Vísir - 20.11.1926, Blaðsíða 2
H T SI Á1
Allir sem versía með spil,
ætiu að muna eftir, aS Holmblads-spilin frá S. SalO"
mon & Co. eru lang vinsælust allra spila, sem hér fást.
löíum 6 tegandir fyrirliggjandi
Hér með tilkynnist að jarðarför konunnar minnar og móður
okkar, KristbjargarRunólfsdóttur, fer fram frá dómkirkjunni mánudag-
inn 22. þ. m. og hefst með húskveðju á Baldursgötu 20 kl 1 e. h.
Guðjón Jónsson og börn.
Hér með lilkynnist vinum og vandamönnum, að okkar
hjartkæra móðir, Filippia Brynjólfsdóttir, andaðist 10. þ. m.
að heimili sínu, Rauðnefsstöðum á Rangárvöllum.
Jarðarförin fer fram 27. þ. m.
Guðmundur pórðarson. Árni pórðarson.
Hérmeð tilkynnist ættingjum og vinum, að dóttir okkar elsku-
leg, M iría Vilhelmina, andaðist að heimiJi sínu Grjólagötu 14 B. i
gær 19. þ. m.
Jarðarfötin ákveðin siðar.
Sesselja Þórðardóttir. Óikar Árnason.
Framhalds-nppboí
hefst næstkomandi mánndag á samskonar
vörnm og áðnr.
UiÁi Lh£..i
Jóh ölafssoa & Go.
fiiðjið ekki um „átsúkkulaði“, það
er til af mörgum mismunandi
tegundum. — Biðjið um
TOBLER.
Af bragðinu skulu þér þekkja það.
Tilkynning.
Matvðfnverslnn er opnnð í dag á
Grettisgðtu 2.
Þar verða á boðstúlnm gúðar vörnr
með samgjörnn verði.
Simi 871.
Símskeyíi
—o—
Khöfn 19. nóv. FB.
Námamenn fella tillögu Baldwins.
Simaö er frá London, aö náma-
menn hafi felt sáttatillögnr Bald-
■wins. Foringjarnir viröast ráö-
þrota. Fulltrúafundur námamanna
'kemur saman á morgun. Menn bú-
ast við því, aö margir þeir, er því
voru fastast fylgjandi, aö sáttatil-
lögur Baldwins yrðu samþyktar,
muni hvetja námamenn til þess að
hefja vinnu þegar. Það er talið
mjög hætt við því, að samband
r.ámamanna klofni. 370.000 náma-
menn unnu í námunum í gær.
Bernard Shaw hafnar Nóbels-
verðlaununum.
Símað er frá London, að Bern-
ard Shaw, setn nýlega voru úr-
skurðuð bókmentaverðlaun Nó-
bels, hafi hafnað þeim með þeim
ummælum, að hann þrafnist ekki
peninganna, og hann óski þess, að
þeim verði varið til þess að auka
þekkingu Englendinga á sænskum
bókmentum.
Sað&r-Jútland.
Khöfn í október.
Um þver endilöng Norður-
lönd hafa menn fylgst með hinni
mestu eftirtekt með því, sem nú er
að gerast í Suður-Jótlandi. Lands-
hluti þessi er syðsti hluti Norður-
landa, og mönnum getur eigi
staðið á sama hverir hafa yfirráð
yfir honum eða hvernig yfirráð-
unum er beitt, hvort kúgun sé
höfð í frammi við landslýð eða
hvort stjórnarfarið sé markað af
skeytingarleysi og látið reka á
reiðanum. Þó nú að svo sé, að
sambandsþjóð vor hafi yfirráðin í
Suður-Jótlandi eftir atkvæða-
greiðsluna 1920, þá varðar oss ís-
lendinga einna minst Norðurlanda-
þjóða um afdrif landshlutans, því
að vér erum vopnlaus þjóð, en úr
suður-jósku málunum, og sérstak-
lega málum hertogadæmanna,
hlýtur vald og herstyrkur einn að
skera, þegar krufin verða til
mergjar. Landshlutinn var her-
fang Þjóðverja 1864.og aftur her-
fang bandamanna 1918, áður en
þeir skiluðu honum aftur í hend-
ur Dönum. Það er því gersamlega
á misskilningi bygt, er menn eða
félög, sem stjórnast af því sem eg
vil kalla „anda hinna sameinuðu
lconungsríkja“, reyna að útbreiða
skoðanir á suðurjósku málunum,
sem allar eru meira og minna lit-
aðar dönskum hugsunarhætti.
