Vísir - 09.09.1926, Blaðsíða 4

Vísir - 09.09.1926, Blaðsíða 4
MSIR Dynamolsgtir. Hinar viðurkendu „BULLIM úynamolygtir nýkomnar. Bestu rafmagnslugtirnar sem til Iandsins flytjast. Vepðið ca. 25% lægra en áður. Mikið úrval af karbidlugtum. AHir varahlutir í dynamolugtir fyrirliggjandi. Fálkinn Undir verði: Ddkakæfa á 1,00 ^/a kg- Ha- gikjöt á 0,75 — — Rullupylsurá 1.25 — — Tólg á 1,25----------- Mtinið kjötfarsið og fiskifarsið, lagað á hverjum morgni. Kjotbúðin i Von. Sími 1448 (2 línur). B S. A. mótorhjól, með körfu til sölu, nú •þegar. öppl. í nýju Blikksmið- junni Vesturgötu 20. JPostulínsbollapör 0 50. Diskar steintau 0,40. Matar- Kaffi- og þvotta-<teIl og allar aðrar leir- vörur ódyrastar i versl. ÞÖRF Hveríisgötn 56. Simi 1137. I 1 | &II6I | Sel fæði í vetur, 65 kr. fyrir kvenmann, 80 kr. fyrir karlmann yfir mánuðinn. A. v. á. (248 Geymslupláss til leigu. A. v. á. (212 P TAPAÐ - FUNDIÐ | | VINNA | Brúnn skinnhanski.tapaðist 29. ágúst á Kaplaskjólsvegi. Skilist á Stýrimannastíg 11 A. (250 Kona tekur menn i þjónustu. Uppl. í síma 781. (260 Presening af bifreið tapaðist frá Tungu niður í miðbæ. A. v. á. • (244 Vélrita bréf og samninga, ódýrt og fljótt afgreitt. Fleima 1—3 og 8—9. Sólveig Hvannberg, Grettis- götu 52. (257 Blár kettlingur með hvita bringu og silkiband um hálsinn, i óskil- um. Vitjist í Aðalstræti 6. Sími 1318. (266 Kjólar saumaðir eftir nýjustu tísku á Laugaveg 52, uppi. (256 Góð, einhleyp stúlka, óskast sem ráðskona. Uppl. Þórsgötu 3. (252 Skinnhanski af vinstri hendi, fóðraður með loðskinni, týndist. Skilist á Hverfisgötu 12. Fundar- laun^ (262 Stilt og barngóð stúlka óskast. A. v. á. (247 Dugleg og þrifin stúlka, með 11 ára telpu, óskar eftir ráðskonu- stöðu eða góðri vist, helst í sveit. Uppl. Þórsgötu 21. (246 I KENSIA Kensla' í píanóspili, dönsku og ensku. Frakkastíg 21, niðri. Hljóð- færi til æfinga. Heima kl. 7—9 síðdegis. (236 Unglingur og roskinn kvenmað- ur óskast í vetrarvist á sýslu- inannsheimili á Norðurlandi. Uppl. á Bragagötu 27. (245 Kensla. Kenni í vetur eins og að undanförnu, unglingum dönsku, vélritun, bókfærslu og reikning. Þeir, sem nú þegar hafa pantað hjá mér tímakenslu næstkomandi vetur, geri svo vel að tala við mig fyrir 1. okt. Sólveig Hvannberg. Grettisgötu 52. (258 Stúlka óskast í vist hálfan eða allan daginn. Tveir fullorðnir í heimili. Uppl. í Þingholtsstræti 18, uppi, kl. 6—8 siðd. (243 2 stúlkur vantar að Gufunesi frá 20. þ.m. til I4_maí. Þurfa að kunna að mjólka. Semja skal við Stefán Sveinsson á Frakkastíg 15. Heima milli 12 og 1 og eftir 8 á kvöldin. Sími 602. 240 Orgelspil kenni eg. Sæmundur Einarsson, Njálsgötu 25. Heima 4—6. (267 P TILKYNNING JJ Nokkrir menn teknir í þjónustu á Njálsgötu 32, niðri. (224 Bifreiðaferðir til og frá Hafn- arfirði allan daginn. Nýir bílar „Nash“ og „Flint“ — Afgreiðsla i Hafnarfirði við Strandgötu á móti Gun’narssundi. Sími 13. — Einnig bílar til leigu. Hvergi eins ódýrt. Nýja Bifreiðastöðin. Kola- sundi. Sími 1529. (237 Ung stúlka óskar eftir búðar- eða bakaríisstarfi. Uppl. Þingholts stræti 28, uppi. (112 Einasta verslunin á íslandi, sem hefir til vélar, sem geta fullnægt viðskiftavinum með alla skinna- vinnu. P. Ammendrup, Laugaveg 