Vísir - 09.06.1927, Blaðsíða 3
VlSIR
BARNAFATAVERSLUNIN
á Klapparstíg 37.
Nýkomin sérlega ódýr efni í reifa-
kjóla, einnig úrval af hvítum bró-
deringum.
cy suður og aftur til Feneyja í
norðurleið, með fæði og gist-
ingu, allri dvöl og kenslu í Kon-
stanz og smáferðum J>ar, að-
göngueyri á öll söfn, leiðsögn
allri o. s. frv., 3. flokks vagnar
í p’ýskalandi og Sviss, 2. flokks
í Ítalíu. Tveir og Iveir voru
saman um herbergi, allur að-
búnaður góður og stjórnin á-
reiðanleg og í besta lagi.
íslenskum kennurum er sér-
staklega boðin þátttaka í för
Lundbergs í sumar, og verður
förinni hagað eins og verið hef-
ir. Lagt verður upp frá Málm-
æy og Höfn 27. júní.
Ef einhver kennari hér skjddi
vera á leið út og við því búinn,
;að slást i þessa för, þá gæti hann
snúið sér til mín. Einn reyk-
víkskur kennari hefir þegar ráð-
ið ferðina, en fleiri en kennar-
ar gætu ef til vill komist að. —
ÍEg hefi fyrir nokkru getið mn
þessa för í „Tímanum“, en eft-
ir beiðni minist eg aftur á hana
hér.
Helgi Hjörvar,
Aðalstræti 8, Reykjavik,
Cróð skemtun
Reykvikingar mega teljast
'öfundsverðir fyrir að eiga nú
kost á því i kveld að horfa á
.leikfimisflokk Iþróttafélags
Reykjavikur undir stjórn hr.
Björns Jakobssonar. Verður
sýning úti á íþróttavelli og hefst
kl. 8y2. Veðrið virðist ætla að
verða gott, svo að ekki ætti það
að letja.
þetta er sami flokkurinn, sem
nú er nýkominn úr liinni miklu
sigurför til Noregs og Svíþjóð-
ar. Reykvikingar hafa lengi
;þekt þenna fíokk og metið hann,
en þeir hafa ekkert haft við
að miða og því ef til vill ekki
komið auga á hina miklu leikni
hans og yfirburði. Nú hefir
fengist samanburður og óvil-
hallur dómur um hæfileika
þessa flokks i utanferðinni. —
Blöðin hafa flutt ýmisleg um-
mæli erlendra blaða um fram-
komu flokksins og íþróttir
hans. Sumir vildu ekki í fyrstu
Ieggja mikinn trúnað á ummæli
norskra blaða um þessar sýn-
ingar, bæði af þvi að Norðmenn
hafa ekki verið taldir skara sér-
staklega fram úr í fimleikum,
‘Og svo/vegna þess, að frændsemi
kynni einhverju að ráða um
hinar glæsilegu viðtökur, er
flokkurinn fekk þar. Menn biðu
meö eftirvæntingu eftir sýning-
unni í Gautaborg og dómum
þeirra Svianna um framkom-
una. Sviar gátu enga hvöt haft
til þess að bera flokknum betur
söguna en hann átti skilið, eða
oflofa hann. peir þykja og bera
af öðrum þjóðum í líkams-
mennt og gera áreiðanlega
hærri kröfur í þeim efnum, en
aðrar Norðurlandaþjóðir, ef til
vill að Finnum einum undan-
skildum. Nú bar vel í veiði, þvi
að í Gautaborg var einmitt háð
allsherjarmót fyrir íþróttamenn
frá öllum Norðurlöndum,' þar á
meðal Finnlandi. Hér fekst því
góður samanhurður, og við eitt-
hvað var að miða. Reykvíkingar
hafa nú frétt af þessari sýningu
og heyrt þann dóm, sem landar
vorir fengu þar. Hér er óþarft
að rekja ummæli blaðanna, en
í fáin orðum sagt, varð fram-
koma íþróttaflokksins héðan
til þess að skyggja á alla hina
flokkana.
