Vísir - 22.05.1929, Qupperneq 3
VÍSIR
_______________________________________________ ■«-
I
ffiæææææææææææææææææææææææææ
æ
æ
æ
CHEVROLET
6 „eylinder4* vöpubifpeið.
Það er einróma álit allra sérfróðra manna, að CHEV-
ROLET 6 „cylinder“ bifreiðin nýja sé mesta meistara-
stykki, sem nokkurri bifreiðaverksmiðju hafi telcist að
framleiða til þessa.
CHEVROLET 6 „cylinder“ vélin er svo gangþýð,
hljóðlaus og lcraftmikil, að slíkt hefir aldrei þekst áður
nema i allra dýrustu skrautbifreiðum.
Þrátt fyrir þessar og margar aðrar mjög verðmætar
endurbætur er CHEVROLET bifreiðin enn í sama verð-
flokki og fyr.
Þrátt fyrir það, þótt GENERAL MOTORS seldi síð-
astliðið ár 1,200,000 CHEVROLET bifreiðar á 10V2
mánuði var eigi látið staðar numið, heldur voru bifreið-
arnar endurbættar, kaupendum til hagsmima og gleði.
GENERAL MOTORS er framsýnt fyrirtæki og lætur
aldrei staðar numið.
Væntanlegir bifreiðakaupendur! Athugið hvað GENE-
RAL MOTORS hefir að bjóða, áður en þér festið kaup
á bifreiðum hjá öðrum.
Aðalnmboð:
Jóh. ulafsson & Co., Rvík.
æ
Umboðsmenn:
Jón Pálmason. Gunnar Ólafsson & Co.
Blönduósi. Vestmannaeyjum.
Vilhjálmur Þór.
Akureyri.
Hrófá við Steingrimsf jörð, eftir
þung og langvarandi veikindi.
Him var ekkja eftir Jón sáluga
Tómasson, sem dáinn er fjTÍr
öoklcrum árum. Bjuggu þau all-
an sinn búskap að Hrófá, jafnan
góðu búi og við sæmileg efni.
Ólöf sáluga var liin mesta dugn-
aðar og þrekkona. Þó hún bær-
íst ekki mildð á, var liún því
jbetur þokkuð af þeim, sem til
þektu. Hún var ein af þessum
liltölulega fáu skapfestukonum,
og var i hvívetna hinn mesti
sómi sinnar stéttar. Þau lijón
áttu tvær dætur barna, önnu, er
dó í æslcu, en hin, Stefanía, er
gífí Þorgeiri Þorgeirssyni bónda
,að Hrófá.
G. G.
Þvottadagarnir
hvfldardagar
Fæst víðsvegar.
í heildsðlu hjá
HALLDÓRI EIRÍK8STNI,
Hafnarstræti 22. Sími 175,
Símskeyti
Kliöfn, 22. maí, FB.
Frá Kína.
Frá Honkong er símað til
Ritzau fréttastofunnar: Fregn-
in um að Kwangsiherinn hafi
tekið Kanton er mishermi. —
Margir óttast þó, að Kwangsi-
hemum muni liepnast að taka
borgina. Bretar hafa skipað á
Iand sjóliði í Kanton til þess að
gera varnarvirki kringum sér-
réttindasvæði Bretlands. Bresk-
ir, franskir og japanskir fall-
byssubátar eru til taks til þess
að vernda útlendingasvæðið i
borginni.
Dánarfregn.
Jón Guðnnindsson óðalsbóndi að
Ægissíðu andaðist 20. þ. m. 72
ára að aldíri. Jón var bró'ðir Sig'-
urðar heitins liónida að Selalæk,
fööur Gunnars alþm., og Vigfúsar,
er um bríð bjó í Engey, en nú er
búsettur hér í bæ. Var Jón fróð-
leiksmaður um ýmsa hluti, einlc-
um ættfræði. Hafði hann búið
4.} ár að dígissíðu er hann lésí.
Veðrið í morgun.
Hiti um land alt. Reykjavík
11 st., ísafirði 9, Akureyri 9,
B ARN AFAT AVERSLDTÍIN
Klapparstíg 37. Sími: 2035.
Tilbúinn unabarn&fatnaður og
efni í ungbarnafatnað.
Seyðisfirði 5, Vestmannaeyjum
8, Stykkishólmi 7, Blönduósi 8,
Raufarhöfn 5, Hólum í Horna-
]'irði 8, Grindavík 10, Hjaltlandi
9, Tynemouth 12, Jan Mayen
frost 1 stig, Angmagsalik liiti 2
st., Julianehaab 6 st., (engin
skeyti frá Khöfn). Mestur hiti í
Jvík í gær 12 stig, minstur 7
stig; iirkoma 0,5 mm. Lægðin,
sem var vestur af Irlandi í gær-
cveldi er nú hér skamt fyrir
simnan land og stefnir NA-eft-
ir. Horfur: Suðvesturland, í
dag og í nótt: Allhvass nörð-
austan. Rigning austan til.
