Vísir - 19.06.1928, Page 3
VI S 1 H
stíl liún er, og vegna þess, að
allur kostnaður verður meiri i
byrjun.
Nú er alt kapp lagt á, að gera
flugið sem ódýrast, og miðar
hugvitsmönnum vel áfram á
þeirri braut. Hinar léttu vélar
með styrklitlum hreyflum, eru
altaf að fullkomnast, og mönn-
um hefir tekist að gera vélar,
sem lyft geta tvöfaldri þyngd
sinni. Eftir þrjú til fimm ár má
gera ráð fyrir, að afköst vél-
anna hafi tvöfaldast frá því
sem nú er, og kostnaður við
flug lækkað að sama skapi.Það
eru ekki nema tíu ár, síðan far-
ið var fyrir alvöru að hugsa
um að gera vélarnar að sam-
göngutæki, og hæri þá nýrra
við, ef þær ætti að vera þeim
lögum liáðar, að þær hættu alt
í einu að fullkomnast.
Þó er kostnaðurinn við að
fljúga ekki meiri en svo, að
oft getur fólki verið beinn
sparnaður að því, að nota loft-
leiðina í stað skipa, þesta eða
bifreiða. Landferðalag héðan
norður til Akure>Tar verður t.
d. tvímælalaust dýrára en með
flugvélum, þó ekki sé talinn
timasparnaðurinn. Og póst-
flutningur á hestum til fjar-
lægra staða sömuleiðis.
Samkepnin við bifreiðar á
stuttum leiðum verður erfiðust.
En menn gæta þess ekki, að
þær samgöngur eru óbeinlínis
studdar af ríkisfé. Vegirnir,
sem bifreiðarnar fara, kosta
svo mikið fé, að ef bifreiðaeig-
endurnir ættu að greiða lagn-
ingar- og viðhaldskotstnað
sjálfir, mundu bifreiðarnar
ekki samkepnisfærar. Og þeg-
ar þessa er gætt, mælir öll
sanngirni með því, að rikið
styrki flugsamgöngurnar rif-
lega, þvi annars er þeim gert
órétt til. Hvar mundu íslensk-
ar samgöngur staddar, ef ríkið
hefði ekki lagt miljón á mil-
jón ofan fram, til þess að gera
vegi og byggja brýr, og greiddi
styrk sem nemur hundruðum
þúsunda á ári, til strandferð-
anna. Það mætti óefað nú þeg-
ar vera hægt að koma á sæmi-
legum flugferðum landshorn-
anna á milli — við mjög hóf-
legu fargjaldi, — með styrk
sem aðeins næmi litlu broti af
þeim upphæðum.
Sumir virðast vilja krefjast
þess, að flugsamgöngur geti
annað þungavöruflutningi fyr-
ir sæmilegt verð; menn hafa
talað um mjólkurflutninga
austan úr Flóa og þess háttar.
Þetta er ekki tímabært ennþá.
Menn hafa ekki enn þá séð sér
hag i því, að flytja rúgmjöl
eða kol í pósti, en engum dett-
ur í liug að amast við póstsam-
göngum fyrir því. En flugsam-
göngur liafa nægt verkefni fyr-
ir því.
Og meira verkefni liér en
annarstaðar. fsland er viðáttu-
mikið og strjálbygt, og það er
landinu um megn að tengja
saman allar bygðir með járn-
brautum og akvégum. Erfið-
leikarnir eru svo miklir, að
þjóðin hefir eigi að svo komnu
séð aðra leið færa, til þess að
koma sér upp járnbrautar-
spotta milli Iiöfuðstaðarins og
þéttbýlustu sveitanna en þá, að
fela það útlendingum og gefa
þeim sérréttindi í staðinn. Hér
á íslandi er aðstaðan alveg ein-
stök að þessu leyti. Flugvélin
er hið eina, sem komið getur
samgöngunum í viðunanlegt
horf í nálægri framtíð. Því hún
er óháð vegum, brúm og stál-
teinum. Veðrinu er hún liáð, en
það eru allir.
Sk. Sk.
Allsherjarmótið.
