Vísir - 08.08.1930, Qupperneq 3
VlSIR
fcominn til Viðeyjar. Tók nú Jón
Pálsson til starfa og smurði
liann sundmanninn allan með
feiti og undirbjó hann.sem best
undir liina erfiðu þrekraun. Þá
er því var lokið var klukkan
langt gengin 3.
Vindstaðan hafði breytt sér.
Var nú kominn vestankaldi og
talsverð alda, sem sundmaður-
inn hafði í fangið. Allir sáu, að
þessi breytta aðstaða gat haft ill
áhrif á sundmanninn, en hann
hikaði hvergi, heldur hljóp létti-
lega niður fjöruna vestan við
sundhellinn í Viðey, fram á
fremstu klettasnös og í faðm
Ægis, sém tók konum vel og lét
bárurnar, dætur sínar, koma á
móti honuin, hverja af annari,
og strjúka vanga hans á ajlri
leiðinni til Reykjavikur. Fylgd-
armennirnir lögðu frá strönd-
inni von bráðara og náðu sund-
manninum 300 metra frá landi.
Klauf hann nú sjóinn sem
höfrungur, og þótti sumum sem
'Iiann s\nti full-hart í byrjun.
Ekki sáust nein þreytumerki á
hanmn f jtsíu 2—3 kílómetrana,
enda þótt mótvindur væri. En
vindur og straumur töfðu sund-
íð, þvi að þeirra vegna gat
Magnéis ekki synt sitt uppá-
halds-sund, hliðarsundið. Hann
bar þá ávalt af leið og varð
þess vegna að synda bringu-
sund. Bar nú Magnús áfram
jafnt og þétt, og tók hann venju-
lega 36 sundtök á mínútu.
En er kom.að hafnarmynn-
inu, gerðist sundið afar erfitt.
Var hvorutveggja, að sundmað-
urinn var farinn að lýjast og svo
tiitt, að þarna var afar mikill
snótstraumur. Magnús fékk nú
heitan drykk sér til hressingar
og lagði svo í álinn. En leiðin
var torsótt: straúmur bar hann
ávalt að innri garðinum og
Iiéldu nú fylgdarmenn, að sund-
maðurinn léti sér nægja að kom-
ast þangað. Nei! Hann hafði ætl-
að sér að ná landi við stein-
bryggjuna gömlu og þangað
skal haldið. Hann lagði alla
fcrafta sína fram og var nú brátt
koniinn inn fyrir hafnarmynnið,
en þá var liann orðinn mjög
þreyttur, en liafði nú lokið
mesta erfiðinu og svam rólega
ínn höfnina og náði settu marki
eftir rúmlega tveggja tíma sund.
Fjölmenni var á bryggjunrii og
tók á móti liinum unga sund-
kappa með fagnaðarhrópum.
'Voru telcnar af honuin margar
myndir og liann siðan fluttur
í bil í baðhúsið og að klukku-
iíma liðnum háfði hann jafnað
sig til fulls.
Er sundafrek þetta eitt af
þeim bestu, sem hér hafa verið
unnin og mun lengi í minnum
Siaft. Og það sýnir vaxandi gengi
íþróttanna meðal okkar, að fyr-
ir árið 1912 mun enginn sund-
maðúr íslenskur hafa treyst sér
í Viðeyjarsund, en árið 1930 er
þessi þrekraun unnin af að eins
18 ára gömlum unglingi.
—n.
I. O. O. F. — 112888ýý
Veðriö í morgun.
Fliti í Reykjavík 11 st., ísafiröi
7, Akureyri 8, SeySisfiröi 11, Vest-
mannaeyjum 11, Stykkishólmi II,
Blönduósi 9, Hólum í Hornafiröi
10, Grindavik 11, (engin skeyti frá
Raufarhöfn, Angmagsalik og
'JCaupmannahöfn.) Færeyjum 11,
Julianehaab 11, Jan Mayen 7,
SWASTIKA
VALDAB VIRGmiA,
FÁ8THVARVETNA
Stúíkumyndi?naF eru enn í pðkkunum.
OTSALA.
Gólf-
Dívan-
Borð-
Vegg-
Teppi
Komið og’ skoðið okkar fallega
úrval af allskonar T E P P U M,
áður en þér festið kaup annars-
staðar.
V0RUHÚSIÐ
Hjaltlandi 15, Tynemouth 1-4 st.
Mestur hiti hér í gær 15 st., minst-
nr 8 st. — Víðáttumikil lægö suS-
vestur af íslandi á hægri hreyf-
ingu austur eftir. Háþrýstisvæði
yfir Grænlandi. Horfur: Suövest-
urland, Faxaflói: Vaxandi su'ð-
austan kaldi. SkýjaS loft, sunr-
staðar dálítil rigning. Breiða-
fjörður. Austan kaldi. Úrkomu-
laust. Vestfirðir, Norðurland,norð-
austurland, Austfirðir: Norðaust-
an gola. Þykt loft og rigning öðru
hverju. Suðausturland: Hæg aust-
an átt. Smáskúrir.
E.s. Aagot
kolaflutningaskip sem hér hefir
legið undanfarið fór héðan í gær-
kveldi.
