Vísir - 17.09.1928, Blaðsíða 3
V 1 S I R
A8 liallamla sumri.
iSumrinu hallar, og senn kemur haust,
•söngfugla þagnar hin indæla raust;
smáblómin fölna um frosthélu-nótt, ,
foldar í skauti svo hvila þau rótt;
vorsólin aftur þau vekur af blund,
vernduÖ af kærleikans skapandi
rnund.
Fagurt ör haustiÖ um heiÖríkju-
kvöld,
himininn Ijómar af stjarnanna f jöld ;
máninn á grundina geislunum slær,
glitrar þá lindin, - en frosin og tær.
Ströndin mér virÖist svo hátignar-
liljóð,
hrönnin þar kveður sín dreymandi
ljótS.
Lífið ei slokknar, þó lækki hér sól,
lífs-frumum veitir hið örugga skjól
alveklis kraftur í, alveldis-geim,
andinn hans lifir í fræunum þeirn.
Náttúran auglýsir hljó'S, — en þó
hátt,
‘himneskan, eilífan, skapandi mátt.
Gamli.
NÝKOMIÐ:
JOWIL — hurðarskrár,
hurðarlamir allar stærðir,
hurðarhúnar, messing & nikk.,
hornhúnar, ibenholzhúnar.
Skothurðarhjól & skrár.
Verslunin „BRYNJA“.
ræðismaður, C. Behrens heildsali,
frú Bjarnhéöinsson, frk. Gerður
Bjarnhéöinsson, Reinh. Andersson
kiæðskeri, A. Obenhaupt og fjöl-
skylda hans.
Trúlofun.
Nýlega lmfa opinberað trúlof-
un sína ungfrú Gunnhildur
'Guðmundsdóttir, Laugaveg 52,
og Óskar Ólafsson, matsveinn,
Lindargötu 40.
Athygli
skal vakin á því, að Gullfoss
kemur ekki við í Leith í næstu
för sinni til útlanda, en fer aft-
ur á móti til Frederikstad í
Noregi á leiðinni til Kaup-
mannahafnar.
Góð veiði.
tslendingur, sem stundar
laxveiðar í Alaska, getur þess
i bréfi hingað, að á 10 dögum
liafi veiðst 140 þúsund laxar á
báta þess útgerðarfélags, sem
hann starfar hjá.
Botnia
kom hingað kl. 2 í nótt frá Leith.
Meðal farþega voru: Ásgeir Sig'-
urðsson konsúll og frú, frú Arn-
■alds, Haraldur SigurSsson verslun-
arm., A. A. Allen, og allmargir
fleirí, eínkum énskir ferðamenn.
Austurvöll
er veríð að slá í dag.
'Réttað er í dag
í Þingvallarétt, en á morgun í
Hafravatnsrétt og Kjósarrétt, og á
miðvikudag í KollafjarSarrétt.
Ú rslitakappleikur
milli Vals og K. R. (2. flokks)
fór svo, aS Valur sigraði með 2:1.
Geir og Magni
drógu Grænlandsfari'ö Skinfaxa
Haustvörurnar
eru komnar. Fjölbreytt úrval af borðstofuhúsgögnum, nokkur-
ar nýjar gerðir. peir, sem ætla að fá sér húsgögn fyrir haustið,
eru vinsamlegast beðnir að lita inn sem fyrst, meðan nógu er
úr að velja. Einnig komu margar gerðir af mahogníborðum,
Saumaborðum, Reykborðum, Spilaborðum, Mahognistatívum,
Blómstursúlum, Píanóbekkjum, Orgelstólum, Nótnastólum
o. m. m. fl. i
Hfisgagnaversl. Kristjáns Siggeirssonar
Laugaveg 13.
hér inn á höfnina í gærkveldi. Mun
eiga að gera eitthva'S við skipið,
áður en Geir fer með það til Dan-
merkur.
Tryggvi gamli
kom frá Englandi í gær.
Anders
kom af síldveiðum í gær.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: 1 kr. frá Hildi, 25
kr. frá Páli, 50 kr. frá kaup-
manni.
Hitt og þetta,
Sir G. O. Trevelyan.
Sir George Otto Trevelyan
andaðist á ættarsetri sínu um
miðbik ágústmánaðar. Var hann
kominn um nírætt, er hann lést.
Hann hafði legið rúmfastur um
skeið á ættarsetri sínu i North-
umherland. Sir Trevelyan átti
sæti í ráðuneyti Gladstones. Er
nú að eins einn þeirra, sem sæti
áttu í því, enn á lífi, Rosebury
lávarður. — Sir Trevelyan var
fæddur í Rathley Temple í Lei-
cestershire þ. 20. júlí 1838.
Mentun hlaut hann í Harrow og
Triníty College, Chambridge
University. Fór snemma orð af
gáfum lians og námshæfileik-
um. —- Árið 1865 var hann kos-
inn á þing fyrir Tynemouth.
Upp frá því gegndi hann ýms-
um opinberum störfum, þang-
að til snemma á árinu 1897, að
liann hætti að gefa sig við
stjórnmálum að mestu. Settist
hann þá að á ættarsetri sínu í
Northumberland, að fullu og
öllu. Sir Trevelyan var sögu-
fróður maður og mikils metinn
rithöfundur. Liggja eftir liann
margar hækur, m. a. „The Life
and Letters of Lord Macauly“,
„History of the American
Revolution“ o. m. fl. (FB).
