Vísir - 15.04.1931, Síða 3
y isih
jHI!i!ll!t!liill!!iii!!!lfHI!I!IIKIIlin
| Njtísku I
(dðmnskórf
leknir upp í dag.
Mikil verölækkun. S
SKÓVERSLUN
| Stefán Gnnnarsson I
Austurstræti 12.
!H!ltl!!lii!ll!llli!S!!!!E§!!Si!§9!!lIi
■fundurinn kl. 5, því a'ð menn
stóðu i hundraðatali fyrir ut-
•an húsið, safnaðist enn samau
svo mikill mannfjöldi fyrir
■sunnan liúsið, að enn var skot-
íð á fundi. Stóð sá fundur
fram á nótt og var enn lýst ein-
róma vantrausti á ríkisstjórn-
inni.
Einn Framsóknarmaður
réyndi að verja gerðir stjórn-
arinnar á þessum fundi, en
hætti við lítinn orðstír. Hafði
þó l’undarstjóri sérstaklega
beðið menn að gefa lionum
gott hljóð, sem hann og fékk.
Auk þessara funda, sem hér
hafa verið taldir, voru fundir
haldnir í Brattagötu og Good-
templarahúsinu, að tilhlutun
jafnaðarmanna. Voru þeir af-
ar fjölmennir og eindregnir
gegn stjórninni.
*
Herbert M. Siemundsson
prentsmiðjueigandi,
andaðist siðdegis i gær á lieim-
ili sínu. Hann féklc slag í svefni
aðfaranótt mánudags og vakn-
aði aldrei tií meðvitundar
aftur.
Hann var fæddur 20. júni
1883, sonur Sigmundar prent-
smiðjueiganda Guðmundsson-
ar, og lærði prentiðn í tsafold-
arprentsmiðju og vann ])ar
lengi siðan og var þar yfir-
prentari og siðast fram-
kvæmdastjóri árin 1916—1929.
En þá kevpti hann bókaforlag
Sigurðar Kristjánssonar og setti
þar jafnframt á stofn prent-
smiðju.
Hann var kvæntur Ólafiu
Árnadóttur, og lifir hún mann
sinn ásamt fimm börnum
þeirra.
Herbert var góður maður og
mjög vinsæll, glaður i viðmóti,
duglegur og stjórnsamur i
starfi sinu, og er hið óvænta
fráfall lians mikið sorgarefni
öllum þeim, sem kynni höfðu
af honum.
Sfmskeyti
Madrid 14. apríl.
United Press. - FB.
Jarðarför
síra Kjartans prófasts Helga-
sonar fór fram í gær að við-
stöddu miklu fjölmenni. Síra
Ásmundur dócent Guðmunds-
son flutti húskveðju, en dr. Jón
Helgason bisku]) líkræðu í dóm-
kirkjunni.
Maranon liefir upplýst, að
konungurinn fclst á að afsala
sér völdunum, gegn þeim skil-
yrðum, að liann fái að fara
frá Spáni og sér verði sýnd full
virðingarmerki við brottför-
ina, ennfremur að sér verði
leyft að ákveða tímann, og að
herlið sýni sér virðingar-
merki. Samkvæmt opinberum
heimildum fara konungslijón-
in til Parísar í kveld í einka-
lest. — Konungur mun fvrst
hafa boðisl til þess að afsala
sér völdum í hendur prinsin-
um af Asturias, syni sínum, en
Zamora svaraði, að lýðveldis-
sinnar sætti sig ekki við minna
en algert valdaafsal.
Síðar: Stjórnin liefir lýst
yfir því, að lýðveldið, annað
spánska lýðveldið sé stofnað.
Boðskapurinn er nákvæmlega
eins orðaður og boðskapur lýð-
veldissinna um stofnun lýð-
-veldis í deseniber, aðeins dag-
•setningunni breytt.
N.R.P., 14. apríl. FB.
Norskur rithöfundur látinn.
Soplius Aars, rithöfundur
lést á laugardag.
(Sophus Christian Munk
Aars var .f, 1841. Af bókum
hans má nefna: „I Skoven“,
j,Skovinteriör“, „Hcr og der“,
„Onkel Jakob og andre dyr“,
„Fortællinger om jagl og
fiske“.).
Sjóðþurð.
Alfred Sivertsen fyrv. skrif-
•stofustj óri Tromsöfirma nokk-
urs, hefir verið handtekinn fyr-
ir sjóðþurð, sem nemur
220,000 krónum.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík 3 st., ísafirði
4, Akureyri 4, Seyðisfirði 4, Vest-
mannaeyjum 4, Stykkishólmi 3,
Blönduósi 5, Hólum í Hornafirði
6, (skeyti vantar frá Raufarhöfn,
Grindavík og Kaupmannahöf n),
Færeyjum 5, Julianehaab -f- 8,
Angmagsalik — 1, Jan Mayen V- 6,
Hjaltlandi 4, Tynemouth 8 st. —
Mestur hiti hér í gær 5 st., minst-
ur o st. — Úrkoma 9 mm. — LægÖ-
armiðjan yfir norðanverðu Græn-
landshafi á hreyfingu norðaustur
eftir. — Horfur: Suðvesturland,
Faxaflói, Breiðafjörður, Vestfirð-
ir: Suðvestan kaldi. Skúrir og él.