Faxaflói, Breiðafjörður, Vest-
1 'irðii* og Norðurland, í dag og í
nótt: Austan og norðaustan
caldi. Víðast úi'komulaust.
Norðausturland, Austfirðir og
suðausturland í dag og í nótt:
Austan og norðaustan átt, sum-
staðar allhvass. Rigning.
Fyrirlestur Guðm. Kambans
um Reykjavíkurstúlkuna, er
hann flutti í Nýja bíó á annani
b-v ítasunnudag, var ágætlega sótt-
ur. Munu færri hafa komist að en
vildu. Verður fyrirlesturinn endur-
tekinn á sama stað arniað kveld kl.
8 síðdegis.
Próf. Magnus Olsen
heldur io. fyrírlestur sinn i
kveld kl. 6 í Kaupþingssalnum.
Verður hann mn rannsóknir ör-
nefna í Noregj o. fl. og er inn-
gangur að síðasta kafla háskóla-
fyrirlestra hans. Veröa í þeim
kafla tveir fyrirlestrar aðrir og’
eiga að skýra forna trúarbragða-
sögu, einknm hiö ytra fonn trúar-
siðanna, og byggir prófessorinn
kenningar sínar tun þessi atriði
mjög á ömefnarannsókum.
Hjúskapur.
Nýlega voru gefin saman í
lijónaband af síra Árna Sigurðs-
sjmi ungfrú Elinborg Ivrist.jáns-
dóttir og Stefán Jónsson versl-
unarmaður, og er lieimili þeirra
á Vitastig 11.
Á aiman í hvítasunnu gaf lög-
ínaðurinn saman í hjónahand Sig-
ríði Sigurbjarhardóttur Baldurs-
g'ötu 14 og Gunnar Axelsson
skrifstofumann hjá Nathan &
Olseni, ísafirði. Þau fóru til ísa-
f jarðar með e.s. Nova í gærlcveldi.
Laugardaginn 18. þ. m. voru
gefin saman í hjónahand í Kefla-
víkurkirkju ungfrú Sigrúni Ólafs-
dóttir frá Flateyri og Gunnar Sig-
urfinnsson bifreiðastjóri í Kefla-
vík. Síra Eiríkur Bryujólfsson
gaf þau saman.
Trúlofun.
A hvítasunnudag birtu trúlofun
sína ungfrú Margrét Skúladóttir
Gmndarstíg 11 og Reynir Gu'ð-
mundsson, vélstjóri, frá Jíafnar-
firði.
Leiðrétting
í hæjarfrétt í blaðinu í gær, Jaar
sem sagt var frá kenslu próf. J.
Velden var rangt skýrt frá síma-
númeri hanls. Átti að vera 1999.
Knattspyrnumöt 3. flokks.
Fyrsti kappleilcur mótsins fór
þannig, að K. R. vann Fram með
6:0, og Valur og Víkingur gerðu
jafntefli (0:0). — í kveld Id. 8
keppa Fram og Vikingur og kl.
9 K. R. og Valur.
Aðalfundur Þjóðvinafélagsins
var háöur skönnnu fiyrir þing-
laúsnir af alþing'ismönnum, svo
sem venja er til. Var stjórn félag's-
ins öll enkiurkosin.
Tatnsleiðslnpípnr
Samb«nds«tykkf, Dælur, Vatnshrútar,
Hlðstæðvartekf, Baðtækl, Skolpleiðslur,
Vatnssalepnl, Vaskar.
Annast uppsetningu.
Guðnmndur H. Þorvarðsson.
Óðlnsgötu 12.
Fintleikaflokkur kvenna
frá Akureyri er væntaulegur
tingað suður um næstu mán-
aðamót, og mun sýna liér fim-
leika og dansa. Ármann Dal-
mannsson fimleikakennari á
Alcureyri keniur með flokknum,
sem mun dveljast hér í bænum
í kringum 10 daga.
G.s. ísland
fer héðan í kveld kl. 8 áleiðis til
Kaupmannahafnair, um Vest-
mannaeyjar og Færeyjar. Meðal
farþega verða dr. Bjami Sæ-
mundsson og dr. Ágúst H. Bjama-
son prófessor, er báðir ætla að
verða viðstaddir hátíðahöld á 450
ára afmæli Hafnarháskóla. —
Meðal farþega verða ennfremur
Emile Walters málari og Gísli J.
Ólafson landssímastjóri.
Gullfoss
fer liéðan i kveld kl. 10 áleið-
is til Kaupmannahafnar. Kem-
ur við á Austfjörðum. — Með
skipinu fer utan söngflokkur sá
er af íslendinga hálfu tekur
þátt í norræna söngmótinu í
Kaupmannahöfn i næsta mán-
uði.
