Vísir - 11.04.1931, Blaðsíða 3
VISIR
kaupa fisk, enskur böthvörpungur
(óg 'bo.tn-vörpungur'. Arna Bö'Övars-
:sonar.
□ EDDA 59314147 — Fyrirl.
Atkvgr.
Messur á morgun. .
I dómkirkjunni kl. 11, síra
Friðrik Hallgrimsson. Ivl. 5 síra
Bjami Jónsosn.
t fríkirkjunni kl. 2, síra Árni
Sigurðsson.
I Landakotskirkju: Hániessa
kl. 9 árd. og kl. 6 siðd. guðs-
fjjónusta með predikun.
í spitalakirkjunni í Hafnar-
firði: Hámessa kb 9 árd. og kl.
8 síðd. guðsþjónusta með pre-
dikun.
í fríkirkjunni í Hafnarfirði:
Kveldsöngur kl. 8V2 síðd. Síra
Jón Auðuns.
"Veðrið í morgun.
Híti í Reykjavík -fr o st.. ísafirði
-4- o. Akureyri 1, SeyÖisíirtSi 6,
Vestmannaeyjum o. Stykkishólmi
-4- 5, Raufarhöfn o, Hólum í
Hornafirði 6, Grindavík -4- x,
(skeyti vantar írá Blönduósi, Hjatl-
1andi og Tynemouth), Færeyjunx 9,
Julíanehaah -4- x 2, Angmagsalik -4-
6, Jan Mayen -4- o. Kaupmanna-
"höfn 3 st. — Mestur liiti hér í gær
5 st.. minstur -4- 2 st. Úrkoma 3,1
tnm. -— Alldjup lægðarmiðja yfir
Austurlaudi, hreyfist hratt í norð-
austur. Lágþrýstisvæði yfir Græn-
Jandshafi og fyrir suðvestan land.
•— Horfur: Suðvesturland, Faxa-
f!ói: Kaldi eða stinnings kaldi á
suðvestan. Snjóél. Breiðafjörður,
Vestfirðir: Breytileg átt í dag. en
■suðvestan kaldi eða snjóél í nótt.
Norðurland: Norðan átt, sumstað-
íir allhvass og snjókoma í dag, en
batnar í nótt. Norðausturland:
Norðan eða norðvestan átt. all-
hvasst eða hvasst með snjókomu
■eða slyddu í dag, en batnar i nótt.
Austfirðir. suðausturland: Vestan
átt, allhvass frarn eftir deginum.
Léttskýjað.
■Trúlofun.
Nýlega hafa opinberað trúlof-
tm sina Sesselja Jóhannesdótlir,
“Sólvallagötu 7 A og Hans Ghris-
tiansen sjómaður.
Rannsókn.
Lögreglustjóri hefir skipað 3
jnenn, Einar Árnórsson prófess-
or, Stefán Jóh. Stefánsson lxrm.
og Þórð Eyjólfsson lögfræðing,
til þess að rannsaka utan réttar
tstjórn íslandsbanka á undan-
förnum árum. Væntanlega er
þetta gert að tilhlutun land-
stjórnai'innar.
Vísindalegar nýjungar.
Fyrirlestur próf. dr. Ágústs
H. Bjarnason um vísindalegar
mýjungar er í dag kl. 6 i há-
-skólanum-
Skemtilegt rit.
Þeir vísindamennirnir Guðm. G.
Bárðarson prófessor og Árni Frið-
riksson magister hafa ráðist í að
gefa út alþýðlegt fræðslurit í nátt-
úrufræði, sem heitir „Náttúrufræð-
íngurinn", Tvö hlöð eru kornin út
af ])ví, og eru bæði fróðleg, en ]xó
■•er siðara heftið fjölbreyttara að efni
■og skenxtilegra en hið fyrra, að því
ólöstuðu. Vildi eg hvetja alla fróð-
leiksfúsa menn til þess að lesa rit
þeíta, og er það spá mín, að því
muni vel vegna, ef næstu hlöð verða
jafnskemtileg eins og þetta síðara.