Þetta hafa íslendingar skilið og
tekið frekar þunglega slíkri við-
leitni, þegar höfð var í frammi.
En nfx bregður svo við, að uppi
er hreyfing i Spður-Jótlandi, sem
einkennileg þykir, og þó að hún
sé sérstaklega sniðin eftir stað-
háttum í Suður-Jótlandi, kann hún
að hafa áhrif annars staðar í sam-
bandslandi voru, og því ekki vert
að ganga alveg fram hjá henni.
Cornelius Petérsen heitir mað-
ur. Hann er frá Vesteranflod í
Suður-Jótlandi, bóndi, mikill fyr-
ir sér og orðhákur. Árið 1920 var
hann hinn ákafasti föðurlandsvin-
ur, en nú vílar hann ekki fyrir
sér að eiga samvinnu við Þjóð-
verja norðan landamæranna, til
þess að koma áhugamáli sínu á
íramfæri. Við hann er svokölluð
sjálfstjórnarstefna eða öllu heldur
sveitastjórnarstefna kend. Vill
hann koma á sjálfstæðri héraða-
stjórn og bændastjórn í stað þing-
stjórnarinnar, sem hann telur hafa
leitt böl yfir dönsku þjóðina, en
sérstaklega þó yfir Suður-Jótland,
eftir að landshlutinn komst undir
dönsk yfirráð.
Stefna suðurjóska bóndans hef-
ir því tvær hliðar, aðra almennara
eðlis, hina þrengri, sem í rauninni
nær einungis til Suður-Jótlands.
Fvrri og meiri hlið málsins veit
að hinni almennu óánægju með
þingræðið, og er það ekki sérstakt
í Danmörku, þar sem skotið hefir
upp fjölda af minni háttar spá-
mönhum, sem blindaðir voru af
hinum fascistiska ljóma sunnan úr
ítalíu, og héldu að þeir gætu orð-
iö einskonar vasabókarútgáfur af
Mússólíni. En síðari hliðin og
þrengri, veit alveg sérstaklega að
óánægju manna i Suður-Jótlandi
út af danska stjórnarfarinu í
landshlutanum. Af þessu verður
skiljanlegt, að Þjóðverjar vilji
eiga samvinnu við Cornelius Pe-
tersen, svo að jafnvel er sagt, að
60% af fylgismönnum hans séu
þýskir. En það sem kemur lönd-
um C. P. til að fylgja honum, er
vafalaust auk stjórnarfarsins einn-
ig fjárhagslegum vandræðum að
kenna.
Fyrir skemstu hélt H. P. Han-
sen, þingmaður, stórmerka ræðu í
íikisþinginu, þar sem hann benti
á ýmsa af þeim örðugleikum, sem
Suður-Jótland hefir orðið að stríða
við stjórnarfarslega eftir samein-
inguna 1920. Verður ekki farið
nánara út í það hér, en ein af að-
alástæðunum fyrir þvi, að ekki
hefir ræst betur úr, kvað hann
vera að slésvískt stjórnarfar hefði
verið svo frábrugðið dönsku
stjórnarfari og staðið á svo gömi-
um nierg, að ekki væri hægt að
a-llast til að alt félli þegar í stað
í ljúfa löð með ríkjahlutunum.
Það mun og viðurkent, að fjár-
hagsleg vandræði séu meiri í Suð-
ur-Jótlandi en nokkurs staðar ann-
ars staðar í Danmörku. Sérstak-
lega kom gengishækkun dönsku
krónunnar hart niður á þeim Suð-
ur-Jótunum, og þó að mikið hafi
verið gert til þess að bæta úr
vandræðunum, þá hefir það alt
komið fyrir ekki.
