Vísir - 01.10.1927, Qupperneq 2
VlSIR
Þeir sem hafa hugsað sér að fá hjá okkur
Vopnafjarðarkjöt
eru vinsamlega beðnir að láta okkur vita um það sem fyrst.
Símskeyti
Khöfn 30. sept. FB.
ToUhækkun á frakkneskum vörum
í Bandaríkjum.
Síma'ö er frá París: Stjórn
Bandaríkjanna hefir látiö tolla-
nefncl þingsins gera tillögur unt
tollahækkun á frakkneskum vör-
um. Ef tillögur þessar ná sam-
þyktum, útloka þær næstum þvi
aö frakkneskar vörur verði flutt-
ar inn í Bandaríkin. Tillögurnar
eiga að gnnga í gildi, ef samninga-
tilraunin um lækkun á tollum á
■varingi, sem fluttur er til Frakk-
lands tekst ekki.
Höfðingjafundur.
Simað er frá London: Cham-
fjerlain og Rivera, einræðisherra á
Spáni, hittist bráðlega i Barce-
lona. Munu þeir ræða um ýms mál,
en sénnilega aðallega um Tangier-
málin.
Vatnavextirnir í Sviss.
Símað er frá Feldkirch, að
vatnsflóðin í Ölpunum haldi á-
fram. íbúarnir flytjast frá heimil-
um sínum í svissneska Rínardaln-
um. FTætt yfir bæina.
(Feldkirch er borg í Vorarlberg
í Austurríki, 6 kílómetra frá Rín,
við Innshruck-Regenz járnbraut-
ina, 5000 íbúar).
Daíwmskenmngin.
—o—
Á aðalfundi „British Asso-
cdation for Uie Advancement of
Science“, sem hófst í Leeds 31.
ágúst siðastliðinn, hélt hinn
víðfrægi vísindamaður sir Ar-
thur Keith fyrirlestur um upp-
runa mannsins og kenning
Darwins. Sir Arthur er einkum
kunnur fjTÍr rannsóknir sínar
á þessum kenningum og hefir
gert þær að lífsstarfi sínu.
Kenning Darvvins um uppruna
mannkynsins hefir mætt tals-
verðri mótspyrnu hin siðari ár,
og' ýmsir mikilsmetnir vísinda-
inenn orðið til að mótmæla
henni. Eigi síst fyrir þá sök hef-
ir fyrirlestur sir Arthurs vakið
athygli. pvú að hann kemst að
þeirri niðurstöðu, að Darwin
liafi haft rétt fyrir sér í öllum
aðalatriðum og telur niðurstöð-
ur hans með mestu vísindaaf-
rekum síðustu aldar, ef eigi lhð
mesta. „Eg játa að Darwins-
kenningin sé rétt, og svarið gef
eg eigi að eins fyrir mína hönd,
lieldur i umboði fjölmargra
vísindamanna, sem varið hafa
æfi sinni til þess að rannsaka
kenningu Darwins“, segir sir
Arthur.
„Síðan Darwin bar fram
kenningu sína eru liðin 56 ár,
og við getum í dag fylt í marg-
ar þær eyður, sem hann varð að
láta standa opnar. Við höfum
breytl nokkrum aukaatriðum,
en kjarninn í kenningunni
stendur óhaggaður.’ Og liann
stendur á svo föstum grund-
velli, að eg er sannfærður um,
að það tekst aldrei að hrófla við
honum. Sannanakeðjan hefir
þó ekki verið eins óbrotin og
menn hugðu á dögum Darwins.
Hann dró beina línu, er sýndi
framhaldandi röð af beina-
grindum frá framfótalöngum
öpum til mannsins. Við gerðum
nýja villu, þegar við liófum leit-
ina að uppruna mannkynsins.