'Meðal ágætra greina má nefna:
f,Um húskap náttúrunnar i sjónum"
(upphafj eftir Á. F., „Vatna-
skrimsli í Noregi" eftir G. G. B„
senx skýrir skemtilega skrimslasög-
ur þær, sem oft koma upp hér á
landi, og síðast í haust. —- Fremst
í ritinu er mjög falleg mvnd af
steingerðu trjálaufi (hlyn), sem
fanst hjá Tröllatungu í Steingríms-
firði, og loks eru skemtilegar snxá-
greinir um ýmisleg náttúrufræðileg
ef-ni. Vonandi er að riti þessu verði
svo vel tekið, að útgefendurnir sjái
sér fært að halda áfram að gefa
það út. S.
Nína Sæmundsson,
myndhöggvari, hefir dvalið í
New York að undanförnu. Hefir
henni verið falið að gera stand-
inynd fyrir Waldorf-Astoria g'isti-
húsið nýja við Park Avenue í New
York. Verður myndin, sem er 8 fet
ensk og 6 þuml. á hæð, sett yfir að-
alinngang gistihússins. Listaverk
þetta er táknmynd: Nakin, vængj-
uð vera sem stendur á hnetti, með
úthreiddum upplyftum vængjum.
Kallar Nína Sæmundsson listaverk
sitt, sem á að tákna þann anda til
dáða, sem ríkjandi er með Vestur-
heimsmönnum. „The Spirit of
Achievement“. — Mynd af lista-
konunni og listaverkinu er hirt í
Löghergi. (FB.).
Mr. Walter Austmann,
vestur-íslenskur leikari. sonur
Snjólfs J. Austmann, sern alkunnur
er meðal Vestur-íslendinga, hefir
fengið ágæta stöðu sem leikari í
kvikmyndabænum Hollywood í
Californíu. Fór hann þangað i hyrj-
un marsmánaðar, að því er fregn i
Löghergi hermir. (FB.).
Gamla Bíó
sýnir í kveld i fyrsta sinn
kvikmyndina „Kona Stephans
Trombolts tónskálds“, sem gerð
er eftir skáldsögu eftir þýska
ritliöfundinn Hermann Suder-
mann. Er þetta talmynd i tl
þáttum.
Nýja Bíó
sýnir í fyrsta sinn i kveid
kvikmvndina „Æfintýranóttín“.
Er það amerísk talmynd í 8
þáttum. — Aðalhlutverk leikur
Dolores Costello.
Snjó hefir fest
liér í nótt og var alhvit jörð
í morgun. Hellisheiði var sögð
ófær bifreiðum í gær.
Súðin
fór í hringferð austur um
land i gærkveldi, með fjölda
farþega.
Hilmir
kom af veiðum i morgun.
Enskur línuveiðari
kom í gær til þess að fó sér
kol- Hann er á leið til Grænlands
og ætlar ]>ar að stunda kola-
veiðar.
Lóuhópur
sást á flugi liér við höfnina
í morgun.
Kúban-kósakkarnir
syngja i kveld. Ef nokkuð
verður óselt af aðgm., fást þeir
við innganginn i Gamla Bíó frá
kl. 6.
Sjómannastofan.
Samkomur á morgun sunnu-
dag 11. í Varðarhúsinu: Kl. 6
e. lx- islensk samkoma, þrír
ræðumenn. Kl. 8]/2 e. h. skan-
dinavisk samlcoma. Alfred Pet-
ersen talar. — Allir lijartanlega
velkomnir.
Hjálpræðisherínn.
Samkomur á morgun. Heig-
unarsamkoma kh 11 árdegis.
Sunnudagaskóli, kl. 2 síðd. Úti-
hljómleikar á Lækjartorgi kl.
4 siðd. ef veður leyfir, annars i
samkomusalnum. Bárnasam-
koma kl. 6 síðd. Hjálpræðissam-
koma kl. 8 siðd. Systurnar frú
majór Sólveig Larsen-Balle og
frú feltmajór Laufey Harlvk
stjórna. Hornaflokkurinn og
strengjasveitin stjórna. — Allir
velkomnir.
Mr. Bolt frá Edinburgh
flytur erindi um lækningar,
ljósa og lita, i þingsalnum í
Hafnarfirði sunnudaginn 12. þ.
m. — Samkoman byrjar kl. 2V2
e. h.
Skátafélagið Ernir
biður að minna félaga sína á
æfingu í gamla barnaskólanum
i fyrramálið kl. 11,15.
Glímufél. Ármann.
