frv.; alt
slíkt mun reynast til meira
hagnaðar beinlínis, í framtið-
inni, en að hvert safn pukri sér,
reglu- og skipulagslaust. ]>ar
mega menn með réttu vænta af-
skifta og styrks ríkisvaldsins,
er um slika sameiginlega hags-
muni safnanna er að ræða.
Áður en eg lýk þessari grein,
þykir mér rétt að nefna mann,
sem sýnt hefir dæmalausan á-
liuga og ósérplægni í þessu
framtíðarmáli. Sá maður er Sig-
urgeir. Friðriksson, sem verið
hefir forstöðumaður alþýðu-
bókasafnsins hér í Reykjavík
frá stofuun þess. Hann hefir við
lág laun af mikilb alúð og
skyldurækt stýrt þessari stofn-
un. Og svo er mikil ást hans á
málefninu, að hann tekur sig
upp í haust og fer — ekki til
næstu landa — beint að höfuð-
uppsprettu þessarar stefnu, til
Bandaríkjanna, til þess að
kynna sér bókasafnsmál, sér-
staklega almannasöfn, til þess
að geta á síðan miðlað löndum
sínum af reynslu sinni. Og hann
hefir af góðfýsi stjómar alþýðu-
bókasafnsins í New York verið
tekinn í sjálfan bókvörsluskóla
safnsins, þó að hann sé útlend-
ingur. í þessum skóla verður
hann í vetur. Og alt þetta gerir
þessi maður á eiginspýtur; veit
eg þó varla, hvernig hann fer
að komast fram úr því, þó að
hann hafi verið og sé manna
sparneytnastur. Nærri má geta,
að maður, sem varið liefir allri
ævi sinni, eins og Sigurgeir, til
að menta sig á ýmsa lund, og
gefið jafnvel fé, er hann hefir
unnið sér inn, til nytjastofnana,
muni ekki eiga mikið aflögum
við langvistir i Vesturheimi til
náms, eftir því verðlagi á lífs-
nauðsynjum, sem þar er sagt
vera. En það er til marks um
það, livert gagn oss megi stafa
af ferð hans, að á öðrum degi
eftir að hann kom til New York
og var að kynna sér safnið þar,
hafði hann séð aðferð í merk-
ingu (gylbngu) bóka, sem hafa
mun þann sparnað i för með
sér, þegar upp verður tekin hér
á landi í landsbókasafni og öðr-
um þjóðsöfnum, að jafnamyndi
kostnað við för hans, á tveggja
til þriggja ára tíma. ]>ví má þá
og nærri geta, hvílíkar umbæt-
ur, þægindi og sparnað nema
má með mikilli aðgætni í vist
í mestu fyrirmyndarstofnun
heimsins í sinni grein vetrar-
langt.
parna gæti alþingi byrjað á
því að hlúa að bókasöfnum al-
mennings. það gæti rétt þessum
áliugasama manni hjálparhönd,
þó að hann sé svo ósérplæginn,
að hann myndi vafalaust aldrei
fara þess á leit sjálfur. — ]>að
myndi vera vottur þess, að al-
þingi sæi, hver arður þjóðinni
er búinn af þekkingu mannsins,
er hann kemur heim aftur.
Páll Eggert Ólason.
(
Messur á morgun.
1 dómkirkjunni kl. 11, sira
Friðrik Hallgrímsson (altaris-
ganga). KI. 5 síra Bjarni Jóns-
son.
í fríkirkjunni kl. 2, síra Ámi
Sigurðsson; kl. 5 prófessor Har-
aldur Nielsson.
í Landakotskirkju: Hámessa
kl. 9 árdegis og kl. 6 guðsþjón-
usta með prédikun.
I Aðventkirkjunni kl. 8 síðd.
síra O. J. Olsen.
Veðrið í morgun.
Frost um land alt. í Reykja-
vík 3, st., • Vestmannaeyjum 0,
ísafirði 4, Akureyri 9, Seyðis-
firði 5, Grindavík 3, Stykkis-
hólmi 4, Grímsstöðum 11, Rauf-
arhöfn 5, Hólum í Hornafirði 3,
(engin skeyti frá Grænlandi);
hiti á þessum stöðvum: ]>órs-
höfn í Færeyjum 3, Kaupm.-
höfn 1, Utsire 1, Tynemouth 9,
Leirvík 5 (engin skeyti frá Jan
Mayen). —- Mestur hiti hér í
gær -c- 1 st., minstur -c- 5 st. —
Úrkoma 4.5 m.m. — Loftvægis-
lægðir fyrir sunnan og suðvest-
an land. Horfur: í dag: Norð-
austlæg og norðlæg átt; snjó-
koma norðanlands og austan. í
n ó 11: Sennilega norðaustlæg
átt og hríðarveður á Norður-
landi.
