Vísir - 09.06.1927, Blaðsíða 2
VÍSIR
ID ffemm & OLg|gíi ÍÉl
Haframjöl
nýkomið.
u
girfeiti og koppafeiti er sá áburður, sem allir bifreiSaeigendur ættu
aS nota, sem vilja að bifreiðin renni létt og endist lengi.
Jðh. Ólafsson & Co.
TOBLERONE
— af bragðinu skulu þér þekkja það.
Fæst hvarvetná.
Biðjid um það.
Símskeyti
Khöfn, 8. júni. F. B.
Morð í Póllandi.
Símað er frá Varsjá, að Voj-
kof, sendilierra Rússa í Pól-
landi, liafi verið niyrtur i gær.
Hann var skotinn á járnbraut-
arstöðinni í Wabszawa. Morð-
inginn er rússneskur skólapilt-
ur. Var bann liandtekinn. Kvað
hann pólit'iskar ástæður liggja
fyrir þvi, að hann skaut sendi-
herrann.
Júgóslavar og Albánir ósáttir.
Símað ter frá Belgrad, að
stjórnin í Júgóslavíu hafi kall-
að heim sendisveitina frá Al-
haníu, af þeim orsökum, að
stjórnin í Albaníu neitaði að
verða við þeirri kröfu, að láta
lausan sendisveitarmanninn
Beylin, sem hún hafði tekið fast-
an og sakað um hern'fálanjósn-
ir fyrir stjórnina í Júgóslaviu.
Chamberlin flugmaður í Berlín.
Símað er frá Berlín, að
Chamberlin og farþegi lians,
Levine, miljónamæringur, hafi
komið þangað í gær og var tek-
ið á móti þeim af ráðherrum
ríkisins, borgarstjóminni og
miklum múg manna.
Utan af landi.
Seyðisfirði, 8. júní. F. B.
Stórsíld veiddist liér í gær,
rúmlega 200 tunnur, og var
nokkuð af þvi saltað, ætlað til
útflutnings. Á Mjóafirði hefir
einnig veiðst stórsíld og dálítið
á Reyðarfirði.. par er mikil
ufsaveiði, og hefir hann verið
seldur í gúanóverksmiðju Norð-
#jarðar. Afli undanfarið ágæt-
ur á Austfjörðum. Veðrátta
kuldaleg. Snjóhraglandi.
islendingai*
heima og erlendis.
II.
En það er hollast að leiða
sannleikann í þessu efni ekki
fijá .sér, heldur játa hreinskilnis-
lega, að oss liafi farist skamm-
arlega við ættingjana vestan
hafs. Við höfum afrækt þá. Fyr-
ir 900 árum námu íslendingar
land fyrir vestan haf og ætt-
jörðin lét þá sigla sinn sjó. peir
dóu úr hor eins og sau^fénað-
ur i fellisvetri og ættjörðin gat
afsakað sig með því, að hún var
undir erlendri áþján og ósjálf-
ráð gerða sinna. pað þarf ekki
að óttast að landnemar síðustu
aldar liljoti sönui örlög og vest-
urfararnir fyrir 900 árum. En
svo lieimskulega geta íslending-
ar farið að ráði sínu, að þjóð-
arbrotið vestan hafs glatist ís-
lensku þjóðerni á næsta manns-
aldri. Og þá hafa Austur-íslend-
ingar enga afsökun.
það er skylda hven-ar þjóðar
að varðveita uppruna sinn og
efla það sem þjóðlegt var. petta
sígilda boðorð allra siðaðra
þjóðfélaga ætti að vera nægi-
legt til þess að mönnum sé það
Ijóst, að áhugaleysið fyrir ís-
lendingum vestan hafs er van-
rækslusynd syfjaðrar eða sof-
andi þjóðernismeðvitundar. En
hér kemur fleira lil greina.
Meðal annars er á þessu máli
margþætt liagsmunahlið, sem
vert er að athuguð sé, ef vera
kynni að einliverjum ykist
áhugi fyrir málinu, er liann sér
að hér er um meira en Iiugsjón
að tefla.
