Vísir - 20.11.1926, Qupperneq 3
VISIR
skeyti frá Grímsstööum og Hólum
i Hornafiröi), Raufarhöfn T,
Þórshöfn i Færeyjum 3, Angmag-
salik (í gær) -t- 8, Kaupmanna-
höfn 9, Utsira 8, Tynemouth 6,
Hjaltlandi 8, Jan Mayen 2 st.
Mestur hiti i gær 2 st., minstur -r-
& st. —■ ’Yfirlit: Djúp loftvægis-
lægö um Bretlandseyjar. Allhvass
sunnan i Noröursjónum. - Horfur:
Suövesturland i dag: Allhvass
noröan. í nótt: Sennilega hvass
noröán. — Faxaflói og Breiöa-
fjöröur: I dag: Ngrölæg átt.
í nótt: Sennilega allhvass noröan.
Þurt veöur. Vestfiröir: í dag og
nótt: Allhvass norðaustan, lítil
snjókoma. — Noröurland: í dag
.og nótt: Norðaustlæg átt. Dálítil
snjókoma. — Noröausturland og
Austfirðir: 1 dag og nótt: All-
hvass noröaustan. Snjókoma.
Frostlaust. — Suðausturland: í
-dag og nótt: Hvass norðaustan.
Dálítil úrkoma.
Xeikhúsið.
„Sex verur leita höfundar“
verður leikiö annaö kveld kl, 8, í
riæstsíðasta sinn. — Aðgöngumið-
ar, sem keyptir voru að leiksýn-
ingunni síðastliðinn fimtudag,
gilda á morgun. — Dómar manna
um leik þenna eru mjög misjafn-
ir. Þykir sumum, sem fátt hafi
Jþeir betra séð á leiksviði, en aðrir
telja leikinn einskisverðan. - Guð-
brandur Jónsson hefir snúið leikn-
um á islensku og vandað mjög til
þýðingarinnar, enda virðist hún
vera ágæt.
Úr Húsavík
var símað í gær: Frost og fjúk
hér í dag, Allmikil fannkoma.
Mikla fönn setti niður hér um
slóðir um veturnætur. Siðan kom
leysing mikil. Hljóp þá vatn i
niarga kjallara hér í þorpinu og
olli skaða. Snjóflóð féll vetrardag
fyrsta sunnan í Húsavíkurfjalli.
Urðu fyrir þvi unglingsmenn tveir.
Annar komst úr því af sjálfsdáð-
um; hinn var grafinn upp úr
þriggja álna fönn að tilvísun hins.
Sakaði hvorugan. Kvefsótt (inflú-
ensa) gengur enn inn i svffitum. Úr
'benni er nýlega látinn Jakob
bóndi Þorgrímsson í Haga, mið-
aldra maður. Kapp var um land-
.kjörið hér í sveitum.
Silfurbrúðkaupsdag
eiga á morgun frú Margrét Árna-
dóttir og Páll Friðriksson, Grettis-
götu 33.
Nova
fór héðan í gærkveldi vestur og
rorður um land til Noregs.
Á sýningu Guðm. Einarssonar
Grettisgötu 11, hafa selst þessi
9 málverk: Þingvellir (verð 450
kr.), Morgunn (250), Viö gjáar-
enda (150), Sólarlag (200), Undir
Eyjafjöllum (100), Skjaldbreið
(80), Búrfell (80), Kvöld (80),
Frá Aþenu (60 kr.). Einnig hafa
selst 5 „raderingar“. — Sýningin
verður opin á morgun kl. 10 árd.
til 8 að kveldi.
Dansleik
halda Goodtemplarar í G.-T.-
húsinu í kveld, sbr. augl.
Félag Vestur-íslendinga
heldur aðalfund sinn kl. 9 í kveld
á Skjaldbreið. Félagar beðnir að
fjölmenna.
H a ppdrættisk j örin,
sem Eiríkur Leifsson auglýsti í
Visi í gær, gilda einnig fyrir skó-
búð hans.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: 2 kr. frá barni, 40
(fjörutíu) kr. frá N. N.
Gjöf
til veiku stúlkunnar 5 kr. frá
gömlum hjónum.
Biskupinn
neitar guðfræðingi um vígslu.
/
Á morgun fer fram prestsvígsla
í dómkirkjunni; biskupinn .vígir
Pál Þorleifsson cand. theol. til
Skinnastaðaprestakalls. — Annar
ungur guðfræðingur, cand. theol.
Þorgeir Jónsson, sem er ráðinn
prestur til Nýja ísl. kirkjufélags-
ins i Vesturheimi, hafði óskað að
fá vígslu sama dag, en biskupinn
neitaði að vígja hann.
