Vísir


Vísir - 31.01.1929, Qupperneq 2

Vísir - 31.01.1929, Qupperneq 2
VÍSIR Messianstpigi, 50” 8 0Z1 Fiskburstap afa? ódýFir, Símskeyti •Ákveðið ei' að flytja allar sendi- sveitir erleridra ríkja úr borg- inni. Khöfn, 30. jan.FB. Nýr konungur í Afghanistan. Frá London er simað: Skeyti frá Pesliawar til blaðsins Daily Telegraph herma, að Aliahmed- jah, landstjóri í Kalbúl, liafi tek- ið sér konungstitil. Er hann lagður af slað með her manns til Kabúl-borgar. — Eru ]>eir þannig orðnir þrír, sem gera til- kall til konungdóms í Afghan- istan. Frá flugferðum Byrds. Frá New York-borg er simað: Byrd hefir flogið í 5 kluklcu- stundir yfir King Edwards eyju og til Alexanderfjalla. UppgÖtv- aði liann áður óþekta eyju og fjórtán fjallatinda. Uppreisn á Spáni. Frá Berlín er símað: Skeyti frá Madrid hernia, að Rivera einræðisherra hafi tilkynt þjóð- þinginu, að nokkur hluti hers- ins hafi í fyrrinótt áformað að g'era uppreisn í öllu landinu gegn alræðisvaldinu. Uppreisnin mishepnaðist, nema i bænum Ciudad Real, fyrir sunnan Madrid. Stórskotaliðsdcild, sem þar hafði bækistöð sína, gerði uppreisn og herlók hermanna- skálana og flestar opinberar byggingar og stöðvaði brautar- lestir. Ráðstafanir hafa verið gerðar til þess að bæla niður uppreisn- ina. Rivera segir friðsamlegt annars staðar í landinu; meiri hluti hersins styðji stjórnina. (Ciudad Real er höfuðstaður- inn i samnefndu héraði á Spáni; íbúatala 15 þús.). Útlendingar verða fluttir í flug- vélum frá Kabul. Frá Peshawar er símað: Strax og veður leyfir, verður farið að nota flugvélar Brela lil þess að flytja útlendinga frá Kabúl. — KSOÍÍOOÍÍÍÍ05XSÍ5ÍS;XKÍÍÍGOÍÍÍSOOOOÍ O Skyndisalan er í fullum gangi. 3. flokkur hefst á morguo. Breski aðaikonsnlat í Reykjavík. --X-- 30. jan. FB. Eins og nýlega liefir verið til- kynt, hefir lierra Ásgeir Sig- urðsson O. B. E. verið skipað- ur breskur aðalkonsúll fyrir Is- land með konunglegu skipunar- bréfi (Royal Commission) und- irrituðu af II. H. Bretakonungi og utanríkisráðherra hans, en um leið hefir breska konsúlat- inu verið breytt í konungl. aðal- konsúlat fyrir Island (H. B. M. Consulate-General for Iceland). Útsvör og tekjnskattur. —x— Eins og' inenn vita, samþykti þingið í fyrra „lög um heimilcl fyr- ir ríkisstjórnina til þess, að inn- heimta tekju- og eignarskatt með 25% viðauka." — Héimild þessi er veitt um tveggja ára skei'S, frá 1. janúar 1929 til ársloka 1930. — Undanþegnir skatthækkuninni eru þeir gjaldenclur, sem hafa ekki fullar 4000 kr. árstekjur. Það er nú bersýnilegt, að flestir eða allir verkamenn í kaupstöðum muni sleppa við skatt-aukann, enda væri með öllu óverjandi, að hækka skatt á þeirn. Frumvarpið um ,,viðaukann“ gerði að vísu ráö fyrir því í upphafi, að viðauki j>ess næði til allra skattgreiðanda, en síðar var því breytt. Þá er og auðvitað, aö all-mikill hluti sjó- rnanna muni sleppa við hækkunina, cn yfirleitt munu þeir hafa hærri tekjur en verkamenn í landi. — Bændur munu og ekki þurfa að greiða skattaukann, því að vitan- legt er, að margir ]>eirra greiða alls engan tekjuskatt. Og þeir bændur eru víst ekki margir á öllu landinu, sem telja sig hafa 4 þús- und króna tekjur, auk heldtir meira. Samt efnast j>essir menn furðanlega, margir hverir, ]>ó að tekjur þeirra séu svona litlar. Og komið mun hafa fyrir, að sveita- prestur með 3—6 þús. kr. launum 111 ríkissjóði og góðu búi, lfafi gxddið innan við eina krónu í tekju- skatt. Sést glögglega af því dærni, hvílíkur ómagi stór bú á vildis- jörðum geta verið, pg mundi ekki vanþörf á, að skygnst væri eftir ástæðunum til slíkrar afkomu. Skatt-aukinn tekur því nálega eingöngu til kaupstaðarbúa, ann- ara en verkamanna og alhnargra sjómanna, og kemur vitanlega lang-þyngst niður á Reykvíking- um. I-'.n