Vísir - 09.02.1928, Side 2
VISIR
Nýkominn
Laukur
í pokum,
Irá konunt;legrí hollenskri verksmiðju, mahogni,
Rachals mahogui með 3 pedAlum.
— Læg'ta verð beint frá verksmiðjunni. —
A. Obenhaopt.
ð
Amerískar síldarnætnr
Vi&. útvegum amerískar síldarnætur með iægsta verði
og góðum greiðsluskilmálum. Þeir sem kynnu að
vilja íá tilboð á þessum nótum eru beðnir að tala
við okkur hið fyrsta.
Þörður Sveinsson & Co.
íboSiCOOOtttiOí>00<SíÍOOOSKSOOOOO«SOOOOOOOOOeOOOCÍSoböOOOOO»CÍK
um tvo.
Ekki komu rnörg' ný
Til Tífllsstaða
hefir B. S. R. fas-tar ferðir alla
daga kl. 12, kl 3 og kl. 8.
BlfrelðastöO Reykjavíkur.
Afgr. simar 715 og 716.
Símskeyti
Khöfn, 8. febr. F. R.
Breska þingið sett.
Frá Londoirer símað: pingið
var sett í gær. f hásætisræðunni
var boðað, að nokkur hluti her-
liðs Breta í Kína yrði kallað
heim, þar eð ástandið í Kína
heíði batnað að miklum mun.
Norska stjórnin völt í sessi.
K Frá Osló er símað:
í þinginu er rætt um stefnu-
skrá stjórnarinnar. Mowinckel,
foringi vinstrimanna, liefir hor-
ið fram vantrausts5rfirlýsingu á
stjórnina, þar eð liún komi
fram sem stjórn einstakrarstétt-
ar og henni sé ekki treystandi
til þess að rétta við fjárhag
landsins.
Hægrimenn og bændaflokk-
urinn styðja vantraustsyfirlýs-
inguna, sem verður vafalaust
samþykt.
Sennilegt er talið, að atkvæða-
igreiðsla um hana fari fram í
dag.
(Fregn þessi kemur eins og
þruina úr heiðskíru lofti. Hefði
mátt búast við, að vinstrimenn
mundu láta verkamannastjórn-
ina í friði þangað til á næsta
ári, úr því að þeir vildu ekki eiga
samvinnu við hægri og hænda-
flokkinn um myndun sam-
liræðslustjórnar. Hlýtur aðstaða
Mowinkels og vinstrimanna að
hafa breyst svo þessar vikur,
sem liðnar eru frá stjórnarskift-
unum, að þeir sjó sér nú fært
að leggja „borgaraflokunum“
lið. Fari verkamannastjórnin
frá, mun Mellbye, foringi
bændaflokksins mynda nýja
stjórn, því þingrof kemur varla
lil mála, er svo skamt er liðið
frá kosningum).
Utan af landi.
--o—
Akureyri, 8. febr. F. R.
Dýralæknirinn er nýkominn
lieim úr átta vikna ferðalagi um
Húnavatns- og Skagafjarðar-
sýslur, en ferð þessi var farin
að tilhlutun ríkisstjórnarinnar,
til þess að rannsaka drepsótt í
sauðfénaði. Næm lungnabólga í
sauðfé gengur allvíða i Austur-
Húnavalnssýslu og á Lækja-
móti í veslursýslunni. Hafa
drepist um 20 lcindur á fjómm
bæjum og víða færri. Lungna-
ormar í ungfé víða, en í smáum
stíl.
Sjómannafélag Norðurlands
var stofnað hér á sunnudaginn.
Stofnfélagar 30—40.
Dauði Natans Ketilssonar var
leikinn í áttunda sinn i gær-
kveldi fyrir fullu húsi. Kvaran
var kallaður fram sem áður.
Frá Alþingi.
'í gær stóðu fundir beggja deilda
tit 'kl. 4. Þessi mál vont til úm-
ræðu:
Efri deild.
