Vísir - 09.11.1931, Qupperneq 3
Gúmmístimplar
eru búnir til í
Félagsprentsmiðjunni.
Vandaðir og ódýrir.
Viðtækjaversinn
rlkisins.
Þegar Viðtækjaverslunin liói'
starf sitt, var mikið af þ.vi látið
í blöðum stjórnarinnar, livilík
blessun mundi fylgja þeirri ein-
okun. Verðið átti að lækka og
íækin verða liin allra bestu,
sem völ væri á. Sérfróður mað-
ur átti að vera i ráðum um öll
innkaúp og verðlagningu tækj-
anna.
Þótti mörgum kynlega við
bregða er slíkt var talið til með-
mæla, því að stjórnarmenn
hafa löngum lagt sérfræðinga í
einelti, svívirt þá á allar lundir
og raunar fjandskapast við alla
þekkingu umfram þá, sem fæst
í Samvinnuskólanum og öðruin
mentástofnunum af líku lagi.
Þess mun nú ekki liafa orðið
vart að héinu ráði, að viðtæki
einokuiiarinnar sé á neiiin liátt
betri en þau, sem seld voru áð-
ur í frjálsri samkepni. Og víst
er um það, að kvartað hefir
•verið um eina tegund viðtækjá,
sem einokunin liefir liaft til
sölu. Er það álit margra not-
.anda, að lélegra tæki hafi.ekki
verið liaft liér á boðstólúm,
enda mun einkasalan sjálf liafa
fundið, að eitthvað væri bogið
við þetta og gert notöndum kost
á, að fá betri tæki i skiftum.
^,Bragð er að þá barnið finnur.“
Eg sá þess getið í dönskum
blöðum ekld alls fyrir löngú, að
verð á Philipstækjum og gellum
hefði lækkað i Danmörku frá 1.
september síðastl. að telja uni
10—40%. Það er nú ekki kunn-
ngt, að tæki þessi.liafi lækkað
í verði liér hjá einokuninni og
þvkir mörgum undarlegt. —-
Hverhig stendur á þessu?
Lækkun hefði átt að gela orðið
samtímis hér og i Kaupmanna-
höfiiy eða því sem næst. Eilt
:með Öðru, sem eiiiokuninhi var
talið til gildis, um það leyti, sem
hún Var sett á stöfh hér, var
það, að verð tækjanna yrði ávalt
í fylsta samræmi við lægsta
fitórsöluvérð á erlendum mark-
aði.
Áður en einokunin var sett á
■stofn og viðtækjaverslunin var
í höndum éinstakra mánna', var
verð viðtækjanna ætíð í sam-
ræmi við erlent markaðsverð.
Það lækkaði og hækkaði sam-
tímis hér og í Kaupmannahöfn.
Einokúnin getur ekki afsak-
að sig.méð því, að íslensk króna
hafi fallið í verði og þess vegna
hafi ekki verið liægt að lækka
tækin. — Lækkunin erlendis
gerðist löngu áður (þ. e. frá 1.
-jsept.) en nokkurt rask komst á
gjaldeyrinn. Fall íslensku krón-
unnar kemur ekki þessu máli
við.
Að lokum skal eg geta þess,
að einokunin virðist oft ærið fá-
tækafnauðsynlegustu ogalgeng-
ustu lilutum, sem engin við-
tækjaverslun má án vera. Veit
eg dæmi þess, að notendur hafa
farið erindisleysu þangað, er þá
hefir vantað algenga liluti til
umbóta viðtækjum sínum. Hins
vegar niuii útsala einkasölunn-
ar oftast sæmilega birg af ljósa-
krónum og ýmsum algengum
rafmagnstækj uni.
Útvarpsnotandi.
Hans Neff
Píanóhljómleikar í Gamla Bíó
8. nóvember.
—o—-
Sennilega hafa einhverjir meöal
;■ heyrenda lag't lítinn trúnaö á þær
i’réttir, aö hingaö væri kominn
pianókennari, er heföi geti'ð sér
góöan oröstír, sem einleikari á
þéim stööum, þar sem listrænar
kröfur eru meira en nafniö eitt. En
þeir munu t'ljótt hafa samfærst
um það, á hljómleiknum á sunnu-
daginn, aö ekkert hafi veriö um
of í því, er kvisast haföi um snilli
Hans Neff. Leikni hans og kunn-
átta er óvenju mikil og meöferö
verkefnanna skýr og ákveðin, svo
hver lína nýtur sín til fulls.
i allade eftir Chopin og lag eftir
Dehussy (Endurspegíun í vatninu)
munu hafa vakiö einna mesta at-
hygli, enda kom þar best í ljós, að
Neff hefir meira til brunns að
bera en verklega kunnáttu, hún
nægir ekki eingöngu til aö gera
slik verk athyglisverö. Voriandi
lætur hann til sín heyra aftur áð-
ur en veturinn líöur.
