Alþýðublaðið - 02.06.1928, Qupperneq 2
J_______ ■___________AKÞÝÐUBKAÐIÐ
__ t
Húsnæðismálið.
Pétur Halldérsson kallar
Það „húmbúgsmál"’.
Afiturhvarf borgarstjóra.
Bæjarstjórn samfiiykklr að látá safna
skýrslum um húsnæðisástand og
leigukjðr í bænum.
Bæjarstjómin á Akureyri hefir
nýlega látið fram fara rannsókná
húsnæói í bænum. Kom í Ijjós, að
14 íbúðarhús voru með öllu óhæf
til íbúðar. Á Akureyri hefir þó
enginn húsnæðisskortur verið
undanfarið, og húsaleiga er þar
ótrúlega lág samanborið við það,
sem tíðkast hér í höfuðstaðnum.
Hvernig er þá húsnæðisástand-
ið hér?
Því getur enginn svarað til
hlitar. Svo að segja hver maður
getur af eigin kunnugleik bent
á fleiri eða færri íbúðir, sem ber-
sýnilegt er, aö stárhættulegar eru
heilsu og þroska íbúanna, og all-
ir vita, hve afskaplega húsaleig-
an er há, þar sem þriðjungur til
helmingur af tekjum verkamanna
oftast fer til að greiða hana eSna
saman. En ekkert heildaryfirlit
yfir ástand íbúða, íbúáfjölda og
leigukjör í bænum er til.
Fyrir bæjarstjórnarfundinum i
fyrra dag lá tillaga frá minni
hluta húsnæðisnefndar, Stefáni
Jóhanni og Sigurði Jónassyni.
Hafði mpiri hluti nefndarinnar, P.
Halld., Jón Ásbj. og Jóru Öl.,, felt
tillöguna á nefndarfundi.
Tillagan hljóðaði svo:
„Bæjarstjórn fe.ur heilbrigðis-
fulltrúa að rannsaka húsnæði hér
í bænum, ástaind þess og dýr-
leika, og skora á borgarstjóra að
fara þess á leit við ríkisstjórnina
aþ hún skipi mann, heilbrigðis-
fulltrúa til aðstoðar í þessu skyni
og kosti rannsóknina að hálfu
leyti. Rannsókn þessari -skal lok-
ið fyrir 15. nóvember h. k.“
Mælti Stefán Jóhann fyrir til-
lögunni og rakti sögu þessa máls
í bæjarstjórn. í nóvember í fyr'ra
kaus bæjarstjórn húsnæðisnefnd
til að athuga húsnæðisástandið í
bænum og tillögur, sem fram
komu frá jafnaðarmönnum um,
að ,bærinn reyndi að bæta úr
húsnæðiseklunni með því að
leggja fram nokkurn styrk og
útvega Iánsfé til byggingar verka-
mannabústaða. Nefnd þessi hélt
einn fund og fól borgarstjóra að
3áta vinna iir skýrslum þeim, sem
til eru um ástand . leiguíbuða og
leigukjör, en þær eru þessar:
Húsnæðisskýrslur frá 1920.
Skýrslur byggingarluilltrúa um
nýbygð hús. Skýrslur Sjómanna-,
félagsins um húsaleigu sjómanna.
Skattskýrslur húseigenda, að svo
miklu leyti, sem' þess er kostur.
Borgarstjóri þverskallaðist með
<öllu við að láta vinna úr skýrsl-
unum og svaraði skætingi einum
er hann var vittur fyriir það á
fundi bæjarstjórnar. Átaldi Stef-
án borgarstjóra harðlega fyrir
þvermóðsku hans og kvað hana
ljósarí' vott þess, að borgarstjór-
inn vildi alls eigi láta rannsaka
húsnæðisástandið.