1. Frv. til 1. um mentamála-
nefnd íslands, 2. umr. Vísir hefir
áður skýrt frá efni þessa stjórnar-
frv. Vildi meiri hluti mentamála-
nefndar, Erlingur Friðjónsson og
Páll Hermannsson, að það yrði
samþykt óbreytt, með ])ví að hanu
áleit í því felast framför á skipu-
lagi mentamálanna, frá því sem
nú er. Minnihlutinn, Jón Þorláks-
son, áleit verkefni nefndarinnar alt
of víðtækt í frv. Víkli ])vi fella
niður úr því mörg þeirra verk-
efna, sem henni eru ætluð, og ein-
skorða starf hennar að mestu viö
ýmislegt er listir áhrærir. Allar
voru brtt. J. Þorl. feldar, og frv.
vísað til 3. umr. óbreyttu.
2. Frv. til 1. um hafnargerð á
Skagaströnd, 1. umr. Frv. þessu,
sem fram er borið af Guðmundi
Ólafssyni, var vísað til 2. umr. og'
r.efndar.
3. Frv. til 1. um eftirlit með
verksmiðjum og vélum, 1. umr.
4. Frv. til 1. um veiting ríkis-
borgararéttar, 1. umr.
5. Frv. til 1. um nauðungar-
uppboð á fasteignum og skipum,
1, umr. — Þessum þrem frv., sem
Nd. hefir samþykt, var vísað til
2. umr. og nefnda.
6. Frv. til 1. um búfjártrygg-
ingar, 2. umr. Meiri hluti landbn.,
Jón Bald. og Einar Árnason, lagði
til að frv. væri samþykt meö lit-
illi breytingu. Minni hlutinn, Jónas
Kristjánsson, lagði til aö frv. væi'i
afgreitt með rökstuddri dagskrá,
svo hljóðandi: „Með þvi að frv.
um búfjártryggingu varðar mjög
alla búfjáreigendur, en mál þetta
eigi nægilega undirbúið, vísar
deildin frv. til landsstjórnarinnar
aftur, til rækilegri undirbúnings,
og felur henni að leita álits allra
sveitarstjórna og sýslunefnda um
málið. Ennfremur felur deildin
landsstjórninnj að láta safna
skýrslum um vanhöld og búfjár-
sjúkdóma um land alt og fá til-
lögur um fyrirkomulag og tilhög'-
un vátrygginganna. Undirbúa síð-
an málið, að fengnum nægilegum
gögnum um þessi atriði.“ — Þessi
dagskrártill. var feld, og frv. vísað
til 3. umr.
7. Till. til þál. um að skora á
ríkisstjómina að skýra frá rann-
sólcn á embættisfærslu í Barða-
strandarsýslu. Tillaga ])essi er
flutt af Jóni Baldvinssyni og sést
efni hennar af fyrirsögninni. Var
bún lítið rædd í gær,’ en umr.
frestað og tillagan sett í nefnd.
Nýtt frumvarp og fyrirspurn.
Halldór Steinsson, Ingvar
Pálmason og Jón Baldvinsson
fiytja frv. til 1. um breytingar á
yfirsetukvennalögunum.
Sigurður Eggerz flytur fyrir-
spurn til ríkisstjórnarinnar um
uppsögu sambandslagasamnings-
íns.
Neðri deild.
1. Frv. til 1. um solu á landi
Garðakirkju í Hafnarfirði, 3. umr.
Þetta litla frv. var afgreitt til efri
deildar óbreytt.
2. Frv. til 1. um löggilding
verslunarstaðar á Vattamesi í Suð-
ur-Múlasýslu, 1. umr. Frv. þessu,
sem flutt er af Sv. Ól„ var vísað
lil 2. umr. og nefndar.
3. Frv. til 1. um þinglýsing.
skjala og aflýsing, 2. umr. Frv.