Þess mun einhverntíma hafa
veriö getiö, aö félag þa'ö, er aö
Tónlistarskólanum stendur, væri
aö lognast útaf. Nú munu fleiri en
aður hafa sannfærst um hiö gagn-
stæöa. Aö sigla til Vínarborgar
og stunda nám hjá jafningja Hans
Neff, væri áreiðanlega talinn
frami hverjum íslenskum nem-
anda. Iiefjr stærð borganna riokk-
ur áhrif á það, aö slíkt nám sé
lítilsverðara í Re)rkjavik h
Kr. Sigurðsson.
Veðrið í morgun.
Iliti í Reykjavík 2 st., Isáfirði
3, Ákureyri -t- 3, Seyðísfirði 4,
Vestiiiaiiiiaeyjiiin 5, Stykkis-
liólmi 1, Blönduósi -h 4, Hóluni
í Hörnafirði !, Grindavik 1.
(skeyti vantar frá Ráufarliöfn,
Angmagsalik og Káupmanna-
liöfn) , Færeyjum 7, Julianeliaab
:- l, Jaii Mayen 2, Hjaltlandi !),
Tyiieinoutli 9 st. Djúp lægð við
vesturströnd Bretlandseyja á
hreýfingu norðaustur eftir.
HORFJJR: Suðvesturlanci:
Austan gola og úrkomu-
laust i dag, én vaxandi
austanált og sumstaðar skúrir í
nótt. Faxaflói, Breiðafjörður:
Norðaustan gola. Léttskýjað.
Vestfirðir, Nörðurland: Norð-
austan átt. Allhvast úti fyrir.
Úrlcomulaust. Norðaus turlan d,
Austfirðir, suðausturland: Hæg-
viðri og víðast úrkomulaust í
dag, en vaxandi norðaustan átt
og rigning í nótt.
Silfurbrúðkaup
eiga á morgun io. nóv. Guðný
Sig'mundsdóttir og Guðmundur
Kr. Jónsson, Suðurpól 12.
Líkneski
Jóns Sigurðssonar er nú verið
aö flytja af stjórnarráðsblettinum
á Austurvöll.
Eimskipaf élagsskipin:
Goðafoss er á útleiö.
Selfoss er í Álaborg.
Brúarfoss er á Blönduósi.
Gullfoss fór frá Kaupmanna-
höfn i gær.
Dettifoss fór frá Hamborg' i
gær.
Lagarfoss fór f.rá Kaupmanna-
höfn i gær.
_______ __ VÍSIR
Alþjóða-bænavíka
Iv. F. U. M. og K. F. U. K.
byrjaði í gær. Það er siður í
þessum fclögum að sameinast
einu sinni á ári til þess að lialda
félagslegar sanibænastundir uni
sama hugleiðingar- og bænaefni
um allau heim. Vikan, sem
byrjar með öðrum sunnudegi í
nóvember, hefir verið valin til
]iess. Alstaðar á hnettinum, þar
sem þessi félög eru, koma sam-
an á liverjuni deg'i fjöldi af
fólki, sem les og lieyrir hina
sömu ritningarsfaði og biður
um ákveðið efni. — Austur i
Japan og Kina, inni i Afríku
miðri, vestur í Ameríku, í Astr-
alíu og á mörgmn eyjunum er
alstaðar fólk, sem á sama degi
samstillir liugina iun sama efni.
Þetta skapar mikla andlega cin-
ingu og hefir stórkostleg áhrif.
Vér liiigsuni til allra liinna og
vér finnum að vér erum nær
þeim. Að þessu sinni er hið
sameiginlega umhugsunarefni:
„Þörf heimsins“. Og þvi er skift
niður þannig i hugleiðingunum:
Þörf lieimsins er: 1. Trú á lif-
andi guð. 2. Nýr skilningur á
handleiðslu guðs. 3. Andi hlýðn-
innar. 4. Kristilegur kærleiki í
samfélagslifinu. 5. Friður á
jörðú. 6. Hin eina kirkja og 7.
Andi vonarinnar.
Um þessi efni verða lialdnir
fundir á hvérju kveldi i K. F. U.
M. liér kl. HJ4. Allir eru vel-
komnir. Þar að auki eru allir
liiðjandi nienn og konur í félög-
ununi beðnir iim að húgleiða
þessi efni, þótf ekki geti koniið
á fundina. Fr. Fr.