Norðurland: Sunnan og suðvestan
gola. Viðast úrkomulaust. Norð-
austurland, Austfirðir: Allhvass
suðaustan og rigning fyrst, en síð-
an suðvestan kaldi og úrkomulaust.
Suðausturland : Vestan kaldi. Sutn-
staðar skúrir.
Vísir
er sex síður í dag.
Trúlofun.
Nýlega hafa birt trúlofun sína
imgfrú Halldóra Bjarnadóttir
fró Stykkishólmi og Lárus Evj-
ólfsson frá Flatey á Breiðafirði.
Þenna dag’
— 15. apríl, fyrir 16 árum
kom Gullfoss íyrsta sinni til
Islands, og þennan dag, árið
1854, fengu Islendingar versl-
unarfrelsi.
Kveldskemtun
Ivvenn adei lda r Slysavarn arfé-
lags Islands er í kveld kl.' 8J4
í Iðnó. — Auk þeirra skemti-
alriða, sem auglýst voru í gær
hafa listamennirnir Giovanni
Otto, Tiranova og Romanoff,
lofað að sýna listir sínar, vegna
hins góða málefnis. Vegna þess,
að þetta varð ekki tekið með í
auglýsinguna í gær, eru menn
hér með beðnir að atlmga þenn-
an viðaulca við dagskrána. Er
vonandi, að bæjarbúar sýni
starfi Kvennadeildar Slysavarn-
arfélagsins þann skilning og
samúð, að þeir sæki þessa
■skemtun, sem hún hefir stofn-
að til, því að hér er gott mál-
efni að styrkja og góð skemtun
í boði. — Skuggamyndir verða
sýndar af björgun og björgun-
artækjum.
Vínverslun ríkisins
er lokuð i dag.
Sérstaka deild
mun verslunarmannafélagið
Merkúr ælla að stofna fyrir
sendisveina. Verður stofnfund-
ur deildarinnar lialdinn í kveld
kl. 9 i K. R. húsinu, uppi, og
eru allir sendisveinar beðnir að
mæta vel og stundvislega.
Happdrætti K. R.
I dag og á morgun eru síð-
ustu forvöð að ná sér í liapp-
drættismiða, því að dregið
verður annað kvöld. Miðar eru
seldir i verslun Haraldar Árna-
sonar. — Einnig óskar stjórn
K. R. að fá nokkra duglega
söludrengi til að selja happ-
drættismiða i kvöld og á morg-
un. Eiga þeir að mæta kl. 7
í kvöld á skrifstofu K. R. Há
sölulaun.
Ármenningar þeir,
sem ætla að róa á kappróðra-
bátum félagsins i sumar, eru
ámintir um að mæta á innan-
hússæfingum þeim, sem eftir
eru, vegna þess að æfing á
róðrarvélunum, með tilsögn, er
nauðsynleg lil þcss að geta ró-
ið á kappróðrabátunum. Æf-
ingar eru á mánud. kl. 8—9,
og fimtud. kl. 9—10, í menta-
skólanum. Mætið vel og rétt-
stundis.
Súðin
var á Ivópaskeri í dag.
Esja
var á Fáskrúðsfirði í morgun.
Af veiðum
komu síðdegis í gær: Barð-
inn, Geir, Gylfi, Skúli fógeti og
Belgaum. Auk þess margir línu-
bátar og færeysk fiskiskip.
Enskur botnvörpungur
kom i gær með meiddan
mann.
Guðspekifélagið.
Mr. Bolt frá Edinborg flytur
erindi í húsi félagsins miðviku-
dag 15. þ. m. kl. 8V2 síðd. um
hinn dásamlega heim vorn.
Ægir
kom í nótt með 3 enska botn-
vörpunga fyrir landhelgisbrot.
Réttarhöld liófust kl. 2 i dag.
Gjafir
lil bágstadda lieimilisins, afh.
Vísi: 10 kr. frá N. N., 25 kr. frá
N. N„ 3 kr. frá Þ. K.
Gjöf
til Hallgrimskirkju i Saurbæ,
afh. Visi: 5 kr. frá Sigríði.
Útvarpið í dag.
Kt. 19,05 : Þingfréttir. — 19,25 :
Hljómleikar (Grammófón). —
19,30: Veðurfregnir. — 19,35:
Barnasögur (frk. Sigrún Ögmunds-
dóttir). — 19,50: Hljómleikar
(Þór. GuÖmundsson, fiðla, E. Thor
oddsen, slagharpa): Schubert:
Sonatina í a-moll, ,op. 137: Allegro
moderato. Menuettó. — 20,00:
Enskukensla í 1. flokki (Anna
Bjarnadóttir, kennari). — 20,20:
Hljómleikar (Þór. GuÖmundsson,
fiÖla, E. Thoroddsen, slagharpa) :
Hdasti
útS0lnd.a0iii*
- er í dage —
Notid tækifæpið!
