Vísir - 21.01.1932, Síða 4
V I S I H
Lillu dFopar & Lillu-Qerdnft
i þessuiu um-
búðum, eru
kraftmeiri en
nokkurt annað
gerduft og drop-
ar. —
Gerið saman-
burð: Útlent
gerduft til þó
kg. er helmingi
þyngra og nærfelt helmingi dýrara en Lillu-
gerduft til Ú2 kg.
Lillu-dropar eru ekta bökunardropar, Abyrgð er tekin ú
því, að þeir eru ekki útþyntir með spíritus, sem rýrir gæði
allra bökunardropa. —Því meiri spiritus sem bökunardrop-
aroir innihalda, þvi lélegri eru þeir.
Húsmæður! — Iýaupið ávalt það besta. Biðjið um Lillu-
gerduft og Lillu-dropa, þá getið þið verið. öruggar um. að
baksturinn hepnast vel.
H.f.Efnagerð Reykjávíkur. Kemisk verksmiðja.
K.F.U.K.
A.—D. hcldur fund á morg-
un, föstud. 22. jan. kl. 8Vj> síðd.
í húsi Iv. F. U. M. við Amt-
mannsstíg.
Dr. theol. .Jón Helgason, bisk-
up flytur erindi.
Frú Guðrún Ágústsdóttir
syngur.
Frú Guðrún Lárusdóttir, for-
stöðukona félagsins segir frá
starfsemi þess.
Öllum námsstúlkum sérstak-
lega boðið á fundinn.
Allar ungar stúlkur velkomn-
ar.
Gúmmístimplar
eru búnir til í
Félagsprentsmiðjunni.
Vandaðir og ódýrir.
Scmisfefatahfettisittö iifittt
iauSavc4 54 ^ími: 1300
Fullkomnar vélar. Nýjustu og bestu litir og efni. Þaulvant
starfsfólk. Tíu ára reynsla.
Ljósnæm. Litnæm.
Keiðruðu
húsmæðurl
Litið sjálfar í heimahús-
um úr Citocol, sem er
mjög einfalt o g fyrir-
hafnarláust.
Úr Citocol má lita eins vel
úr köldu vatni sem heitu
Citocol liefir hlotið mestu
og bestu viðurkenningu
og teKur öílum öðrum
litum fram.
Citocol litar því næst alt
sem litað verður.
Leiðarvisir fylgir hverjum
pakka. — Aðalumhoð og
heildsölubirgðir hefir
H.f. Efnagerð Reykjavíkur
Hárgreið lustofan
Oadu’a
sendir dömur út í bæ til að
krulla, ef óskað er.
Spo t tv o ru h ús Rey kj avíku r.
Mjólkarliá Flöamaaoi
Týsgotu 1. — Sími 1287.
Vesturg. 17. — Simi 864.
Jónas Bergmann,
við Skildinganesveg.
I. flokks mjólkurafurðir. Skjói
afgreiðsla. Alt sent heim.
íslensk
kaupi eg
ávalt
hæsta
verði.
Gísli Sigurbjörasson. •
Lækjargötu 2. Sími: 1292.
Litil ibúð óskast 1. febr. Þrent
í heimili. Uppl. i sima G74, milli
6 og 8. (474
íbúð til leigu. Uppl. i síma
1424. (472
4 herbergi og eldhús óskast
lil leigu. Uppl. i síma !)17. (479
Stofa tii leigu. Aðgangur að
eldhúsi getur komið til mála.
Uppl. á Seljaveg 27. Prjón tek-
ið á sama stað. (168
2 herbergi og eldhús óskast
1. fehr. Skilvís greiðsla. Uppl.
í versl. Gretlisgötu 1. (167
2 herbergi og eldhús til leigu
sti-ax eða 1. febr. Mánaðarleiga
65 kr. A. v. á. (163
Þrjú herbergi og eldliús í
miðbænum til leigu frá 1. febrú-
ar. Tilboð sendist afgr., auð-
kent: „Ibúð 1. febrúar“. (161
Skrifstofumaður i góðri
stöðu óskar eftir 2—3ja her-
bergja Hiúð 14. maí n. k. á góð-
um stað í bænum. Tilboð auð-
kent: „E. S.“, sendist afgr. Vís-
is sem fyrst. (459
2 herbergi og eldliús óskast
14. maí. Mjög skilvís greiðsla.