Landsmenn allir, og þá ekki
síst Reykvíkingar, mega vera
hróðugir af þessum leikfimis-
flokki, þvi að hann hefir orðið
landinu til sóma. Minsta viður-
kenning og sjálfsagðasta er sú,
að f jölmenna nú á sýning þeirra
í kveld.
L. K.
Veðrið í dag.
Hiti í Reykjavík 7 st., Vest-
mannaeyjum 8, ísafirði 7, Ak-
Ureyri 6, Seyðisfirði 5, Stykkis-
hólmi 10, Grímsstöðum 2, Rauf-
arhöfn 6, Hólum i Hornafirði
7, (engin skeyti úr Grindavik),
Færeyjum 4, Attgmagsalik 1,
Kaupmannahöfn 9, Utsira 7,
Tynemouth 7, Hjaltlandi ð,
(engin skeyti frá Jan Mayen).
Mestur hiti hér í gær 12 st.,
minstur 4 st. — Hæð (774 mm)
fyrir norðvestan land. Horfur:
Suðvesturland og Faxaflói: í
dag og i nótt norðanátt. purt
veður. Breiðafjörður, Vestfirð-
ir, Norðurland: I dag og nótt
hægur norðaustan. purt veður.
Norðausturland og Austfirðir:
í dag og nótt allhvass norðan.
Skúraveður. Suðausturland: í
dag og nótt norðanátt. Sumstað-
ar allhvass. tJrkomulaust.
Hannes S. Blöndal
skáld hefir á morgun verið
20 ár starfsmaður Landsbank-
ans. Hann kom liingað til lands
frá Vesturheimi vorið 1907, en
þar hafði hann dvahst nokkur
ár, en festi þar aldrei yndi, enda
mun leitun á þeim manni, sem
sé svo gróinn við þetta land sem
Hannes. Blöndal.
Trúlofun.
Nýlega hafa opinberað trú-
lofun sina ungfrú Ólafía Guð-
laug Guðjónsdóttir i Stóru-
Mörk undir Eyjafjöllum og
Brynjólfur Úlvarsson í Fljóts-
dal í Fljótshlíð.
Góð bók.
próun og sköpun (Evolution
and Creation) eftir Sir Oliver
Lodge, í islenskri þýðing er gert
liefir Knútur Arngrímsson,
stud. theol., er væntanleg á
bókamarkaðinn áður en langt
um líður, ef nægir áskrifendur
fást. — Höfundur bókar þessar-
ar er, eins og mörgum mun
kunnugt, einn meðal merkustu
og frægustu rithöfunda og vís-
indamanna vorrar aldar. —. í
„próun og sköpun“ eru trú og
vísindi • sameinuð á hinn feg-
ursta hátt. — Meðal margs ann-
ars er þar sagt frá skýring vís-
indanna á þróun linattanna i
geimnum og þróun lifsins á
vorri jörð.:— Er gott til þess að
vita, er ungir mentamenn taka
sér fyrir Iiendur að snúa á is-
lensku úrvalsritum annara
þjóða, og er vonandi að þeir
fái erfiði sitt launað með þvi,
að slík verk sé keypt og lesin
mikið. — Bókin verður mjög
ódýr og er gert ráð fyrir að hún
kosti að ‘eins 3 krónur. Áskrifta-
listar liggja frammi i Bóka-
verslun ísafoldar og hjá Ársæli
Árnasyni.
Jón Leifs.
Um hljómkviðu hans hina
nýju liefir verið ritað mjög
mikið í þýsk blöð að undan-
förnu. Hefir borist liingað fjöldi
slíkra umrnæla og eru þau flest
vinsamleg og viðurkenna gildi
verlcsins, en sum bera þó fram
nokkurar aðfinslur, svo sem
þær, að verkið sé torskilið. En
önnur tala um „tónlistarlegan
Eddustíl“ o. s. frv.