Veipuhúsíð,
Hinir margeftirspurðu regn- og rykfrakkar eru komnir aft-
ur i mjög miklu úrvali. Nýir litir og nýtt verð. Karlmanns- og
drengja-buxur i miklu úrvali.
Athugið verð og vörugæði.
Andrés Andrésson,
Laugavegi 3.
Pill MATSTOFAR P% Smnrt brauö nestt etc. sent heim. U Teltingar. Aðalstrætl 9.
Scubert: Sonatina (framh.). An-
dante. Allegro. — 20,30: Erindi:
Jón Sigurðsson og skáldskapur ís-
lendinga (dr. Páll E. Ólason). —
20,50: ÓákveÖiÖ. — 21,00: Fréttir.
— 21,20—25: Erindi: Stjórnmál
Þýskalands (W. Mohr).
„Gullfoss"
fer á föstudagskveld 17. apríl
klukkan 8 til Leith og Kaup-
mannahafnar.
Farseðlar óskast sóltir fvrir
liádegi sama dag.
Frð Vestur-lslenflinoum.
Mannalát.
Látinn er 9. mars í Almenna
sjúkrahú^inu í Winnipeg frú
Anna Sigriður Frederickson, —
kona Jóhannesar F. Frederick-
son kaupmanns i Glenboro,
Manitoba. Hún var 34 ára að
aldri.
Þ. 18. febr. andaðist í Krist-
nesi, Sask., frú Jólianna Þor-
steinsdóttir. Maður liennar,
Arni Anderson, lifir liana og 6
börn þeirra.
Látin er í Ivristnesi, Sask. frú
Brynhildur Vatnsdal, kona
Björns Vatnsdals. Var liún um
fertugt.
Látinn er í Chicago Svein-
björn Árnason trésmiður. Hann
var verkstjóri í verksmiðju C.
H. Thordarson rafmagnsfræð-
ings. Sveinbjörn var fæddur
1869 að Hrísum í Flólcadal í
Borgarfjarðarsýslu. Kona hans
heitir Maria Bjarnadóttir Step-
lienson og eignuðust þau 7 börn.
Sveinbjörn var í canadiska
hernum í heimsstyrjöldinni.
Látinn er í Elfros, Sask.,
Marteinn Friðrik Sveinsson, 41
árs að aldri. Hann var fæddur í
Dakota, en var íslenskur í báð-
ar ættir. Var sonur Sveins Guð-
bjarts Friðrikssonar og Henri-
ettu Marteinsdóttur Clacssen.
Látinri er i Winnipeg Svein-
björn Kjartansson, 48 ára að
aldri.
Látinn er í Víðisbygð, Mani-
loba, frú Þorbjörg Davíðsdóttir,
f. 1871 á Kötlustöðum i Vatns-
dal. Fluttist vestur um haf 1913.
(FB).
Hitt og þetta.
Ný Fordverksmiðja.
Ný verksmiðja, sem Ford
Motor Co. á, er nálægt því full-
gerð í Dagenliam á Englandi.
Reypti félagið 500 ekrur mýrar-
lands við Thames og hófst
smíði verksmiðjubygginganna í
maí 1929. iþegar verksmiðjan
tekur til starfa fá 15,000 menn
og könur þar atvinnu. Alt efni,
sem notað var til smíðinnar,
var breskt. Gólfflötur aðalbygg-
ingarinnar cr yfir miljón fer-
hyrningsfet ensk. Ársfram-
leiðsla verksmiðjunnar verður
alt að 200,000 bifreiðir.
15. alþjóða landbúnaðarþingið
verður haldið i Prag þ. 5.
júní. Sækja þangað landbúnað-
arsérfræðingar frá flestum
löndum heims.
Skipasmíðar ítala.
Svo mikil verlc eru fyrir liendi
á lielstu skipasmiðastöðvum
ítala, að næstn tvö ár er fyrir-
sjáanlega enginn hörgull á verk-
efni. Unnið er að skipasmíði
fyrir ítölsku stjórnina, ítölsk
skipafélög og erlend riki og
sldpafélög. Á Odero-skipa-
smiðastöðinni i Genua er smið-
að beitiskipið „Almirante
Brown“ fyrir lýðveldið Argent-
inu. Sönmleiðis voru þar smíð-
aðir tveir fallbyssubátar fyrir
Paraguay. í Ansolda-skipa-
smíðastöðinni skamt frá Gen-
úa, er verið að smíða tvo lorpe-
dóbáta fvrir lýðveldið Tyrk-
land og þrjú kaupskip fyrú*
rússnesku ráðstjórnina. I Spe-
zia skipasmíðastöðinni eru
nærri fullsmíðaðir tveir tundur-