Uppl. í sima 1851. (458
Húsnæði fyrii- tvær mæðgur
öskast. Tilboð merkt: „30“,
sendist Visi. (453
2 herbergi með aðgangi að
eldliúsi til leigu strax. Berg-
þórugötul5A. (452
Upphítuð herbergi fást fyrn
ferðaiueun ódýrast á Hverfis-
golu 32. (385
Herbergi lil leigu á Ægisgötu
10, uppi. Uppl. cftir kl. 7. (443
Góð stofa með eða án hús-
gagna til leigu nú þegar eða sið-
ar. Öldugötu 27. (442
J APAÐ FDNDIÐ
Ur strætisvagni 970 hafa tap-
ast dúkar. Skilist á Grundar-
stig 19, niðri. (461
| KENSLA I
Kensla fæst fyrir óskóla-
skvld börn, á Nýlendugötu 11.
(455
Húseignir til sölu: 2 nýtísku
steinhús við miðbæinn. Góðir
greiðsluskilmálar. Tveggja
ibúða nýtisku steinhús. Væg út-
borgun. 2 timburhús við mið-
bæinn með tækifærisverði. Hús-
in cru ekki gömul. Kaupendur!
Gjörið svo vel að spyrjast fyrir
lijá mér. Það hefir mörgum
orðið notadrjúgt. Hús teldn i
umboðsölu. Elías S. Lyngdal,
Njálsgötu 23. Sími 664. (475
Borðslofu-liúsgögn, með al-
veg sérstöku tækifærisverði, ef
samið er strax. Vörusalinn,
Klapparstig 27. Sími 2070. (471
Minnishlað 21. jan. 1932. —
ilús og aðrar fasteignir jafnan
til sölu t. d. 1. Nýtísku steinhús,
tvær jafnar ibúðir. 2. Hálft
steinhús —- efri hæð. 3 stórai
stofur og eldliús. 3. Lítið jám-
varið timburhús, ein íbúð. 4,
Byggingarlóð í vesturbænum. 5/
Stórt járnvarið timburliús.
þrjár íbúðir. 6. Villa í vestur-
bænum, væg útborgun. 7. Járn-
varið timburliús, tvær ibúðir. 8.
Síeinbær á gatnamótum. 9- -
Steinsteypuhús á Sólvöllum,
þrjár íbúðir. 10. Nýtt steinhús í
austurbænum, þrjár íbúðir o.
m. l'l. Gerið svo vel að spyrjast
fvrir. Hús tekin í umboðssölu,
Munið að það besta og viðráð-
anlegasta selst fyrst. Skrifstöf-
an í Aðalstræti 9 B (steinhúsið),
()"’•' kl. 11—12 og 5—7. Sími
1180 og 518 hcima. Helgi
Sveinsson. (465
Dagstofuskápur (pólerað ma-
iiogni), toilet-kommóða, klæða-
skáour og horðstofuborð tií
sölu með sérstöku tækifæris-
verði á Hverfisgötu 16 (niðri),
(162
Bónaður skápur lil söly
: (hálfvirði). Trésmiðjan, Vatns-
stiglOA. (460
' Litið hús óskast kcvpt. Ut-
borgun gæti verið 7—8 þúsund.
Tilboð, með tilgreindum stað,
verði og greiðsluskilmálum<
leggist inn á afgr. Visis í lokuðu
umslagi, merkt: „7—8“.
Hús til sölu: Nýtt steinhús,
úlborgun 20 þús. ki'., einnig
steinhús á 18 þús., 12 þús., 24
þús., 34 þús., 65 þús. og 85 þús.,
með vægum útborgunum. |
Nokkur góð timburhús með
tækifærisverði. Höfum kaup-
anda að villu. Mikil útborgun.
Þér, sem ætlið að kaupa hús
eða selja, ættuð að tala við okk-
ur slrax. Vörusalinn, Klappar-
stíg 27. Sími 2070. (470
>> SmiSjusl. 10
Jíetjiiiavik
Sími 1094
‘Uerksin
Helgi Helgason. Laugav. 11. Sími 93
Líkkistur ávalt fyrirliggjandi
Séð nm jarðarfarir hér og i ná
grenninu,
Fimmföld harinonika (sænsk
stemning) til sölu. Verð kr. 100.
Njálsgötu 23. Sími 66L (457
Kvengrimubúningar til sölu ó-
dýrir á Lindargötu 20 A. (166
VINNA
Vegna veikinda annarar ósk-
ast stúlka í vist strax. Tvent í
lieimili. Öll þægindi. UppL
Bárugötu 10, uppi. (478
Stúlka, sem kaun að sauma,
getur fengið pláss hálfan dag-
iun. Rydelsborg, Laufásveg 25
(473
Stúlka dskast í vist til Siglu-
fjarðar. Uppl. á Nönnugötu 1,
(469
Allskonar kjólar saumaðir á
fullorðna og börn, einnig
drengjaföt og frakkar. Sann-
gjarat verð. Vönduð vinna.
