Vísir - 22.08.1928, Page 3
VISIR
Haeser Andante spianato & Po-
lonaise eftir Chopin er haen
fór snildarlega með, og mætti
miklum fögnuði sem hann
þakkaði fyrir með því að gefa
að auki Fantasie-impromtu eft-
jr sama liöfund. Aðsóknin var
dágóð og fögnuður áheyrenda
óþrjótandi.
S. E. Markan.
I fyrrakveld vildi það slys til
ó Vallá á Ivjalarnesi, að maður
héðan úr bænum varð fyrir
byssuskoti og andaðist nokkur-
um klukkustundum síðar, þegar
verið var að flytja liann hing-
að. Hann hét Matthías Isleifsson
og átti heima á Lokastíg 13. —
Hann var staddur einn í stofu,
þegar slysið vildi til. Læknis
var þegar vitjað og kom hann
upp eftir skömmu áður en
jnaðurinn andaðist.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík 11 st., ísa-
firði 10, Akureyri 10, Seyðis-
firði 9, Vestmannaeyjum 10,
Stykkishólmi 10, Blönduósi 10,
Raufarhöfn 10, Hólum i Horna-
firði 10, Grindavík 11, Þórs-
höfn í Færeyjum 10, Jan May-
en 4, Iijaltlandi 12, Tvnemouth
13, Kaupmannahöfn 14, (eng-
in skeyti-frá Grænlandi). —
Alldjúp loftvægislægð vestur
af Irlandi á austurleið. Hæð
fyrir norðan ísland. — Horf-
ur: Suðvesturland í dag og í
nótt: Austan átt, víðast liægur,
en allhvass undir Eyjafjöllum.
Sumstaðar smáskúrir. - Faxa-
flói og Breiðafjörður: í dag og
1 nótt: Ifægur austan. Senni-
lega þurt í dag, en dálítil rign-
ing með nóttinni. — Vestfirð-
xr, Norðurland, norðaustur-
land, Austfirðir og' suðaustur-
land í dag og í nótt: Austan
:ótt, víðast hægviðri. Þykt loft
■og þokusúld í útsveitum.
Hjúskapur.
20. þ. m. voru gefin saman í
hjónaband í dómkirkjunni síra
Knútur Arngrímsson og ung-
frú Ingihjörg Stefánsdóttir. —
Síra Knútur fór til emhættis
aíns í Húsavík á m.s. Dronning
Alexandrine í gær.
48 ára prestsskaparafmæli
á i dag síra Ólafur Ólafsson
frikirkj uþrestur. Hann og síra
Einar prófastur Jónsson á Ifofi
•eru nú elstu þjónandi prestar
hér á landi.
Afmæli
á á morgun Jóhann Ivristinn
Jóhannsson, Suðurgötu 8.
ólafur Magnússon
kaupmaður i Kötlu og fyrr-
um lögregluþjónn, er fimtugur
í dag.
Fontenay sendiherra
og frú lians verða rneðal far-
þega, sem héðan fara til útlanda
í kveld. pau ætla fyrst til Fær-
eyja, en þaðan eftir nokkura
dvöl til Parísar og Miðjarðar-
hafs, og verða að lieiman frarn
í nóvembermánuð .
Sigurður Nordal
prófessor fór héðan í gær á-
leiðis til Englands á Braga.
Verður hann í Oxford og Lon-
don franx eftir Iiausti við rann-
sókn íslenskra handrita.
Ríkarður Jónsson
listamaður er staddur erlend-
is um þessar mundir, og hefir
þess tvívegis verið getið í blaði
liér í bænum, að hann hefði til
þess stjórnarstyrk og væri í
einhverskonar ,bolsa‘-leiðangri.
En svo stóðst af um ferðir hans,
að hann fór utan með dóttur
sína til þess að reyna að leita
henni lækninga við lömunar-
veiki, og fá lianda henni nýjar
umbúðir urn fæturna, til þess
að styrkja hana til gangs. Hann
hafði sót.t um styrk handa barn-
inu i þessu skyni og má vera, að
hann fái hann, en ekki var það
orðið, þegar hann fór héðan.
•
Laugavatnið eykst.
I gær þegar jarðnafarinn var
kominn 68 metra niður, varð
enn fyrir honum ný vatnsæð,
lítið eitt lieitari en hinar fyrri
(eða 92y2°) og óx þá vatnið
um fullan helming frá því sem
áður var og er nú rúmir fjörir
lítrar á sekúndu. þrýstingur á
vatninu er nú meiri en áður. —
Nokkur Iiús mætti Iiita með
vatni því, sem þegar kemur úr
nýju lauginni.
Ráðsmannsstarfið
í Tungu er auglýst til um-
sóknar í Vísi í dag. Umsóknir
eiga að vera kornnar í síðasta
lagi á sunnudagskveld til for-
manns Dýraverndunarfélags-
ins, Laugaveg 66.
