Vísir - 16.06.1926, Blaðsíða 2
YlSIR
Innilegar þakkir til allra, fjær og nær, fyrir auðsýnda hlut-
tekningu við jarðarför móður okkar og tengdamóður, Guðbjargar
Melchiorsdóttur.
Höfum fyrirliggjandi:
Krystalsykur, smáhöggun.
Stransyknr, í 1 cwt. sekkjnm finan.
Kandis ranðan.
Reykjavík, 14. júní 1926.
Stefanía Friðriksdóttir. Þórunn Benediktsdóttir.
Grímúlfur H. ólafsson. Björgúlfur ólafsson.
M
Símskeyti
—X--
Khöfn 15. júní. FB.
Frá Pólverjum.
SimaS er frá Varsjá, aS stjórnin
krefjist neitunarvalds forseta og
aukins réttar til þingrofa.
Bretar og Rússar.
Sínm'ð er frá London, að Cham-
berlain hafi sagt í ræðu í þinginu
út af fjárstyrk Rússa til bresku
verkfallsmannanna, að gott sam-
komulag milli Rússlands og Eng-
lands geti ekki naldist, nema
Rússar hætti öllum undirróðri í
breskum löndum.
Marokkómálin.
Símað er frá París, að fundur
Frakka og Spánverja um Mar-
okkómálin sé byrjaður þar, og sé
búist við, að samkomulag náist
bráðlega.
Til áréttingar.
—o—•
Af því að „Morgunblaðið" var
i gær á ný að reyna að vefengja
skýrslu „Vísis“ um fjármálastjórn
Sigurðar Eggerz, er rétt að rifja
aftur upp aðalatriðin úr umsögn
Vísis, svo að Mbl. gefist enn kost-
ur á að taka þau til meðferðar,
í stað þess að tönnlast sí og æ á
aukaatriðum, sem flokksforingjar
þess þar að auki bera ábyrgð á.
„Vísir“ rifjaði það upp: að nú-
verandi fjármálaráðherra, Jón Þor-
láksson, hefði í fyrirlestri sin-
um um „fjárstjórn íslands 1874—
1922“, játað að fjárhagur ríkis-
sjóðs hefði verið í góðu lagi, er
Sigurður Eggerz lét af fjármála-
ráðherraembætti 1920,
að S. E. hefði tekið við fjárlög-
um með fyrirsjáanlegum 3 mil-
jóna króna tekjuhalla i ársbyrjun
1922, af þeirn Jóni Magnússyni og
Magnúsi Guðmundssyni,
að hann hefði skilað í hendur
núverandi stjórnar tekjuhallalaus-
um fjárlögum fyrir árið 1924, og
að það þannig hefði verið stjóm
Sig. Eggerz, sem hefði hafið við-
reisn fjárhagsins, en ekki núver-
andi stjórn.
Við þetta (má enn bæta því, að
það var einnig stjórn Sig. Eggerz,
sem tók fyrsta skrefið til þess, að
farið yrði að borga eitthvað af
skuldunum, sem safnast höfðu
undanfarin ár, með því að Ieggja
fyrir þingið 1924 frv. um gengis-
viðaukann.
íhaldsstjórnin, sem þá tók^ við
völdum, átti ekkert frumkvæði að
því. Jón Þorl. lagði að vísu til,
að alíir tollar yrðu hækkaðir í
hlutfalli við gengið, eða að lög-
leiddur yrði svonefndur „gulltoll-
ur“. En á Jtað var ekki. fallist.
í þess stað bar fjárhagsnefnd
tram verðtollsfrúmvarpið.
En í þessu sambandi er vert að
athuga, hvernig farið hefði, ef til-
laga J. Þorl. um gulltollinn hefði
orðið ofan á.
Þá væri tóbakseinkasalan áreið-
anlega enn við líði, því að engin
tiltök hefðu verið að hækka tö-
bakstollinn frekara, til þess að
vinna upp tekjurnar af einkasöl-
unni.
Þá hefði kola-, salt- og tunnu-
tollur hækkað stórkostlega, og
engin líkindi til J>ess, að sú lækk-
un, sem gerð var á þeim tollum
á síðasta J)ingi, hefði J)á náð frám
að ganga, í stað þess að kolatoll-
urinn er nú ekki nema 1 kr. á smá.
lest, væri hann sennilega enn hátt
á 4. kr., salttollurinn alt að Jiví
helmingi hærri en hann er nú o.
s. frv.
