Vísir - 28.05.1926, Síða 5

Vísir - 28.05.1926, Síða 5
VÍSIR Pöstudag'inn 28. maí 1926. Blóðappelsínur nýkomnar. Landstjarnan. Dr. ttiGol. M. lleiiendaiB flutti í gær síöasta háskólafyrir- lesturinn af níu alls, sem liann hefir glatt meö áheyrendur sína hér í bæ. Þvi að þaö orkar ekki tvímælis, að fyrirlestrar þessir hafa verið hinir skemtilegustu í alla staði, auk þess hve mikinn fróðleik þeir hafa 'haft að flytja og hann framborinn af rétt óvenju- góðum fyrirlestrarmanni, svo á- gætlega málifarinn sem dr. N. er. Að vísu voru flestar þær höfuð- persónur, sem dr. N. hefir leitt frárn á sjónarsviðið,* þegar áður kunnar áheyrendunum að ein- hverju leyti, menn eins og þeir Oehlensclæger og Steffens, bisk- uparnir Myuster og Martensen, andlegu stórmennin Sören Kirke- gaard og Grundtvig, presturinn al- kunni Vilh. Bech o. s. frv., en fyr- irlesaranum tókst að gera mynd- ir þeirra 'svo lifandi að ekki var ítema áiiægju að sjá þá aftur fyr- ir sér eins og þeim var þarna lýst. En svo nátengt sem hið kirkju- lega líf er andlegu- lífi þjóðanna yíirleitt, þá hlaut fyrirlesarinn aft- ur og aftur að komast inn á hið síðartalda. Þannig varði hann ein- um tímanum til að lýsaþeirri hreyf- iugu, sem hefst með G. Brandes eftir 1870, og að gera grein fyrir áhrifum þeirrar nýju stefnu, hvernig þessi hreyfing hefði hlot- ið að hefjast, hvernig henni hefði verið tekið og hvernig henni heföi verið svarað af kirkjunnar mönn- um. Var ekki síst þessi fyrirlestur- inn einkar fróðlegur. $var kirkj- unnar 'hefði oröið auknar fram- kvæmdir á öllum sviðum kirkju- lífsins, en me| þeim hefði tekist að reisa við aftur það traust til kirkjunnar, sem Brandesarstefnan hefði verið búin að rífa niður. Með öðrum hætti hefði ekki verið hsegt að hamla á móti niðurrífandi öfl- um stefnunnar, því að* kirkjan hefði ekki átt neinum svo sling- urn andans manni, hvort 'heldur til munns eða penna, á að skipa, að hann gæti staðið afburðamanni eins og Brandes á sporði. í síðasta erindinu gerði hann stuttlega góða grein fyrir þeirri hreyfingu i trú- aráttina, er siðustu árin hafi gert vart við sig með Dönum hjá rit- höfundum eins og þeirn Helge Jvode, Holstein, Revventlow 0 g Kehlet. Að loknu síðasta erindinu þakk- aði deildarforseti próf. Har. Niels- son fyrirlestrarmanni bæði í nafni deildarinnar og háskólans, fyrir hingaökomuna, og allan þann fróðleik, sem hann hefði haft að flytja og ánægjuna, sem hann hefði veitt áheyrendunum með er- indum sínum. En íyrir hönd áheyrandanna þakkaði biskup fyr- irlestrarmanni og lét þá ósk i ljósi, að þess yrði ekki langt að bíða, að 'hann kæmi aftur hingað til að miðla mönnum af lærdómi sínum og djúpsettri þekkingu, þvi að slíkir fyrirlestramenn væru altaf hingað velkomnir. xx. ítalir 00 Mussolíni. Eftir Skúla Skúlason. —o— Niðurl. III. Hér hefir verið minst á nokkur atjriði í stjórnmálum ítaliu eins og þau horfa við fyrir útlending- um þeim, sem ekki eiga við stjórn