19. Sími 1805. (100 Gisting fæst á Vesturgötu 14 B. Inngangur frá Tryggvagötu. (167 Menn teknir í þjónustu Lindar- götu 1 B, miðhæð. (160 / Við hárroti og flösu getið þér fengið varanlega bót. öíl óhrein- indi i húðinni, filapensar og húðormar tekið burt. — Hár- greiðslustofan, Laugaveg 12. — Unglingur óskast stuttan tíma til að innheimta reikninga. Sími uoo. (268 Hraust og ábyggileg stúlka ósk- ast í vist. Uppl. á Laugaveg 27, uppi. (265 3 herbergi og eldhús óskast nú þegar eða 1. okt. — Talsverð fyr- irframgreiðsla getur komið til greina. Tilboð auðkent: „Fyrir- íramgreiðsla“ sendist afgr. Vísis. ' ' (239 Stofa og eldhús eða aðgangur að eldhúsi óskast. Góð umgengni. Ábyggileg borgun. Tilboð inerkt „1881“ sendist afgr. Vísis. (255 EinhleypUr karlmaður óskar eítir herbergi. Sími 784. (253 Barnlaus hjón óska eftir íbúð, tveim herbergjum og eldhúsi, 1. okt. Uppl. í sima 1148. (251 Tvö herbergi og eldhús helst i mið- eða vesturbænum, óskast nú þegar eða 1. okt. Uppl. í nýju blikksmiðjunni, Vesturgötu 20. (221 2 herbergi til leigu fyrir ein- hleypan. Laufásveg 16. Sími 325 og 2000. (158 Ibúð (2—4 herbergi og eldhús) vantar mig 1. okt. Stefán Einars- son, mag. art., Viðey. Sími 1946. (163 Stofa með ljósi og hita óskast, til leigu af ungum manni í fastri stöðu. Tilboð merkt: „Föst at- vinna“ sendist afgr. Vísis. (269 Mig vantar 3—4 herbergja íbúð. Kaup á húsi gæti komið til mála. Sigurbjörg Jónsdóttir, Bragagötu 26. (263 2—3 herbergi og eldhús óskast nú þegar, eða 1. okt. Guðbjörn Guðmundsson, prentsmiðjustjóri, Acta. Sími 948. (81 Óskast til ieigu fyrir einhleyp- an. reglusaman mann, björt og rúmgóð stofa með sérinngangi og nútíðarþægindum, helst i kyrlátu og fámennu húsi, i eða nálægt miðbænum. Tilboð ásamt upplýs- ingum og verði óskast send í póst- hólf 371. (264 Herbergi til leigu á Fálkagötu (Engihlíð), Grímsstaðaholt. (249 Tvö herbergi og eldhús óskast 1. okt. Tvent í heimili. A. v. á. (242 50 tonn taða og úthey, norð- lenskt, grænt og vel verkað, til sölu. A. v. á. (238 Sem nýr dívan til söiu, með tækifærisverði. A. v. á. (235 L-TJ-X dósamjólkin er best. (234 AfbragðsgóÖar danskar kartöfl- ur 15 au. kg. Akraness-kartöfl- ur 18 au. kg. Rófur. Nýkomið til SILLA & VALDA. (261 Nýkonmar karlmannafatnaðar- vörur, vandaðar en ódýrar. Flafn- arstræti 18. Karlmannahattabúð- in. (259^ Til sölu nýtt harmoníum, lítið. Verð kr. 165.00. Útborgun strax kr. 65.00. Mánaðarleg afborgun á eftirstöðvunum kr. 10.00. — Elias- Bjarnason, Sólvöllum 4. (254 Rafsuðuplata, sem ný, til sölu ineð tækifærisverði. Uppl. i símæ 1865. (24K ■ JPHP* PANTHER-skór eru fram» úrskarandi fallegir og vandaðir. —•- Fara vel á fæti. — Kaupið þá. —■ Þórður Pétursson & Co. Einka- umboðsmenn. (192- Hattar og kjólar saumað í Þing- lioltsstræti 28, uppí. (11X1 Félagspmita«ai8jan. JTTNBLENDINGURINN. „Eg drap hana ekki,“ endurtók Ben Stark. „Einmitt það! — Svo að þú drapst hana ekki!------ Nú sé eg loksins hverskonar skepna þú ert. — Eg vissi löngum að þú mundir vera huglaus geit, en eg hélt þó, að þú þyrðir að kannast við sannleikann fyrir sjálfum þér.“ „Heyrðu, Gale,“ sagði Stark.