Vísir - 05.03.1931, Page 4
VISIR
Til sönnunar ágæti „VEEDOL“-olíunnar viljum við geta þess,
að commander Byrd notaði hana eingöngu á flugvélar sínar i
suðurpólsleiðangrinum. — Loftskipið „Zeppelin greifi“ notar
hana á sínum löngu og erfiðu ferðum. Að „VEEDOL“ hefir
verið valin til notkunar á þessum erfiðustu flugferðum, sein
farnar liafa verið, ætti að vera nægilegt til að fullvissa ykkur
olíunotendur um, að það er engin smurningsolía
betri en „VEEDOL“.
Aðalumboðsmenn á íslandi:
Jóh. Ólafsson & Go.
Reykjavílí.
Suöusukkulaöi
„Overtrek “
Átsúkkuiaði
KAKAO
nýjar smjörlíkisgerðir síðustu
mánuðina, svo að nú munu þær
vera fjórar alls hér í bænum.
Bjuggust vist margír við, að
þessi stórkostlega aukning
smjörlíkisframleiðslunnar
mundi verða til þess, að varan
lækkaði í verði. Menn vonuðu,
að einhver verksmiðjanna
mundi ríða á vaðið og auglýsa
verðlækkun og þá hefði hinar
auðvitað komið á eftir. En eg
liefi hvergi séð það auglýst í
blöðum, að smjörlíkið hafi ver-
ið lækkað i verði, og liin létta
pyngja mín hefir ekki heldur
orðið þess vör.
Eins og allir vita, er nú all-
mikið atvinnuleysi liér í bæ og
vafalaust þrongt í búi hjá
mörgum. Það mundi þvi koma
sér einstaklega vel núna í at-
vinnuleysinu og vandræðunum,
cf þessar tvær — mér liggur við
að segja — aðal-neysluvörur
allra fátæklinga yrði lækkaðar
i verði. Eg held mér sé óhætt
að segja, að brauð og smjör-
líki sé þær vörurnar, sem efna-
íeysingjar, sem berjast áfram
án sveitarstyrks, kaupa nú
einna mest sér til viðurværis,
en þar næst kemur fiskur, þeg-
ar liann er að fá fyrir skaplegt
verð, en það liefir nú verið held-
ur sjaldan til skannns tíma. Við
liöfum ekki efni á þvi, að kaupa
kjöt svo að neinu nemi, og þó
að við kynnum að geta fengið
það með því, að leita til bæjar-
ins, þá viljum við reyna að
komast hjá slíku í lengstu lög.
Bæjarsjóðurinn er vafalaust
mjúkt hæg'indi og notalegt, en
siimir eru svo gerðir, að þeir
fást ekki til að halla sér þar að,
fyrr en öll önnur sund eru lok-
•uð. —
Þegar Alþýðubrauðgerðin var
stofnuð, minnir mig að látið
væri í veðri vaka, að það væri
meðal annars eða jafnvel aðal-
lega gert til þess, að knýja
fram lækkun á brauðverðinu.
En vonir þær, er fátæklingar
bundu við fyrirtæki þetta, hafa
algerlega brugðist. Mér heyrist
nú á æðimörgum, sem eg liefi
lalað við, að Alþýðubrauðgerð-
in muni hafa haldið brauðverð-
inu uppi, eða að minsta kosti
ekki gert neitt til þess að lækka
það. Og það hafa ýmsir fyrir
satt, að Alþýðubrauðgerðin sé
eitt hið mesta stórgróðafyrir-
tæki í þessum hæ, og sé þegar
búin að gera eigendurna sterk-
efnaða. Eg skal ekkert uin þetta
fullyrða, því að eins og gefur
að skilja, hefi.eg ekki séð reikn-
inga fyrirtækisins, en mér er
sagt, að flest eða öll brauðgerð-
arhús bæjarins sé arðvænleg
fjæjrtæki og má þá nærri geta,
hvort Alþýðubrauðgerðin, eitt-
Jivert stærsta brauðgerðarfyrir-
tækið hér, muni ekki gefa eig-
öndum símun drjúgan skilding
í hreinan arð árlega.
Eg' livgg, að ekki sé órétt-
mætt að fara þess á leit við
brauðgerðarhúsin og smjörlík-
isgerðirnar, að vörur þessara
fvrirtækja verði lækkaðar í
verði nú þegar. Brauðgerðar-
húsin standa sig vafalaust vel
við talsverða lækkuft á vörum
sínum, og ofvöxturinn í smjör-
líkisgerðinni hendir ótvírætt i
þá átt, að smjörlíkisgerð þyki
arðvænlegur atvinnurekstur. —
Vona eg að ekki líði á löngu,
þar til ]iessu verði hrundið í
framkvæmd.