Mussolini að búa og ókunnugir eru stjórnarháttunum heima fyrir. Ástandið virðist í fljótu bragði vel viðunandi og stjórnin virðíst hafa komið ýmsu þörfu til leiðar. En samt er vegúr Mussolini fallandi. Menn eru jafnvel farnir áð tala um, að margir þverbrestir séu komnir í hásætiö hans. Ýmsir bestu stuðningsmenn hans snúa v ið honum bakinu, þ. á. m. nú síð- ast hægri hönd hans og máttar- stoð, Farinacci. Hvað veldur? Mussolini er einvaldur. Það er að vísu rangt að nota þaö orð, þvi að einvaldsstjórn hefir aldrei verið til og verður aldrei til í bók- staflegri merkingu. Enginn einn maður getur'stjórnað heilli þjóð, heldur verður einvaldsstjórnin ávalt klikustjórn, þar sem marg- ir ráða en einn ber ábyrgðina. Enginn maður er almáttugur og -Mussolini ekki heldur og því sið- ur klíka hans. Það segir sig sjálft, að Mussolini hefir átt við örðug- leika að etja. Það er ekki barna- leikur, að svífta heilt stórveldi írjálslegu stjórnarfyrirkomulagi og setja einveldi í staðinn. — Á þeirri lýðveldisöld sem vér lifum nú, verður það ekl'i framkvæmt nema með harðneskju og kúgun. „Þeir segja mest af Ólafi kon- ungi, sem hvorki hafa heyrt hann né séð.“ Stjórn Mussolini horfir öðruvísi við þeim, sem úý í frá eru, en hinum, sem eiga við hana að l^úa. Og sumt af því, sem skeð hefir í ítalíu síðustu árin, hefir komist út fyrir landamærin, þrátt íyrir ritskoðun og yfinhylmingu. ítalir búa við harðstjórn, sém hvergi mundi liðast í neinu landi siðmenningarþjóða vesturálfunn- ar. Þeir búa við stjórn, sem ofsæk- ir andstæðingana, svo að þeir eru griðalausir að kalla í sínu eigin föðurlandi,en hylmir yfir glæpi og ofbeldisverk stuðningsmanna sinna. Eftir því sem fleiri hafa gerst and- stæðir stjórninni, hefir hún gripið til fleiri þvingunarráðstafana. ítal- ir eru ófrjáls þjóð, þar sem stjórn- málaskoðanir eru ekki leyfilegar, svo framarlega sem. þær fara í bága við vilja klíkustjórnarinnar. Morð j afnaðarmannaforingj ans Matteotti* er eitt hryllilegasta dæmi þess, hvernig réttarástandið er i landinu. Það var búist við að Matteotti mundi skýra frá máli, sem fascistum kæmi óþægilega, og til þess að afstýra þessu létu ýms- ir helstu menn flokksins myrða hann. Allir vissu hverjir upphafs- menn ódæðisins voru, en þeir sleppa við refsingu, en öðrum, sem minna komu við málið, er hegnt, til þess að friða almenningsálitið. Þetta er það dæmi réttarmorðs, sem víðkunnast hefir orðið, en það er engan veginn einstætt. Æðstu dómstólar landsins eru vilhallir, og þá er ekki að því að spyrja, hvernig ástatt muni á „óæðri“ stöðum. Matteotti-morðið vakti geysi- mikla gremju unt alla ítalíu, og mikill meiri hluti blaðanna for- dæmdi það í einu hljó.