Vísir - 13.07.1926, Side 2
VtSIR
Smith Premier Ritvél no. 10
er til sölu mjög ódýrt.
Vélin er notuð en í ágætu stnndi.
Símskeyti
V.
Khöfn, 12. júlí. FB.
Marokkósamningur Frakka og
Spánverja.
Símað er frá París, að Frakk-
iand og Spánn liafi gert samn-
ing sín á milli um Marokkó og
var samningur 'þessi undirskrif-
a<Sur í Dover.
Sprenging í New Jersey.
Símað er frá New York City,
að eldingu liafi lostið niður í
hergagnabúr í ríkinu New’
Jersey í Ameríku. Hergagna-
búr Iþetta er við Denmarkvatn-
ið. — pegar eldingunni laust
niður varð sprenging mikil og
særðust fimtíu menn en tuttugu
biðu bana. Tvö hundruð hús í
nágrenninu ónýttust.
Franska stjómin völt í sessi.
Símað er frá París, að stjórn-
in bafi að eins 22 atkv. meiri
hluta í þinginu. Verður eigi séð
fyrir, hvort hún hafi nægilegt
fylgi í þinginu til þess að koma
áformum sínum i fjárhagsmál-
unum í framkvæmd, en til
þeirra kasta kemur nú næstu
daga, er hún ber fram ákveðn-
ar tillögur um aukið vald stjórn-
arinnar til þess að taka ákvarð-
anir í fjárhagsmálum, án ihlut-
unar þingsins.
Frá Portugal.
Símað er frá Lissabon, að
Costa sé fangi i Belenehöllinni.
Herinn styður Carmona, sem
var áður ráðherra Costa, en var
nýléga sviftur embætti.
Vatnavextir í Mið-Evrópu.
Símað er frá Berlín, að mikl-
ar samgönguteppur séu um
Mið-]?ýskaland vegna vatna-
vaxta. Járnbrautarbrú i Licht-
enfeld Main hefir hrunið rétt
eftir að farþegalest hafði verið
ekið yfir hana.
lÉitðiiar istaii hafs.
12. júlí. FB.
Samkvæmt fregn í Lögbergi
hefir Hákon Noregskonungur
sæmt Hon. Thomas Johnson,
fyrv. ráðherra, St. Ólafs orð-
unni. Orðuna fekk hann fyrir
að koma fram á hátíð Norð-
manna í Minneapolis í fyrra, en
sú hátið var haldin í minningu
um 100 ára veru Norðmanna í
Ameríku. Kom Johnson þar
fram fyrir hönd canadisku
stjórnarinnar.
Richard Bech, sem síðustu ár
hefir dvalið á Cornell háskólan-
um í íþöku (í New York rilci),
varði doktorsritgerð sína þar í
vor, og er hún um Jón skáld
porláksson og þýðingar hans
úr ensku máli. „Mun það vera
allitarleg greinargerð,“ segir í
Heimskringlu, „230 blaðsíður
vélritaðar.“ —- Bech hefir sótt
nám sitt af frábænim dugnaði
og hlaut mörg námsverðlaun,
en jafnframt slóð hann fram-
arla í flokki í hverskonar fé-
lagsskap stúdenta i Cornell er
til nytsemda horfði. — Dr. Bech
hefir nú vei*ið ráðinn aðstoðar-
prófessor St. Ólafs College í
Minnis^ta.
Verðlannaíregn.
Ýmsum mönnum hér í bæ er
kunnugt um það, að Mr. Alexand-
er McGill hafði í smíðum í fyrra
sumar ritgerð um verslunarvið-
skifti Islendinga og Breta á fyrri
óldum. En síðastliðið haust skyldi
keppa um verðlaun þau er nefn-
ast Robert Locke Bremner Mem-
crial Prize og átti að veita tvenn
jöfn verðlaun fyrir ritgerðir urn
eitthvert efni úr sögu Norður-
landa. Öldungaráð háskólans í
Glasgow veitir verðlaunin. Kvað
það upp dóm sinn 21. f. m. og
hlutu þau verðlaunin Mr. M,cGill
fyrir ritgerð þá er að ofan greinir
og nefnist The English in Iceland
en hafði einkunnarorðin „Eld-
gamla ísafold", og Miss Annie W.