Eg orðlengi þetta ekki meira,
en vænti þess, að Vísir birti
þenna greinarstúf minn, og lag-
færi fyrir mig málvillur og rit-
villur. Hann hefir gert mér
þann greiða áður.
Barnakarl.
Kartöflar.
Nýkomnar kartöflur á 9.00 og
9.50 sekk. í 50 kg. pokmn. —
Þetta eru valdar kartöflur, einn-
ig höfum við gulrófur. Sendið
eða símið í
Von.
Simi 448 (2 línur).
p VINNA
Hraust, ung stúlka getur
fengið vist strax. Uppl. í síma
159. . (83
Ungur, reglusamur inaður
óskar eftir atvinnu. Hefir bíl-
stjórapróf. Sími 2285. (79
Morgunstúlka óskast nú þeg-
ar. A. v. á. (81
Annast uppsetning og við-
gerð ó loftnetjum og viðtækj-
um. Hittist Mjólkurfélagshús-
inu, herbergi nr. 45, kl. 5—7.
Stúlka óskast í vist vegna for-
falla annarar. Ingi Halldórsson,
Vesturgötu 14. (50
Stilt og liraust stúllva óskasl
i vist nú þegar til Soffíu Jacob-
sen, Sólevjargötu 13. Sími 519.
______________________(74
Stúlka, vön þvottum, óskast
nú strax. Uppl. í Þingholtsstr.
18, uppi. (85
|™TILKYNNIN^—|
IT SKILTAVINNUSTOFAN,
Túngötu 5. * (491
r
KENSLA
T
Kenni vélritun, Cecelie Hclga-
son. Simi 165. (544
r
HUSNÆÐI
1
2 stofur til leigu fyrir ein-
lileypa. Geta verið samliggj-
andi. Bragagötu 32. Sími 1148.
(82
Góð nýtísku íbúð, 3—4 lier-
hergi með aðgangi að þurklofti
og sem næst miðbænum, ósk-
ast 14. maí. — Að eins hjón
með 1 stálpað barn í heimili.
Lítilsliáttar fyrirframgreiðsla
gæli komið til greina. Kaup á
liúsi gæti einnig komið til
greina. Tilboð, merkt: „íbúð“,
sendisl Vísi fyrir laugardags-
kveld. ' (80
tbúð óskast fró 14. mai. Ole Pl
Blöndal, Vesturgötu 19. Sími:
718. (506
íbúð vantar í vor. — Tillioð,
merkt: „Nútimaþægindi“, send-
ist Vísi. (58'
Verslunarbúð til léigu nú þeg-
ar á góðum stað í bænum. Hefi
einnig nokkrar lausar íbúðír frá
14. maí. Uppl. lijá Nóa Krist-
jánssyni, Klapparstíg 37. Simi
1271. (84
^^AUPSKAPUK™^
Á útsölunni er allur kven- og
bama-nærfatnaður seldur sér-r
lega ódýrt, einnig allskonar
smábamafatnaður, telpnakáp-
ur og kjólar alt að hálfvirði,
Prjónatreyjur og peysur,
alt að hálfvirði. Feikna
úrval af morgunkjólum
og' kven- og barnasvuntum,
með 20% afslætti. Allar aðrar
vörur verslunarinnar með nið-
ursettu verði. Notið tækifærið.
Verslunin „SNÓl'11, Vestrnv
götu 17. (52*
TWEEDKJÓLAR,
að eins 15—18—20 kr.
CHARMEUSEKJÓLAR, “
einlitir — að eins 20 kr.
munstraðir, — 22 —
------- „N I N O N“ ----
Austurstr. 12. ——- Opið 2—.
Til sölu: Borð og tauskápur.
Tækifærisverð. Bragagötu 29.
(77
Athugið: Ilattar, húfur, sokk^r
ar, nærfatnaður, vinnuföt, axla-
bönd o. fl. mcð lægsla verði.
Hafnarstræti 18. Karhnanna-
hattabúðin. Einnig gamlir hatt-
ar gerðir sem nýir. 78
VEITIÐ ATHYGLI! Hag-
kvæmust innkaup, bæði i‘
stærri og' smærri kaupum, gera'
menn í versl. Guðm. Gíslason-
ar, Njálsgötu 23. Sími 1559. (47
Túlípanar, og páskaliljur fásf
daglega í Suðurgötu 12. Johan
Schröder. (618’
Gleymið ekki
að lcaupa yður bækur og lilöð
til dægrastyttingar í inflúens^
unni, lijá Bókaverslun Sigfúsar
Eymundssonar. (12
Nokkrír notaðir ofnar tií
sölu. Ingólfsstræti 3. (70'
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN
Gull á hafsbotni.
in við hana. Þar næst tekur við graslendi, er liall-
ar jafnt ofan að mölinni og sandinum í fjörunni.
