Vísir - 11.03.1926, Blaðsíða 2
VlSIR
Böfnm fyrirllggjandi:
GSeuora,
Gream of Manitoba,
Canadian Maid.
Best Baker.
Þessar hveititegundír mæla best með sér sjálfar.
Notið
Jouventine
sem gefur hárinu sinn eðlilega
lit, og eyðir gráum hárum. Hið
heimsfræga Franska hárvatn
Petrole-Hahn, sem eyðir flösu
og eykur hárvöxt. — Gullhár-
vatnið „Oreine“ gerir iiárið glór
bjart, að ógleymdum hárlitnum
„Aureol“ o. m. l'l.
Versl Goðafoss,
Sími 436. Laug-aveg 5.
Símskeytí
—x —
Khöfn to. mars. FB.
Þjóðabandalagið.
SímaS er frá Genf, a'ð sérstakur
fulltrúafundur Þjóðabandalagsins
hafi verið settur í fyrradag. Ákaf-
legur spenningur út af kröfunum
um fast sæti í ráðinu. Kvisast hef-
ir, að sumar jijóðir hafi í hótun-
um að segja sig úr Þjóöabanda-
laginu, verði kröfum um fast sæti
í ráðinu ekki sint.
Afvopnunarfundi frestað.
Símað er frá Genf, aö umsímuð-
um afvopnunarfundi hafi verið
frestað þangað til í maí.
Flugslys.
Símaö er frá Stokkhólmi, að
farþegi liafi dottið úr flugvél í
350 métra hæð, og lamdist í hon-
um hvert bein.
Khöfn 11. mars. FB.
Skorað á Briand að taka við
st j órnarf ormensku.
Símað er frá París, að allflestir
hafi lagt að ríkisforsetanunt aö
leggja hart að Briand a'ð mynda
ráðuneyti á ný. Lofaði hann loks
að g-era tilraun til stjórnarmynd-
unar. Caillaux verður liklega fjár-
málaráðherra.
Shakespeare-leikhúsið endurreist.
Símað er frá London, að sam-
þykt hafi verið að endurreisa
Shakespeare-leikhús það, sem ný-
lega bránn.
Vígbúnaður ítala.
Símað er frá Rómaborg, að þeg-
ar lagt var fram frumvarp uin
umbætur á hernum, hafi Mussolini
sagt, að tímarnir væru ótryggir
og best að vera viðbúinn.
Utan af landi.
ísafirði 10. mars. FB.
Húsbruni.
Eldur kom upp í morgun kl. 10
i húsinu nr. 12 við Aðalstræti.
Brann húsið að nokkru; fólk
bjargaðist og innanhússmunir, að
mestu, þó töluvert skemdir. 1 hús-
inu var skipaafgreiðsla og fimm
fjölskyldur, sem nú eru húsnæðis-
lausar. Eldurinn kviknaði frá
olíuvél, en var slökttir eftir hálfa
klukkustund. V.
Akureyri 10. mars. FB.
Kappskák.
Samtímisskák Stefáns Ólafsson-
ar fór fram á sunnudaginn. Úr-
skurður í gær. Var hann á þá leið,
að hann hefði 15 vinninga, tapað
4 skákum og 6 orðiö jafntefli. —
Næstkomandi sunnudag teffir Ari
Guðmundsson einnig samtímis-
skák við 25 menn.
Frá Alþingi
í gær.
—o—
Efri deild.
Þar var lokið umræöum um Frv.
til laga um löggilding verslunar-
staðar við Jarðfallsvík í Málmey.
Við 2. umræðu var löggilding á
Melstað í Selárdal bætt inn i frv.,
eíns og áðúr hefir verið skýrt frá
í Visi, og við þessa siöustu (3.)
uníræðu í Ed., var enn hætt við
Leirhöfn á Melrakkasléttu. Vav
frv., svo breytt, samþykt og end-
ursent til neðri deildar og heitir
nú Frv. um löggilding verslunar-
staða.
I öðru lagi fór fram 1. umr. um
Frv. til laga um gróðaskatt. Flm.
Jónas jónsson. Á síðasta þingi bar
Jónas Jónsson fram frv. um liygg-
inga- og landnámssjóð, en frv.
sofnaði þá í nefnd og varð eigi út-
rætt. Nú ber hann frv. fram aft-
ur, en í breyttri mynd, og eru nú
írv. tvö. Er annað frv. um hygg-
inga og landnámssjóðinn, fyrir-
komulag hans og starfshætti, og
veröur þess síðar getið, en hitt,
sem var til. umræðu i gær, kveður
á um hvernig sjóðnum skuli aflað
tekna. Samkv. frv. eiga allir þeir,
som lögum samkvæmt eiga að
greiða tekju- og eignaskatt til rík-
issjóðs, einnig að greiða sérstakan
gróðaskatt, ef skattskyldar tekjur
þeirra fara fram úr 15 þús. kr. á
ári, eða meira. Gróðaskatturinn
skal vera 25 af þúsundi af 15 þús.
kr. tekjum, og fer hækkandi um
25%» fyrir hver 10 þús. kr. tekna,
upp í 20o‘/(, af 80 þús. kr. tekjum.
(iróðaskatturinn er viðbót viö hinn
almenna tekju- og eignaskatt. Aú
eignum 50 þús. kr. skuldlausum
skal greiða 15/h. Skatturinn inn-
heimtist af innheimtumönnum rík-
issjóös, sem svo skulu endurgreiða
hann til Landsbanka íslands, en
að öðru leyti er Búnaðarfélagi ís-
lands falið að ráðstafa skattinum
samkv. því sem segir í frv. til laga
um bygginga- og landnámssjóð.
