Vísir - 22.10.1931, Page 3
Gengisskráning hér í dag:
•Sterlingspund......kr. 22,15
'Dollar ........... . . . —- 562,00
Danskar, krónur .... -- 124,09
Norskar krónur .... — 124,09
Sænskar krónur . ... — 132,59
Þýsk rikismörk . . . . ■— 131,16
Gyllini .............. — 228,63
Frakkn. frankar ... — 22,34
Svissn. frankar .... — 110,75
Belgur ............... — 78,61
Pésetar ........... — 50,57
Lírur ................ 29,41
Tékkn. krónur......... - 16,94
Kýja Bíó
sýnir þessi kveldin stórfræga
liljómmynd, sem heitir ..Lokkandi
markmih", og lýsir hún ferli söng-
vara eins til frægðar og auös.
Þaö hefir afla‘5 mynd þessari
mestra vinsælda, a'ð frægi þýski
•söngvarinn Richard Tauber syng-
ur aðalhlutverkið í myndinni;
þykir hann nú bera) af öllum
•söngvurum heims og hefir m. a.
sungið í London í sumar fyrir
hærri laun en nokkrum söngvara
liafa verið greidd fyr e'Sa sí'ðar í
heimsborginni. Sýnir myndin
•songkunnáttu Taubqrs frá ýms-
um hli'Sum og hvort heldur hann
raular vísu fyrir munni sér, syng-
ur í kirkju eða fer meö flokka úr
■söngleiknum „Martha“ er snildar-
'bragurinn ávalt sá sami. Myndin
.gerist að nokkru leyti í Bayem og
•eru útimyndirnar þaðan ljómandi
fallegar. S.
Esperantónámskeiðið.
Ekki má miklu muna til þess
að ekki komist fleiri að á hinu
fyrirhugaða Esperanto-náskéiðii,
sem hefst annað kveld kl. 8 í
Gamla barnaskólanum. Þó mun
verða unt að hliðra til enn þá íyr-
ir 'örfáum. Þeir sem vilja sæta
þessu tækifæri tali við Þórlierg
Þórðarson Stýrimannastíg g ld.
8—9 í kveld eða í sínia 33. Eins
.og lesendum Vísi er kunnugt, ryð-
ur kensluaðferð sú, er notuð verð-
ur á námskeiðinu, sér mjög til
rúms. Líkist námið frekar leik en
-venjulegu málanámi og hefir þó
hvervetna borið ágætan árangur,
Það þarf varla að benda mönnum
:á, hve.rsu einstakt það er að geta
lært tungumál fyrir einar 15
krónur. X.
Misprentast
hefir í blaðinu í gær í fyrsta
ærindi í kvæði um Svembjörn
Björnsson skáld, og átti það að
vera þannig;
„Margur reynir þunga þraut
Þjáir meina drunginn.
Skáldið Sveinbjörn hníga hlaut,
Heljar fleini stunginn.“
Tungumálanámskeið Merkurs
í þýsku og enslcu, mun hefjast i
næstu viku. Mun verða kent í
tveim deildum, bæði fyrir þá sem
ekkert hafa lært í þessum mál-
um og eins fyrir þá, sem
lengra eru komnir. — Verður kent
3 stundir á viku í hverju tungu-
jnáli í hvorri deild fyrir sig. —
Kennarar verða þeir Halldór
'Dungal og Eirjkur Benediktz. —
Á öðrum staö hér í blaðinu er
nugl. um námskeiðið og ættu þeir,
sem vilja læra þessi mál að gefa
sig fram á skrifstofu Merkurs
annað kveld kl. 8, og munu þar
verða gefnar allar nánari uppl.
um tilhögun námskeiðanna.
Iðnskólinn
heldur fyrstu dansskemtun
sína n.k. laugardag (fyrsta vetr-
ardag) í K. R. húsinu kl. 9 e. h.
Xönnemar sæki aðgöngumiða
sína ekki seinna en á laugar-
dag kl. 3—8 e. h. í Iðnskólann.
