Vísir - 08.11.1928, Blaðsíða 2

Vísir - 08.11.1928, Blaðsíða 2
VISIK Höfum til: Malsmjðl, Meilan maís, Blandað hænsnafóður + Stefán Ölafssnn vatnsveitustjóri á Akureyri, sonur Ölafs Jónssonar lögreglu- þjóns, andaðist í Kristneshæli 1 gærkveldi. Æviatriða hans verður síðar minst. Símskeyti —o-- Khöfn, 7. nóv. F. B. Hoover kjörinn forseti. Frá New York er símað: pátttalcan í forsetalcosnigunni í gær var óvenjulega mikil. Óspektir urðu í sambandi við kosningarnar í nokkurum bæj- um og voru noklcurir menn handteknir, en að öðru leyti fóru kosningarnar yfirleitt fram með friði og spekt. Hingað til aðeins kunn úrslit í nokkurum héruðum. Samkvæmt þeim virðist fylgi demókrata liafa aidcist mikið móts við það, sem var 1924, en eiin verður eigi séð, hvort fylgisaukningin dug- ar til þess að Smitli komist að. Milcla eftirtekt vakti það, að Smith hefir fengið meiri liluta í 44 af 46 kjörsvæðum i iðnað- arbænum New Bedford, alLs 165,27 atkvæði, en Hoover 121,00, en 1924 fengu demo- lcratar aðeins 47,41 atkv. í New Bedford. (New Bedford er borg í Massaehusetts ríkinu. Var þar nýlega háð verkfall milcið). 1924 fengu republikanar þar 159,32. Hingað til kunn úrslit sýna, að Hoover hefir jafnvel meira fylgi en Coobdge 1924 í norð- urrikjunum, en Smitli dálítinn meiri hluta í New York ríki og mikinn meiri hluta i suðurrílcj- unum. Hoover hefir meiri liluta í mið-vesturrikjunum, en fulln- aðarúrslit í þessum rikjum eru ólcomin. Siðasta fregn hermir, að Smith og Hoover séu næstum því jafnir í 14 ríkjum. Fullnað- arúrslit ókomin. Ritzauskeyti Iiermir, að þótt fullnaðarúrslit séu ókomin, þá sýni hingað til lcunn úrslil, áð Hoover sé kosinn með miklum meiri hluta. Hoover fái að minsta kosti liðlega 300 kjör- mannaatkvæði, en 266 nægja, til þess að hann. nái lcosningu. Miðstjórn demókrata viður- kennir, að Hoover hafi sigrað. Smith hefir sent Hoover ham- ingjuóslcir sínar. Kliöfn, 8. nóv. FB. Útvarpsfréttir herma að Hoo- ver muni fá hátt á 4. hundrað kjörmannaatkvæði, jafn vel fast að 400 (af 531). Nánari fregnir um þetta eru væntanleg- ar í dag. Reynist þetta rétt, þá hefir Hoover unnið glæsilegi’i sigur en jafnvel republikanir sjálfir gerðu sér vonir um. Stjórnarskifti í Frakklandi. Frá París er símað: Tildrög lausnarbeiðni Poincarestjórnar- innar eru þessi: þá er radikali landsfundur- inn hafði samþykt tillögur þær, sem um getur í skeyti i gær, fóru radíkölu ráðlierrarnir til Parísar, vegna þingsetningar í gær. Eftir burtför þeirra sam- þylcti fundurinn áður felda til- lögu frá Caillaux, en í henni var þess krafist, að radíkölu ráðherrarnir gengi úr Poincare- stjórninni, nefnilega þeir Herri- ot, Arraut, Perier og Queuille, og báðust þeir þess vegna lausn- ar í gær, en að því búnu baðst öll Poincarestjórnin lausnar. Afleiðingar stjórnarfallsins enn þá ófyrirsjáanlegar. Margir ótt- ast alvarlegar afleiðingar á sviði fjármálanna. Frakkneslc ríkisskuldabréf byrjuðu að falla í gær í kauphöllinni. Búist er við, að forseti Frakklands biðji Poincare að gera tilraun til stjórnarmyndunar að nýju, en það er talið vafasamt, að hann vilji talca það að sér. Merkilegur