]>etta, sem Magnús Guðmundsson
ílytur, og er um að gera liægara
og kostnaðarminna starf sýslu-
manna um þinglýsingar og aflýs-
ingar, bafði verið atbugað af alis-
bn. og vildi hún samþykkja það
óbreytt. Magnús Torfason gerði
athugasemdir um ýms fyrirkomú-
lagsatriði, sem hann bað allsbn.
að athuga til 3. umr. Ræddu þeir
um þau fram og aftur, lögspeking-
arnir, M. G. og M. T., en varla
bafa margir leikmenn fylgst meö
i þeim umræðuni.
4. Frv. til 1. um skifting Gull-
bringu- og Kjósarsýslu í tvö kjör-
dæmi, 2. umr. — Allshn. hafði
haft málið til meðferðar vg, sem
vænta mátti, klofnað um það.
Minni hlutinn, Magnús Guðm. og
Hákon, vildu fella frv., en en meiri
hlutinn, Gunnar Sig„ Héðinn og'
Bernb. Stef., vildu samþykkja það.
Þó gerði Bernharð þann fyrirvara,
að liann gæti vel hugsað sér, aö
leyfa Gullbringu- og Kjósarsýslu
að hafa 2 þm. áfram, en bæta við
nýjum þm. fyrir Hafnarfjörð. Á-
leit hann rétt, að Eyjafjarðarsýski
og Siglufirði yrðu gerð sömu skil,
og þingmönnum |)annig fjölgað
rök fram í málinu, svo séð yrði.
Fylgjendur frv. halda því fram, að
Hafnarfjörður eigi réttlætiskröfu
til sérstaks þingmanns sakir fólks-
fjölda, þar sem það sé jafnframt
almenn ósk íbúanna, að fá þing-
manninn. — Andstæðingarnir
segja hinsvegar, að atvinnuhættir
Hafnfiröinga og flestra sýslubúa
sé mjög líkir, og hagsmunirnir því
hinir sömu. Sé því engin þörf á
s.ð skifta kjördæminu. — Umræð-
um varð ekki lokið i gær, og voru
þær orðnar all-hvassar, eink-
um milli Hákonar Kristóferssonar
og Sigurjóns Ólafssonar.
yfir bæjarstjómarkosningunum
28. f. m.
Vér undirritaðir kjósendur í
bæjarmálefnum Reykjavíkur, kær-
um hér með kosningu þá til bæjar-
stjórnar, er fram fór hér í bænum
hinn 28. f. m. og krefjumst þess,
að kosning þeirra 5 bæjarfulltrúa,
scm hafa verið taldir kosnir sam-
kv. henni, verði úrskurðuð ógild,
sakir mikilla og margvíslegra laga-
brota, viö kosningarathöfnina, svo
sem nú skal sýnt.
Með auglýsingu, clags. 31. des.
f. á„ sem birt var í dagblöðunum
hér, tilkynnir settur oddviti kjör-
stjórnar, ab kjósa beri 5 fulltrúa
í bæjarstjórn Reykjavíkur 28. jan.
1928, og að framboðslistar skuli
vera komnir í hendur kjörstjórnar
kl. 10 árcl. 14. jan. 1928. í aug-
lýsingunni segir ennfremur að:
„Til þess að unt verði að samræma
þessa kosningu við ákvæði “5. gr.
i lögum nr, 43 frá 15. júní 1926,
um kosningar i málefnum sveita
og kaupstaða, hefir kjörstjórnin á-
kveðið, að láta kjósa i tvennu Iagi,
þannig, að 3 fulltrúar séu kosnir
til 2ja ára og 2 til 4 ára. Skal á
hverjum framboðslista taka fram,
hverjir séu boðnir fram til 2ja ára
og hverjir til 4 ára, og telst listi
ógildur, cf þessa er ekki gætt. .. “
I. Kjörstjórnin þykist hér
þurfa að samræma kosninguna
við lögin frá 1926 með því að láta
kjósa til 2 og' 4 ára. Þetta er fyrst
0g fremst ekki rétt, þvi að það
getur ekki talist að samræma,
sem er þvert ofan í ákvæði 5. gr.
laganna. Greinin skipar sem sé
fyrir um, að kosning bæjarfulltrúa
cftir Iögunum skuli gilda til 6 ára.
