Vísir - 04.07.1928, Page 3
VISIR
m
Strákaðall
(kokos)
i 5” íiokkrar rúllur fyrirliggjanrti.
Þdrður Sveinsson & Co.
.suðaustan átt. pokuloft. Dálítil
rigning í nótt. Suðausturland:
Vaxandi austan átt. Allhvass og
rigning í nótt.
Dronning Alexandrine
fer héðan kl. 8 í kveld. Meðal
farþega verða: Ásgeir konsúll
Sigurðsson 0. B. E. og frú hans,
frk. Ingibjörg H. Bjarnason,
Ólafur læknir porsteinsson og'
frú, Guðmundur Jónsson kaup-
m., frú Lydia Guðmundsson,
ungfrúrnar Thyra Lange og'
Fríða Guðmundsdóttir, Bjarni
Sighvatsson framkvstj., E. Hinz
verslunarm. og frú o. fl.
Súlan
flaug í gærdag til Stykkis-
hólins, Siglufjarðar og Akur-
ejTar og kom aftur í gærkveldi,
en fer norður í dag.
Leikhúsið.
Sökum veilcinda verður því
miður ekki liægt að leika
„Æfintýrið“ oftar að þessu
sinni. Munu það verða nokkur
vonbrigði fyrir ýmsa, ekki síst
aðkomumenn, sem keypt liöfðu
aðgöngumiða að síðuslu sýning-
unum og þótti gott að fá tæki-
færi lil að sjá þetta víðkunna
og skemtilega leikrit. peir, sem
.keypt liafa aðgöngumiða að
sýningum þeim, sem niður falla,
geta skilað þeim aftur kl. 4—7 i
dag í Iðnó.
Samband ísl. verslunarfélaga
sleit þingi sínu liér i gær. f
stjórn voru kosnir: Egill Gutt-
ormsson forseti, og meðstjórn-
endur Jón Mathiesen kaupm. í
Hafnarfirði og Brynjólfur por-
steinsson bankaritari. — Vara-
stjórn: Erlendur Pétursson
varaforseti, Sig. Guðmundsson
skrifstofustjóri og Ásgeir Ás-
geirsson verslunarmaðúr. Versl-
unarm.félag Reykjavíkur bauð
fundarmönnum til kveldverðar
að Kolviðarhóli í gærkveldi og
var þaðan l'arið austur á Kamba-
brún.
Mentamálaráð íslands tilkynnir:
4. júlí. FB.
Á fundi sinum, 2. þ. m., ákvað
Mentamálaráðið, að úthluta eft-
irtöldum stúdentum styrk til
þess að stunda nám erlendis:
1. Ólafi Hanssyni, Reykjavík,
til þess að lesa almenna sagn-
fræði sem aðalgrein og þjóð-
skipulagsfræði (Sociologi) sem
aukagrein.
2. Finnboga R. Valdemarssyni,
Reykjavík, lil þess að lesa þjóð-
arrétt (alþjóðalög) við fransk-
an liáskóla.
3. Hauki porleifssyni, Hólum,
til þses að lesa stærðfræði og'
einnig uppeldisfræði.
4. Sigurði Líndal Pálssyni,
Reykjavík, til þess að lesa ensku
sem aðalnámsgrein, en latínu
og l'rönsku sem aukanámsgrein-
ir, við Sorbonne-háskólann i
París.
Vörubílastöð íslands
auglýsir i dag skemtiferðir
austur í sveitir. Sama félag
heldur einnig uppi skemtiferð-
um til Hvítárvatns, eins og' í
fyrra. ]?ar fást allar upplýsing-
ar um gististaði eystra, hestlán
o. fl.
Goðafoss
kom í morgun norðan frá
Akureyri.
Hafstein
l'er til Isafjarðar í dag. Meðal
farþega verða Jón Auðun
Jónsson og frú hans.