Jón Ásbj. og Jón ÓI. komu
fram með tiLlögu um að felá
heilbrigðisfulltrúa að rannsaka
húsnæðiö með aðstoð, er borgar-
stjóri léti honum i té og láta
borgarstjóra ákveða um tilhög-
un og gerð skýrslnanna. Höfðu
þeir það helst út á tillögu Stef-
áns að setja, að þar væri rikis-
stjórninni geíinn kostur á að vera
-með, en við hana vildu þeir eng-
in mök eiga. Gerði J. Ásbj. ráð
fyrir, að þetta myndi að eins
kosta ca. 1200 kr. Þegar hér var
komið, var veitt fundarhlé til
kvöldverðar; hafði þá P. HalJd.
kvatt sér hljóðs, og kvaðst hann
ætla að verða bæði langorður og
skömmóttur, en til þessa hafði
umræðum verið stiit mjög í hóf.
Að loknu fundarhléinu hóf Pét-
ur ræðu sína. Kvað hann þetta
mál vera hið mesta „humbugs-
mál“ og talaði unz hann varð
heitur um „blindni", „hræsni“ „ó-
heilindi“ og „kjósendadekur“
þeirra, er flyttu það í bæjarstjórn.
Ástæðan til þess að húsaleigan
væri há, væri hið geysiháa kaup-
gjald verkamanna við byggingar,
einkum „fagmanna“. Kaupið yrði
að lækka, ef húsaleiga ætti að
lækka. Ekki kvaðst hann vera
„principielt“ á móti skýrslusöfn-
un; þær væru góðar til fróðleiks
og samanburðar við önnur lönd,
en ekki væri vert að eyða miklu
fé til slíkra hluta. „Hér er engin
npyð á ferðum,“ sagði P. H.
Góðærinu og einstaklingsfram-
takinu er vel trúandi til að bæta
úr því, sem kann að vera ábóta-
vapt. Bærinn á ekki að fara að
leggja fram fé eða ábyrgð til
að hjálpa verkafólki til að byggja
y^ir sig. Það er ábyrgðarlaus
meðferð á fé bæjarins, það dreg-
ur úr framtaki einstaklinga, þeir
hætta; að byggja, bærinn getur
líka orðið of byggður að hús-
um, þá verður atvinnuleysi o. s.
frv. o. s. frv. Auk þess talaði
hann með mikiUi vanþóknun um
æsingamenn og þess háttar fólk.
Flutti Pétur ræðuna skönulega og
sparaði hvorki áherzlur né stór
orð.
Fáir 'urðu til að taka undir mál
Péturs. Jón Ólafsson flutti ræðu-
stúf, kvaðst hann vera með til-
lögu sinni og nafna síns, en á
móti rikisstjórninni. Var það tek-
ið trúanlegt. Var nú orðið mjög
áliðið fundartímans, en borgar-
stjóri hafði enn eigj tekið til
máls. Loks, á 12. stundu, kvaddi
hann sér hljóðs. Var svo að
heyra á ræðu hans, sem hann
væri nú horfinn frá sinni fyrri
vilJu og teldi rétt að safnað yrði
„nákvæmum“ skýrsluim um hús-
næðisástandiö í bænum og heil-
brigðisfulltrúa fengnir 2 menn til
áðstoÖar í því skyni. Kvaðst hann
telja rétt, að tekin yrði upp í
skýrslurnar nákvæm lýsing íbúða,
greint frá tölu herbergja og
stærð, hvort eldhús, bað, vatns-
salerni, geymsla o. s. fr. fylgdi með,
svo og um lýsingu, upphitun -og
þess iháttar, og loks íbúatölu og
dýrleika húsaieigu. Kvað hanri
bæinn eiga að gera þetta einan,
,en ekki leita til rikisstjórnarinn-
ar um samvinnu eða þátttöku í
kostnaði.
Er mikil ástæða til að fagna
þessum sinnaskiftum borgarstjór-
ans, ef þau verða endingargóð.
íhaldsmennirnir (sem nú kalla sig
alt af Borgarafilokk upp á síð-
kastið) tóku auðvitað orð borg-
arstjóra góð og gild eins og
þeirra er venja, og jafnaðarmenn
kváðust ekki beinlínis vilja vé-
fengja þau, þrátt fyrir ljóta og
leiðinlega fortíð borgarstjórans í
þessu máli, sem áður hefði verið
bent á. Hér væri kann ske um
afturhvarf að ræða. Kváðust þeir
því eigi myndu greiða atkvæði
gegn tillögu Jónanna, að sinni
feldri.