„Morgunblaðið" er enn að tala
um tekjuhallann á fjárlögunum
1923, þrátt fyrir það, að því hefir
verið lænt á, að sá tekjuhaili sýni
Jiað eitt, að þau fjárlög hafi verið
miður vel undirbúin undir Jiing af
fyrirrennurum Sig. Eggerz. En til
þess að bæta það upp, er blaðið
eitthvað að fimbulfamba um það,
hvað fjárlögin fyrir árið 1925 hafi
verið illa undirbúin. En ])ó að fjár-
veitinganefnd hafi hækkað gjalda-
bálk þessara fjárlaga eitthvað, þá
sannar það ekkert í Jiessu efni, því
að þess munu varla dæmi, að
gjaldabálkur fjárlaga hækki ekki
talsvert í meðförum nefndarinnar.
Hitt er auðsætt, að nefndin, undir
formensku Maguúsar Guðmunds-
sonar, muni ekki hafa gert minna
en rétt var, úr áætlunarskekkjum
stjómarínnar. — En hver var svo
niðurstaðan um Jæssi fjárlög? Það
varð rúmlega 5 milj. króna tekju-
afgangur á þeim. Eða var ekki
svo ? — Það virðist nú ekki benda
til þess, að þau liafi verið mjög
ógætilega samin á þann veginn!
Utan af landi.
Akureyri 15. júní.
Landsfundi kvenna lokið. Rædd
mál þrjá síðustu dagana: Bann-
málið, kvennaheimilið, líknarstarf-
semi, garðyrkja, ávarps-titill
kvenna, þátttaka kvenna í undir-
búningi 1930. Fulltrúar skoðuðu
Gefjunni, lystigarðinn, gróðrar-
stöðina, Kristneshælið. Kveðju-
samsæti. Unaðsleg veðurblíða.
H. B.
Konungshjónin
fóru héðan í morgun vestur og
uorður um land og koma við á
Akureyri og Seyðisfirði. Meb
þeim fóru héðan íorsætisráðherra
og frú hans. Er för Jieirra heitið
til Seyðisfjarðar.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík 10 st., Vest-
mannaeyjum 9, ísafigði 8, Akur-
eyri 9, Seyðisfirði 7, Grindavík 9,
Stykkishólmi 12, Grímsstöðum 12,
Raufarhöfn 10, Hólum í Horna-
firði 10, Þórshöfn í Færeyjum 9,
Angmagsalik 3, Kaupmamiahöfn
16, Utsire 16, Tynemouth 11, Leir-
vík 12, Jan Mayen 2 st. Mestur hiti
hér síðan kl. 8 í gærmorgun 13
st., minstur 8 st. — . Loftvægis-
hæð (772) við Jan Mayen. Horf-
ur: í dag: Austanátt við Suður-
land. Logn á öðrum stöðum. Þurt
veður norðan lands. Þoka sumstað-
ar á suðvesturlandi og við Vest-
urland og norðvesturland. í n ó 11:
Svipað veður.
Húsaleigunefndin.
Foriiiaður húsaleigunefndar,
hæstaréttarritari Bjöm Þórðarson,
hefir beðið Vísi að vekja athygli
á því, að húsaleigunefndin hefir
hætt störfum frá Jiessum degi,
samkv. húsaleigulögum síðasta
Alþingxs, sem hlutu konungsstað-
festingu í gær.
Frambjóðendur
við landkjörið 1. 11. m. halda
landsmálafund í Keflavík á morg-
un. kl. 7 síðdegis. Á laugardaginn
halda þeir fund við Ölfusárbrú, en
daginn eftir (sunnud. 20. júní) að
Stórólfshvoli. — Á Akranesi verð-
ur fundur haldinn næstkomandi
mánudag, en daginn eftir í Borg-
arnesi.
i
Alþingiskj ósendur
þeir, við landskjörið 1. júlí
næstk., sem úr bænum fara fyrir
mánaðamót og verða fjarverandi
á kjördegi, eru hér með alvar-
lega ámintir um að íieyta kosn-
ingarréttar síns áður en Jieir fai-a.
Geta þeir fengið að kjósa á skrif-
stofu bæjarfógeta kl. 1—5 dag-
lega. — Sérstaklega er þessu beint
til stuðningsmanna og kjósenda
E-listans.
11. hljómleikar
þýsku hljómsveitarinnar voru i
gærkvöldi. Þar hafði hr. Karl
Grötsh fiðlu-einleik í 2 Romanzen
eftir Beethoven og tókst mætavel.
Sjöunda sýmfónían var endurtek-
in á Jiessum hljómleik, og var
henni tekið fegins hendi af áheyr-
endum.
í kvöld heldur sveitin síðasta-
hijómleik sinn í kirkjunni kl. 7,30,
og að því búnu verður hún kvödd
með samsætr á Hótel ísland. '
Bönkunum
verður lokað frá hádegi á morg.
un.