—0—
Eins og gengur og gerist, þegar
i;m svipaðar stefnur er að ræða, og
þeim fylgt eftir með nokkurri
íestu, hefir mönnum lent í hár
saman og hnútur flogið milli
borða. Frægust mun vera rimman
milli Staunings, forsætisráðherra,
og C. P. Er C. P. kvað 50.000 suð-
urjóska bændur vera í þann veg-
inn að flosna upp af jörðum sín-
um, sökum fjárhagsvandræðanna,
svaraði Stauning með því að
segja, að hann hefði 50.000 at-
vinnulausa menn í sínum flokki,
sem væru reiðubúnir til að taka
við óðulum bænda. Þetta þótti C.
P. vera hin mesta svívirðing
gagnvart bændum og kallaði for-
sætisráðherrann ræningjahöfð-
ingja o. f 1., en meiðyrðamál hafð-
ist upp úr krafsinu, og var 'C. P.
dæmdur í sekt.
Annað atriði í sambandi við
suðurjósku málin var það, að utn
svipað leyti og C. P. beið dóms,
þóttust menn hafa komist fyrir
samsæri í hernum, sem hefði það
fyrir augum að steypa stjórninni
og núverandi stjórnarfyrirkomu-
lagi. Nokkrir liðsforingjar voru
teknir fyrir og rannsakað mál
þeirra, og eins voru unglingar
nokkrir kallaðir fyrir rétt, því að
þeir höfðu látið hermannlega upp
á fascista vísu, en alt var þetta svo
ómerkilegt og barnalegt, að ekki
væri mark á því takandi, ef íhald-
ið hefði ekki notfært sér þann
ugg, sem sló á menn, og gert
meira úr atburðunum en vert var,
og með þvi veikt frekara en styrkt
stöðu stjórnarinnar, sem áður var
þó sæmilega óstöðug i sessi.
Þegar öll kurl koma til grafar,
er ekki vafi á því, að sjáifstjórn-
arstefna Corneliusar Petersens á
sér alldjúpar rætur i Suður-Jót-
landi, og að það er lítt hugsan-
legt, að slík stefna hefði getað
orðið til annars staðar í Dan-
mörku, heldur en einmitt þeiin
landshlutanum, sem var lausast
tengdur ríkinu og þar sem nokk-
urskonar sjálfstjórn var kunn frá
fornu fari.
Stjórninni hefir reynst erfitt að
greiða úr suðurjósku vandamálun-
um og svo mun enn verða. Og
ekki er að vita nema það verði
þyngst á metunum hjá stjórnar-
andstæðingunum, þegar þeir gera
upp reikningana við jafnaðar-
mannastjórnina, en víst er um það,
að suðurjósku málin hafa þegar
gert sitt til þess að losa stjórnina
í sessi, hvort sem þau verða til
þess að velta henni eða eigi.
L. S.
Messur á morgun.
í dómkirkjunni kl. II. Dr. Jón
biskup Helgason vígir cand. theol.
Pál Þorleifsson til Skinnastaða í
Öxarfiröi. - Engin siðdegismessa.
í frikirkjunni kl. 2 síðd. síra
Árni Sigurðsson. Kl. 5 prófessor
Haraldur Níelsson.
í Landakotskirkju: Hámessa kl.
9 árd. og kl. 6 síðd. guðsþjónusta
með prédikun.
í spítalakirkjunni í Hafnarfirði:
Söngmessa kl. 9 árd. og kl. 6 síðd.
guðsþjónusta með prédikun.
í adventkirkjunni kl. 8 síðd.
Síra O. J. Olsen prédikar. Sjá
augl.
Sjómannastofan kl. 6 síðd.:
Guðsþjónusta. Allir velkomnir.
Veöriö í morgun.
Hiti i Reykjavík 1 st., Vest-
mannaeyjum o, Isafirði 1, Ak-
ureyri -f- 1, Seyðisfirði 1, Grinda-
vik o, Stykkishólmi 1, (engin