Gullfoss
kom frá Akureyri í gærkveldi
með margt farþega. Hann fer út
kl. 10 í kveld til Hamborgar og
Kaupmannahafnar.
Kokkrar myadir
úr skemtiför verslunarmanna í
Borgarnes eru til sýnis í glugga
Landst jörnunnar.
Skemtun
verður haldin á Hrafneyri á
Hvalfjarðarströnd næstkomandi
sunnudag.
H af narf jarðarhlaupið
fer fram á sunnudaginn kemur
og hefst í Hafnarfirði um
morguninn kl. 10 og endar á í-
Jiróttavellinum í Reykjavík. Þátt-
takendur eru beðnir að mæta á
sunnudagsmorgun hjá B. S. R.
ekki síðar en kl. 9J2.
Ættarskrá
séra Bjama Þorsteinssonar,
liina miklu, verður nú farið að
prenta og fer því að verða hver
síðastur að eignast hana fyrir
hið lága áskriftarverð, kr. 10,00.
Eftir að bókin er komin út verð-
ur verð hennar kr. 15,00. Á-
skriftarlistar liggja frammi i
bókaversl. Ársæls Árnasonar,
bókaversl. Sig. Kristjánssonar,
hjá Kjartani Sveinssyni í Þjóð-
skjalasafninu og Kolbeini Þor-
steinssyni, Hverfisgötu 53.
Kveður í runni.
Sigríður Einars frá Munaðar-
nesi héfir gefið út bók eftir sig, er
hún nefnir „Kveður í runni“. Hef-
ir kverið að gevma bundið mál og
óbundið, frumsamið og þýtt.
Trauðla mun verða sagt, að kvæð-
in sé veigamikil að efni, en sum
eru laglega kveðin. Meðal þess,
sem vel er kveðið, má nefna þess-
ar sléttubandavísur:
Syngdu lengi. Yndis óð
óma bjarta gefðu.
Yngdu mengi. Ljúfust ljóð
ljóma hjarta vefðu.
Sinnir illu. Trauðla trúr
traustið fasta bindur.
Hlynnir villu. Aldrei úr
argi lasta vindur.
*
Samvinnan.
Annað hefti Samvinnunnar
1930 er fyrir skömmu komið út
og hefst á ritgerð um Boga Th.
Melsted, sagnfræðing. Hefir Þor-
kell Jóhannesson ritað og virð-
ist hann líta sanngjörnum augum
á ævistarf Boga. Jón Gauti Péturs-
son ritar um „Verslunarárferði
landbúnaðarins á Islandi um 100
ár“, en Jónas Jónsson ráðherra
um „Byggingar" (IX. kafli).
Loks er grein um Samvinnuskól-
ann 1929—1930.
Súlan
flýgur til Arnarfjarðar í fyrra-
múlið, vegna liátíðarinnar þar
ef nógn margir gefa sig fram.
Menn tilkynni þátttöku sina fyr-
Nautakjöt verður selt i dag og
næstu daga í kjötbúðinni á
Laugavegi 76. — Hringið í sima
1241.
Samband ísL samvinmrfélaga.
ir kl. 6 í dag á skrifstofu Flug-
félagsins.
Knattspyrnumót B-liðsins.
Kappleikurinn í gærkveldi fór
svo, að Valur vann K. R. með
3 gegn 1.
Gjöí
til Hallgrímskirkju í Reykjavík
kr. 11,12 ($ 2,50) frá ónefndi'i
konu i Ameríku (afh. af síra Ól-
afi Ólafssyni fríkirkjupresti).
Til bágstöddu ekkjunnar,
afh. Vísi: 10 kr. frá G. B.
Til fátæka trésmíðanemans,
afh. Vísi: 10 kr. frá N. N.
Áheit á Strandarkirkju,
afh. Vísi: 5 kr. (próf áheit) frá
Ó. B., 2 kr. frá E. Þ., 2 kr. frá N.
N., 10 kr. frá N. N. 15 kr. frá M.,
2 kr. frá ónefndum Vestur-íslend-
ingi (afh. af. síra Ólafi Ólafssyni
fríkirkjupresti), 10 kr. frá
ónefndri konu í Hafnarfirði (afh.
af síra Ól. Ól. fríkirkjupresti) kr.
11,13 ($ 2,50) frá ónefndri konu í
Ameríku (afh. af síra Ól. Ól.
fríkirkjupresti).
Búð
til leigu frá 1. október.
Melnholt,
Laugaveg 5.
í sunnudagsmatinn:
Nýslátrað grísakjöt.
Nýslátrað dilkakjöt.
Lax.
Silungur er væntanlegui'
Sendið eða símið í
Voité
Til he’prinnar
verður best að kaupa vænt og
vel verkað dilkakjöt, reykt
kindalæri, svið, iifur og hjörtu,
gulrófur og margt fleira. --
Vörur sendar beim.
Bjö?ninn,
Bergstaðastræti 35.
Sími 1091.
Törnbifreið
í góðu lagi, til sölu eða í skift-
um fyrir fólksbifreið. — A. v. á.