hér í hænum hefir gjalda- byrðin til opinberra þarfa. bæoi tekjuskáttur og útsvar, verið svo þung síðustu árin, að þar er engu við bætandi. Sérstaklega hafa þó. 8KAUTAR karla, kvenna og barna allra bestu tegundir. ffiikiö úrvaí — Lágt verö. Yersl. B. H. BJARNASON. gjöldin komiö ómjúkt við þá menn, sem vinna fyrir föstu og lög- ákveðnu árskaupi, svo sem em- bættismenn og starfsmenn ríkisins. L.aun þessara manna hafa farið lækkandi ár frá ári. Þau hafa lækkað miklu örara og meira, en sem því nemur, er dýrtíðin í land- inu hefir farið þverrandi. Samt hefir verið ómögulegt að lækka út- svör þessara rnanna neitt að ráði. sakir þess, að kröfur bæjarsjóðs um aukin fjárframlög til almennra þarfa, hafa stöðugt farið vaxandi. Liku rnáli gegnir að sjálfsögðu um marga aðra gjaldendur, svo sem versluuarmenn, skrifstofumenn og ýmsa fleiri. Laun þessara manna hafa sennilega heldur lækkað síð- ustu árin, en útsvörih hafa yfir- leitt ekki lækkað. Bæjarstjórnin gerist æ kröfu- harðari um fjárframlög úr vösum borgaranna. Fjárhæð sú, sem nið- urjöfnunarnefnd er skipað að jafna niður eftir „efnum og ástæðum“, liækkar ár frá ári. Stundum er hún hækkuð um 200—300 þús. krónur á ári. Og þetta getur komið fyrir ár eftir ár. Vitanlega bætist alt af eitthvað við af nýjum gjaldönd- um árlega, en meiri hluti þeirra gjaldanda eru smúborgarar, sem rísa ekki undir háum útsvörum. I’aö hefir verið haft fvrir satt, að ríkisstjórnin mundi ekki ætla sér að nota heimild þá, er lienni var veitt með lögum síðasta þings um hækkun tekjuskattsins (25%). Tekjur ríkissjóðs mundu verða svo miklar, að hann þ.ýrfti ekki á hækkuninni að halda. En nú er fullyrt, að stj’órnin sé einráðin í því, að beita heimildarlögunum vægðarlaust, og þykir mörgum, sem brýn nauðsyn geti ekki rekið þar fast á eftir. Og sérstaklega mun þetta vægðarleysi stjórnar- innar mælast illa fyrir hér í Reylc- javík og koma hart niður á rnönu- um. Ltins og- áður var mælt, snertir ,,viðauki“ þessi ekki aðra gjald- endur eu þá, sem hafa 4000 kr. tekjur og þar yfir. Iíann lendir á öllum eða flestum embættismönn- um, sem búsettir eru í kaupstöö- um eða búlausir i sveit, og rnörg- um hinum óæöri starfsmönnum ríkisins. Hann mun og letida á rniklum meiri hluta allra skrif- stcfumanna hjá einkafyrirtækjum, verslunarmönnum o. s. frv. — Og vitanlega lendir hann á kaupniönn- um, útgerðarmönnum og öllum meiri háttar atvinnurekstri. Því hefir áður verið haldið frarn hér i blaðinu, að gjöld Reykvík- inga til ríkis og bæjar væri orðiu svo há, að nauðsyn 1>æri til, að þau færi lækkandi. I>að er ómót- mælanlegt, að gjaldþoli margra borgara þessa bæjar og atvinnu- fyrirtækja raunar lika hefir verið ofboðið. Sumir hafa neyðst til, að taka lán árlega, til ]>ess að geta greitt útsvar og tekjuskatt. Sjá væntanlega allir, að þessháttar úr- ræði' muni ekki einhlít til fram- búðar. L.ánstraustið þrýtur fyrr cn varir, og hvar eiga þá þessir skilamenn aö taka fé, til þess að standast sí-vaxandi álögur? — Aðrir hafa orðið að taka af spari- fé sinu í bönkum til þess, aö g’eta staðið í skilum. ]>ví að árstekjur ]>eirra hafa ekki hrokkið fyrir nauðsynlegum útgjöldum til fram- færis, að viðbættu útsvari og tekju- skatti. — En þó aö hlutur þess- Hessiao, Bindigarn, Saumgarn, fy piplig g j und i. Þdröur Sveinsson & Co. % FATAEFNI x nýkomið fallegt úrval. Í FRAKKAEFNI. q Margar tegundir. | G. Bjarnason & Fjelösted. mGeíStÍÍÍÍÍÍtíÍÍStÍÍÍÍÍÍStÍÍSCÍSOÍK.tKKX ara manna sé slæmur, þá eru þo hinir fyrr töldu stórum ver farnir. Bæjarstjórnin mun nú ætlast til, að útsvörin hækki enn um 200 þúsund krónur á þesstt ári, en jafn- aðarmenn í bæjarstjórn kröfðust miklu meiri hækkunar. — ’ Gera má ráð fyrir, að útgerðin geti bor- iö allmikinn hluta hækkunarinnar, svo að útsvörin