Iðnnemar fjölmennið! I.
;Suðurland
fór til Boi'garness í morgun.
Ólafur
kóm frá Englandi í gær.
M.s. Dronning Alexandrine
fór til útlanda í gær.
Baldur
kom frá Englandi í gær.
Gylfi
fór á veiðar í gær.
Súðin
kom úr strandferð í nrorgun.
ísfiskssala.
Andri seldi afla sinn í Þýska-
landi á mánudág fyrir 20.118 rík
ismörk,
Gjafir
til máttlausa -drengsins, afh.
Vísi: 80 (áttátiu) lcr. frá starfs-
mönnum Aðalstöðvarinnar; 20
kr. frá P. L. M., 3 kr. frá Guð-
laugu, 1 kr. frá N. N., 5 kr. frá
S. S., 1 kr. frá Kristínu, 1 kr.
frá Ernu, 1 kr. frá Ólafi, 10 kr.
frá N. N., 10 kr. frá Nonna.
Áheif á Strandarkirkju,
afh. Vísi: 15 kr. frá gömlum
manni, 10 kr. frá ónefndum, 10
kr. (þrjú áheit) frá I. S., 2 kr.
frá S., 10 kr. frá H. og V.
Kristileg samkma
á Njálsgötu 1 kl. 8 í kveld.
Allir velkomnir.
Útvarpið í dag.
10.15 Veðurfregnir.
16,10 Veðurfregnir.
18,45 Upplestur úr frönskum
bókmentum (Pröfessor
Jolivet).
19,05 Þýzka, II. flokkur.
19.30 Veðurfregnir.
19.35 Enska, II. flokkur.
20,00 Klukkusláttur.
Erindi: Aldahvörf í dýra-
ríkinu, III. (Arni Frið-
riksson).
20.30 Fréttir.
21,00 Hljómleikar (Grammó-
fón): Thomas: Eg er álfa-
drotningin Titania, „Mig-
non“. Rossini: Eg heyrði
veika rödd, „Rakarinn í
Sevilla“. Mozart: No so
piu cosa, „Brúðkaup Fi-
garos“. Donizetti: Vitfirr-
ingsscenan úr „Lucia di
Lammermoor“, sungin
af Galli-Curci.
21.15 Upplestur: Þjóðleg fræði
(Jón Pálsson).
21.35 Tschaikowski: Fiðlukon-
cert.
¥iöskifíaaukning
í Bretlandi.
--O—-
Það hefir komið i ljós, síðan
horfið var frá gullinnlausn í
Bretlandi, að hreyling þessi er
smám saman að orsaka heilla-
vænleg áhrif á iðnað og verslun.
Viðskifti og viðskiftatraust er
að aukast. I sumum iðngrein-
um, sem deyfð var í, er nú unn-
ið af kappi, og víða, þar sem
öll vinna lá niðri, þar sem menn
voru aðgerðalausir og vélar
ónotaðar, er einnig unnið nú.
Menn liafa sannfærst um það,
að þjóðin liafi nú hetri aðstöðu
til viðskiftasamkepni við aðrar
þjóðir, og það hefir átt sinn
þátt í að skapa hið nýja við-
skiftafjör. íÞetta á ekki sist við,
þegar rætt er um ástandið í
framleiðslumiðstöðvum, þar
sem aðallega er unnið að fram-
leiðslu lil útflutnings. Horfurn-
ar fyrir ullariðnaðinum hafa
batnað að miklum mun. Og i
haðmullariðnaðinum er húið að
opna margar verksmiðjur, sem
ekld hafði verið unnið í um all-
Iangt skeið. Um skófalnaðar-
KISIR
SemtiSTeiaadeild
Merkúrs.
Fundur í kveld kl. 9 í Góð-
teinplaráhúsinu i Templara-
sundi; :-ér
Áríðandi að allir mæti.
Stjórnin.