Fimleikaæfingar á morgun
verða þannig: I Mentaskólanum
kl. 10 árd. 2. og 3. flokkur karla
(samæfing). Kl. 11 árd. 1- fl.
karla i Bamaskólanum. Kl. 3
siðd. 1. fl. kvenna. Kl. 4 siðd. 2.
fl. kvenna. Kl. 5 síðd. samæfing
hjá öðrum kvennaflokkum. —
Hlaupaæfing verður kl. 11 árd.
frá Mentaskólanum.
Knattspyrnufélag Reykjavíkur.
Æfing' í fyrramálið kl. 10 í
nýja-barnaskólanum fyrir 1../2.
og 3. flokk karla. — En í
íþróttahúsi K. R. verða æfingar
kvenna, kl. 1—2 fyrir telpur,
kl. 2-3 — 2. og 3. flokk kvenna,
kl. 3-4 — 1. flokk kvenna, og í
barnaskólanum við Fríkirkju-
veg verður æfing fyrir drengi
úr 4. og 5. flokki. — Mætið vel
og stundvislega.
Útvarpið í dajj.
Kl. 18,13: Erindi í Háskólan-
um (Ágúst H. Bjarnason, próf.).
— Kl. 19,05: Þingfréttir. — Kl.
19,25: Hljómleikar (grannnófón).
— Kl. 19,30: Veðurfregnir. — Kl.
19.35 : Barnasögur (Gunnar Magn-
ússon, kennari). — Kl. 19,50:
Hljómleikar (Þórh. Árnason, cello,
Emil Thoroddsen, slagharpa) :
Tschajkowsky: Andante cantabile.
Ole Bull: A dagsólar horfi eg. —
Kl. 20: Þýskukensla í 2. flokki
(W. Mohr). — Kl. 20,20: Hljórn-
leikar (Þórh. Árnason, cello, Emil
Thoroddsen, slagharpa): Fr. Schu-
hert: Ave Maria; D. v. Goens:
Scherzo. — Kl. 20,30: Erindi: Um
eldgos, II. (Guðm. G. Bárðarson,
náttúrufræðingur). — Kl. 20,50:
Óákveðið. — Kl. 21 : Fréttir. —
Kl. 21.20: Erindi um viðtækja-
verslunina (Sveinn Ingvarsson, for-
stjóri). -— Kl. 21,40: Dansmúskik.
Gjöf
til bágstadda lieimilisins (sbr.
hjálpárbeiðni í gær), afli- Vísi:
5 kr. frá Löllu.
Áheit á Strandarkirkju,
afh. Vísi: 5 kr. (gamalt áheit)
frá H. B„ 5 kr. frá N. N„ 10 kr.
frá N. N., 2 kr. frá A, X., 20 kr.
frá N. N- i Hafnarfirði.
Hitt og þetta.
Talmyndirnar.
Það er síður en svo, eins og
margir ætla, að næstum öll tal-
myndaframleiðsla í heiminum
sé í höndiun Bandaríkjamanna
og Þjóðverja, Það er raunar
eðlilegt, að menn haldi þetta,
þvi flestar talmvndir sem hing-
að koma eru gcrðar af Banda-
ríkjamönnum eða Þjóðverjum.
Nú sem stendur eru að minsta
kosti 12 talmynda-studíó í Lon-
don og í nánd við London. Þar
JAFFA.
PERUR.
PLÓMUR.
BANANAR.
SÍTRÓNUR.
Nýkomið.
tWeimut
■ 111 ■■ 1 ii
S. og G hittast á gfltn.
G.: Jæja, S„ livernig gengur
þér nú. Eg sé að þú ert farinn
að reykja aftur. Fórstu að mín-
um ráðum?
S.: Já, eg fékk mér eina „Ni-
coton“ sprautu, bara svona til
reynslu, og nú er eg farinn að
revkja alveg eins og áður — og
það virðist ekki gera mér neitt.
G.: Jæja, svo ráð mitt var
ekki svo vitlaust?
S.: Nei, öðru nær. Eg hélt
fyrst, að þetta „Nicoton“ væri
bara eitt af þessum „humbug“-
meðulum, en nú er eg orðinn
sannfærður um, að það gerir þó
eitthvert gagn. Eg er stórhrifinn
af því og skal ávalt nota það
framvegis. Það einkennilega er,
að eg verð ekki var við að það
dragi neitt úr nautninni. — En
heldurðu nú annars ekki, að það
sé bara „trúin“, sem hjálpar
mér? Heldurðu að ]ia'ð evði
eitrinu ?