Verslunarlejrfi.
Nokkru eftir áramót aug'lýsti
lögreglustjóri, að allir kaupmenn
eða aðrir verslunarmenn, sem
hefðu verslun fyrir atvinnu og eigi
hefðu enn leyst verslunarleyfi,
yrðu látnir sæta sektum, ef þeir
liefðu eigi leyst verslunarleyfi inn-
ani tiltekins tíma, sem ákveðinn
var í auglýsingunni, og er sá frest-
ur ,nú útrunninn, en lögreglustjóri
hafði komist að raun um, að þeir
væru eigi allfáir hér í bæ, sem
hefðu verslun fyrir atvinnu, án
þess að hafa leyst itm lögákveðið
verslunarleyfi. — Árangurinn af
þessari auglýsingu lögi'eglustjór-
ans hefir orðið sá, að síðan um
áramót hafa verið innleyst 67
verslunarleyfi alls, og þó flest síð-
ustu vikurnar nú undanfarið, og
hafa v'iðkomenidur llestir sloppið
sektalaust fram að þessuj, þrátt
fyrir að þeir hafi orðið uppvísir
að leyfislausum verslunarrekstri
um langan tíma. Hafa síðan um
áramót goldist rúmlega 23 þús. kr.
fyrir þessi verslunarleyfi. Fyrir-
finnist hér eftir nokkrir þeir, er
emi hafa eigi leyst verslutiarleyfi,
þrátt fyrir aðvörun lögreglustjóra,
verða þeir tafarlaust látnir sæta
allháum sektum.
Sumardvöl i sveit.
Fátt er ungviði þessa hæjar
nauðsynlegra, eil að komast í
sveit að sumrinú. Hér eiga börn-
in eiginlega livergi friðland ut-
an dyra, og eru því jafnan á
hrakningi um göturnar, liverju
sem viðrar. — Umferðin á göt-
unum er geysimikil, eins og all-
ir vita, og oft svo ógætileg, að
húast má við slysi á liverri
stundu. Og í allri þessari um-
ferðar-kássu eru smábörn á
flaklci alla daga og langt fram
á kveld, stundúm eftirlitslaus
eða sania sem. Má i raun réttri
l'urðulegt heiía, liversu slarkast
af, án líkamlegra stórslysa, bein-
hrots eða bana, en vart mun
Reidhjólin
„81eipner“
eru komln.
MagnúsBenjamínsson
& Go.
Verslið við Vikar.
Vörur við vægu verði.
fyrii' lútt synjanda, að margvis-
leg andleg meiu og slys geti átt
rætur að rekja til götu-flakks
barna og unglinga. „Gratan“ er
slæmur skóli og má þar margt
misjafnt nema, en æskan er
næm og námfús, ekki síður á
ilt en gott. Hafa og nokkurrir
sorglegir atburðir gerst hér á
siðasta misseri, er líklegt þykir,
að telja megi afleiðing af sjálf-
ræði og göturangli hinna ungu
horgara.------Eins og auglýst
hefir verið i blöðunum, ætla
þær frú Vigdís G. Blöndal og
ungfrú Sigríður Magnúsdóttir
að taka hörn til dvalar í sumar
að Reykholti i Biskupstungum,
ef þátttaka verður næg. Er það
vel til fallið og æskilegt, að sem
flestir foreldrar eða aðstand-
endur barna vildu sinna þessu.
Þarf enginn að bera kvíðboga
fyrir því, að börn eða unghngar,
sem Vigdís G. Blöndal tekur að
sér, eigi við slæmt atlæti að búa
eða verði aðhlynningarlítil, þH
að hún er frábærilega góð kona,
ástúðleg í viðmóti og laðar hvert
barn að sér. S. M. mun og hið
besta til þess fallin, að hafa
börn undir höndum og gæta
þeirra.
Knattspyrnufélagið Valur.
I. og II. flokkur: Æfing í kveíd
kl. 7J4-
NautgTipasýningar
verða lialdnar ^ í þessum
mánuði og fram undir miðjan
júní í Barðastrandar-, Stranda-
og' ísafjarðarsýslum. -— Páll
Zóphóníasson nautgripai'ækt-
ar-ráðunautur liefir umsjón
með sýningum þessum. Fór
hann héðan í þeim erinduin í
gær.
(FB).
Af veiðum
komu í nótt botnvörpungarn-
ir Tryggvi gamli og Bragi, en
Gyllir fór á veiðar, og Þórólfur
cr væntanlegur af veiðum í
dag.
Henry
oliuskip (til ZimsenS) kom
hingað í nótt.
Nova
fór liéðan í gær norður um
land áleiðis til útlanda, með
fjölda farþega.