Cameron, M. A„ Ph. D., fyrir rit-
gerð er hún nefnir The Orcades
of Torfæus.
Mr. McGill varð fyrst kunnur
hér á landi fyrir bækling sinn The
Independence of Iceland, sem út
kom árið 1921 og þá var rækilega
getið í Vísi, en kunnastur hefir
hann orðið almenningi hér fyrir
greinar sinar í Eimreiðinni. Hann
hefir hin síðari árin ritað fjölda-
margar greinar um íslensk efni í
skosk blöð og tímarit og allar inn-
blásnar af frábærum hlýleik í
okkar garð. Flestar eða allar hafa
greinar þessar verið alþýðlegs
eðlis, én þó eru þær fullar af
skarplegum athugunum. Lang-
flestar hafa þær birst í hinu ágæta
mentamálablaði Skota Scottish
Educational Journal og i blaði
einu, Columba, sem ka])ólskir
menn gefa út í Glasgow,
Það er enginn vafi á því, að hér
tr fjöldi manna sem samgleðst
Mr. McGill yfir heiðri þeim, sem
honum hefir hlotnast með því að
vinna þessi verðlaun, enda er ekki
örgrant að við verðum þess heið-
urs einnig aðnjótandi að nokkru
þótt óbeinlínis sé. Slíkar verð-
launaritgerðir draga að sér at-
hygli og jafnframt einnig að þvi,
sem.þær fjalla um. Það er ekki
efamál, að marga þeirra, sé'm lesa
þessa verðlaunaritgerð, mun langa
til þess að kynnast sögu okkar
betur. Það mun líka vera ætlun
höfundarins, að halda viðskifta-
sögunni áfram alt fram á þenna
dag, þegar hentugleikar leyfa. Er
gott til þess að vita, að bæði
Verslunarráð íslands og breski
konsúllinn hérna í Reykjavík
skildu það frá upphafi, að hér var
ekki um hégómamál að ræða, og
veittu Mr. McGill bæði hvatning
og stuðning við rannsóknir hans.
Þeim hlýtur að vera það sérstakt
ánægjuefni að sjá nú hver árang-
urinn hefir orðið.
Stjinriiti íCié
— Þingrof. —
—o—
Mr. Mackenzie King stjórnar-
íormaður i Canada beiddist lausn-
ar seint í fyrra mánuði og tók þá
íhaldsstjórn við völdum, undir
fcrustu Mr. Meighens, sem áður
hefir verið stjórnarforinaður.
Eftir allsherjarkosningar í
Canada í vetur, skorti frjálslynda
flokkinn nokkur atkvæði til þess
að vera í meirihluta, en fékk
stuðning nokkurra bændaflokks-
manna til þess að fara með völd.
íhaldsflokkurinn hefir sakað toll-
gæslumenn stjórnarinnar um
margvísleg afglöp, og Ihefir þótt
slælega rekin rannsókn sú, setn
stjórnin lét fram fara út af þeirri
ákæru. Loks var svo komið, að
Kingstjórnin sá að vantraustsyf-
irlýsing yrðí samþykt gegn sér,
í þinginu, og þá beiddist Mr. King
þess af landstjóranum, Byng lá-
varði, að hann léti rjúfa þing og
stofna til nýrra kosninga. Land-
stjóri neitaði að verða við þessari
beiðni, og beiddist þá Mr. King
lausnar. —
Þegar Mr. Meighen var orðinn
stjórnarformaður, varð hann að
beiðast lausnar frá þingmensku og
leita endurkosningar í kjördæmi
sínu, svo sem venja er i löndum
Bretaveldis, þegar þingmenn verða
ráðherrar. En á meðan því fór
fram, lenti nýja stjórnin tvívegis
í eins atkvæðis minnihluta við at-
kvæðagreiðslur í þinginu, og varð
það til þess, að landstjóri rauf
þing, og verða bráðlega boðaðar
allslierjarkosningar í Canada.
M. Coué
hinn franski huglækningamaður
látinn.
—o—
Nýkomin ensk blöð herma, að
M. Coué hafi látist 2. þ. m., sjö-
tugur að aldri. Hann varð heims-
frægur fyrir fám árum vegna hug-
lækninga sinna (autosuggestion).