Hannes ráðherra
kom af veiðum í gær og fór
samdægurs til Englands. Hall-
dór Kr. porsteinsson fór út með
skipið fyrir Guðmund Markús-
son skipstjóra.
Enskur línuveiðari
kom í morgun. Hann er á leið
til Grænlands.
Enskur botnvörpungur
kom í gær til þess að fá sér
fiskileiðsögumann.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: 5 kr. (gamalt
áheit) frá G. P., 5 kr. frá G. S.,
2 kr. frá M. H., 10 kr. frá Ág. J.,
50 (fimmtíu) kr. frá ónafn-
greindum.
Útsfni af Kamliabrún.
Því er viðbrugðið hve fagur sé
sjóndeildarhringurinn, er blasir
ir við þegar horft er austur yfir
landið af Kambabrún, enda mun
sú sjónarhæð vandfundin hér nær-
lendis, er taki íram þeim stað. 1
vel björtu veöri og sólskini er það-
an margt fagurt að líta. — Þar
hillir undir Vestmannaeyjar úti í
glitmóðu hafsins. En austar, á
strönd meginlandsins, blánar fyrir
Hjörleifshöfða. Þá sést og Selja-
landsmúli, Þrihyrningur, Skarðs-
fjall og „bringur Hreppa breiðar".
Og ennfremur Eyjafjallajökull,
Tindafjöll og Hekla. En framund-
an horfir við sýn hið víðáttumikla
undirlendi, — svæðið frá Eyja-
íjöllum, allt vestur að Reykjanes-
íjallgarði.
Vatnsflötur stóránna, Þjórsár
og Ölfusár, blikar, undir sól að
sjá, eins og geysimikil silfurbönd
væru lögð yfir sléttuna milli fjalls
og fjöru. — Svona lítur þetta út í
fjarlægð, — töfrahdi og heillandi.
Þegar útlendingar, sem hér eru
á ferð, vilja fá ,,forsmekk“ af feg-
urð landsins, ]rá fara þeir fyrst til
Þingvalla — meðifram: vegna þess,
að þá fýsir að sjá hinn fornhelga
þingstað vorn. — Nú vildi ég að
lokum mega benda á, að þeir sem
ekki hafa komið austur fyrir Hell-
ísheiði, mundu hafa mikið gagn og
gaman af, að koma austur á
Kambabrún í björtu veðri. ■—■ Út-
sýn þaðan mundi t. d. gefa útlend-
ingum miklu meiri hugfnynd um
fegurð landsins, heldur en útsýnið
frá Þingvöllum gerir, — þótt fag-
urt sé. —
i. júlí, 1928.
Ferðalángur.
Hitt og þetta.
—o--
„The Spirit of St. Louis“.
hin fræga fluga Lindbergh’s, er
nú geymd í Smithsonian-safn-
inu i Wasliington.
(F.B.).
Southern Cross
lieitir flugan, sem Cliarles
Kingsford-Smith, ástralski flug-
kapteinninn flaug í frá Californ-
iu til Ástralíu (7788 e. mílur).
Hann lagði af staö frá Cahforn-
iu þ. 31. maí og lenti á Wheeler
Field, nálægt Honolulu eftir 27
stunda og 28 mínútna flug
(2,400 mílur). — Frá Kauai á
Hawaieyjum flaug liann til
Fijieyja á 34 stundum, en það
var lengsta flug yfir haf, sem
sögur fara af, eins og minst var
á í skeytum.
(F.B.).
Ótrúir starfsmenn.
Reuters fréttastofa sendi þá
fregn frá Riga snemma i júni,
að um 150 embættismenn
ráðsstjórnarinnar í Dónárlönd-
um liafi verið handteknir fyrir
fjársvik. peir eru sakaðir um
að hafa þegið mútur að stað-
aldri, stundum alt að 3000
rúblna i einu, til þess að hylma
yfir gróða einstakra kaup-
manna. Hefir ríkið tapáð
ógrynnum fjár á þessum svik-
um.
Tollþjónum mútað.