Fjármálaráðuneytið tilkynnir:
Innfluttar vörur í júlímán-
uði kr. 6,025,920. þar af til
Reykjavíkur 3,622,663.
Sæsímaslitin.
Sæsíminn hefir að þessu sinni
siitnað 27 sjómílur frá Seyöisfirði,
og hefir hann aldrei bilaS á þeim
slóöum áöur. Búist er viö, aö viö-
g-eröarskipið komi þangaS á föstu-
dag. Skeytasambandi við útlönd
er haldiö uppi með loftskeytum á
meðan.
Norðan frá Akureyri
komu í gær Dr. Alexander
Jóhannesson og Walter flug-
foringi. — Vísir hitti Dr. Alex-
ander að máli í morgun, og
var hann mjög ánægður yfir
árangri þeirn, sem varð að
sildarleit Súlunnar. Hún gerði
bæði að senda loftskeyti og
skrifuð skeyti, sem fleygt var
niður í tréhylkjum nærri síld-
arskipum. Auk flugmannanna
tóku þeir þátt í síldarleitinni
Geir Sigurðsson skipstjóri,
Loftur Bjarnason skipstjóri,
Friðrik Ólafsson skipherra af
Þór og stýrimenn hans Eiríkur
Kristófersson og Guðrn. Guð-
jónsson og Bachmann loft-
skeytamaður, auk Dr. A. J. og
Walters flugforingja. — Súlan
fær nú nýjan mótor og fer
bráðleg'a norður snögga ferð.
— Hún fer að líkindum til
Vestmannaeyja á morgun.
I „Berlingske Tidende“
er þess getið nýlega, að
„Fylla“ ætli bráðlega í heim-
sókn til Geestemunde í Þýska-
landi, til að tala um landheíg-
isvarnirnar hér við land við
þýska útgerðarmenn, eftir ósk
þeirra. En margir útgerðar-
menn í Geestemunde senda
skip sin til veiða hér við land,
sem kunnugt er. — Vísir liefir
spurt ríkisstjórnina, hvort
þessi ferð væri farin nokkuð á
hennar vegum, og var því
svarað neitandi.
Sýknudóm
Iiefir bæjarfógetinn á Siglu-
firði kveðið upp í máli því,
sem valdstjórnin lét höfða
gegn Dr. Paul verksmiðjueig-
anda á Siglufirði, út af síldar-
kaupum hans, með því að dóm-
arinn lítur svo á, að vinsla mjöls
og lýsis úr síld sé ekki „síld-
arverkun“. — Dóminum verð-
ur að sjálfsögðu skotið til hæsta-
í'éttar.
Knattspyrnulið Víkings
kom á Gullfossi í gær úr sig-
ui'för sinni til Akureyrar og
Isafjarðar. — Siðasti knatt-
spyrnusigur þeirra var í StA'kk-
ishólmi og keptu þeir þar við
ýrnsa velmetna borgara, sem
voru farþegar á Gullfossi.
Markvörður farþegaflokksins
var Dr. Alexander Jóhannes-
son, en hann liefir haft annað
að gera en að iðka „jarðbund-
in störf“ í sumar, og því fór
sem fór, að flokkur lians tap-
aði með 7: 5.
Knattspyrnumót Rvíkur.
Kappleikurinn i gærkveldi
var fremur daufur til að byrja
með. Valur setti fyrst mark.
Gerði Agnar Breiðfjörð það
mark með fallegu skoti úr
horni. Við þetta tók lið K. R.
rnikinn fjörkipp og komst í
gegnum varnarlínu Vals og
skoraði Björn Þórðarson með
ágætri spyrnu mark hjá Val.
Eftir þetta var leikurinn fjör-
ugur og jafn á báða hóga og
rnjög „spennandi“ og liélst það
til leiksloka. I miðjum seinni
liálfleik gerði Agnar Breið-
fjörð annað mark hjá K. R.
Þegar 10 mínútur voru eftir af
leiknum gerði Guðjón Ólafs-
son mark lijá Val og' voru þá
félögin jöfn aftur. Rétt í leiks-
lok skallaði Viggó Þorstei.ns-
son knöttinn laglega i mark
Vals og var það úrslitamarkið.
Lauk því leiknum á þá leið, að
K. R. b-lið vann Vals a-lið með
3:2. — 1 kveld kl. 7 keppir
Víkingur við Vals b-lið. Hefir
lið Vals verið birt hér í blaðinu
áður. — I kappliði Víkings eru
þessir: Þórir Kjartansson,
Þorbjörn Þórðarson, Helgi
Eiríksson, Óli P. Hjaltested,
Erlingur Hjaltested, Halldór
Sigurbjörnsson, Guðjón Ein-
arsson, Björn Fr. Björnsson,
Tómas Pétursson, Alfred
Gíslason, Þórður Jónas Thor-
oddsen.
Skipafréttir.
Esja kom hingað kl. 6 í morg-
un. Fer héðan á laugardag.