Dýpkun Tjarnarinnar.
Tjörnin gæti verið Reykja-
víkurbæ til niikillár prýði, ef
lienni væri nægilegur sómi
sýndur, en til þess þarf fyrst og
fremst að dýpka liana. Hún er
orðin svo grunn, að leirurnar
koma upp úr á stórum svæðiun,
þegar lileypt er úr lieíini á vor-
in, og mikil vinna fer til ]iess á
hyerju súmri að „veiða“ slýið,
og stoðar þó lítið. -- Væri nú
ekki ómaksins vert i vinnuleys-
inu, að lofa Tjörninni að „njóta
góðs“ af atvinnubótunum, með
því að dýpka hana, þó að ekki
væri íiema um svo sem tvær
stungui', þar sem hún er grynst,
og nota leðjuna til áburðar eða
uppfyllingar? Þetta væri þeim
mun æskilegra seni suðnrliluti
Tjarnai'iniiar hefir verið lag-
færður, og miklu fé verið varið
lil þess að prýða i knngum
liana. Fr þar nú orðin mikil
úmferð vor og suniar, af fólki,
sém gengur sér þangað til
skemtunar, og mundi þö vafa-
laust meiri, ef greiður gangur
væri að skemtigarðinum. —
En aðalliluti Tjarnarinnar er
mjög óþrifalegur enn, svo að til
þess hefir verið tekið, og ætti,
fyrir samræmis sakir (þó að
ekki sé annars vegna) að ráða
hót á þessn, og lielst i vetur.
V. P.
Þói'
kom ár Borgarnesi í gær.
Strandferðaskipin.
Esja var í Stykkishólmi í dag,
en Súðin á Bíldudal.
Vestri
kom hingaö síödegis í gær frá
Vestmannaeyjum: flutti jiangað
saltfarm frá Spáni.
Botnia
kom frá Leith í gær.
Vínsalan á Hótel Borg.
Merkur íslendingur í Bandaríkj-
unum skrifar Vtsi á þessa leiö 7.
f. m.: ,,Ekki leyni eg því, að mér
virðist ýmislegt ganga á tréfótum
i íslenskum stjófnmálum nú. Og
þó aö í því efni sé víöar pottur
brotinn, t. d. hér í Bandaríkjun-
um, þá bætir það ekki úr skák
fyrir okkur. Skrítin þykir mér,
sem bindindismanni, sú siögæðis-,
kreppu- og sparnaðarráðstöfun, að
íiölga yínsölustundum aö kveld-
inu . ..
Gengisskráning hér í dag :
Sterlingspund kr. 22,15
Dollar 5,84%
Sænskar krónur .... — 127,20
Norskar krónur .... — 124,67
Danskar krónur .... — 126,57
íÞýsk rikismörk . . . . — 139,54
Gyllini —■ 237,32
Frakkn. frankar . . . — 23,10
Belgur — 81,39
Svissn. frankar . . . . — 114,99
Lírur — 30,50
Pesetar — 51,45
Tékkósl. kr — 17,53
Snorri goði
kom af veiðum í gær.
Dronning Alexandrine
kom kl. 2 í nótt frá útlöndum.
Nova
kom í gærkveldi norðan um land
frá Noregi.
F er ðaminningar
eftir Sveinbjörn Egilson. Þriðja
hefti II. bindis er nýlega komið
út. —• Ferðaminningar Svein-
bjarnar eru bæði fróðlegar og
skemtilegar og íesnar með ánægju
af miklum fjölda manna. Þorsteinn
M. Jónsson, lióksali á Akureyri, er
útgefandi ,,Ferðaminninganna“.
Hið ísl. kvenfélag
lieldur fund kl. 8 annað kveld
í Iíirkjutorgi 4. — Sjá augl.
Farfuglafundur,
sá fyrsii á haustinu, verður
aniiað kveld kl. 8V2 á Lauga-
veg 1, uppi (steinliús hak við
versl. Visir). Þangað eru allir
ungniennafélagar, seni eru i
bænum, velkomnir. G.
Nýja Bíó.
„Þremenningarnir frá bensin-
geyminiim“, — gainaninyndin
þýska, verðiii’ sýnd í Nýja Bíó
kl. 7 e. li. á morgun (alþýðu-
sýning).
Gamla Bíó
sýnir dönsku talmyndina
„Presturinn i Vejtby“ í síðasta
sinn í kveld.
Aðalfundur í. R.
var haldinu í gær í fimleikahúsi
félagsins við Túngötu. Blái salur-
inn var þéttskipaður félagsmönn-
úm úr öllum flokkum. Nokkrar
lagabreytingar voru samþyktár.