2. dagur Allsherjarmótsins
var i gær, og var kept í þessum
iþróttum:
Langstökk. 1. varð Svein-
björn Ingimundarson, stökk
6,55 m. (nýtt ísl. met), 2. Reid-
ar Sörensen 6,27 m., 3. Helgi
Eiriksson 5,55 m. — Sveinbjörn
stökk öll gild stökk sín yfir
gamla metið og bar svo af
keppinautum sínmn, að segja
má, að hann hafi staðið þeim
langtum framar og að eins
Sörensen komst þar með tærn-
ar sem Sveinbjörn hafði hæl-
ana - bókstaflega talað. Stökk-
lengd Sveinbjörns byggist aðal-
lega á þvi tvennu, live góðri
hæð hann nær í stökkið og
sprettinum; kemur sprettliraði
hans honum að góðu haldi í
þessari íþrótt umfram allar
aðrar, enda er langstökk og
spretthlaup þær tvær íþróttir,
sem skj'ldastar eru og heppi-
legast að sameina. Það er ætíð
gleðilegur atburður, þegar met-
in okkar mjakast eitthvað
áfram; nógu langt eru þau
samt á eftir metum stórþjóð-
anna enn þá, en það eykur þó
ánægjuna, þegar þau afrek eru
unnin á þann hátt, að ekki er
um neina tilviljun eða heppni
að ræða, lieldur byggjast á
'stöðugri þroskun og þjálfun
líkamans. Það, livað öll stökk
Sveinbjörns voru jöfn, gefur
góðar vonir um að liann teygi
eiln meira úr metinu, því það
bendir á, að þetta séu meðal-
stökklengdir hans nú. Hvað
skyldi liann komast langt, ef
hánn næði sérstaklega góðu
stökki?
5000 m. hlaup. 1. varð Geir
Gígja á 16 mín. 30,4 sek., 2. Jón
Þórðarson 16, 34,2, 3. Bjarni
Ólafsson 16, 45. — Geir hljáp
fyrstur alla leið og Jón Þórðar-
son altaf næstur. Tíminn er all-
góður, svo að aðeins tvisvar
áður liefir verið lilaupið á betri
tíma liérlendis.
Hástökk: 1. varð Helgi Ei-
ríksson stöklc 1.615 m., 2. Svein-
björn Ingimundarson 1.59 m.,
3. Reidar Sörensen 1.515 m. —
Stökkvararnir voru ekki vel
upplagðir i þetta skifti og Helgi
alveg óæfður; liafði ekki getað
æft, vegna lasleika undanfarið.
Kringlukast (beggja li. sam-
anl.): 1. varð Þorgeir Jónsson,
kastaði 64.43 m. (betri h. 35.50)
2. Ásgeir Einarsson 54.29 m., 3.
Sigurjón Jónsson 50.44 m. —
Þorgeir kastaði vel að vanda,
en var þó ekki vel æfður nú;
enda alllangt frá metum sín-
um, bæði annarar og beggja li.
Mótið heldur áfram í kveld,
og verður þá kept í 800 m.
lilaupi og reiptogi.
Bæjarfréttir
=»o
Höfum fyrirliggrjandi;
Rúgmjðl og Hálfsigtimjöl
fpá Aalborg Ny Dampmölle.
H. Beneditetsson & Co.
Sími 8 (fjórar líniir).
□ E1)DA. 59286246 - 1.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík n st., ísaf. io,
Akureyri io, Seyðisf. 9, Vest-
mannaeyjum 8, Stykkishólmi 7,
Blönduósi 7, Raufarhöfn 5, Hól-
um í HomafirSi 9, Grindavik .11,
Færeyjum 8, Julianehaab 6, Ang-
inagsaJik 13, Jan Mayen 4, Hjalt-
landi 9, Tynemouth 9 st. (Engin
skeyti frá Khöfn). Mestur hiti hér
i gær 16 st., minstur 9 st. Grunn
lægð fyrir sunnan land, hreyfist
hægt austur eftir. Horfur: SuS -
vesturland: I dag og nótt breyti-
leg átt. Víðast suðvestan. Dálítil
rigning. Faxaflói: 1 dag og nótt
hægviSri. Skúrir sunnan til.
Breiðafjörður, Vestfirðir, Norður-
land: í dag og nótt hægur austan
og norðaustan. Þurt veður. Norð-
r.usturland: í dag og nótt austan
átt. Þurt loft og dálítil rigning.
Austfirðir og suðausturiand: 1
dag og nótt hægur austan. Sum-
staðar skúraleiðingar.
Prófessor Ágúst H. Bjamason
var 17. þ. m. kjörinn háskóla-
rektor næsta skólaár.
Leikhúsið.
„Æfintýrið" verður enn leikið á
morgun og aðgöngumiðar seldir
við lækkuðu verði (alþýðusýn-
ing). Leikiö var i gærkveldi við
svo góða aðsókn, að hvert sæti í
húsinu var skipað og urðu ýmsir
frá að hverfa.
Síðustu hljómleikar
Fritz Dietzmann og Folmer-Jen-
sen verða í Gamla Bio kl. 7)4 í
kveld. Kemur öllum þeim, er á þá
hafa hlýtt, saman um, að þeir séu
ágætir listamenn, sem verðskuldi
mikla aðsókn. Verður þetta allra
siðasta tækifærið til að hlusta á
leik þeirra félaga, því að þeir
halda heimleiðis á Islandi annað
kveld.