Sjómannastofan.
Guðsþjónusta á morgun kl. 6.
Allir velkomnir.
Trúlofun
sína opinberuðu í fyrradag
ungfrú Ágústa Ingólfsdóttir
(Iæknis í Borgamesi) og cand.
juris Thor Thors.
Trúlofun sína hafa opinberað
ungfrú Sigurbjörg Pálsdóttir,
Grettisgötu 42 og Óskar Pétur
Ingimundai'son, Sellandsstíg 32;
ennfremur Guðrún Ásta Páls-
dóttir Grettisgötu 42 og Sæ-
mundur Kjartan porsteinsson,
Vitaslíg 8.
Sýningu
heldur Kjarval þessa daga í
skemmuglugga Haralds Áma-
sonar, kaupmanns. Eru þar 30
pennateikningar fi-áVestmanna-
eyjum, landslag þar og togarar
og önnur skip í stórsjó og af
Eyjaf jallajökb séðum frá Eyj-
um. Margar myndir þessar em
af mikilb bst gerðar, hefir Kjar-
val tekist ágætlega að lýsa hin-
um svalköldu btum sjávarins og
jöklanna og öinkarvel er þeim
náð skipunum, sem veltast á
bylgjunum. — Margar þessara
mynda eru gerðar af svo leik-
andi leikni að undrun sæbr og
býst eg við að þær muni falla
vel i geð þeirra, sem unna hinni
unaðslegu og hrikálegu náttúm
Vestmannaeyja. — Einnig eru
þarna 9 litaðar myndir frá Vest-
fjörðum, sem eru mjög eftir-
tektaverðar. Sést á þeim öllum
glögglega eftir hvern þær eru,
og sýna vel liina einkennilegu
litablöndun Kjarvals, sem svo
marga hefir heillað. Eru þar
myndir fi'á Bolungai'vík og Pat-
reksfjrði — fjallahlíðar og
hamrabelti — og er þar af-
bi’agðsvel sagt frá íslenskri nátt-
úra. — Til gamans vil eg geta
þess, að allar þessar myndir eru
málaðar og teiknaðar um borð
í „GulIfossi“, vestfjai'ðamynd-
irnar í haust, en Vestmanna-
eyjamyndirnar síðast er skip-
ið var þar á ferð. Alls bjó Kjar-
ýal til 40 myndir á þeirn tveim
dögum sem Gullfoss stóð þar
við. Enda þótt þær séu gerðar í
flýti, em þær margar svo blátt
áfram og óbrotnar, svo leikandi
léttar, að helst er að bkja þeim
við vísur sem eru mæltar af
munni fram, en ekki eyðilagðar
með yfirlegu og smásmuglegri
nákvæmni. Sama verð er á öll-
um myndunum — 50 kr. — og
er það smánarverð fyrir marg-
ar þeirra. Flestar era þær 28 X
22 cm. að stærð. — Eitt sinn áð-
ixr hefir Rjai’val haldið sýningu
á 40 smáteikningum, ekki óbk-
um þessxxm. Seldust þær allar
á einum degi frá 35 kr., upp í
150 kr. — var engin þeirra
stæxri en 13 X 11 cm. — Sýn-
ingin stendur að eins yfir í 3
daga — til mánudagskvelds.
R. Ásg.
Gullfoss
fer liéðan kl. 6 í kveld. Meðal
farþega verða: Jóhann P. Jóns-
son skipstjóri, frix hans og dótt-
ir, Magnús Kristjánsson, for-
stjóri, Jónkaupm. Ólafsson, Jón
Laxdal konsúll og fi'ú hans, ís-
leifur Jónsson kaupm., frú pór-
unn Flygenring, frú Guðrún
Bjarnadóttir, ungfmrnar Thyra
Lange, Guðrún Ámadóttir og
Sigríður Einarsdóttir.
Villemoes
kom frá útlöndum i morgun.