ði. Til þess að lægja þær raddir, tók stjórnin til J)ess óbrigðula ráðs, að banna útkomu blaðanna. I ítalíu er prent- frelsi afnumið. Andstæðingablöðin eru úr sögunni, nema þau sem nú cru gefin út erlendis, — hafa flúið úr landi, eins og Mussolini forð- um, ])egar hann varð að flýja til Sviss, undan afturhaldsstjórninni, sem þá réð lögum og lofum í Ital- íul Tvennir eru tímarnir. Nú eru eingöngu gefin út fascistablöð í ítalíu, og kom bannið sér vel fyrir þau, því að þau áttu áður örðugt uppdráttar, i samkepninni við frjálslyndu blöðin, er höfðu miklu meiri útbreiðslu. Og blöðunum er stjórnað af dyggustu skósveinum Mussolini, — sem Jumnig er ein- ráður um hvað ítalir lesa. Bækur, sem stjórninni þykja of frjálslynd- r.r, eru líka bannfærðar. Þetta eru aðeins dæmi. En þau. sýna nægilega ljóst, hvernig „italska frelsið" muni vera í öðr- um greinum. — Þjóðin er kúguð og stjórnin vilhalt flokkseinv’eldi, afturganga frá umliðnum öldum, með ýmstim kostum en yfirgnæf- andi göllum, sem æ verða rneir áberandi eftir því sem á líður. Mussolini má eiga það, að ihann er duglegur maður, að hafa getað undirokað heila þjóð i 3—4 ár; á þeim tíma, • sem lýðfrelsið er grundvallaratriði í stjórnskipun menningarþjóðanna. Hann hefir gert það. sent allir töldu ómögu- legt. En sennilega er hann nú far- inn að sjá, að Jjað, sent hann er að gera, er ófranikvæmanlegt' til lengdar. fiardlnnr mikið úrval nýkomið. Verðið óheyrilega lágt. Komið. Skoðið. Kaupið. VÖRUHDSIÐ. Guðm. B. Vikar Sími 658. Sími 658. s=s Laugaveg 21. 1. fl. saumastofa fyrir karl- mannafatnað. — Úrval af fataefnum fyrirliggjandi, alt árið. — Fljót og góð af- greiðsla. OLDSMOBILE. OLDSMOBILE er ábyggilega fegursta 5 manna bifreið, sem til landsins befir flust. OLDSMOBILE hefir sérlega kraftgóða 6 sivalninga (cylinder) vél, sem gerigur alveg hljóðlaust, og verður bifreiðin því framúrskarandi skemtileg i akstri. OLDSMOBILE er mjög vönduð bifreið, enda er hún smíðuð lijá General Motors (sömu og srníða BUICK), og er það trygging fyrir að bifreiðin sé i alla staði heppilega og traust bygð. OLDSMOBILE er ódýrasta 6 sívalninga (cylinder) bifreið, sem seld hefir verið á Islandi. Verð kr. 5600.00, uppsett í Reykjavík. Einkasalar á íslandi: Jóh Ólaíssoa & Go. 8 A F T Útlærðir fagmenn er nota bestu hráefni, fram- leiða bestar vörur. Til heimilisnotkunar borgar sig að nota að eins það sem gott er. HÚSMÆÐUR notið að eins okkar ágætu saft; Ekta Hindberjasaft, ekta Kirsiberjasaft, ekta saft úr blönduðum ávöxtum. Að eins framleidd úr berj- um og sykri, engin íblöndun af vatni eða essens- um. Er alt að kr. 2.00 ódýrari en útlensk flösku- saft af sömu gæðum. Ennfremur framleiðum við ekstra sterka Kirsi- berjasaft, sem er mjög bragðgóð og næringarmik- il, en þó ódýr. % Biðjið um saft frá Efnagerðinni hjá kaupmanni yðar, fæst einnig í Laugavegs Apóteki. Eínagerð Reykj aviknr. Sími 1755. Veggfóður. Málning. Veggíóður nýkomið i miklu úrvali. Málariitn, Sími 1498. Bankastræti 7. Þetta er lang- besti skóáburð urinn. Fæst í skóbúðum og verslunum. Vandaðar útidyra- tröppur úr plönkum til sölu með tæki- færisverði. Steingrímur Guðmundsson, Amtmannsstíg 4.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.