Carlo P. del Prete,
ítalski flugmaðurinn, sem eigi
alls fyrir löngu flaug frá Róma-
borg til Brazilíu, er nýlátinn i
Rio de Janeiro. Del Prete og fé-
lagi hans, Ferrarin,. fóru í
reynsluflug frá flugvelli flug-
skólans í Rio de Janeiro þ. 7.
ágúst, en hlektist á við lendingu.
Hlaut del Prete mikil meiðsl og
varð að taka af honum annan
fótinn, en hann andaðist daginn
eftir. Hann var einn af frægustu
flugmönnum heimsihs. (FB).
ísland og ófriðarbanns-samning-
urinn.
Þann 27. ágúst skrifutm fulltrúar
15 þjó'öa undír ófriöarbanns-sátt-
er Ttnsœlast.
4sgaiðar.
mála Kelloggs, en þegar daginn
cítir var tilkynt, að 48 þjóöum
öðrum yr'öi boðiö að skrifa undir
samninginn. Búist var við, að all-
ar þessar þjóðir myndi láta skrifa
undir satnninginn, og standa þá 64
þjó'öir að samningiþessum. (Frakk-
land bauö og Rússlandi að skrifa
undir samninginn og var það boð
þegiö). í The New York Times
eru talin upp þau 48 ríki, sem boð-
iö heíir verið að skrifa undir samn-
inginn. Er ísland. eitt þessara
ríkja. Talið er víst, að fleiri þjóð-
ir muni skrifa undir þennan samn-
ing en nokkurn annan, sem til
þessa hefir verið gerður. (F.B.).
Fólksflutningur til Bandaríkjanna.
Eins og kunnugt er, takmarka
Bandaríkjamenn fólksflutninginn
inn í land sitt. Er leyfð ákveðin
tala innflytjenda frá hverju landi.
Vegna þess, að atvinnuskilyrði
í Ameríku hafa fari'ð versnandi,
sækjast menn nú ekki eins eftir
að komast vestur og áður. Jafnvel
Canada-búar og Mexikó-búar
sækja þangað ekki eins og áður,
en það eru engar hömlur á inn-
flutningi fólks frá þessum löndum
til Bandaríkjanna. Árið 1927 kom
500.Ó31 innflytjandi til Bandaríkj-
anna, en sama ár fóru 274.356
heim til lands sins aftur, eöa
20.848 fleiri en áriö áður. — Kom-
iö hefir til tals, að breyta lögún-
um og leyfa ótakmarkaða fólks-
flutninga inn i landið. Er Hoover
forsetae'fni og republikanar yfir-
leitt þeirrar skoðunar. Margir ótt-
ast hinsvegar mikið aðstreymi inn-
flytjenda, sem fúslega myndu
vinna fyrir langtum lægra kaup en
amerískir verkamenn sætta sig við,
og vinna því á móti því, að lögun-
um verði breytt. (F.B.).
<0000í500íi0»íic0000«0íi;>!síiíiíí!í000ísísött»0íi000000000;s
Íí
S!
Útgerðarmenn!
Veiðarfæri tll vertííarinnar.
Aðelns [jektar og reynáar tegumllr.
Helldsala. Smásala.
5!
>!
ð
S
ö
s
i!
Fiskilínur,
belgískar, allar stærðir.
Þorskanetjagapn,
ítalskt, enskt 10/3, 10/4, 11/4, 12/4,
10/5, 10/6.
Mustads lóðaönglap,
nr. 7, 8 og 9, extra extra long.
Öngultaumar,
belgiskir og norskir, allar stærðir.
Manilla,
ensk, frá New Castle, allar stærðir.
Þopskanet,
norsk og ensk, 16 og 22 möskva.
Lódabelgir,
bláir, allar stærðir.
Neíakúlup,
utanumriðnar 5”.
Netakiilur,
óutanumriðnar 5”.
Bambusstengur,
allar stærðir.
Barkariitur, Blásteinn,
Kork, Karbid,
Boyuluktir.
Athugið t
Fiskilínurnar, sem lang best hafa reynst nú
síðustu árin eru BELGÍSKAR FISKILÍNUR.
Ástæðan fyrir því er þessi: Þær eru búnar til
aðeins úr úrvals hampi, sem bæði er ljósarj
og mikið lengri þræðir í en nokkurum öðrum
hampi, svo er þess gætt nákvæmlega að undir-
og yfir-snúður á þessum fiskilínum sé í réttu
samræmi; hvorki of mikill né of lítill, en þetta
hefir afar mikla þýðingu viðvíkjandi endingu
línanna og þar að auki hafa,þessar fiskilínur
mikið meiri þáttaf jölda len flestar aðrar teg-
undir. Þrátt fyrir þessa miklu kosti, sem belg-
|| iskar fiskilínur hafa fram yfir aðrar fiskilín-
« ur, eru þær þó seldar eins ódýrt og eru jafn-
|| vel ódýrari.
g Reynsla undanfarinna ára ' hefir sýnt og
H sannað að þessar vörutegundir eru þær al-
s bestu sem völ er á.;— Og eins og að undan-
Íí förnu munu menn gera best kaup á þessum
« vörumihjá okkur.
| Veiðapfæpavepslmiin
| Geysip.
S Símnefni ,Segl‘. Símar 817,928, 667,791 og 1346.
« '6
lOOOOttOiÍOÍSeOOOOOOOOÍÍOOíSOOOCOOOOOOíÍÍSOOOOOOOOOOOO!
/