\
^SmiðjustÍK 10
‘Ucrksm
talsimi 1094
Jíeykjauik
Helgi Heigaioa, Liia'aveí' IL, Seni 93.
Gluggar og liurðlr
smsftað eftlr pöntun.
frásögunni lýkur þar sem þeir
félagar komu á Hveravelli i hið
nýja sæluhús, er vegamálastjóri
lét reisa sumarið 1922. Er vafa-
laust að mörgum muni þykja
gaman að lesa þeSsa ferðasögu.
—Að öðru leyti er efnið i Íieft-
inu þetta: Örbirgð, smásaga, eft-
ir Ivr. Sigfúsdóttur; Júdas Is-
kariot, eftir Gunnar Benedilds-
son; Kommunisminn og bænd-
ur, eftir Brynjólf Bjarnason;
Baráttan um heimsyfirráðin
o. fl.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: 5 kr. frá E. P.,
20 kr. (gamalt áheit) frá M. M.
Gjöf
til ekkjunnar á Eyrarbakka,
afþ. Vísi: 5 kr. frá Jóni, 10 kr.
frá G. & G.
Fyrirlestur
Guðm. Hagalíns fyrir stúd-
entafræðsluna, verður eklci ann-
að kveld, eins og ráðgert var,
heldur á sunnudag.
Harebell,
breska herskipið, kom hing-
að i gærmorgun.
Fylla
kom í gærkveldi.
Esja
kom úf fetráiidterð í morg-
un með margt farþega.
GENGI ERL. MYNTAR.
Sterlingspund .. .. kr. 22.15
100 kr. danskar- .... — 121.90
100 — sænskar .... — 122.21
100 — norskar .... — 118.25
Dollar..................— 4.56%
100 fr. franskir .... — 18.04
100 — svissn........— 87.95
100 lírur...........— 25.48
100 pesetar.........— 78.81
100 gyllini ............— 183.04
100 þýsk gull-mörk . — 108.19
100 belga...........— 63.57
Knattspymumót 2. fl.
Kappleikarnir i gærkveldi
fóru svo að Valur vann Frani
með 1 : 0, og K. R. vann Víking
með 6:1. — K. R. og Valur
standa nú jöfn að vígi með 7
stig hvort og verða þvi að keppa
aftur til úrslita. Mun sá kapp-
leikur fara fram á laugardags-
kvöldið.
Réttur.
Fyrsta hefti 12. árgangs er
nýlega komið út og flytur með-
al annars ágæta grein um Ge-
orge Bemard Shaw, hið fræga
Bretaskáld, eftir síra Ragnar E.
Kvaran. Síra Ragnari er sýni-
lega mjög létt um að skrifa og
svipar til föður síns um lipran
stil. pá er og í þessu hefti upp-
haf fróðlegrar ritgerðar, „Frá
óbygðum“, eftir Pálma Hannes-
son, náttúrufræðing. Segir rit-
gerð þessi, auk almennra og
fróðlegra athugasemda i inn-
ganginum, aðallega frá ferð höf-
undarins frá Kalmanstungu
til Hveravalla sumarið 1923.
Fóru þeir félagar (höf. og tveir
jarðfræðinemar danskir) fjæst
að Arnarvatni svo sem leið ligg-
ur, en þaðan um „Heiðingja-
skarð“, mUli Langajökuls og1
Kráks á Sandi, til Hveravalla.
Er það fáfarin leið og torsótt
og einatt allra veðra von þar
uppi við jökla, enda hreptu þeir
stórhrið með miklu frosti dag-
inn sem þeir fóru um skarðið
(laust eftir miðjan júlímánuð).
Ritgerðinni fylgir greinilegur
uppdráttur af Arnarvatnsheiði,
Kili og Eyvindarstaðaheiði, en
Hitt öí Þetta.