Islendingai* eru fámennasta
þjóð heimsins, þeirra er haft
hafa djörfung til að halda uppi
sjálfstæðum bókmentum, máli
og öðrum þjóðerniseinkennum.
Er mannfæðinni með réttu
kent um þá örðugleika, sem eru
á útgáfu bóka og blaða og væru
íslendingar ekki meiri bóka-
inenn en aðrar þjóðir, mundi
vart hægt að prenta staf á ís-
lensku máli nema með ríkis-
styrk. Fjórði hluti allra ís-
lenskulæsra manna býr utan
landamæra Islands, þar af lang-
mestur hlutinn í Ameríku. ls-
lenskan ritmarkað munar um
minni styrk en verið getur að
þúsundunum vestra, ef rétt er
að farið. En vér getum ekki
vænst þess að Vestur-íslending-
ar kaupi til lengdar blöð og
tímarit að heiman, án þess að
vér gerum þeim sömu skil.
Samband getur því að eins þrif-
ist að það sé gagnkvæmt og'
njóti áhuga beggja aðila, því að
engum er láandi þó hann liætti
að tala við þann sem ekki svar-
ar.
Vestur-íslendingar hafa sýnt
það svo ljóst að ekki verður um
vilst að þeim er áhugamál að
tengslin við „gamla Island“
slitni ekki og þeir gera það enn,
þó að íslensk hróp austur um
haf liafi oft verið tal við steina.
Sinnuleysið austan hafs stafar
eflaust ‘mikið af því, að vér
skiljum ekki landana vestra rétt
og erum ekki nægilega kunn-
ugir högum þeirra. peir liafa
lifað við skilyrði sem vér ekki
þekkjum, fengið nýjan sjón-
deildarhring, orðið fyrir óhjá-
kvæmilegum álirifum erlendra
þjóða er þeir hafa búið saman
við. Yfirborð þeirra er því ef til
vill orðið óíslenskt, það sem
helst mætir auga og eyra. En
islenskum kaupstaðarbúa, sem
Tmkotine
Undirkjólar á 3.85
Bnxnr — 2.85
komu með Brúarfoisi,
margir og
fallegir litir.
Vörnhúsið
risi upp úr gröf sinni nú eftir
fjöirutíu ár í moldinni mundi
sennilega líka finnast ýmislegt
hafa breyst á yfirhorðinu og
margt óíslenskt komið á sjón-
arsviðið. Og lineyksli enskuslett-
ur í máli Vestur-Islendingsins
eyru manna liér heima, þá væri
holt að liugleiða slettur kaup-
staðarmálsins, danskar og
aðrar, og minnast þess, að Vest-
ur-Islendingurinn hefir ef til
vill dvalið áratugi innan um
énskumælandi meirihluta, en
„heimabökuðu“ sletturnar eru
gróðursettar og ræktaðar í
gróðrarstöð islenskrar mál-
menningar, og gert liærra undir
höfði en arfa í kálgörðum.
Vestur-Islendingar liafa nær
árlega boðið ýmsum menning-
arfrömuðum að heiman vest-
ur til sin, til þess að halda
fyrirlestra eða sýna leiklist, tek-
ið þeim með kostum og kynj-
um og leyst þá út með gjöfum.
Heim til Isl. hefir að eins ein-
um manni verið hoðið. Er oss
þó ekki minni þörf að heyra frá
löndum vestra en þeim frá oss.
Reynsla Islendinga vestan hafs
og kunnátta þeirra í ýmsu því,
sem oss er enn þá hulið, t. d.
iðnfræðilegum efnum, er ef-
laust of dýrmæt til þess, að við
getum staðið okkur við að láta
hana ónotaða þar sem það á við.
I verklegri þekkingu erum við
langt á eftir eigin samtíð, en
Iandar vorir vestra hafa fengið
tækifæri til að kynnast verk-
lagi inestu framfaraþjóðarinn-
ar í veröldinni. Hver leyfir sér
að segja að við getur ekkert af
þeim lært?