Þetta ákvæði um ikjörtímabilið er
eiua gildandi ákvæöi um kjör-
tímabil þeirra bæjarstjórnarfull-
trúa, sem kosnir eru eða verða eft-
ir 1. jan. 1927, þvi aö öll eldri
ákvæði um bæjarstjórnarkosning-
ar eru feld úr gildi frá sama tíma.
Þetta ákvæði, að kjörtímabiliö
skuli vera 6 ár, stóð í stjórnar-
frumvarpi því, sem lagt var fyrir
þingið 1926 og var aldrei við því
hróflað. Þvert á nióti var feld með
miklum atkvæðamun tillaga um
að stytta kjörtímabilið um 2 ár.
Eyrirmæli laganna eru glögg. Það
á að kjósa til 6 ára, og því bar
kjörstjórninni að boða til 6 ára
kosningar, en þaö gerði hún ekki,
heldur til 2 og 4 ára kosningar.
Samræmingartilraunir kjör-
stjórnar munu lúta að því, að
samræma ákvæðin i upphafi 37.
gr. um setu þeirra bæjarfulltrúa,
sem kosnir voru fyrir gildistöku
laganna, við ákvæði 5. gr., I.
mál.sgr. 2 (Helmingur bæjarfull-
trúa o. s. frv.). Það mun rétt, aS
þessi 2 ákvæði geta ekki sam-
rýmst, en að samkýma þau er ekkx
verk kjörstjórnar, heldur löggjaf-
ans, og sérstaklega var það óþarft
nú við þessar kosningar, að gera
nokkra tilraun til samræmingar,
]>ar sem að minsta kosti 2 löggjaf-
arþing stóbu fyrir dyrum, áSur
tií þyrfti að taka, að skeyta sam-
an hin gömlu og hin nýju kjör-
tímabil. Þetta átti kjörstjórninni
að vera sérstaklega ljóst af því,
hvernig 5. gr. 1. málsgr. 2. er inu
í lögin komin. ÁkvæSi sbjórnar-
frumvarpsins um kjörtímabil og
úrgöngu bæjarfultrúa, voru alt
önnur en laganna nú, og komu
ágætlega heim við ákvæði 37. gr.,
svo sem vænta mátti af höfundí
frumvarpsins, sem er glöggskygn-
astur allra um lagaákvæði. En við
2. umr. í neðri deild Alþingis skol-
ast núverandi ákvæði 5 gr. inn \
frumvarpið, sbr. Alþt. 1926 A. bls.
598, og sbr. B. bls. 1207, án þess
þingmenn tækju eftir því, aö þetta
ákvæði 5 gr. gat ekki samrýmst
ákvæði 37. gr.
Að þessu athuguðu átti kjör-
stjórnin sjálf ekki aö vera að fást
við neina samræmingu laganna,
heldur láta hinn rétta aðila, lög-
gjáfarvaldið, um þaö. Sérstaklega
af ]>ví, aö engrar samræmingar
þurfti, vegna þessarar ikosningar.
En ef kjörstjórnin taldi, að nauö-
synlegt væri, nú fyrir þessar kosn-
ingar, að samræma ákvæði lag-
anna, þá bar henni aö snúa sér
um þaö efni til ríkisstjórnarinnar
og fá útgefin bráöabirgöalög, ef
skilyrði fyrir þeim hefði veríð
fyrir hendi.
Samræming kjörstjórnar á á-
kvæðum laganna, með því aö láta
kjósa nokkra fulltrúa til 2 ára og
nokkra til 4 ára, var því ekki ein-
ungis óþörf og kjörstjórn'm óbær
um að gera hana, heldur var hún
einnig gagnstæð ákvæðum lagauna
um 6 ára kjörtímabilið. Er þetta
hið fyrsta lögbrot kjörstjórnarinn-
ar. — i .