Þér sparid
stórFé
árlega ef þér kaupið inn-
lenda kaffihætinn
Verðið er lægra cn á út-
lendiun. Bragðið cr meira
og betra, og svo eflið þér
íslenskan iðhað. - Fæst í
öllum verslunum. —
Esja
fer héðan í strandferð austur
um land þriðjudaginn 27. þ. m.
Vörur afhendist á laugardag og
mánudag.
Svidin
fer liéðan i strandferð vestur
um land fimtudaginn 29. þ. m.
Vörur afliendist á þriðjudag og
miðvikudag.
Ödýrar
fermingargjafir
fást i
Ondula.
og næstu daga fáum við
úrvals dilkakjöt,
svið, mör, lifur og lijörtu.
Hringið í síma 1834.
Alt sent lieim.
KJÖTBtÐIN borg,
Laugaveg 78.
iðnaðinn er svipað að segja.
Framleiðendur í öllum þessum
greinum liafa fengið miklar
vörupantanir frá öðrum lönd-
um. í kolaiðnaðinum er enn
ekki um neina breytingu að
ræða, en menn eru vongóðir
um, að í þeirri grein verði einn-
ig um breytingu til batnaðar að
ræða. Hinsvegar liggur i aug-
mn uppi, að áður en þjóðin
verður aðnjótandi fulls bata i
viðskiftalifinu, verður hún að
gerá sér ljóst, að um skeið er
nauðsynlegt að gera minni kröf-
ur til lífsins en áður. En alt
bendir á, að þjóðin liafi opin
augu fyrir þessari nauðsyn. Og
því má gera sér vonir um, að
Bretum takist að ná aftur sömu
viðskiftaaðstöðu á mörkuðum
heims og þeir áður höfðu.
(Úr blaÖatilk. Bretastjórnar. FB.).
ILieikliiisid
Leikið verður í kveld kl. 8: ý
ímyndunarveikin með listdans.
Aðgöngum. í Iðnó, sími 191.
kaupið þér bestar og ódýrastar í
oðafoss,
svo sem: Naglaáhöld, burstasett, dömuveski, dömu-
töskur, samkvæmistöskur, seðlaveski, peningabuddur,
skrautskrín, ilmvatnssprautur, ilmvötn, pappírshnífa,
signet, armbönd, hálfestar og margt fleira.
Laugavegi 5. Sími: 436.
Sveinspróf rafvirkja.
Þeir rafvirkjanemar, sem lokið hafa námstíma
fyrir 1. okt. s.l. og réít hafa til sveinsprófs, eru hér
með ámintir um að senda umsókn um sveinspróf til
undirritaðs, förmanns prófnefndar í Reykjavík, fyrir
28. þ. m., með tilskildum vottorðum um námstíma,
skólavist og námssamning, árituðum af lögreglusíjóra.
Reykjavík, 21. október 1931. ,
Steingr. Jónsson.
Bílskúrar.
Til leigu hefi ég tvo bílskúra,
sérstaklega góð vetrargeymsla.
Egill Vilhjálmsson.
Sími 1717.
Gamall kjóll — nýr.
Með fallegum perlukraga get-
ur gamall kjóll orðið sem nýr.
Fást í mestu úrvali.
Hárgreiðslustofan „PERLA“.
Bergstaðastræli 1.
EIM dansarnir
á laugardagskveld. — Aðgöngu-
miðar afgreiddir frá kl. 5—8.
Skiítafundur
verður haldinn í þrotabúi
Guðrn. H. Þórðarsonar, eiganda
Wienarbúðarinnar, í bæjarþing-
stofunni föstudaginn 23. okt.
n.k. kl. 10 árd. Verður þar tek*
in ákvörðun um ráðstöfun á
eignum búsins.
Skiftaráðandinn i Reykjavik,
21. október 1931.
Björn Þórðarson.
Spaðkjðt
Nokkrar tunnur a£
hinu ágæta spað-
kjöti frá Vík í Mýr-
dal, nýkomnar.
Slátnrfúlagifi.
Geymsla.
Reiðhjól tekin til geymslu.
0rninn,
Laugaveg 20A. Sími 1161.