Þýskt skólaskip
kom hingað í gær og mun verða
hér nokkura daga.
Enskt varðskip
kom hingað í morgun.
Lárus Sigurbjömsson,
rithöfundur, er nýkominn til
bæjarins.
Félagsppentsmiðjan
til, með litlum fyrirvara.
Einnig eiginhandar gúmmí-stimpla
Glimta-söngskemtunin
byrjar í kveld kí. 7)4 en ekki
7)4 eins og auglýst hafði verið.
Tímanmn hefir verið breytt, til
þess að hann yrði ekki of naurn-
ur. Söngpallurinn liefir verið
stækkaður eftir ósk söngmann-
anna, til Jiess að Jiar fengist meira
svigrúm til leiks.
Hjúskapur.
Ungfrú Louise Skoug og.Frið-
Jiór Steinholt verða gefin saman
í hjónaband í Osló í dag.
Aðalfundur í. S. í.
(ÍJiróttasambands íslands) verð.
ur haldinn 19. þ. m. i Kaupþings-
salnum kl. 8 síðd. Lyftan verður í
gangi hálfa klukkustund fyrir
fundinn. Fulltrúar eru beðnir að
koma stundvíslega og með kjör-
bréf.
Allsherjarmót í. S. í.
heíst á hinum nýja íþróttavelli
kl. 2)4 á morgun, og verður mjög
fjölbreytt að vanda. Nú eru tvö ár
síðan þetta mót hefir verið háð,
og verða keppendur um 80, fyrir
utan reipdráttarmenn og aðkomu-
menn utan af landi, sem eru marg-
ir, eins og sjá má af keppanda-
skránni, sem seld verður á götun-
um á morgun.
Mikil hátíðahöld
verða hér á morgun á afmæli
Jóns Sigurðssonar, og gangast
íþróttafélögin fyrir Jiví, eins og
verið hefir. — Nýi íjiróttavöllur-
inn verður vígður, og má búast
þar við miklu fjölmenni. — Búð-
um mun verða lokað frá hádegi.
Til Hallgrímskirkju
í Reykjavík: 20 kr. frá X, af-
hent síra Bjarna Jónssyni.
Gullfoss
fór héðan kl. 8 i gærkveldi til
Vestfjarða. Meðal farþega var
Sigvaldi S. Kaldalóns og fjöl-
skylda hans, á leið til Flateyjar ii
Breiðafirði.
Laxveiði
hefir veiúð fremur treg i Elliða-
ám til Jiessa. Flest hafa veiðst io
laxar á dag, tvívegis.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: 5 kr. frá R.
Glfneiireir i OrnmðÉ.
—o---
íslensku glímumennirnir 14 hafa
rui sýnt glimu víðsvegar hér í Dan-
möi-ku. Komu þeir hingað að
morgni hins 19. maí og glímdu
fyrst i Svendborg á föstudag fyi--
ir hvítasunnu. Var þegar í stað
gerður góður rómur að glimunni,
en hvernig sem annars á því stend-
ur, hefir aðsóknin verið slæleg
hingað til. Segjast Noregsfarax-nir
frá því í fyrra hafa fengið ólikt
beþri a'ðsókn i Noregi.
I Fredriksværk vildi það óhapp
til, að Þorgils Guðmundsson kenn-
ari fór úr liði um öxlina, og verð-
ur hann víst eigi bættur svo, að
hann geti tekið þátt í glímusýning-
unum það sem eftir er fararinnar.
Annars hefir förin gengið ágæt-
lega; sérstaklega róma glimu-
mennirnir Jiað, hve Niels Bukh
hafi tekist að semja góða ferða-
áætlun fyrir förina. Fei-ðast
glímumennirnir í sérstökum bíl
milli sýningarstaðanna, svo að för-
in verður ánægjulegri en sífelt
skrölt með járnbi-autarlestum.
Sunnudaginn 30. maí var glírnt
í Kaupmannahöfn. Blöðin lofa
glímuna mjög fyrir fegurð og
snerpu, og áhox-fendur klöppuðu
glimumönnunum óspart lof í lófa.
Sérstaklega vöktix Jieir Sigurður
Giæipsson, Þorgeir Jónsson, Sig-
urjón Guðjónsson og Ottó Mar-
teinsson athygli áhorfenda fyrir
óvenju laglegar varnir og brögð
rneðan á sýningarglímunni stóð.
í kappglímu, sem kom á eftir
sýningarglímunni, vann Sigurður
Greipsson í eldra flokki, en Sigui--
jón Guðjónsson i yngra flokki.