Þessir voru kosnir í stjórn félags-
ins: Þorst. Sch. Thorsteinsson,
íormaður, en meðstjórnendur, Jón
Jóhannesson, Jón J. Kaldal og
Sigurliði Kristjánsson. Fyrir voru
i stjórninni: Haraldur Johannes-
sen, Laufey Einarsdóttir og Þór-
arinn Arnórsson. — Með kennara-
skiftunum virðist nýtt fjör bafa
færst í félágið, og er nú æft af
krafti i öllum flokkum. G.
Frá í. S. í.
Nýlega hafa þessi tvö félög
gengið i íþróttasamband íslands:
Danska íþróttafélagið i Reykjavík,
íélagatala 17, formaður Jens Kar-
mann, og Ungmennafélag Kefla-
vikur, félagatala 70, formaður
Bergsteinn Sigurðsson. (í. S. í.
— FB.).
Gjöf
til máttlausa drengsins, afh. 2
kr. frá H.
Útvarpið í dag.
10,15 Veðurfregnir.
16,10 Veðurfregnir.
19,05 Þýzka, 1. flokkur.
19.30 Veðurfregnir.
19,35 Enska, 1. flokkur.
20,00 Klukkusláttur.
Erindi: Skólaþættir, II.
(síra Ól. Ólafsson).
20.30 Fréltir.
21,00 Hljómleikar: Alþýðulög
(Útvarpskvartettinn).
Carneval dýranna, eftít
Saint-Saéns.
Frílækning
lijá V. Bernliöft tannlækni á
þriðjúdögum kl. 2—3.
Hvítabandiö.
A kaffikveldi ]iví, sem „Hvíta-
bandið“ hélt fyrir húsfrú Stein-
unni Guðbrandsdóttur á Akri
(Bræðraborgarstíg 25), i tilefni af
70 ára afmæli hennar, var henni
flutt eftirfarandi smákvæði, ort af
ritara félagsins. Ingveldi Einars-
dóttur.
Kveldið var hiö ánægjulegasta
og skemtu konur sér við söng og
ræðuhöld og hyltu afmælisbarniS,
sem ennþá er ung í anda og sí-
starfandi.
Sumartíð að hausti hnígur,
liverfi þreytu og anna spor.
Minninganna flokkur flýgur,
félagssystur, meðal vor.
Fundarefni önnur híði,
einuni rómi hyllum vér
konu, sem með særiid og prýði
sjötíu ár á herðum ber.
Félag vort því fagna mátti
fyrr og síðar, marga stund,
að húsfreyjan á Akri átti
iðjuhönd og fórnarlund.
Ilvenær sem þín hurð var knúin,
hjálp að veita og likn í raun,
þar til varstu boðin, búín.
Blessun drottins sé þín laun.
l'ótt á haustin héli erigi,
heimtir vorið gróður sinn.
Kæra Steinunn! Lengi, lengi
lifi og blómgist Akur þinn!
Hitt og þetta.
Pangborn og Herndon.
'Frá New Yorlc var símað til
Lundúnablaða þ. 18. okt.: Clyde
Pangborn og Hugh Herndon, sem
lögðu af stað í heimsflug þ. 28.
júlí, lentu i dag að afloknu lieims-
flugi sínu á Floyd Bennett flug-
vellinum, en þar hófust þeir tíl
ílugs í sumar, er þeir lögðu upp
í hnattflugið. Þá er þeir höfðu
flogið yfir Kyrrahafið flugu þeir
frá Seattle til Newcastle í Dela-
ware, en þaðan til Washington og
New York. Þeir notuðu litla flug-
vél, sem þeir kölluðu „Miss Vel-
dol“. — Frá New York til Wales
voru þeir 31 klst. og 45 mínútur í
sumar og héldu svo áfram austur
á bóginn um London, Berlín og
Moskwa og yfir Siberíu og þaðan
til Japan. í Tokio voru þeir grun-
aðir um njósnir og voru settir 1
varðhald, en bráðlega látnir laus-
ir aftur. Alllangur dráttur varð á
jiví, að þeir fengi brottfararleyfi.
Þeir flugu fyrstir manna í einni
íotu yfir Kyrrahaf.
Atvinnuleysi í Nýja Sjálandi.
Atvinnuleysi er mikið í Nýja
Sjálandi. Ríkisstjórnin hefir
ákveðið að gera stórfelda til-
raun til að hæta úr atvinnu-
leysinu með auknu landnámi.
Er ráðgert að hefja undirhún-