Vísir - 30.03.1927, Blaðsíða 3

Vísir - 30.03.1927, Blaðsíða 3
VííilH ll BMssi. ÍJm kl. 11 f. h. í dag var eg staddur niðri á haínarbakka, er hið nýja skip, Brúarfoss, lagð- ist þar upp við. Mannfjöldi mikiíl var þar J>á saman kom- inn til þess að sjá og heyra alt það, er þar færi fram. Mann- fjoldinn virtist allur fullur eft- irvæntingar og' tilhlökkunar. — Allir vildu heilsa sem best og fagna sem mest hinum ný- komna gesti og skoða liann vel og vandlega. þarna voru stadd- ir nokkrir Mýramenn, og hygg eg, að ekki hafi það síst glatt þá, að fá tækifæri til að vera viðstaddir athöfn þessa. Eg segi fyrir mig, að mér fanst sem væri eg ungur orðinn í annað sinn, er eg fekk að sjá nýja skip- íð, er heitir þessu nafni, því að eins og ílestum mun kunnugt vera, ber skipið sama nafn og foss einn í Hítará; en rétt hjá fossinum, á eyslri bakka árinn- ar, stendur bærinn Brúarfoss, ■sem öllum mun að góðu kunn- ur, þeim er þangað hafa komið, og þeir eru margir. þegar skipið var komið alveg upp að, hélt atvinnumálaráð- herra ræðu sina, bauð skipið velkomið og árnaði því allra heilla. Að því bvinu fór fjöldi manna út i skipið; var eg einn þeirra ásamt konu minni. Við skoðuðum skipið hátt og lágt og leist okkur mjög vel á það. En er eg var nú á gangi fram og aftur um skipið, rifjuðust upp fyrir mér margar ljúfar •endurminningar frá fyrri og síðari árum heiinan úr sveit minni, einkum þá er eg var á ferð milli Staðarhrauns og Akra og leið mín lá um Brúarfoss pá var oftast nær erfittfyrirmig ;að komast svo áfram, að ekki staldraði eg dálítið við á Brú- arfossi, ekki síst á heimleið. Fanst mér þá oft gott að fá að hvila mig og hestinn þar, þótt •ekld væri nema ein bæjarleið eftir heim til mín, þótti oft gott að standa þar af mér regnskúr eða liaglél áður en tekinn væri „síðasti áfanginn“. — í raun réttri var svo, að þegar eg var kominn að Brúarfossi á heim- leið, fanst mér eg því nær vera kominn h e i m í öllum skiln- ingi — og þetta, sem hér er á minst, hefir ekki farið fram fá einum sinnum, lieldur oft á ári í 30—40 ár. —Af þessu munu menn nú geta skilið það, hve mikla ánægju og gleði það veitti mér — hálfgerðum útlaga hér í Reykjavík — að fá að stíga fæti á hið nýja skip, því að meðan eg var staddur á Brúarfossi hérna á Reykjavíkurhöfn, fanst mér eg nærri vera kominn heim, fanst sem væri eg staddur á litla, góða heimilinu, Brúarfossi við Hítará og var mér sem lieyrði eg drunur fossins þar við túnið. Mönnum mun nú að vísufinnast, að hér sé ólíku saman að jafna, nýju og glæsilegu skipi annars vegar, en gömlu, fátæku sveita heimili liins vegar; en hvað sem um það er, þá er það einlæg ósk mín og von, að báðir nafnarnir eigi í vændum góða og heilla- rika daga, Brúarfoss liinn nýi á sjónum, en Brúarfoss hinn gamli á bökkum Hítarár. Hamingjan fylgi báðum. Rvík. 21. mars 1927. Stefán Jónsson frá Staðarhrauni. ri leior ■—o— Herra Páll ÖJafsson, fram- kvæmdarstjóri, gefur mér þetta aS sök: ,Hann (þ. e. eg) segist vera vantrúaSur á ummæli þau, sem þar (þ. e. í Vísi 15. þ. m.) birtust, líkir þeirn viS attest um Kínalífs- elixír og Voltakross“. Ó-nei, ekki gerSi eg þaS. En eg sagöi, að hr. P. Ó. tryði á vottorð- in, eins og gamla fólkið trúði at- testunum“ um Kínalífselixír og Voltakross. Ennfremur á eg aö hafa sagt, „að þau (þ. e. vottorðin í Vísi) séu oft gefin af einskærri góð- mensku, en stundum af ástæðum, sem hann (þ. e. eg) hirði ekki aö r,efna“. Nei, — það er nú eitthvað ann- að en að eg hafi sagt þetta. Mér hefir aldrei komið sú firra í hug, og því síður hefi eg fært hana i letur, að þessi vottorð væru „oft“ gefin af góðmensku o. s. frv. En hitt kannaðist eg við, að eg legði ekki jaínmikið upp úr öllu lofi .