Við bjuggumst við að finna
framhaldandi þroskastig, þar
sem sjá mætti framför ein-
stakra líkamshluta - hauskúpu,
heila, kjálka, tanna, handleggja
og fóta - stig af stigi, sífelda
breytingu frá apanum í áttina
til mannsins. En leit okkar sýn-
ir, að þroskasaga mannkynsins
hefir ekki gerst á svo óbrotinn
hátt.
ÖII þau sönnunargögn, sem
við liöfum i höndum nú, styðja
skoðun Lamarcks og Darwins
um að maðurinn sé kominn af
apa, sem ekki stóð á æðra menn-
ingarstigi en chimpansinn, og
að þróunin hófst um miðja
„tertiær“-öldina. Samkvæmt
því ætti mannkynið að vera um
miljón ára gamalt á vorn mæli-
kvarða.“
Af röksemdum, sem sir Ar-
thur færir fyrir máli sinu má
nefna þessar: Blóð mannsins og
apa þeirra, sem mest líkjast
manninuin, hefir sömu eigin-
leika, maðurinn og apinn sýkj-
ast af sömu gerlum, heili þeirra
er líkur að byggingu og þroski
fóstursins líkur lijá báðum.
„pó eru margar gátur viðvíkj-
andi uppruna mannsins ekki
ráðnar enn þá“, segir sir Ar-
tliur. „En svo mikið vitum við
nú, a'ð við getum leyft oss að
vona, að maðurinn geti um sið-
ir eigi a'ð eins skrifað uppruna-
sögu sjálfs sín, heldur og gert
grein fyrir hversvegna og livern-
ig þessi þáttur apakynsins komst
inn á leiðina til fullkomnunár.“
Á fundi þessum voru staddir
um 2500 vísindamenn og vís-
indakonur, og var fjTÍrleslrin-
um tekið með kostum og kynj-
um. Blöðin tóku flest i streng
me'ð sir Arthur og „Times“
skiifaði ítarlega um málið og
mintist m. a. á, hve margvísleg-
ar menjar fornra kynslóða
hefði fundist síðan Darwin var
uppi, og sönnuðu þær einnig
kenning hans. Og visindafélag
þetta hófst handa og efndi til
samskota, er ganga skyldu til
þess, að lcaupa bústað Darwins
og gera liann að þjóðareign.
Næsta sunnudag eftir þennan
fræga fyrirlestur, gerði einn af
merkari kennimönnum ensku
ldrkjunnar hann að umtalsefni
í stólræðu, og hóf harða árás á
ræðumanninn.- Benti hann á
ýmsar „villigötur vísindanna“
fyr og siðar. Fjölmargir —
einkum meðal kirkjunnar
manna — hafa siðan teki'ð i
sama strenginn og andæft fyr-
irlestri sir Arthur Keitli mjög
eindregið. Er nú alt i báli og
brandi í Englandi út af Dar-
winskenningunni og svo mikill
liiti í umræðunum, a'ð þeim er
helst líkl við „apamálið“ fræga,
sem var á döfinni i Ameríku
fyrir tveimur árum. pykir
furðu sæta, að jafn gamalt mál
og þetta í rauninni er, skuli
geta komið svo miklum æsingi
af sta'ð. Vitanlega er þetta til-
finningamál öllum sanntrúuS-
um mönnum og svo er hitt, að
jafnan liefir verið lagður tals-
verður metnaður í ættgöfgi.
Flestum mun ljúfara að rekja
ætt sina til stórmenna, en að
hefja ættartöluna á loðnum og
ljótum apa.
Messur á morgun.
í dómkirkjunni kl. 11 f. li.
síra Bjarni Jónsson, kl. 2 e. li.
barnaguðsþjónusta, síra Friðrik
Hallgrimsson, kl. 5 e. h. síra Fr.
Hallgrímsson.
í fríkirkjunni í Reykjavik kl.
2 e. h. sira Árni Sigurðsson, og
kl. 5 e. h. próf. Har. Níelsson.