Laust fyrir miðnætti var svo
gengið til atkvæða um tillögurn-
ar. Var tillaga jafnaðarmanna
feld með 8 atkv. gegn 6, og siöan
tillaga Jónanna samþ. með at-
kvæðum íhaldsmanna allra, nema
Péturs Halldórssonar; hann
greiddi ekki atkvæði, sem ekki
var heldur von.
Þess verður að krefjast af
borgarstjóra, að hann nú þegar
setji menn til aðstoðar heilbrigð-
isfuMtrúanum, svo að skýrslu-
söfnuninni verði lokið í haust.
Dráttur sá, sem orðið hefir á
framkvæmdum í máli þessu, er
óverjandi, en því meiri ástæða er
til að hefjast nú röggsamJega
handa.
Bráðum, bráðum íokið.
Spurst var fyrir um það hjá
borgarstjóra á síðasta bæjar-
stjórnarfundi, hvort eigi væri Jok-
ið yfirendurskoðun ÞórðaT Bjarna-
sonar á bæjarreikningunum. Ekki
kvað borgarstjóri svo vera, en
vonaðist til, að það yrði áður en
langt um Jiði. Er það í þriðja
skifti á síðustu 8 mánuðum, sem
hann gefur þetta svar við þess-
ari sömu spurningu.
íþróttir.
Knattspyrnnmót fyrir \
II. flokk.
Annar kappleikur mótsinSc
Annar kappleikur mótsins var
í gærkveldi, og keptu þar Vík-
ingur , og Valur. Víkingar völdti
norðurmarkið, en Valur hóf leilc
með góðri sókn og snörpu upp-
hlaupi, en Víkingar stóðu þéttir
fyrir, svo Vals-menn náðu ekkl
að skora mark hjá þeim. En litlus
siðar, snemma í fyrri hálfleik,
skora samt Vals-roenn 2 mörk
með litlu millibili, og þótti Vík-
ingum það auðsjáanlega ekki gott,
því þeir lögðu nú meira kapp á
að verja en sækja, enda lá leik-
urinn á þeim það er eftir var ,
fyrra hálfileiks, og skoruðu Vals-
menn þá 2 mörk í viðbót og unmi
fyrri hálfleik með 4 ; 0. Eftir hléið
gekk 'leikurinn mikið jafnara. Þó
boltinn lægi oftast á vallarhelm-
ingi Víkinga, þá vörðust þeir
mjög vel, svo áhorfendur voru
farnir að reikna með jafnteflS
þennan hálfleik, en það vildu
Valsmenn ekki una við, þvf að
isíðast í hálfleiknum skoruðu þeir
3 mörk á nokkrum mínútum og
,unnu þar meÖ Víkinga með 7:0.
Nú standa félögin K. R. og!
Valur jafnt að vigi, hafa bæði
unnið Viking; þau keppa á morg-
un kl. 81/2, og verður það áreiðan-
lega skemtilegur og spennandi
kappleikur, því Valur hefir unniö
þennan bikar tvisvar, en K. fí.
einu sinni, og má búast við, að
K. R. láti ekki sinn hlut fyr eis
það má til, og Valur hefir mikinn
áhuga á að vinna bikar þenna tif
eignar. Við skulum nú fjölmenna
út á völl á morgun og sjá hvern-
ig fer, og mun enginn sjá eftir
þeirri ánægjustund.
Farfugl.
Skeyti frá fímieikaflokknunu
^London, FB., 1. júní.
Sýnum á morgun kl. 3. Mynd-
ir af flokknum liafa verið birtar
í mörgum Lundúnablöðutm, tvær í
Daily Mail. Förum til Edinborg-
ar á sunnudag. Komið hefir til
orða, að við sýnum þar, en eigi
er það fullráðiÖ enn.
Húsmæður
Dollar - stangasápan
hreinsar betur og er miklu
mýkii fyrir fötin og hendur-
nar en nokkur önnur
OTF" þvottasápa, "íSSi
Fæst viðsvegar.
í heildsölu hjá
Halldóri Eiríkssyni,
Hafnarstræti 22. Sími 175.