Ástæður biskupsins til þessarar
ráðabreytni verða torskildar, ef
athugað er, að fyrir fjórum áruin
vígði sami biskup prest til safnað-
ar, sem er í þessu sama kirkjufé-
lagi og hafði sá guðfræðingur
numið fræði sín af sömu mönnum
og Páll og Þorgeir, þ. e. i guð-
íræðideild háskóla vors.
Á meðan biskupinn eigi hefir
gert nánari grein fyrir synjun
sinni, freistast margir til að ætla
að Þorgeir hafi framið einhvern
giæp, er geri hann óhæfan til
prestskapar,
Vænti eg þe£s að herra biskup-
inn skýri opinberlega frá ástæð-
um sínum, svo að rakalaus grunur
falli eigi á. Þorgeir, og til þess að
eg og aðrir prestlingar vitum
hvers vér megum vænta, ef vér í
tið núverandi biskups kynnum aö
beiðast blessunar ísl. kirkjunnar
til að boða bræðrum vorum vest-
anhafs fagnaðarerindið.
Ludvig Guðmundsson.
Kvennahelmiiið h.f.
Samkvæmt skýrslu gjaldkera
nemur innkomið hlutafé nú kr.
27-7U-34-
í Reykjavík hafa verið keyptir
hlutir fyrir kr. 14245.00. Þá eru
hæstar þessar sýslur. N.-ísafjarð-
arsýsla kr. 2255.00, S.-Múlasýsla
kr. 2200.00, S.-Þingeyjarsýsla kr.
1110.00, N.-Múlasýsla og Gullbr,
og Kjósarsýsla kr. 975.00 hvor
Aðrar sýslur eru lægri. Þó heíir
nokkuð af hlutum verið keypt í
öllum sýslum landsins. Þess má
geta, að ein kona i Reykjavík. (frú
Ragnhildur Pétursdóttir, Háteigi)
hefir keypt hluti fyrir kr. 1600.00.
Mörg kvenfélög og sambönd
þeirra hafa lagt fram hlutafé. Eru
þar hæst: Bandalag kvenna og
Lestrarfélag kvenna í Reykjavík,
hvort kr. 1000.00, Thorvaldsens-
félagið, Reykjavík og ,,Líkn“,
Vestmannaeyjum, hvort kr. 500.00.
Hið íslenska kvenfél. kr. 300.00,
Samband norðlenskra kvenna og
Kvenfélag fríkirkjusafnaðarins,
Reykjavík, hvort kr. 200.00. Mörg
önnur félög kr. 100.00.
Margar konur hafa lagt mikið
á sig við söfnun og innheimtu
hlutafjár, og sýnt hugmyndinni
um Kvennaheimilið á ýmsan hátt
skilning og vinarhug. Öllum þess-
um konum kann stjórnin bestu
þakkir.
Langt er frá, að enn sé tak-
Sjóvátryggingarfél. Islands
Reykjavík
tryggir fyrir sjó- og brunahættu meS bestu kjörum, sem fáan-
leg eru.
Vegna þess, að félagið er al-ísleuskt, gerir það sjálft upp alla
skaða hér á staðnum, án þess að þurfa að leita til annara landa,
sem tefja mundi fyrir skaðabóta greiðslum.
Ekkeri tryggara félag starfar hér á landi.
Tíl þess að vera örngglr nm greið og góð skil
tryggið alt adeins hjá. Sjóvá-
tryggingarfélagi íslands.
Sjódelld: Siml 542. Brunadeild: Simi 254. Frkvstj : Simi 309
Johs. Haasens Enke
Laugaveg 3. Sími 1550.
Áðalfundur
f
&
Epli
tíjúgaldin,
Glóaldin,
og Vínber,
er best a8 kaupa í
Landstjöfnunni.
markinu náð, og heitir því hluta-
félagið enn á aðstoð allja góðra
manna.
Þér, sem á einhvern hátt vilduð
vinna fyrir h.f. Kvennaheimilið,
gerið stjórninni aðvart, hún svar-
ar greiðlega öllum fyrirspurnum.
F. h. stjórnarinnar
Steinunn H. Bjarnason
p. t. ritari.
Utanáskrift: H.f. Kvennaheim-
ilið. Box 686, Reykjavík.
Félags Vestnr-tslenðinga
verður haldinn á SKJALDBREIÐ
laugardaginn þ. 20. þ. m. kl. 9.
Á fundinum verða rædd félags-
mál, lagðir fram endurskoöaðir
reikningar, kosin ný stjórn o. s,
frv. — Áríðandi að allir félags-
menn og konur komi á fundinn.
Veitingar og sennilega eitthvað
til skemtunar að umræðum og
kosningum loknum.
Stjópnin.
Skáldssgan
Fórnfús ást
fæst á afgreidslu.
Vísis.
ÁST OG ÓFRIÐUR.