í Landakotskirkju: Hámessa
kl. 9 f. h. og kl. 6 e. h. guðs-
þjónusta með predikun.
í sþítalakirkjunni í Hafnar-
fir'ði: Pontificalmessa og bisk-
upun kl. 9 f. h. og kl. 6 e. h.
gu'ðsþjónusta með predikun.
í húsi K.F.U.M. samkoma kl.
8%. Síra Bjarni Jónsson.
Sjómannastofan: GuSsþjónusta
kl. 6 síðd. Aljir velkomnir.
Jarðarför
Jóns Bjarnasonar kaupmanns
fer fram næstkomandi mánu-
dag.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík 4 st., Vest-
mannaeyjum 4, ísafirði 3, Akur-
eyri 1, Seyðisfirði 4, Grindavík 3,
Stykkishólmi 4, GrímsstöíSum
2, Hólum í Hornafirði 3, Þing-
völlum 3, Færeyjum 4, Angmag-
salik 1, Kaupmannahöfn 11, Ut-
sira io, Tynemouth 11, Jan May-
en 1 st. Mestur hiti hér í gær 7 st.,
minstur 2 st. — Lægð fyrir aust-
an lancl 0g önnur við vesturströnd
írlands. Hæð yfir Grænlandi.
Horfur: Suðvesturland, Faxaflói
og Breiðafjörður í dag og í nótt:
Norðan átt, sumstaðar allhvass.
I’urt veður. Vestfirðir og Norður-'
la.nd í dag og i nótt: Allhvass
norðaustan. Bleytuhríð. Norð-
austurland og Austfirðir: Storm-
fregn: í dag og í nótt: Hvass
norðaustan. Regn og krapaskúrir.
Suðausturland i dag og i nótt:
Norðan átt, sumstaðar allhvass.
I'urt veður.
Xaupendur Vísis,
þeir er bústaðaskifti hafa nú
um mánaðamótin, eru vinsamlega
beðnir að tilkynna afgreiðslunni
hiö nýja heimilisfang, svo að þeir
verði ekki fyrir vanskilum á lilað-
inu.
Vísir kemur út
tímanlega á mörgun (sunnu-
ciag). Auglýsendur eru vinsam-
lega beðnir að koma auglýsingum
í sunnudagsblaðið til afgreiðsl-
unnar fyrir kl. 7 í kyeld eða í Fé-
lagsprentsmiðjuna fyrir kl. 9 í
kveld (sími 1578).
Vísir
er sex síður í dag. Sagan er í
aukablaðinu.
Sakamálsrannsókn
hefir dómsmálaráðuneytið fyr-
irskipað út af sjóöþurðinum i
Brunabótafélagi íslands.
Gylfi
er að búast á veiðar.
Belgaum
kom af veiðum í morgun. ITef-
ir veitt í is.
Esja
fer héðan kl. 6 síðd. í dag,
suður og austur um land í
hringferð.
Gullfoss
fór í morgun frá Seyðisfirði.
Er á leið hingað frá útlöndum.
Goðafoss
er væntanlegur i nótt, að norð-
an og vestan.
Unglst. Unnur
byrjar fundi sína kl. 10 árd. á
morgun.
Gæslumaður.
St. Æskan nr. 1.’
Fundur á morgun kl. 3.
Unglingastúkan Diana
heldur fund á morgun kl. 2
síðd.
St. Dröfn nr. 55
heldur fund kl. 5 á morgun (sjá
augl.). — Dansskemtun stúkunn-
ar hefst annað kveld kl. 8^2 í
' G.-T.-húsinu. Dansað verður eftir
slaghörpuleik og fiðlu. Þeir, sem
sækja skemtunina, verða að sýna
skírteini.
Sunnudagaskóli K. F. U. M.
hefst á morgun kl. 10 árdegis.
Líndanfarna vetur hefir skóli
þessi verið mjög fjölsóttur. Öll
börn velkomin meðan rúm leyfir.