þeirra heimsfrægu“. Hafði eg þá i huga menn, sem kallaðir eru heimsfrægir — i viðlögum, og lof, sem er ætlað til sýnis á hærri stöð- um auðs eða valda. Eg veit ekki livað þeir góðu menn bera fyrir sig, sem hrósa söng hr. Þórðar Kristleifssonar hástöfum. Söngur hans i Rvik 1924 gefur engar bendingar um það Nenni eg svo ekki að fara fleíri orðum um þetta mál. Enda hygg eg, að söngmanninum væri lítill reiði gerður með þvi að halda áfratn blaðadeilum, sem hann er^ ílæktur i. Sigfús Einarsson. Slys, það sorglega slys varð hér í gær, að Valdemar Daðason toll- þjónn druknaði úti við Örfiris- ey, og fanst lík hans rekið þar i morgun. Valdemar sálugi var maður á besta aldri, fæddur 29. mai 1894. Hann var hinn mannvæn- legasti maður og besti drengur. Hann lætur eftir sig konu og barn. Föstuguðsþjónustur í kveld. í dómkirkjunni kl. 6, síra Fr. Hallgrimsson. í fríkirkjunni kl. 8, síra Árni Sigurðsson. I adventkirkjunni kl. 8, síra O. J. Olsen. Veðrið í morgun. Hiti urn land alt. í Reykjavík 5 st,, Vestmannaeyjum 5, ísafirði 6, Akureyri 7, Seyðisfirði 4, Grinda- vik 5, Stykkishólmi 5, Raufarhöfn 3, Hólum i Hornafirði 7, (ekkert skeyti frá Grímsstöðum), Þórs- höfn i Færeyjum 6, Angmagsalik o. Kaupmannahöfn 3, Utsira 3, Tynemouth 8, Hjaltlandi 6, Jan Mayen x st. — Mestur hiti hér í gær 8 st., minstur 3 st. Úrkoma 5.7 mm. — Loftvægislægð fyrir vestan land, önnur við Færeyjar norðurleið. — Snarpur sunnan- vindur í Norðursjónum. — Horf- ur: Suðvesturland: í dag suðvest- læg átt. í nótt sennilega vestlæg átt. —• Faxaflói, Breiðafjörður, Vestfirðir og Norðurland: í dag og i nótt: Suðlæg átt. Dálítil úr- koma. — Norðausturland og Aust- firðir: í dag: Suðaustlæg átt. Dá- lítil úrkoma. í nótt: Sennilega suðvestlæg átt. — Suðaustúrland: í dag: Hægnr suðaustan. Rigning. í nótt: Sennilega vestlæg átt. Leikhúsið. ,Á útleið“ eftir Sutton Vane verður leikið i kveld. Aðgöngu- miðar með lækkuðu verði seld- ir í allan dag og' við innganginn. Hreinn Pálsson syngur annað kveld í Nýja Bíó í siðasta sinn. Páll ísólfs- son aðstoðar. — Siðast urðu margir frá að hverfa. Best að tryggja sér miða i tæka tíð, Háskólafræðsla. í kveld kl. 8 flytur prófessor Ágúst H. Bjarnason lúnn siðasta fyrirlestur sinn „um trú og vis- indi“, og birtir þar niðurstöður þær, sem hann dregur af lún- um fyrri erindum. Fyrirlestrar þessir, sem fluttir hafa verið í Kaupþingssalnmn, hafa verið mjög vel sóttir og auk þess við- boðaðir, svo að fleiri menn hafa hlýtt á þá en nokkura aðra fyr- irlestraflokka i háskólanum. Mentaskólanemendur liafa tekið upp nýjar skóla- húfur, gerðar eftir hinum gömlu ,skólapiltahúfum“, sem lögðust niður litlu eftir síðustu alda- mót. —- Húfurnar eru saumaðar hjá Reinh. Andersson, Lauga- veg 2. Fundur verður haldinn í Sálarrann- sóknarfélagi Islands á fimtu- dagskveldið 31. þ. m. á venju- legum stað og tíma, eins og nán- ara verður auglýst á morgun. Af veiðum komu i gær: Snorri goði, Belg- aum, Skallagrímur, Ari og Karlsefni. Botnia kom frá útlöndum kl. 7 í morgun. Farþegar voru um 20, þar á meðal: Jón Björnsson lcaupmaður og frú, Sig. B. Sig- urðsson og frú, þorvaldur lækn- ir Pálsson, frú Anna Torfason, Walter Sigurðsson, Eggert kaúpm. Kristjánsson, ungfrú