þá fundum við bátinn, svo sem Malcolm hafði skýrt
frá.
Eg skoðaði bátinn þegar i stað, en í honum fansl
engin bending um það, hvar Madeleine væri að
finna. Áramar voru þar, og dálítið af sandi í bolni
bátsins — ekkert annað.
Mér félst algerlega hugur. Ilvert höfðu þeir Spilce
og Kalli farið ineð Madeleine? Eg hafði enga hug-
myrtd um það, og ekkert við að styðjast. Á gras-
lendinu fyrir ofan fjöruna var ógerningur að finna
spor þeirra, þó að sor sæust i sandinum. Eg laut
niður og atliugaði sporin í sandinum og reyndi
að hugsa mér, að eg sæi spor Madeleine þar. En
eg hafði enga vissu um það.
Hr. Campbell settist á stein, tók ofan hjálm sinn
og klóraði sér í liöfðinu.
„Ef eg væri leynilögregluþjónn i skáldsögu,“ sagði
hann liátíðlegur í máli, „þá mundi eg tilkynna það
með inikJum fjálgleik, að liér liefði þrír menn ver-
ið á ferð.-H'amish — Iivert heldurðu' að þau hafi
farið Jiéðan ?“
Fiskimaðurinn, sem Iiann ávarpaði þannig, tók
liendurnar í vösunum og leil um öxl yfir til Ben
Criacli.
„Væri eg lirafn, mundi eg liafa valið þessa leið-
ina.“
„Já, en nú ertu ekki Iirafn, Jieldur liara þöngul-
liaus,“ sagði hr. Campbell dálítið hvass i máli. „Og
hvað mundirðu gera, ef þú værir íotgangandi ?
Reyndu nú að brjóta heilann um þetta. Þú átt að
aðstoða réttvísina og lir. Maclean.“
„Það liggur vegur þarna upp eftir — ójá,“ sagði
Hamish og kýmdi við áminningunni. „Þér getið
séð h'ann liéðan sem við stöndum, hr. Campbell
og hr, Maclean. Hann liggur um öxlina á Ben Cri-
ach og kemur saman við götuna, sem liggur á veg-
inn til Tobermory.“
Ilr. Campbell smelli hjálminum á höfuð sér.
„Komið þið piltar,“ sagði hann í skipunarrómi.
„Sá ykkar, sem fyrstur kernur auga á þau, fær heilt
pund af besta, tóbaki sem fáanlegt er.“
Við fundum veg þanft, er Hamisli liafði bent á,
og fylgdum honum alla leið yfir lægri brúnina á
Bcn Críach. Landið var eyðilegt mjög. Eg var altaf
að líta í kringum mig, ef vera kynni, að eg kæmi
aiiga á eitthvað kvikt í nánd. En það var árang-
ursláust.
Þegar við konnun að akveginum, sem liggur yfir
á Tobermoryveginn, stöldruðum við við, lil þess að
blása mæðinni.
„Það hefði mátt vonast til þess,“ sagði Campbell
raunalegur á svip, „að þeir hefði látið eftir sig
einhver spor eða merki um, að þeir liefði verið
hér. T. d. vindlinga-ösku eða þvi um likt. En það'
er alveg brent fyrir það. Það eru þess háttar hlut-
- ir, sem leynilögreglan í borgunum notar sér, með
aðstoð smásjánna og annara tækja. Mér þætli gam-
an að sjá, hvað þeir gæti gert liérna. *— Bölvaðir
fantarnir!“
Eg ímyndaði mér augnablik, að eg væri leyni-
lögreglan, sem liann væri að tala um, en þá hóf
liann máls á ný:
„En við skulum ná þeim og snúa þá úr hálsliðn-
um, þrátt fyrir þetta. Henging er of góður dauð-
dagi handa svona kvikindum. A'ð hugsa sér, að
þeir liafa verið að draga unga stúlku með sér,
eftir þvílíkum vegi sem þessum.“
„Já,“ sagði eg stuttur i spuna. „Við skulum hraða
okkur.“
Eg hafði aðeins gengið eitt spor, er cg stóð við,-
Við fætur mér lá hvítur, sléttur steinn og á lion-
um var glögt far eða spor eftir moldugan togléð-
urshæl. Sporið var of smátt til þess, að það gætí
verið eftir karhnanns-hæl.