Aðsókn
að málverkasýningu Jóns J?or-
leifssonar hefir verið góð. Selst
hafa nú þegar 17 málverk. þ. á.
m. eitt stórt, Mcðalfell á kr.
800,00.
Athygli
skal vakin á augl. unglinga-
st. Bylgju, sem birt er á öðrum
stað í blaðinu í dag.
Hjúskapur.
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband ungfrú Guðrún Haf-
liðadóttir og Kristján Kristjáns-
son, skipstjóri á Gulltoppi. Síra
Friðrik Hailgrímsson gaf þau
saman.
Abraham,
gamanleikurinn franski, sem
,h.f. Rcykjavikurannáll“ læfir
verið að æfa að undanförnu, vai-
sýndur í fyrsta sinn i gærkveldi.
Leikurinn var f jörugur og fyiui-
inn á köflum og virtust áliorf-
endur skemta sér prýðilega.
Wýr söngmaöur.
Skevti frá Akureyri sagði ný-
lega frá ungum söngmanni, sem
hefði sungiö þar og hrifið menn
alveg óvenjulega. Heitir hann
Kristján og er sonur Kristjáns
læknis á Seyðisfirði, sem fyrir
löngu er landskunnur orömn sem
tónskáld og ágætur söngmaður. —-
Kristján yngri hefir tenórrödd og
hefir æft hana undir handleiðslu
útlendra kennara i þrjú ár. — Sig.
liin. Hliðar segir svo m. a. i blað-
inu „Islendingi", 9. þ. m.: „Það
var nautn, sem um er vert að tala,
að hlusta á söng K. K.------Eg
tel það mjög líklegt, að engum,
sem á heyrði, geti blandast hugur
um, að hér sé á ferðinni glæsileg-
m söngmaður með hinni björtustu
framtíð blasandi við sér.“ — t
blaðinu ,,Degi“ eru m. a. þessi
umrnæli: „Það, sem sérstaklega
einkennir söng hans, er óþreyttur
glans æskuraddar, ])ar sem létt-
ieiki. lipurð og ynclisleiki ljómar af
hverjum tón, auk smekklegrar
meðferðar á viðfangsefninu í heild
sinni.“ — Kristján er væntanlegur
hingað til Rvíkur á „Goðafossi“
eftir helgina og mun þá væntan-
lega láta til sín heyra. ó.
Sjötugur
verður næstk. mánud. Einar
Jónsson frá Álfsstöðum á Skeið-
um, nú til heimilis á Grundar-
stíg 11.
Skúli V. Guöjónsson
Iæknir hefir verið skipaður vís-
inclalegur aðstoöarmaður við
heilsufræðisdeild Kaupmanna-
hafnarháskóla.
Sigurður E. Hlíðar
dýralæknir hefir verið viður-
kendur þýskur vísiræðismaður á
Akureyri.
Þeir,
sem ætla sér að njóta kenslu H.
Ottóssonar og Br. Bjamasonar,
geri svo vel að koma á auglýstum
viðtalstíma á Vesturgötu 29. Sjá
augl. í blaðinu í dag.
Silfurbrúðkaupsdag.
eiga í dag frú Guðný Jónasdótt-
ir og Böðvar kaupm. Böðvarsson,
Hafnarfirði.
Guðm. Jónsson,
fyrrum baðvörður, Öldugötu 35,
er 71 árs í clag.
Kveldskemtun
verkakvennafélagsins Frani-
sóknar verður baldin í Bíininni
í kveld ld. 814.. — Auk þeirra
skemtiatriða, sem áður hafa
verið nefnd, verða gamanvisur,
sem Reinh. Richter ætlar að
syngja.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: 10 kr. frá A. S.
og S. J„ 5 kr. frá ónefndri
konu, 15 kr. frá ónefudri, 5
kr., gamalt áheit, frá ónefnd-
um.