----- „Dettur þér í raun og veru í hug, að eg hafi drepið Merridy?" „Eg veit að þú gerðir það. — Hver sá maður, sem misþyrmir konu, er líka vís til að drepa hana — ef hann þorir.“ Stark var nú búinn að ná sér aftur og hló kuldalega, Síðan mælti hann: „Jæja, svo að þér hefir þá orðið þetta svona örðugt, greyið! — Eg hélt auðvitað að þú vissir —.“ „Vissi hvað?“ — Gale var nú kominn í megnustu geðs- hræringu, og hendur hans titruðu: — „Vissi hvað?“ — — „Að hún fyrirfór sér sjálf. —“ „Þorirðu að sverja það við guðs nafn?“ „Já, þ a ð sver eg við guðs nafn.“ Nú varð löng þögn. „Hvers vegna gerði hún það?“ „Heyrðu — finst þér ekki dálítið undarlegt, að við skulum standa hér og vera að karpa um þetta? — Jæja, ef þú vilt eridilega fá að vita sannleikami: Eg kom heim snemma nætur — líklega einum tveim sjtundum eftir að þú fórst. — Eg kom henni að óvörum — hún var víst ekki búin að átta sig á því, hverju hún ætti að skrökva að mér. — — Mig fór að gruna margt og nefndi nafn þitt. — Eg gerði það sennilega í hugsunarleysi, en henni varð svo við, að hún gafst upp. — Hún hélt víst að eg vissi miklu meira en eg lét uppi.--------Og svo varð náttúr- lega helvítis-eldur og ósköp út úr öllu saman. —“ „ITaltu áfram, Stark!“ „Eg hefi ugglaust sagt margt ljótt og ógnað henni. — Eg varð nefnilega alveg sjóðandi bandvitlaus. — Og hún hefir líklega haldið, að eg mundi ganga af sér dauðri, en það var misskilningur, því að eg ætlaði alls ekki að drepa hana. — Og svo rauk hún í að drepa sig sjálf.“ — Andlit Gale’s var hvítt eins og kalk og röddin hás, þeg- ár hann svaraði: „Og þú misþyrmdir henni — barðir hana? — Þess vegna réð hún sér bana?“ Stark svaraði engu. „í blöðunum stóð, að alt hefði verið á tjá og tundri í herbergjunum, eins og eftir bardaga. —“ Stark þagði enn og Gale hélt áfram: „Þú misþyrmdir henni — var ekki svo?“ „Jæja — Eg hafði að minsta kosti nægilega ástæðu til að gerá það. — Engin kona önnur hefir verið mér ótrú —• hvorki kona né kærasta." —■ „Datt þér í hug — í alvöru —?“ „1 alvöru? — Mér var alvara þá og enn er eg sömm skoðunar. — Hún neitaði að vísu — en — en —“ „Ög þetta gastu ímyndað þér — þú sem þektir hana svona vel---------þú hlýtur að hafa átt erfiðar nætur Bennett, með alt þetta á samviskmini. —“ „Eg sór að þú skyldir falla. —“ „—-Og svo kórónaðir þú níðingsverkið með því, að kenna mér um dauða hennar. — Það gerði mig að útlaga,. Bennett. —--------• Hvers vegna heffrðu annars sagt mér frá þessu öllu?-------- „Váð tölum nú saman í síðasta sinn í nótt. — Eg vildí að þú fengir að vita hversu máttugt hatur mitt hefir verið.“ — „Jæja, þá er þessu máli lokið.“ — Þeir höfðu staðið andspænis livor öðrum og horfst i augu, og voru til alls búnir.------ Alt í einu krepti Gale höndina fastar um knífskeftið, svo að hnúarnir hvítnuðu, en hægri hönd Starks greip til byssunnar. — í sömu svifum réðist Gale að honum yfir' borðið. Það blikaði á knífinn í ljósinu, skot kvað við og síðan annað og hið þriðja. — Lágt hljóð heyrðist úti fyr- ir kofanum, þungt högg var greitt á hurðina að utan og við aðra atrennu hrökk hún sundur i smá-mola. — í á- hlaupinu hafði Gale sópað lampanum af borðinu, svo að dimt varð inni og áttust fjandmennirnir nú við í inyrkr- inu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.