fomleifafundur. Frá Leningrad er símað: Leið- angur Vísindafélagsins hefir fundið á fjalli einu á Krímskaga rústir stórrar miðaldaborgar. Er hér auðsjáanlega um borg- ina Theodoras áð ræða, höfuð- stað Gotanna, sem var reist á á stjómarárum Justinianusar mikla. Meðal annars liafa fund- ist sex neðanjarðar musteri með kallcmálverkum. Gos í Krakatau. Frá Batavia er símað: Kralca- tau gýs, en ekkert tjón orðið enn sem komið er. Utan af iandi. --X-- Akureyri, 8. nóv., F.B. Óvanaleg kolkrabbaveiði hefir veriö hér á pollinum undanfama daga. Hafa mjenn veitt 50—100 króna virði á dag. Kaupfélag Ey- íirðinga kaupir kolkrabbann og lætur í íshús sitt og gefur 8 aura íyrir stykkið. Skólahús iðnaðanuanna var vígt á sunnudaginn, að viðstöddu miklu fjölmenni. HeStamannafélag var stofnaö hér í fyrrakveld. Heitir það Létt- ir. Formaður er Pálmi Hannesson kennari, ritari Sigurður Hlíðar dýralæknir og féhirðir Þorsteinn Þersteinsson verslunarmaður. Á bæjarstjórnarfundi í fyrradag var frumvarp til fjárhagsáætlunar 1929 til fyrri umræðu, Er gert ráð fyrir að jafna niður á borgarana tæpum 179.000 krónum, eða um 35 þús. meira en í fyrra. Meiri hluti bæjarstjórnarinnar, 5 menn, feldi úr gildí úrskurð meiri hluta kjörstjórnar um kosningu tveggja b^jarfulltrúa. Minni hlut- inn, 4 rnenn, áfrýja til Stjómar- ráðsins og tilkyntu, að þeir myndu ekki mæta á fundum fyrri en úr- skurður þess væri fenginn. Bókarfregn. Sigurjón Friðjónsson: Ljóð- mæli. Rvik. Prentsm. Gut- enberg. 1928. Á síðustu fimmtíu árum hafa verið fleiri skáld og liagyrðing- ar í pingeyjarsýslu en nokkurri ginni sýslu annari. En frægð þeirra hefir eklci altaf farið að verðleikum. Sumir hafa „gefið á gadd“ og elckert hirt um að halda kvæðunt sínum saman og aldrei látið sjá vísu eftir sig á prenti, og fáir einir hafa gefið út ljóðabækur. Sigurjón Friðjónsson, höf- undur ofangreindrar ljóðabók- ar, fór lengi dult með kveðskap sinn, og eklci bjó liann þessi kvæði sin undir prentun fyr en hann var sextugur. pó má með sanni segja, að fremur sé æsku bragur en elli á kvæðum hans, einkum livað yrkiscfnin snert- ir, en orðaval og frágangur all- ur ber vitni um athygli og íltug- un, sem sjaldan mun gefin nijög urigum mönnum. Ef pingeyingar væri beðnir að greiða atlcvæði um þrjti bestu skáld, sem nú eru uppi þar í sýslu, þá yrði Sigurjón Frið- jónsson efalaust i þeirra hópi, og sumir munú telja hann þar fremstan í flolcki. Höfundurinn hcfir skifl kvæð- um sínum í 12 lcafla, en þrett- ándi kaflinn er þýðingar. Kvæðum Iivers kafla er svo að Nfjar liirgÖir af Rúðu- gleri komu meö Goðafoss Versl. B. H. BJARNASON. Hlatabréf i Eimskipafélagi íslands til sölu. nafnverð bréfann er 150 kr. — Uppl. í verslun Kristínar Sigurðardótíur, Laugavcg 20 A. K.F.U.K. A-D. Fermingar-tálkaafandur annað kvftld kl «Va- Félagskonur fjölmennið. mestu slcipað eftir aldri, og hef- ir höf. viljað stiíla svo til, að sjá mætti þróun hans í lcveðskapn- um, af niðurröðun kvæðanna. Auðvitað á hver rithöfundur að vera sjálfráður að því, livernig hann skipar kvæðum sínum, en eg er svo fastheldinn við fyrri venjur, að eg lcann best við að sjá aldur kvæðanna