Jenny Stefánsdóttir og nokkur- ir útlendingar. Öðinn kom til Vestmannaeyja í fyrrakveld með þýskan botn- vörpung, sem lieitir Har- burg frá Cuxhaven, og liafði tekið hann i landhelgi. Ófrétt úrslit málsins, þegar þetta er rit- að. Iðnaðarmannafélagið heldur fund kl. 8 í kvöld í baðstofunni. J?ar talar Guðm. Björnson landlæknir. Skýrsla um hið íslenska náttúrufræð- isfélag, félagsárin 1925 og 1926 er nýkomin út. Fremst i henni eru minningarorð með mynd um Dr. Helga Jónsson eftir Valtý Stefánsson, þá félagatal og annað, sem félagið varðar og loks þessar ritgerðir: Nýjungar úr dýraríki Islands eftir Bjarna Sæmundsson. Bergbúi við norð- urströnd Islands eftir Guðm. G. Bárðarson. Nýjxmgar úr gróð- nrríki Islands eftir Ingimar Öskai-sson. Um fundarstaði nokkurra fágætari plantna eftir Guðm. G. Bárðarson. Félagar eru nú um 207, en ætti fleiri að| vera. Gamla Bíó sýnir Boðorðin tiu i 26. sinn í kveld. Fáar rnyndir liafa ver- ið vinsælli hér. Nýja Bíó sýnir í kveld i síðasta sinn siðara hluta Völsungasögu, hinnar stórfenglegu þýsku kvik- myndar, sem allir þurfa að sjá. Gjöf til drengsins á Sauðárkróki, afh. Vísi, 10 kr. frá 5 systkinum. G.ENGI ERL. MYNTAR. Sterlingspund ........kr. 22.15 100 kr. danskar......— 121.70 100 — sænskar .........— 122.25 100 —• norskar ....—■ 118.96 Dollar.............. . — 4.57 100 frankar franskir .. — 18.07 100 — svissn. ... — 87.99 100 lírur .............— 21.iS 100 pesetar ......... — 82.76 100 gyllini ...........— 182.98 100 inörk þýsk (gull). — 108.25 100 belga ............ — 63.65 MALT0L Bajerskt 0L PILSNER. BEST. - ÓDÝRAST. INNLENT. 20-30°» Dönsk fyndni, I dönsku blaði segir svo ný- lega, i sambandi við launalækk- un danskra embættismanna, og á vist að vera fyndni: Eg gleðst yfir því, að Peter Frcuchen hefir stungið upp á þvi, að launalækkunin nái ekki til grænlenskra embættismanna eins og starfsbræðra þcirra hér. J>vi færri, sem lækkað er við, þvi betra. En skyldi þessu ekki verða tekið illa á íslandi, Fær- eyjuín, Endelave, Drejö, Manö og í öðrum afkimum? Eg heyri þegar raddii’, sem segja: Hví á Grænland að sleppa, og hvað höfum við til þess unnið? Ef það er tilætlunin, að við stöndum allir jafnt að vígi, að við verð- um allir að taka á okkur byrð- ai-nar, heröa á sultarólinni, til þess að bjarga gömlu Dan- mörku, þá verðum við víst að vera samtaka? Alt frá Norður- pólnum 9g til Gedser!--J?að verður víst erfitt að forða Græn- landi, en við skulum vona liið hesta! — pað verður vist erfitt að troða þvi inn i Danskinn, að Island sé ekki i sama „klassa“ og Ende- lave, Drejö, Manö og aðrir af- kimar! * * * afslátt, frá því lága veröi, semi nú er í Fatabúðmni, gefum viS frá 1. mars, á karlmannafötum, ryk- frökkum, bílstjórajökkum, vetr- aryfirfrökkum, kvenkápum o. fl. Allir vita, a‘S hvergi eru eins falleg og ódýr föt og í Fatabúð- innL j ALT NÝJAR VÖRUR. NotiS tækifæriö, þetta stenduir aöeins nokkra daga. Best að versla í Fatabúðinni, Hafnarstrætí 16. Zeiss- Ikon Nýjar birgðir. Lækkað verð. Sportvörnbús Reykjavíbnr. (Einar Bjðrnsson). Væntanlegt með Goðaloss Hveiti „NationaI“ —,,— „Venus“ Appelsínur, Epii, Laukur. FB bmí SS m ISinú 144. | 20 ára afmælisrit íþróttafélags Reykjavikur til sölu í bókaversl. Sigf. Eymundssonar og á skrifstofu í. R., sem er opin öll mánu- dagskvöld frá kl, 81/* —10. Nafnið á langbesta Skóáburðinum er Fæst í skóbúðum ogversluitum

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.