Gullfoss fer héðan kl. 6 í
kveld áleiðis til Aberdeen, Leith
og Kaupmannahafnai'.
Goðafoss fór frá Hull í dag á
heimleið.
Selfoss fór frá Hull í gær,
einnig á heimleið.
Lagarfoss fór frá Sauðár-
króki í morgun, á leið til út-
landa.
Botnía fer liéðan i kveld kl. 8
áleiðis til Leith.
Lyra fer héðan á morgun kl.
6 til Bergen.
St. Frón
hefir fund í kveld kl. 81/*. —
Sjá augl. í dag.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi, 3 kr. frá sjúk-
lingi í Landalcoti, 10 kr. frá H.
S. (gamalt áheit).
Landanöfn á frímerkjum.
Þar sem svo stendur á í löndum,
aö þau eru I >ygS fleiri en einni
]ijóð, þá er það nú farið að tíðkast,
að nöfn landanna eru letruð á póst-
frímerki þeirra á minsta kosti tveim
tungum. Svo er til dæmis í Belgíu,
að nafn ladsns er þar bæði. á frakk-
nesku og flæmsku. I Finnlandi er
nafnið á finsku og sænsku. Eins
er í fleiri löndum. Það ætti nú aö
mega gera ráð fyrir því, að önnur
Norðurlönd en Finnland, mundu
fylgja þessari reglu, ef svo stæði á,
stafað af öllurn íbúum þess. Það
verður ]iví í raun og veru ekki sagt
anna'ð en aÖ það stingi i stúf, að
sú þjóð Norðurlanda, sem hefir
löggilt tvö tungumál, skuli gera
öðru þeirra svo stórum hærra undir
höfði, að að eins sé annað viðhaft
á frímerkjum landsins. Er hér átt
við Norðmenn, sem stöðugt eru að
fjarlægjast dönskuna (sem þeir
hafa kallað „riksmaal") og óðfluga
að hverfa að „ný-porskunni“ eða
landsmálinu, en láta sér þó lynda
að halda danska nafninu NORGE
og nota það eitt á frímerkin, í stað
þess að hafa þar NOREG (eða
NORIG) einnig, því að svo er nú
nafn landsins skrifað á landsmál-
inu, sem nú er orSið jafn rétthátt
hinu, eins og áður segir. — Hvað
veldur? II. Ó.
Hitt og þetta.
—o---
Ekki er altaf vert að fara að
læknisráði.
Nýlega er látinn Ajneríku-
maður nokkur, Mr. Emory Tit-
man, sem orðið hafði fyrir und-
arlegum æfintýrum. Fyrir-ná-
lægt 15 árum fekk liann að arfi
50 þús. sterlingspund, eða sem
svarar einni miljón lcróna. En
á söniu stundu sögðu læltnar
lians lionum, að heilsu lians
væri svo háttað, að liann gæti
ekki með nokkru móti lifað
lengur en eitt ár. „Et nú og
drekk sála mín og ver glöð“
virðist Mr. Titman þá liafa
hugsað, því að hann einsetti sér
að lifa þægilegu lífi þetta eina
ár, — og eyddi öllum peningun-
úm. Að árinu liðnu stóð hann
uppi slyppur og snauður, og
áætlanir læknanna stóðust ekki
betur en svo, að Mjr. Titman
,varð að strita fyrir lifinu í full
14 ár eftir þetta.
Maður þessi var tröll að vexti
og að því skapi feitur, — 545
ensk pund að þyngd, segir sag-
an. En feitir rnenn eru vana-
lega rólegri í skapi en aðrir, og
»
ÍSLANDS BÍ
Gnliloss”
fer héðan í dag kl. 6 síðdegis
til Aberdeen, Leith og Kaup-
mannahafnar.
fer héðan á laugardag 25. ágúst
siðdegis austur og norður um
land.
Vörur afheudist á morgun eða
föstudag og farseðlar; óskast sótt*
ir á fimtudag.
Nýkomið:
Bjúgaldin, Jamica,
Epli, „Graven3tener“,
Tröllepli,
Glóaldin, 4 teg,
„Grape“.
WINERVALS
(eftir Ellu Herberg).
DREAMING OF ICELAND
eru aðallögin núna.
Hljóöfærahilsiö.
K. F. U. M.
Unnið innfrá annað kveld,
ef veður leyfir.
Nauðsynlegt að koma ekkí
síðar en kl. |8, vegna þess hvc
snemma skyggir.
Fjölmennið!
kann það að liafa lijálpað hon-
urn að sætta sig við örlögin. En'
öllum er ekki gefin sú stilling
áð þeir liefðu tekið þessu með
jafnaðargeði. Slær enska blaS-
ið Manchester Guardian fram'
þeirri spurningu, hvort hantíi
myndi hafa unnið skaðahóta-
mál gegn læknum sínum, fyrir'
að hafa gint hann til að sóa ölí«
um eigum sinum á svo skömm-'
urn tima. !