Hafa bækur hans verið þýddar á
mörg tungumál, m. a. á dönsku,
ög töluvert selst af 'þeim hér á
landi. Coué var maður yfirlætis-
laus og kvaðst sjálfur ekki lækna
nokkurn mann, heldur að eins
kenna þeim, hvernig þeir ætti að
lækna sig sjálfir.
Mmmwmrwgia.!
Jarðarför Kristjáns Jónssonar
dómstjóra, fór fram í gær, og
var mikið fjölmenni viðstatt.
Flófst hún með þvi að síra Frið-
rik Hallgrímsson flutti bæn að
heimili hins látna, og voru þar að-
ems nánustu ættingjar og vinir.
1 dómkirkjuna var komið kl. 2, og
hélt síra Friðrik Hallgrímsson
ræðu, en 5 manna ílokkur söng.
Kirkjan var tjölduð svörtu, bæði
kórinn og niður af lofti. Forsetar
Alþingis, ráðherrar og þingmenn
báru kistuna í kirkju, en úr kirkj-
unni báru hana dómarar í Hæsta-
rétti og hæstaréttarlögmetin. Var
athöfnin öll hin hátíðlegasta.
Veðrið í morgun.
Hiti i Reykjavik 11 st., Vest-
mannaeyjum 10, ísafirði 8, Akur-
eyri 13, Seyðisfirði 16, Grindavík
11, Stykkishólmi 9, Grímsstöðum
10, Raufarhöfn 11, Hólum í
Hornafirði 13, Þórshöfn í Færeyj-
um 13, Angmagsalik (í gærkv.)
10, Yarmouth 18, Wick 16. Engin
skeyti frá Kaup'mannahöfn, Utsira
né Jan Mayen. — Mestur hiti hér
í gær 15 st., minstur 9. Úrkoma
3,5 mm. — Loftvægislægð fyrir
norðaustan land. —• Horfur: í
dag: Fremur hægur landnorðan
vindur og dálítil úrkoma á norð-
vesturlandi. Útsunnan á Suður-
landi og Austurlandi. Breytileg
vindstaða, hægur, annarsstaðar.
I’oka sums staðar við Suðurland.
í n ó 11: Sunnanátt á Suðurlandi
og suðvesturlandi. Landnorðan á
norðvesturlandi. Þoka sums stað-
ar við Suðurland og dálitil úr-
koma á suðvesturlandi. .
Gestur í bænum:
Gestur dvelur hér í bænum um
þessar mundir sem íslendingar
vel mættu vita deili á. Það er pró-
fessor Knud Berlin, sem stundum
hefir látið til sin heyra unr mál-
efni íslands, og ætíö á einn veg.
Prófessorrnn hefir ekki komið
hingað til landsins síðan um alda-
mót, er hann var í för danskra
stúdenta hingað, þeirri er Mylius
Erichsen landkönnuður stjórnaði.
Kemur hann nú með styrk úr
dansk-íslenska sáttmálasjóðnuni,
sem mörgum kann að þykja kyn-
leg ráðstöfun.
Áður en prófessorinn fór frá
Khöfn, hafði „Politiken" tal af
honum og spurði m. a. hvort hann
væri ekki smeykur við að heim-
sækja ísland. Galt prófessorinn
nei við, og lét ummælt, að góðum
Islending myndi hafa farið líkt og
honum sjálfum, ef um sjálfstæði
Danmerkur hefði verið að tefla í
stað íslands. Sagði hann ennfrem-
ur að nú myndi hann taka að
spekjast i ellinni, og væri ætlun
lians með ferðalagi sína að styrkja
vináttu- og bróðurbönd sambands-
þjóðanna.
*
Fundirnir,
sem „Det nordiske administra-
tive Forbund" Tieldur í neðrideild-
arsal Alþingis, eru opinberir, og
er fólki heimilt að koma þang'að
og hlýða á umræður, svo lengi
sem húsrúm leyfir.
Prófessor ólafur Lárusson
og frú hans fóru austur í Þing-
vallasveit í gær og ætla að dvelj-
ast þar næstu vikur.
Knattspymumennimir
norsku komu hingað á Lyru x
morgun og var tekið á rnóti þeim
kl. 9. Forseti í. S. 1., Benedikt G.
Waage, flutti ræðu, en þá söng
Karlakór K. F. U. M. norska
þjóðsönginn. Fararstjóri Norð-
manna, Johan Refsdal, þakkaði