tilgreindan, eins og gert var oft í lcvæða- bókum skálda á 19. öld. pó að ekki fylgi skýringar, þá eru ár- tölin ein oft góður leiðarvísir. Annars er það um kveðslcap Sigurjóns Friðjónssonar að segja, að liann er allur mjög fágaður og hneigist í „ómræna" átt, eins og höfundurinn lcemst sjálfur að orði. Glamur og gif- uryrði eru honum svo fjarlæg sem mest má verða, en lcyrlát gleði, fögnúður yfir sól og sumri, óvenjuleg viðkvæmni. og djúj) alvara slcín úr flestum kvæðunum. Eg nefni liér til dæmis þessi vísuorð: Um auðnir einn eg geng. Og töfrar vors og trega þar tvinna hörpustreng. Enn glóir lauf í lundi í ljósri austurhlið sem von á fagnafundi í fyi’stu æskutíð. Um runn og heiðloft há ég heyri kvæði kveðin, það kvöld sem minnir á. Hver óslc, sem lélc i lyndi sem Ijóð — í bláinn streymt; hvert horfið æskuyndi ‘ sem ör í huga geymt fær lit af lifsins glóð. Mín sorg um lundinn liður og laufið strýkur hljöð.------ Sigurjón Friðjónsson þarf eklci að þakka slcólalærdómi smeklcvísi sína i Ijóðagerð, því að hann mun aldrci liafa i skóla komið. Hann hefir og eklci verið svo auðugur, að liann gæti gefið sig allan við hugðar- efnum sínum. Og ekki mun hann hafa gert „viðrcist“ um dagana, sennilega aldrei farið út fyrir landsteinana, sem lcall- aí8 er. Engil að síður er hann vel að sér og víðlesinn og hefir aldrei látið fátækt eða crfiði huga andlega atgerfi sína. Og þeim, sem deilt hafa um „is- lenska bændamenningu" gætí verið rannsóknarefni hvort bændur annara þjóða Iiafa kveðið margt á borð við þesstir vísur, sem höfundurinn kallar: „Elg veit um land“. — Eg veit um land — eg vissL uw laad, þar vorsól ávalt skín. Yið ystu höf, við ósæ höf það elur ljóð til mín og laðar eins, þáð laðar eins og ljúfur árdagsblær. Eg á mér væng — eg átti væag, sem aleinn þangað nær. Eg vissi um þrá — eg veit uni pré, sem varð mér sár og heit, er heimur brást, er heill mér brást og hjartarætur sleit. Að lind hún varð, að Ijóði’ hún varð, að lind við klettanöf. par baða eg væng, minn brotna væng og ber til flugs á liöf. Eg kann elcki að dæma una kvæðaþýðingarnar, því að eg þeklci eklci fruinkvæðin^ en þau mega vera góð, ef þau standa þýðingunum framar. pingeyingar. Germania hefir aö undanförnu haldið uppi kenslu í þýsku, bæöi fyrir börn. og fulloröna. Nemöndum hefir veriö skift í flokka og kenslugjald veríö mjög lágt. Germania hefir nú ráö- ið Einar Magnússon cand. theol. til þess aö lcenna fullorönum, og veröa 5—6 í hverjum flokki. Kenslan hefst í næstu viku og eiga uemendur aö gefa sig fram á Lauf- ásveg 44, kl. 6—8 á lcveldin. — Þýsk stúllca, ungfrú Spalek, hefir tekiö aö sér að kenna börnum 10 —14 ára gömlum, og eru foreldrar sem vilja lcoma börnum i kenslu iíioíiöíitiootíísísíííiíiíiíieoísoooooí | Landsinslíesíu| I léreft yfir 50 tcgundir. Flónel, hvít og mislit. il Tvisttau, alls konar. ó Si,rs, einlit og mislit. ÍSportskyrlutau, margar tegundir. g Morgunkjólatau, mikið || úrval. J; Handklæði, hvít og mislit. || Dreglar, allar tegundir. « pvoltastykki alls konar. | Gólflriútar. g HVERGI BÐTRI VARA! p HVERGI BETRA VERÐ!

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.