',,Það skeði fyrri partinn í dag,“ sagði Úlrif niður-
lút, „og enginn veit það enn. Hvers vegna heí \ eg átt
.að taka á móti yður með þeirri fregn, sem el.ki getur
•snert yður neitt?“
„Iiluttekning mín í þessum sorglega atburði hlýtur
að vera alt að því eins mikil og yðar eigin, ungfrn góð,“
svaraði hann. „Þér hljótið að vita það, að í sambandi við
þetta verður fyrir svo mörgu aö hugsa og í svo mörgu
.að snúast, að þ é r væruð tæplega fær um það, og vegna
þess verðið þér að fela mér það. En nú verðið þér að
afsaka, að eg fer að minnast á tilganginn með komu
minni hingað. Herdeild ein af Schmettaubrynriddurum
kemur hingað í dag til að leita sér hvildar i nokkra daga
á umferð sinni, og við verðúm að hýsa nokkra liðsfor-
ingja hér í*klaustrinu. Viljið þér nú gera svo vel að
segja fyrir um, hvar og hvernig þeim verður kom.
ið fyrir?“
Úlrika leit altaf undan.
„Eg veit það ekki,“ svaraði hún. „Það er best, að þ.ér
Táðið fram úr þvi sjálfur, eða —.“
„Nú — eða hvað?“
,„Eða látið herra Eickstedt koma hingað.“
„Nú — einmitt það! — Eg skil hreint ekki, hvers
vegna þér álítið Eickstedt skikkanlegri en mig — en
•verði yðar vilji!“
Hann kvaddi hana stuttaralega og gekk burt.
Innan stundar kom Eickstedt inn í dagstofuna og
vottaði henni sína innilegustu hluttekningu.
Alúð hans koin henni vel, og setti grát að henni, er
mýkti sorg hennar.
Þau komu sér skjótt saman um, hveraig best væri
að taka á móti brynriddurunum.
Eickstedt gat bráðlega sagt yfirmanni sínum frá allri
tilhöguninni. Brynriddararnir komu og nú varð allmikið
umstang í nokkra daga,
Úlrika hélt sér stöðugt í herbergi sínu. Hún tók af
og til á móti skilaboðum eða fyrirskipunum frá höfuðs-
manninum um það, hversu útför forstöðukonunnar skyldi
hagað.
Greftrunardagurinn rann upp heiður og kaldur. Klukk-
urnar í turni hinnar litlu kirkju hljómuðu dapurlega, en
átta riddarar báru kistu hinnar gömlu forstööukonu.
Prússneskur herprestur gekk á eftir kistunni. Það var
vinalegur, gamall maður, sem kunni að meta grátbólgin
augu og angistarsvip, og sem kunni að tala huggnnar-
orð í réttan tima. Hann leit á hina sorgmæddu, ungu
stúlku með hluttekningu, er hún bjóst til að fylgja k-ist-
unni, hjúpuð sorgarklæðum.
„Gangið við hlið mér, náðuga ungfrú,“ sagði hann
hljóðlega. „Þér virðist vera mjög einmana og yfirgefin/"
Hún leit til hans þakklátum augum í sorg sinni og
sakleysi. Gjarnan mundi hún hafa viljað biðja hann að
verða eftir hjá sér eða þá taka hana heim með sér,
en hún þóttist vita, að það sæmdi ekki, og nefndi þat$
því ekki á nafn.
Herpresturinn hélt stutta og hjartnæma ræðu — enda
v-ar hann orðinn því vanur í sinni löngu herþjónustu.
Úlrika hlustaði á hann eins og í leiðslu og starði á
rekurnar, sem kastað var á leiðið, með grátbólgnum
augum.
Loksins var þessari athöfn lokið. Úlrika reyndi að,
harka af sér og bjóst til að ganga aftur til klaustursins,
en þegar hún sneri sér við, sá hún með skelfingu alla
röðina af liðsforingjum, riddurum og brynriddurum, sem
höfðust við í klaustrinu.
Þeir höfðu allir fylgt kistunni til moldar til að auð-
sýna hinni gömlu forstöðukonu hinn seinasta sóma. Og
nú stóðu þeir þarna allir og horfðu forvitnis- og rann-
sóknaraugum á hina ungu stúlku. Allir voru sem á nál-
um, og Ulrika auk þess dauðhrædd.
Þá gekk Reutlingen út úr hinni skrautlegu röð. Hanri
færði sig nær henni og sagði: „Má mér veitast sá heið-
ur, náðuga ungfrú?“
Þar með tók hann handlegg hennar og leiddi hana burt.
Hermennirnir kvöddu þau virðulega og gáfu þeim
gangrúm. En þeir litu brosandi hver á annan og skift-
ust á orðum liálíupphátt. Síðan gengu þeir hægt á eft-
ir þeim.
Reutlingen leiddi skjólstæðing sinn í húsið og inn 1