G.: Nei, það er meira en „trú-
in“. Það er visindalega rann-
sakað, að „Nicoton“ evðir 60—
90% af eitri því, sem venjulega
er í tóbaksreyk.
S.: Eg skal nú segja þér; eg
reyndi i gær að blása revknum
gegn um hvítan kliit og það
kom hrúnn blettur í klútinn al-
veg jáfnt hvort eg notaði „Ni-
coton“ eða ekki.
G.: Það er ekkerl að marka.
Brúni bletturinn kemur af
tjöruefnum, sem eru i reykn-
um, og eru ósaknæm, en sjálft
er nikotínið, eins og þú ættir
að vita, litarlaust.
S.: Þetta er alveg satt; það at-
hugaði eg ekki. Nú er eg ekki
lengur í neinum, vafa um ágæti
„Nicotonsins“, og skal mæla
með því við reykingamenn. —
Eg lield ekki að það sé ofsög-
um sagt, að þú hafir hjargað
lífi mínu. — Bless!
eru framleiddar talmynclir, sem
kosta þetta frá 15 þús. sterlings-
pund og upp í 50 þús. sterlings-
pund hver. Leikstjórar þeir,
sem ráðnir eru, fá alt að því 3
]nis. sterlingspund ú talmynd.
Og leikararnir og leikkkonurn-
ar, sem aðalhlutverkin leika, fá
frá 300 og' upp í 500 sterling's-
pund á viku i kaup. — Þá er og
lögð nokkur stund á talmvnda-
gerð í Frakklandi og eiga
amerísk kvikmyndafélög lilut
að um framleiðslu súmra
þeirra. Það eru margir liér, sem
mundu meta það að verðleik-
um, ef hér væri sýndar frakk-
neskar talmyndir endrúm og
eins, þvi hér eru allmargir, sem
kunna nokkur skil á frakk-
neskri tungu. Kvikmyndahúsin
þurfa ekki að óltast, að frakk-
neskar talmyndir verði síður
sóttar en aðrar. Það er komið í
Ijós, að þær talmyndir, sem
fæstir skilja (þýskar) eru einna
best sóttar, en þær, sem ætla
mætti að flestir skildi (á
sænsku) langtum minna. Virð-
ígmillBllliHliHHIISIimillllIHIHM
Orgel
ER FEBMINGARGJÖF
sem endist æfilangt-
Fást gegn mánaðarafborgunum.
ENGIN ÚTBORGUN.
AF ÞVÍ AÐ VIÐ TREYSTUM
BÆÐI ORGELINU OG KAUP-
ENDUNUM AÐ REYNAST
VEL.
SNÚIÐ YÐUR í
Aðalbúð
Hfjððfærahfissins
EÐA ÚTIBUlÐ,
Laugaveg 38, — og
I HAFNARFIRÐI TIL
VALDEMARS LONG.
iihiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
Gljábrensla.
Látið gljábrenna reiðhjól
yðar fyrir vorið. — Hvert
reiðhjól gljábrent þrisvar,
og vinnan framkvæmd af
færustu mönnum í þessari
grein hér á landi.
Fálkinn.
B ðknnardr oparnir
i þessum um-'
búðum, eru
þektastir um
allt land fyrir
gæði og einnig
fyrir að vera
þeir drýgstu. —
Húsmæður!
Biðjið ávalt um
bökunardropa
frá
H.f. Efnagerð Reykjavíkur
K. F. U. M.
á morgun:
Kl. 10 árd. Sunnudagaskólinn.
Kl. iy2 síðd. Y. D. (drengir 10
—14 óra). Áríðandi að sveit-
irnar fjölmenni.
Kl. 3 siðd. V. D. (drengir 7—10
ára gamlir).
Kl. 6 siðd. Ungmeyjafundur í
K. F. U. K.
Kl. 8V2 síðd. U. D. (piltar 14—
18 ára). Allir fermingar-
drengir vorsins velkomnir.
ist þvi svo, að í augum almenn-
ings sé það liin þögla list, sem
hefir meiri áhrif, en orðsins
list, þegar um talmyndir er að
ræða, því það er engum vafa
undirorpið, að þýsku talmynd-
irnar eru hest gerðar og leikn-
ar allra kvikmvnda sem hér
hafa sést. Hinsvegar her eiunig
á það að líla, að leiklist Frakka
er á háu stigi og að málanem-
endur hafa allmikið gagn af að
hlusta á talmvndir.