Umræður urðu nokkrar milli
flutningsmanns og fjármálaráð-
herra, sem andmælti frv., en að
þeim loknum var frv. samþ. til 2.
umræðu að viðhöfðu nafnakalli
með 11 gegn 2 atkv. og visað til
fjárhagsnefndar.
Neðri deild.
Þar voru fyrst þrjú frv. samþ.
til 3. umr.: Frv. um breyting á
lögum 9. júlí 1909 um almennan
ellistyrk, Frv. um breyting á lög-
um 3. nóv. 1915 um kosningar til
Alþingis og Frv. um breyting á
lögum 3. nóv. 1915 um atvinnu við
vélgæslu á gufuskipum; öll um-
ræðulítið.
Næsta mál var Frv. til laga um
tilbúinn áburð. Flutningsmaður
Tryggvi Þórhallsson. Á síðasta
þingi bar Tryggvi fram frv. um
sama efni; það varð eigi útrætt
þá. dagaði uppi í nefnd. Nú er frv.
borið frarn aftur, en lireytt í sum-
um atriðum. Aðalefni frv. er að
fela Búnaðarfélagi íslands alla
verslun með tilbúinn áburð á
tímabilinu frá 1927—1930, að báð-
um árum meðtöldum, en ríkissjóð-
ur leggi versluninni rekstrarfé og
ókeypis flutning á vörunni með
skipum ríkissjóðs, frá útlöndum
til hafna hér á landi og milli
þeirra. Verði flutningi varanna
eigi komið við með skipum ríkis-
sjóðs heimilast stjórninni að semja
við Eimskipafélag íslands, en
kostnaðinn greiðir ríkissjóöur. Var
frv. samþykt til 2. umræðu og vís-
að til landbúnaðarnéfndar.
Síðasta njál á dagskrá var Frv.
Á síðast liðnu ári seldust fleiri Cbevrolet vörubifreiðar hér
á landi en nokkru sinni áður liafa verið seldar af nokkurri ann-
ari bifreiðategund á einu ári. J?etta er meðal annars ein sönnun
fyrir ágæti bifreiðanna.
Margar mikilsverðar endurbætur liafa verið gerðar á Chev-
rolet vörubifreiðinni „Model 1926“ svo sem:
1. Öflugri grind 6 þumlunga breið með 6 sterkum þverbit-
um, og lægri að aftan svo liægra sé að lilaða bifreiðina.
2. Heilfjaðrir að framan og aftan.
3. Sterkari framöxull.
4. Fullkomnari og sterkari stýrisumbúnaður, sem gerir bif-
reiðina miklu auðveldari í snúningum.
5. Gerbreyttur afturöxull svo losa má öxla og stilla drifið án
þess að taka öxulhúsið undan bifreiðinni, og án þess að
taka þurfi af henni hlassið.
6. Allir öxlar snúast í kúlulegum, sem eigi slíta öxlunum.
7. Tryggara fyrirkomulag á bremsum.
8. Öll hjól jafn stór, sem hefir þann mikla kost, að liægt er
að slíta gúmmíinu út að fullu, þannig að nota má slitna
afturhringi á framhjól til stórsparnaðar.
Chevrolet bifreiðin ber 1% tonn, og með það blass fer
hún flestar brelckur með fullum liraða (á 3. gíri).
Chevrolet bifreiðin er með dislckúplingu, hinni heimsfrægu
Remy rafkveikju og sjálfstartara, hraðamæli og sogdúnk.
Sé tekið tillit til verðs, á Chevrolet engan sinn líka að vél-
arkrafti, flýti, styrkleika og þægindum. Viðhaldskostnaður á
Chevrolet er liverfandi litill samanborið við aðrar bifreiðiv.
Verð íslenskar kr. 3400.00 uppsett í Reykjavík, eða á hvaða
liöfn sem er, sem hefir beinar samgöngur við Kaupm.höfn.
Einkasalar fyrir ísland:
Jóh. Ólalsson & Co.
Reykjavik.
til laga um Mentaskóla Noröur-
og Austurlands á Akureyri. Flm.
lieruharö Stefánsson. Vill flutn-
ingsmaöur bæta lærdómsdeild viö
gagnfræðaskólann á Akureyri og'
hafi skólinn rétt til aö útskrifa
stúdenta til Háskóla íslands. Var
frv. eftir all-langar umr. samþ. til
2. umræöu og vísaö til mentamála-
nefndar.
„Vegna óreglu“
1.
Eg hefi veriö aö blaöa í síöustu
prentaöri skýrslu um fátækra-
framfæri í Reykjavík. — Skýrsla
jiessi er einkar-greinilega samin,
veitir margskonar upplýsingar,
sem betra er aö hafa en missa, og
viröist sjálfsagt. að haldiö veröi
áfram að gefa út slíka skýrslu ár-
lega.
Ómagaframfærið er aö veröa
býsna stór gjaldliður í reikningum
bæjarins og þung byröi á skatt-
þegnununi.
Fyrir þvi er ekki nema eölilegt
og sjálfsagt, aö borgarar bæjarins,
]>eir sem skattana veröa að greiða,
láti sig einhverju skifta, hvernig
fé því er variö, sem af þeim er
tekið til opinberra þarfa. - Gjald-
endurnir eru langfæstir aflögu-
færir og margir þeirra taka mjög
nærri sér, að inna af höndum þau
miklit gjöld, sem af þeim eru
heimtuö í ríkissjóð og bæjarsjóð.
Dæmi munu vera til þess, og
þau ekki all-fá, aö ýmsir gjald-
endttr veröi að taka lán og attka
þann veg skuldir sinar von úr viti,
til þess aö geta staðið í skilum
meö þessa hlóöpeninga, opinberu
gjöldin.
Eitt af því, sem eg veitti athygli
i nefndri skýrslu um fátækrafram-
færi, og var raunar kunnugt um