á öllum almenn- íngi þurfi ekki að hækka til muna úr því, sem þau voru síðastliðið ár. En það er eklci nóg. — Útsvöi-- in verða að lækka alment og þó sérstaklega að þessu sinni og næsta ár á öllum miðlungs-gjaldöndum, þeirn, sem hafa frá 4 jms. kr. í árstekjur cg upp í það, sem kalla rnætti rífleg þurftarlaun. Öllum þeim gjaldöndum, ef þeir eru ekki ] >ví betur efnum búnir — og þaö eru þeir fæstir — verður 25% tekjuskattshækkunin mjög tilfinn- anleg. Hinir, sem hærri hafa tekj- urnar, finna ekki eins áþreifanlega til skatt-aukans eða verður hann léttbærari, encla eru í ]>eim flokki flestir þeir borgarar bæjarins, sem hest eru efnum búnir. En þó a-ö ]>eir sé yfirleitt hetur færir um, að bera hækkunina, þá er þó ekki því að leyna, að útgjöld þeirra til rikis og bæjar á undanförnum ár- um hafa veríð svo mikil, að ekki getur með neinu móti talist sann- gjarnt, að auka þau úr því, sern veriö hefir. Það er engn Hkara, en aö suniir meun ímyndi sér, að gjaldþol Reykvíkinga sé óbilancli. Hér sé óhemju auður saman kominn i eigu einstakra rnanna og þá auð- legð beri að skatta sem allra gífur- legast. L’ess vegna er alt af verið að hlaða nýjum og nýjum sköttum og skattaukum á Reykvíkinga og aðal-atvinnuveg þeirra, sjávarút- veginn, en á honum hvílir framtíð bæjarins að miklu leyti. Sérstaklega hyggja ]>essir meim, að auðlégð útgerðarinnar og kaup- mannanna sé mikil. En þeir gá ekki að því,« að svo „svipull er sjavaraflinn“, að útgerðarmenn ]>eir, sent efnaðir teljast í ár og færir urn að greiða }>unga skatta, geta hæglega verið orðnir snauð- ir og getulitlir að ári. Og uni af- konm kaupmannanna er það aö segja, að hún veltur mjög á fram- leiðslunni, hag atvinnuveganna og velmegan alls almennings. L>egar bændavaldið á Alþingi grípur til þess ráðs, að íþyngja Reykvíkingum með ónauðsynleg- tim skatt-auka, verða stjórnarvöld bæjarins að sjá um, að borgúrun- um veröí ívilnað i útsvörum, sein þtim skatt-auka nemur. Gjaldahyrðin má ekki ]>yngjast úr því, sem veriö hefir. Dánarfregn. Frú Sigrún Gestsdóttir, Grjóta- götu 4, ekkja Stefáns Eiríkssou- ar IréskurÖarmeislara, andaöisí í gærmorgun í Landakots- spítala eftir stntta legu. Veðrið í morgun. í Reykjavík o st., ísafirði -f- x, Akureyri —2, Seyðisfirði — o, Vestmannaeyjum -r-2, Stykkis- hólmi o, Blönduósi ~ 2, Raufai'- höfn —7-2, Hólurn í Flornafirði -j-i, (engin skeyti frá Grindavík), Fær- eyjum 4, Julianehaab o, Ang'mag- saþk —j- 8, Jan Mayen o, Hjalt- landi 8, Tynemouth 8, Kaupmanna- höfn 1 st. — Mestur hiti hér í gær 1 st., minstur -f- 4 st. — Lægð fyrir sunnan land, en hæð yfir Grænlandi. — Horfur: Suðvestur- Iand: í dag allhvass austan, snjó- koma. 1 nótt allhvass suðaustan. Bleytuhríð. Faxaflói, Breiðafjörð- ur: I dag allhvass norðaustan, dá- lítil snjókema. ,1 nótt allhvass suð- austan. Vestfirðir, Norðttrland, norðausturland, Austfirðir: í dag eg nótt norðaustan og austan átt. Sumstaðar allhvass og snjókoma. Suðausturland: í dag og nótt all- hvass austan. Snjókoma. Atvinn uleysisskýrslur. Á morgun kl. 9 árd. hefst skráning atvinnulej'sigja hér i bæntun. Tekur hún til atvinnu- lausra sjómanna, verkamanna og verkakvenna, iðnaöarmanna og iðnaðarkvenna. Skráningin fer fram í verkamannaskýlinu við Tryggvagötu. — Þess er vænst, að þeir sem láta skrá sig, verði viðbúnir að svara spurn- inguni þeim, sem fyrir þá vcrða lagðar. Meðal annars verða menn spurðir um það, hversu marga daga þeir hafi liaft vinnu siðan 1. nóv. s. I., hvað marga Nærfötin eru orðin þjóðfræg fyrir gæði og lágt verð. Á morgun hefst 3. þáttuF Skyndisölmmap og verða þá hin góðu Hanesföt seld frá að eins kr. 3.90 pr. stk. Enn fremur ýmsar aðrar tegundir af nærfatnaði frá kr. 2.25 pr. stk.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.