Nýlega hafa 14 tollþjónar
verið sviftir störfum í New
York. peir áttu að gæta þess, að
vín væri ekki flutt á land úr
skipum, en urðu uppvísir að þvi
að þiggja mútur fyrir að greiða
fyrir flutningi áfengis til lands.
— pingmaður einn í Washing-
ton sagði nýlega, að á hverri
viku væri flutt áfengi til New
York fyrir miljónir dollara.
Spegla, Spegilgler er altaí
best að kaupa hjá
Ludvig Storr
Laugaveg 11.
Gíimmístimplar
eru búnir til i
Félagsprentsmið junni.
Vandaðir og ódýrir.
Kartöfl.utnjöl, Sagogrjón
Hrísmjöl, Maís, heill, Rús-
ínur í pökkum og lausar
(nSun-Maid“), Sveskjur með
steinum og steinlausar, Ivúr-
ennur, Súkkat, Laukur,
smár, Cream-kex, og Tekex
(Cream Cakes).
BMSii
| Símar 144 og 1044. |
| Hentugt til
ferðalaga
Oltukápur
á hörn, konur
og karla,
mjög ódýrt.
i
vooooooocoooíxxxieooooooooí
Stórt úrval
af
fataefnum
fyripllggjandi,
af öllum teg.
Komið sem fyrst.
Guðm. B. Vikar
Sími 658. Laugaveg 2.
«XX500C00ÍXXXXXXX50000000Óí
SÍMAR I58d95g
Sendisveinn
óskast strax í matvöruversl'
un, einungis ábyggilegir
flrengir koma til greina.
Uppl. í síma 2390.
Faslar
hílferðir
austur á Land
mánudaga, fimtudaga og
Iaugardaga.
Bifreiðastöð Eínars & Nóa.
Simi 1529.
Nefnd var þá send af stað til
þess að athuga þetta, og komst
hún að raun um, að lögin væri
illa haldin, og í fjölda skipa
fanst vin, sem ekki liafði verið
innsiglað, þegar skipin komu í
höfn.
Dýrasta málverk heimsins.
Málverk Rafaels, „Madonna
með barnið“, málað 1508, var
selt eigi alls fyrir löngu á
875,000 dollara, og er það liærra
verð en gefið hefir verið* fyrir
nokkurt málverk áður. Kaup-
andinn var Sir Josepli Duveen
og hefir hann tilkynt, að mál-
verkið verði flutt vestur um
haf á næsta ári. Sir Joseph átti
fyrir nokkurum árum hið fræga
málverk Gainshorough’s „Blue
Boy“, en seldi það Henry E.
Huntingdon í Californíu fyrir
700,000 dollara.
(F. B.).
Ný uppskera.
Nýjar ítalskar kartöflur komu
nú meS síðasta skipi, og verða
seldar í pokum og lausri vigt, sér-
staklega ódýrar á þessum tíma árs-
ins.
Von og Brekkustfg 1.
Okeypis
og burðargjaldsfrítt. sendum vér
okkar nytsama verðlista með
myndum, yfir gúmmí, heilbrigðis,
og skemtivörur. Einnig úr, bækur
og póstkort. Samaviten
Afd. 66, Köbenhavn, K.
xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx
FuiktllB! 03 KDpíering.
Fljót og örugg afgreiðsla.
Lægst verð.
Sportvörnhús Reykjavíknr.
(Einar Björnsson.)
Sími 553. Bankastr. 11.
SOOOOOOOQCOOÍXXXXXXXXXSOOœ
Ah verður spegilfagur* sem
fágaö er með Fjallhonu ia?gileg*nuro
H.f Efnagerd Reyhiavikur
lipfnitk .rrWsmiöi*
K.F.U.K.
Yngri-deilðin.
Þær, sem vilja taka þátt i skemti-
för sunnudaginn 8. þ. m. komi
til viðtals i hús K. F. U M. annað
kvöld (fimtudag) kl. 81/®.