Vísir - 03.12.1926, Side 3
\ ISIR
MANCHETTSKYRTUR
í úrvali, ódýrastar hjá
V I K A R.
ENSKAR HUFUR
stórt úrval, ódýrast hjá
Y I K A R.
FJÖLBREYTT úrval af sokkum.
Verð frá 75 aurum. Ódýr-
ast hjá YIKAR.
FYRIRLIGGJANDI sérlega stórt
úrval af flibbum, linum og
hörðum, ódýrast hjá Vikar.
Tilbúnir vetrarfrakkar, st&Sugt
fyrirliggjandi hjá Vikar.
á . sítSu, en svo kemur: ráðherra
fyrir ísland N. N. (Minister for
Island N. N.) í beinu áframhaldi
-Sf ráðherralista hins danska ríkis,
svo aö út lítur eins og þaö sé
starfi þessa N. N.s í danska ráðu-
neytinu aö vera ráðherra fyrir ís-
land!
Þaö ætti aö vera óþarfi, aö eft-
irlit sé haft meö skýrslum þeim,
•sem utanríkisráöuneytiö danska
hefir meö höndum og okkur varða
,aö einhverju leyti. En nauösyn
.ber þó til, að slíkt eftirlit sé haft
svo aö aörar eins kórvillur komi
ekki oftar fyrir hjá því og átti sér
stað í fyrra, eöa öllu heldur voru
uppgötvaöar í fyrra, þó aö ekki
hafi þaö verið árvekni íslensku
stjórnarinnar aö þakka. Sú stærstá
rnóögun viö fullveldisviðurkenn-
inguna, sem framin hefir veriö
var framin þá, er Danir sendu út
til íslands rétta skýrslu um af-
stööu ríkjanna, en ranga skýrslu
til annara landa, og þar sem erm
hefir ekki heyrst aö þessi mistök
hafi verið leiðrétt, verður það hér
eftir að vera krafa af hálfu Is-
lendinga til stjórnar sinnar, aö
hún hafi gát á þessari skýrslu-
gerð utanríkisráöuneytisins. Svo
mikið ætti þó að vera heimtandi
af núverandi stjórn íslands, að
hún gæti látið skjöl um þessi efni
fara milli landanna!
En það verður að vinda bráðaii
bug að því, að leiðrétta þaö sem
'hér hefir veriö nefnt. Ekki þylcir
mér ósennilegt, að leiörétta þyrfti
sumt fleira, ef farið væri á ann-
að borö af stað, að minsta kosti
'kostaöi það litla fyrirhöfn að
ganga úr skugga um, hvort opin-
berar auglýsingar og eyöublöö
ríkjanna o. fl. væru i samræmi við
núverandi ríkjasamband og for-
sendur þess, og þó að það kostaði
einhverja fyrirhöfn, þá er væntan-
lega til dansk-íslensku nefndar-
innar að grípa. Henni ætti að vera
þaö kærkomiö hlutverk að fást
við þetta, enda virðist þaö standa
henni næst.
L. S.
Dánarfregnir.
I gær andaðist hér í bænum
-ekkjan Jóna B. Einarsdóttir, 65;
ára gömul. Hún var móðir Helga
H. Eiríkssonar verkfræðings og
þeirra systkina.
I 'nótt andaðist að heimili sínu
Guðmundur Jónsson, Tjarnargötu
5,
Veðrið í morgun.
Frost um land alt. í Reykjavík
6 st., Vestmannaeyjum 2, ísafiröi
4, Akureyri 4, Seyðisfirði 3,
iGrindavik 7, Stykkishólmi 3,
iGrímsstöðum 10, Raufarhöfn 5,
(engin skeyti úr Hornafirði né
Grænlandi), Færeyjum hiti 1,
Kaupmannahöfn 1, Utsira 1,
Tynemouth 4, Hjaltland 3, Jan
Mayen 3 st. — Mestur hiti hér
í gær 2 st., minstur ~ 7 st. —
Loftvægislægð fyrir suðvestan
Nýja
háigreiðslnstofn
opna eg undirrituð á morgun,
laugardaginn 4. desember, á Týs-
götu 3, gengið inn frá Lokastíg.