Aðalfundur
Hins islenska Bókmentafélags
var haldinn 17. þ. m. að kveldi.
Stjórnin skýrði frá gerðum félags-
ins siðastliðið ár. Nú eru i félaginu
rúmlega 1700 félagar og höfðu 78
bætst við á árinu. Félagið gefur út
á þessu ári: Skími, Fornbréfa-
safn, Annála og Safn til sögu Is-
lands. Heiðursfélagi var kjörinn
Sigurður Kristjánsson bóksali.
Birt voru úrslit stjórnarkosningar
cg höfðu þessir verið endurkosn-
ii : Dr. Guðmundur Finnbogason
forseti, Matthías Þórðarson vara-
forseti og Dr. Hannes Þorsteins-
son og Sigurður Kristjánson.
Sjómannafélag Reykjavíkur
og Sjómannafélag Hafnarfjarð-
ar tilkynna: Samningar um kaup-
greiðslur við síldveiðar í sumar
hafa strandað, fyrir þá menn, sem
verða á togurum og línubátum.
Félögin auglýsa í dag aðvaranir
til félaga sinna og annara verk-
lýðsfélaga, að ráða sig ekki á
nefnd skip, fyrr en samningar hafa
tekist. títgerðarmenn hafa snúið
sér til stjórnarinnar um sáttatil-
BARNAFATAVERSLUNIN
Klapparstig 37. Sími 2035.
Fjftlbreylt úrval af barnanær-
fatnaöi, sérlega hentu«um fyrir
sumarið.
Hjarta-as smjQrið
er vlnsælast.
4sgaröar.
Fiður
nýkomiöJ
raun og hefir hún sett Georg Ól-
afsson bankastjóra til þess að vera
sáttasemjara í stað Björns Þórðar-
sonar, sem nú er staddur erlendis.
Brúarfoss
var í Leith í gær á leið hingað.
Flann mun hafa farið þaðan í nótt.
Fylla og óðinn
komu úr Borgarnesi í nótt meö
ráðgjafarnefndina dansk-íslensku.
S. R. F. í.
heldur fund á fimtudagskveld
kl. 8y2 í Iðnó. Hæstaréttardómari
Páll Einarsson flytur erindi um
„Skrif Cleóphasar" (Postulasög-
una, sem rituð hefir verið ósjálf-
rátt). Umræður verða á eftir.
Reykvíkingur
kemur út á morgun.
Gjöf
í samskotasjóð „Jóns Forseta"
afhent Vísi: kr. 886.25 frá Leikfé-
lagi Reykjavíkur;
Áheit á Strandarkirkju,
afh. Vísi: 2 kr. (gamalt áheit)
frá P., 2 kr. frá konu í Grindavík,
10 kr. (upp í gamalt áheit) frá
A. J.
Prinsessan sem
er vinnukona.
Trjáviður mannamatur,
Fyrsta fjarsýnisstöð reist,
Blóðhefnd á Korsíku, Fluga
veldur dauða, Maðurinn sem
vildi í tugthúsið, Hvor verð-
ur á undan til suðurpólsins,
Wilkins eða Byrd?, Gullstássi
dreift um stræti, Samkepnis-
grein um kvenfólkið, Slysið
á Breiðamerkurjökli, Skradd-
arinn sem skaut manninn,
Kemur inflúensan til Reykja-
víkur í sumar ?, og margt
fleira í „Reykvíking", sem
kemur á morgun. Seldur frá
Laugaveg 24 B og afgreiðsl-
unni í Tjarnargötu, rétt hjá
Herkastalanum. Há sölulaun
og verðlaun fyrir ])á sem
selja 30.
Stór tttsala
#
I
33% 20% og
iO°/o
afsláttur frá hinu lága verði
á hinum ágætu hreinlaatis-
vörum lyfjabúðarinnar, svo
sem: Andlitscream, andlits-
púður, tannpasta, sápur,
svampar, greiður, burstár,
kvastar, Cutex vörur, hár-
vötn, ilmvötn frá kr. 1,00 o.
m. fl.
Komið og gerið góð
innkaup.
íóocoooooo; x x x xxíooqooooooc
XSOOOOOOOOOOÍ X X X ÍOOOOOOOOQC
Stdrt úrval
af
fataefnum
fypipliggjandi,
af öllum teg.
Komið sem fyrst.
Guðrn. B. Vikar
Sími 658 Laugaveg 2.
ÍOOOOOOOOOÍ X X X xxxxxxxxxxxx