Kjólasaumastofan, Lokastig 18,
(454
Sníð og máta kjóla, kápur og
harnafatnað. Kristín Sæ-
munds, Tjarnargötu 34, uppi.
(414
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN
Klumbufótur.
Skamt frá þrepunum var liurð, eins og mér hafði
sýnst. Þarna var von mín um undankomu. Þetta
var lílil hurð, með eirliún — og á milli hennar og
mín stóðu nokkurir kassar.
Eg læddist ofan tröppumar kengboginn, til þess
að eg sæist ekki úr þvottakompunni, ef einhver
kæmi ])angað inn, meðan eg væri á ferðinni. Eg
gekk hljöðlega fram hjá sorpkössunum og tólc i
hurðarhúninn.
Húnninn snerist liðlega, en það liafði engin áhrif.
Hurðin var læst. Á því var enginn vafi.
VI. KAFLI.
Eg tek mér far með Berlínarlestinni, en haltur
maður verður strandaglópur.
Þarna var eg eins og rotta í gildru. Mér var ókleift
að siiúa aftur, sömu leið og eg hafði komið. Það var
ekki hægt að komast út úr húsagarðinum annars-
slaðar en um þessar dyr eða gluggann. Glugginn
var girtur járngrindum og dyrnar lokaðar. Eg sat
fastur i snörunni. Það lá ekki annað fyrir mér, en
að bíða þess að menn yrði þess varir, að eg væri
horfinn. Strengurinn, sem hékk út um gluggann, bar
þess glögt vitni, livert eg liefði farið. Þá mundi verða
leitað i húsagarðinum. Og þegar eg stæði augliti til
auglitis við Stelze, þyrfti cg ekki að vænta neinnar
miskunnar.
Eg rannsakaði svæðið, þar sem öskukassarnir
stóðu, vel og' vandlega, en fór þó að öllu hljóðlega.
Ljósið úr glugganum féll þangað á bletti, en ann-
ars var þctta dimmur staður og rakur. Skot voru
þar tvö eða skútar, er steyptir voru undir gólfið á
húsagarðinum. I öðru skotinu voru brennikubbar,
en hitt var fult af kassarusli, gömlum flöskum og
þess konar dóti. Eg rannsakaði veggina á þessum
skútum, en það köm mér ekki að gagni. Það var
engin von um undankomu, nema annaðhvort um
gluggann eða dymar.
Fjórir háir sorpkassar stóðu i röð fyrir framan
skútana og fimti kassinn stóð undir jámþrepunum.
Þeir voru allir því nær fullir af sorpi, og' var því
ekki unt að l'ela sig í neinum þeirra. Hefði mér og
verið það f iarri skapi og þótt það lilægilegt, að láta
þjónustufólk gistihússins finna mig í sorpkössunum.
Mér lá við sturlun í þessu öngþveiti. Eg hafði
lagt mikið í hættu og mér liafði gengið svo vel, að
undrun sætti. Því sárara varð mér að sjá all bresta
úr hcndi mér.
Mér félst svo mikið um þéssi vonbrigði, að við
sjálft lá, að cg gugnaði og hætti öllum tökum mér
til hjargar. Þá heyrði eg fótatak og von mín vakn-
aði á ný.
Eg dró mig inn í skuggann og faldi mig á milli
sorpkassans og skútans, sem næstur var dyrunum.
Inni í húsinu heyrði eg fótatakið nálgast þvotta-
kompuna. Eg heyrði að dyr opnuðust og karlmanns-
rödd söng mjúkt og dillandi þýskt lag, sem mjög'
var vinsælt i svipinn.
Hann^var svo ánægður með sönginn, að liann
endurtök lagið. En um leið var sem hann væri að
láta eillhvert dót i tóman pjásturskassa, sem
hringlaði i.
„Kátur piltur!“ hugsaði cg. Eg vildi óska, að eg
gæti séð hann! En lil þess að sjá liann, hefði eg
þurft að fara út i birtuna, því að annarsstaðar að
var ekki liægl að sjá inn í þvottakompuna.
Söngurinn þagnaði. Eg heyrði aftur umgang. \ ar
hann að fara í hurtú?
Þá sá eg mjóa ljósrák við þröskuldinn.
í sömu svifu var hurðinni hrundið upp og þjónn-
inn Karl kom í ljós. Hann var cnnþá méð bláu
svuntuna og sina fötima i hvorri hendi.