Konur ekki herskyldari
Nýlega var frumvarp samþ. i
fuiltrúaþingi Frakka, sem mæl-
ir svo fyrir, að á tímum styrj-
alda megi bjóða út þegnum
riltisins, „hvort sem karlar eða
konur eiga í hlut og án tillits til
aldurs“. Frumvarpið sætti all-
mikluin mótmælum, og nú er
talið, að efri málstofan muni
gera á því allmiklar breytingar.
Nefnd, sem um málið fjallaði,
var m. a. andvíg því, að orðið
„mobihsation“ (útboð) væri
notað, því að það ætti eingöngu
við um liernað, en frumvarpið
fjallaði ekki um hemaðarfyrir-
mæli heldur borgaralegar ráð-
stafanir. Nefndin kvað það ekki
anda frumvarpsins að gera kon-
ur herskyldar í Frakklandi,
lieldur væri liér um það eitt að
ræða, að veita yfirvöldum vald
til þess að kveðja hvern og einn
franskan þegn til hverrar þeirr-
ar vinnu, sem nauðsynlega
þyrfti að vinna, ef styrjöld væri.
J>að væri ekki tilgangur frum-
varpsins að gera konur her-
skyldar, heldur mætti skipa
þeim til hvers konar verka, svo
sem hjiikrunarstarfa, vinnu í
hergagnaverksmiðjum o. s. frv.
Morðmál.
Fyrir rúmum sjö árum, eða
15. apríl 1920, bar svo við i
bænum Braintree í Massachu-
setts í Bandarikjunum, að ráð-
ist var á tvo menn, sem voru að
koma með 20 þús. dollara úr
E.s. „Esjx'
Vörum, seni eiga að fara með
E s. „Esju“ i næstu ferð skipsins
suður og austur um Iand, verður
að skila föstudaginn ÍO.
júní. Vegna þess að skipið fær
ekki pláss við hafnarbakkann
nema föstudag og Iaugardagnæstk.
Pantaða farseðla verður að
sækjasama dag, annars verðaþeir
seldir öðrum.
Nokkrar
barna-
kerrnr
skermlaasar, ennliá
ðseldar.
Johs. Hansens Enke.
Laugaveg 3. Sími 1550.
Nýtisku smábátaraóíoraú
Hk. 2 3 4 6 8 ió
Kr. 285, ?85. 396. 610. 750.1000.
ÍJtanböfSámótór 2Va Hestafla Ítr.
285. - Verð véíadná nieð öllu til*
heyrandi, fraetfritt Kaúptnanna*
böfn. — Verðlistar ókeypis íré
Joh. Svenson, Sala, Sveplge.
banka, og voru þeir báðir myrt-
ir, en ræningjarnir sluppu.
petta var um hábjartan dag og
sáu margir ræningjana í sym.
Nokkuru síðar voru tveir ItaBr
handteknir þar í bænum, grun-
aðir um morðið. peir heita
Sacco og Vanzetti og eru jafn-
aðarmerfh. Eftir langan mála-
rekstur voru þeir dæmdir til
dauða, en margir voru þá þegar
sannfærðir um sakleysi þeirca.
peir höfðu og jafnan þrætt fyr-
ir glæpinn og höfðu áður haft
gott orð á sér. Reynt var á
marga vegu að fá leyfi til þesss
að taka málið upp að nýju, en
það fekst ekki. Höfðu þó áskor-
anir borist um það frá fjölda-
mörgum löndum, þ. á. m. frá
íslandi. — Loks var svo komið^
eftir 7 ára málarekstur, að fast-
ráðið var að taka þá af lífl f
vikunni sem liefst 10. júli. Bár-
ust þá enn áskoranir hvaðan-
æfa til fylkisstjórans í Masaa-
chusetts,og liannbeðinn að náða
mennina. pótti þvi augljósara
sem lengra leið, að þeir hefði
verið heittir rangsleitni og hlut-
drægni i rannsókn málsins, og i
nýkomnum blöðum er sagt, að
fangi einn, sem var náðaður i
Massachusetts, hafi nú játað, að
félagar sínir hafi drepið menn
þá, sem hér er um að ræða.