Barpadansskób
Sigurðar Guðmundssonar
heldur danssýningu í Bámnni
kl. 8 á sunnudagskveldið til
ágóða fyrir bágstadda íslenska
ekkju í Kaupmannahöfn. „Ti’io”
Rosenbergs spilar nolckur lög,
og Gunnþói’unn Halldórsdóttir
les upp.
65 ára er í dag’
ekkjan Kristbjörg Guðmunds-
dóttir, Njálsgötu 13 B.
Lagarfoss
kom í morgun.
Kveldskemtun
heldur st. íþaka í Goodtempl-
arhúsinu annað kveld kl. 8y2-
Sjá augl.
Héraðslæknisembætti
í Mýrdalshéraði, Fljótsdals-
héraði, Reylcdælahéraði, Hofs-
óshéraði og Reykhólahéraði,
eru auglýst laus til umsóknar.
Til Elliheimilisins,
afh. Vísi: 5 kr. frá N. N.
Tóbaksbindindisfélag Rvíkur
heldur aðalfund í Templara-
húsinu á morgun. Sjá augl. á
1. síðu.
HVEITI,
HAFRAMJÖL,
HRlSGRJÓN.
Góðar vörur. — Lægst verð.
Gunnap Jónsson,
Laugaveg 64 (Vöggur).
Sími 1580.
K. F. U. M.
Á MORGUN:
Kl. 10: Sunnudagaskóbnn.
— 2: V-D-fundur.
— 4: Y-D-fundur (Remi).
— 6: U-D-fundur.
— 8/2: Almenn samkoma.
Fórnarfundur.
Allir velkomnir.
VÆRINGJAR.
Önnur og þriðja sveit.
Mætið í fyrramábð kl. 10 f. h.
hjá Bamaskólanum. —- Farið
verður i fjöruga snjóleiki. ]>eir
sem hafa skíði eða sleða, mæti
með það.
Ungur
einhleypur verslunarmaður, ósk-
ast til Austfjarða. Tilboð með
kaupkröfu sendist Vísi, auðkent
„Verslun“.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Visi: 5 kr. frá M. S., 5
kr. frá Möggu, 10 kr. frá Siggu,
24 kr. frá Magnúsi, 5 kr. frá
T. G. G„ 5 kr. frá N. N.
Gjöf
til gömlu konunnar í Bjarna-
borg, 10 kr. frá stúlkunni, sem
gefur henni þessa upphæð mán-
aðarlega.
Gfðð skemtnn.
Norskir söngdansar
í Iðnó kl. 5'/4.
~ö~—
Dábtill hópur af ungu fólki
(14 alls) sýnir norska söng-
dansa á morgun undir stjóm
ungfrú Ásfríðar Ásgríms, sem
liefir lært þá í Noregi. Verðxur
þetta góð og fátíð skemtun. —
Hefir leikflokkur þessi áður
sýnt suma af dönsum þessum
á skemtunum ýmsra félaga hér
í bæ, og hefir alstaðar þótt mik-
ið til þeirra koma. Em allir þátt-
takendur í norskum þjóðbún-
ingum, og gerir það leikinn feg-
urri og f jölbreyttari, enda heyr-
ir það til.
Söngleikir þessir eru úr flokki
söngdansa þeirra, er frú Hulda
Garborg lók að endurreisa þar
í landi 1903, og hafa þeir síðan
breiðst hraðfara út um allan
Noreg og til Sviþjóðar, einnig til
Danmerkur og pýskalands, til
Ameriku og ef til vill víðar. —
Lagði frú Garborg til grundvall-
ar Jýsingar þær, sem til em af
íslenskum vikivökum, en þó
sérstaldega færeysku dansana
(foma vikivaka), sem enn
standa með blóma óbreyttir að
kalla má frá öndverðu.
Sýning þessi verður mjögfjöl-
breytt og nýstárleg. — Leikur
flokkurinn bæði fornar riddara-
vísur, kirkjuljóð, gamanvísur og
auk þess nokkra skemilega tvi-
mennings-, fjórmennings- og
sexmenningsdansa o. fl.
Allir þeir, sem góðri skemt-
un unna og fögram leik, ættu
að fjölmenna á skemtun þessa,
sem verður alveg sérstök í sinni
röð. — Á undan söngdönsunum
leika þeir Theodór Ámason og
Emil Thoroddsen norsk þjóðlög
og' dansa.
Helgi Valtýsson.