Öllum þjóðum er ant um að
auka veg sinn út á við, íslend-
ingum líka. Sumir ganga upp í
þeirri dulinni, að stórþjóðir
heimsins taki eftir hvernig við
stöndum og sitjum hér norður
í Atlantsál, og er sá misskiln-
ingur all útbreiddur. það eru Is-
lendingar erlendis, sein eru
mælikvarði útlendinga á þjóð-
ina. peir hafa skapað henni
álit vestra og langmest af þeim
kynnum, sem Amerikumenn
hafa af íslandi, hafa þeir fengið
af löndum vestan hafs. Oss er
hagur að því, að landar vestra
geti haldið áfram að vinna Is-
landi álit, en það geta þeir því
að eins gert, að þeir haldi lif-
andi sambandinu við ættjörð-
ina, einkum nú, eftir að stórum
er farið að draga úr mannflutn-
ingum vestur um haf. Og það
er scrstök ástæða til, að nafn
íslands haldist við lýði í Ame-
ríku. íslendingar hafa um
margar aldir verið vestasti út-
vörður hvítrar menningar og
ísland var merkasti áfanga-
staðurinn í vestursækni hvítra
manna. Ameríka er íslenskt
landnám. — Vestur-Islendingar
hafa veglegt starf að rækja, að
halda upjii lieiðri fyrstu hvitu
þjóðarinnar, sem steig fæti á
strönd Ameríku.
En „Vínland týndist aftur“,
stendur í kenslúbókum. Engin
þjóð í heimi liefir týnt jafn
niiklu og íslendingar, sem hafa
týnt heilli heimsálfu. pað er'
verkefni núlifandi islenskrar
kjuislóðar austan liafs og vest-
an, að afstýra þvi, að íslenskt
þjóðerni týnist í hinni endur-
fundnu álfu framtíðarinnar.
(Niðurl.)
Skúli Skúlason.
]?að hefir tíðkast mikið hin
seinustu ár, að norrænir kenn-
arar hafa notað sumarleyfi sitt
til þess að bregða sér suður i
lönd, bæði til hressingar og
náms, enda er þeim liægra um
vik en okkur hér úti á íslandi. —
Lundberg heitir maður. Hann
er kennari í Málmey í Svíþjóð,
og hefir gengist fyrir námsferð-
um norrænna kennara til Suð-
ur-þ>ýskalands, Sviss og Ítalíu
hin seinustu ár. Ferðir hans eru
mjög ódýrar óg þó ágætar.
Tveim síðustu ferðunum hef-
ir verið hagað svo, að dvalið var
á námsskeiði í Konstanz við
Rodensvatn um þriggja vikna
skeið, og aðalnámsefnið verið
þýsk tunga, en auk þess kenslu-
aðferðir og skólahættir í fyrir-
myudarskóla þar. Konstanz er
fagur staður, lítill, gamall bær
við ósana á Rín, þar sem hún
fellur úr Bodensvatni. En landa-
mæri Sviss og pýskalands liggja
um götumar í Konstanz, sunn-
an árinnar, og liafa verið í sam-
bandi við námsskeiðið margar
ferðir um nágrennið, og er þap
hver staðurinn öðrum fegri. Eb
á eftir var Italiuferð, fyrir þá,
sem það vildu, suður um Sviss,
til Mílanó, Róm, Napoli, Pom-
pei, Capri, Vesúvius, Florens,
Feneyja, en þaðan til Innsbrucfc
í Tyrol, var ferðinni þar shtið.
þ’essi för stóð um 3 vikur.
Verðið var 300 sænskar kr.
fyiár námsskeiðið í Konstanz,
200 kr. aukreitis fyrir ítaliuför-
ina. En í sumar verður Italiu-
förin 250 kr., vegna verðhækk-
unar þar. Lika verður ferðinni
nú slitið i Feneyjum, en ekki i
Innsbruck. I þessu eru inuifalíJ-
ar járnbrautarferðir frá Málm-
Tvis^istau og Sím.
BÍbrgunkj ólat au.
KomiS og gjöriö góð kaup.