Þar sem eg hefi unnið á fyrsta
flokks hárgreiðslustofu í Kaup-
mannahöfn yfir lengri tíma, og
þannig vanist allri nýjustu aðferð
bæði við höfuðböð, hárbylgjun,
ondulering og massage við hár-
roti, vona eg að geta fullnægt nú-
tíðar kröfum fólks. Ennfremur
laga eg hár af ýmsum gerðum. —
Geng heim í hús, ef óskað er, til
hárgreiðslu fyrri hluta dags.
Hólmfrlðar Jónsdóttir
Týsgötu 3. — Sími 1813.
land, á leið til suðausturs. Hægur
norðvestan í Norðursjónum. —
Horfur: Suðvesturland: I dag
austlæg átt. í nótt sennilega all-
hvass austan. Snjókóma. — Faxa-
flói: í dag austlæg átt. í nótt all-
hvass norðaustan. — Breiðafjörö-
ur og Vestfirðir: í dag og nótt:
Norðaustlæg átt. Sennilega úr-
komulítið. — Noröurland, norð-
austurland og Austfirðir : I dag og
nótt norðlæg átt. Nokkur snjó-
koma í útsveitum. — Suðaustur-
land: í dag hægur norðaustan. í
nótt allhvass austan. Dálítil snjó-
koma.
Landkjörsatkvæði
voru talin í gær. Kosningu
hlaut Jónas læknir Kristjánsson,
með 8514 atkv. -— Hinn listinn
hlaut 6940 atkv.
Vilhjálmur Finsen
ritstjóri fór utan í gær á Lyru.
Dr. Guðm. Finnbogason
flytur erindi í Nýja Bíó á
sunnudaginn kl. 3 síðd., er hann
kallar: „Bölv og ragn og þjóö-
nýting þess.“
Tvö erindi
voru flutt hér í bænum um Egg-
ert Ólafsson á tveggja alda afmæli
hans. Annað flutti aðjunkt Guðin.
G. Bárðai-son, i Vísindamannafé-
lagi íslands. Hitt flutti mag. Vil-
hjálmur Þ. Gíslason i útvarp.
Mme Le Senne
syngur i Nýja Bíó í kveld kl.
7)4. Eins og áöur er fx-á skýrt,
verða m. a. á söngskránni þrjú is-
lensk lög.
Dýraverndarinn
er nýkominn út. Þar er m. a.
skemtileg ritgerð með 2 myndum,
eftir síra Óiaf Ólafsson fríkirkju-
prest, um hest, sem hann átti, og
kallaður var Pétur Zar.
örvar
heitir ljóöakver (ljóð og stök-
ur) eftir Helga Bjönisson. Höf-
undurinn er frá Akranesi og mun
vera um fertugt. Honum mun vera
mjög létt um að yi'kja.
Islandsk Kjærlighet
heitir bók eftir Kristmann Guð-
mundsson. Bókin er gefin út i
Ósló á kostnað H. As;chehaug.
Jólin nálgast.
Við erum því miður ekki
göldróttir, og getum þar af
leiðandi ekki keypt vörur
heim í dag til að selja þær
með afslætti á morgun; en við
getum selt þær ódýrara en
aðrii-, og það gerum við og
getum, vegna þess hvað
verslunarvelta okkar er mik-
il. Við viljum því benda
heiðruðum viðskiftavinum
okkar á aö verðið er lægst
hjá okkur eins og að vanda,
þó að við engan afslátt gef-
um.
Barnajólabasarinn var opn-
aður 1. des. og eni þar á boð-
stólum feiknin öll af leik-
föngum og jólatrésski-auti,
mun ódýrara en þekst heíir
áður. 'Komið, og- þér munuð
sannfærast.
Enginn afsláttur gefinn,
fast verð á hverjum hiut, sem
sé það lægsta.
Vörnhúsið.
er ólíkur öllum öðrum. Hann ger-
ir kaffið bragðbetra, drýgra og
ódýrara.
Fæst hjá kaupmanni yðar, i
pk. á ^/g kgr. á 35 aura.
I heildsöiu hjá
Sv. A. Joliansen.
Sími 1363.
Dansk-Islandsk Kirkesag
(nóvemberblað) flytur kveðju-
ræðu þá sem sira Þorsteinn Briem
hélt í Grundai-kirkju 1. júní 1919,
þegar hann var að flytjast suður
til Mosfells. Þýðingin er eftir frú
Margrethe Löbner Jörgensen, sem
mörgum Islendingum er að góðu
kunn, og þýtt hefir úrval íslensjkra
þjóösagna á dönsku. — Mynd er
í blaðinu af síra Þorsteini og fylgja
henni nokkur vinsamleg ummæli.
Þá er þar og mynd af síra Eggert
prófasti Pálssyni, ásamt minning-
ax-orðum eftir síi'a Þórð Tómasson.
Ferðaáætlun
skipa Eimskipafélagsins á
næsta ári er komin út. Fyrstu
ferðir til landsins enx þessar:
Goðafoss fer 7. jan. frá Khöfn til
Austfjarða og þaðan norður um
land. Kemur hingað 1. febr. Lag-
arfoss fer 8. jan. frá Khöfn. Kem-
ur hingað 19. jan. Gullfoss fer frá
Khöfn 25, jan. Kemur hingað 5.
febr.
Háskólafræðsla.
í kveld kl. 6—7: Dr. Kort K.
Kortsen: Æfingar í dönsku.
Ókeypis aðgangur.
Enskur botnvörpungur
kom i morgun með sjúkan
mann.
Egill Skallagrímsson
kom af veiðum í morgun.
Nýja bnð opna ég i húsi minn
á morgun, laugardag. Þar verða seldar flestar matvörur, hreinlætís-
vörur og glervörur, og bakaríisbrauð frá Ingimar Jónssyni. Allar
verða vörur þessar með lágu og sanngjömu verði. Verslunin mun.
kappkosta að hafa góðar vörur svo að viðskiftin aukist daglega^
Býð eg svo alla gesti mína velkomna.
Virðingarfylst
Þopv. Helgi Jónsson,
Bragagötu 29 Sími 1767.
A. & M. Smith, Limited
(stærsta verslunaríyrirtæki Bretlands i verknðnm og óverk-
nðnm saltilskl)
Aberdeen, Scotland.
Vlð kanpum saltflsk, óverkaðan og fnllverkaðan, bæði
þorsk og nfsa. — Senðtð okknr lægsta tilboð,
Telegram-aðresse:
Amsmitli Aberdeen.
Höfum fyrirliggjandi í heildsölu ágætistegund af
Ríó-kafii.
Verðið hvergi lægra.
Ólafur Qíslason & Co.
Sími 137.
Verslunarmannafél. Rvíkur
heldur skemtifund í kveld kl.
8)4 í Kaupþingssalnum. — Til
skemtunar verður m. a. að R.
Richter syngur nýjar gamanvísur.
Einnig les þar upp góðkunnur
fyrix-lesari o. fl.
Norsku skipbrotsmennirnir
af Nystrand eru væntanlegir
hingað í dag. Þeir voru sóttir í
bifreiðum austur að Garðsauka.
Bazar K. F. U. M.
verður haldinn í húsi félagsins-
í kveld. Til skemtunar vei'ður
söngur og upplestur. Inngangur
ein króna.
St. Skjaldbreið.
Skjaldbreiðingar, munið eftir
fundinum í kveld.
Gjöf
til fátæku stúlkunnar, afhent
Vísi: 5 kr. fi'á B. G.
Gjöf
til Hallgrímskirkju, afh. Vísi:
2 kr. frá K. K.
Nýja matvöruverslun
opnar Sveinn Þorkelsson á
moi-gun á Vesturgötu 21.
Til Jóns ólafssonar
alþingism.
Sértu íslands óskagoð,
ei þig bresti dáðin.
Vertu þings og þjóðarstoð
þrjóti þig aldrei x-áðin!
Jens Sæimiadsson,
011 eldhús áhöld
seljast með
miklum af-
slætti til
jóla.
Johs. Hansens Enke,
Laugaveg 3. Sími 1550.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi, 5 kr. frá V. D., 2
kr. frá G. S., 5 kr. frá N. G.
I