Vísir - 20.02.1932, Qupperneq 4
YISIR
Tímarit Iðnaðarmanna.
Síðasta liefti 5. árgangs
(október—desember 1931) er
nýlega komið út. — Flytur
grein (með mynd) um Guð-
mund Gamalíelsson sextugan,
fréttir frá „Iðnráði Reykjavík-
ur“, grein um iðnaðarmálin
(eftir G. A.), grein um „Vegg-
fóðraramálið“ (eftir H. H. E.)
o. fl. Ein greinin er um „gjöf
til Iðnskólans“ frá H. Rrause,
heildsala í Kaupmannahöfn.
Hafði umboðsmaður H. K. bér
í Reykjavik, L. Storr heildsali,
boðist til þess, fyrir hönd hins
danska timbursala og í umboði
hans, að gefa iðnskólanum eða
annari stoflum nokkur sýnis-
horn af trjátegundum. Var boð-
inu tekið með þökkum og eru
snishornin liingað lcomin, 47 að
tölu. — Síðast í heftinu er grein
eftir Sigurð Pétursson (Leið-
beiningar um járnbindingar). -
Tímarit Iðnaðarmanna er prýði-
lega vandað að öllum frágangi
og útgeföndunum til sóma. Rit-
stjóri þess er Helgi Hermann
Eiríksson, skólastjóri.
E.s. Brúarfoss
kemur til ísafjarðar í dag. —
Væntanlegur liingað á morgun.
E.s. Lagarfoss
cr á leið til Austfjarða, frá
útlöndum.
Útvarpið í dag.
10.15 Veðurfregnir.
12.15 Tilkynningar. Tónleikar.
Fréttir.
12.35 Þingfréttir.
16,10 Veðurfregnir.
18,40 Barnatími (Gunnar M.
Magnússon, kennari).
19,05 Fyrirlestur Búnaðarfél.
íslands: Geymsla og
notkun búfjáráburðar
(Ólafur Jónsson, fram-
kvæmdarstjóri Ræktun-
arfélags Norðurlands).
19-,30 Veðurfregnir.
19.35 Fyrirlestur Búnaðarfél.
íslands: Jarðvegsrann-
sóknir (Sigurður Hlíðar,
dýralæknir).
20,00 Klukkusláttur.
Upplestur: Sögukafli
(Halld. Kiljan Laxness).
20,30 Fréttir.
21,00 Tónleikar (Útvarps-trí-
óið).
Grammófón: Óperulög:
Mattia Battistini syngur:
O, santa Medaglia, úr
„Faust“ eftir Gunoud, og
Titta Ruffo syngur:
Rammente i lieti og Sere-
nade Mefistofelesar, úr
,Faust“, eftir Gunoud.
Danslög til kl. 24.
Akron beitir stærsta loftskip
sem bygt liefir verið og var ný-
lega tekið í notkun fyrir lofther
Bandaríkjanna. — Akron er rúm-
iega helmingi stærra en Zeppelin
greifi.Bæði loftskipin nota ein-
göngu Veedol smurningsolíur til áburðar á vélar skip-
anna, af þvi að betri olíur og öruggari þekkjast ekki.
Commander Byrd notaði að eins Veedol oliur á flug-
vélamótorana þegar liann fór til Suðurpólsins fyrir
nokkurum árum.
Notkun Veedol olíanna gefur fylsta öryggi og sparar
notendum þau feikna útgjöld sem orsakast af notkun
lélegrar olíu. Minnist Veedol þegar þér þurfið olíu og
feiti til áburðar á bil yðar.
Jóli* Ólafssoxt &i Oo.
REYKJAVÍK.
VEEDOL
flitu fyrlrliipjaidi á lager:
Kartöflur, danskar og norskar, mjög góð tegund. Þýskar
kartöflur væntanlegar með Goðafossi. Ódýrar frá skipshlið.
Talið við okkur í dag. Litið eitt óselt.
Mjólkupfélag Reykjavíkup
Eggert Claessen
Sjötugs-afmæli
á í dag Pétur Jónsson skrifari,
Grettisgötu 12, einn. af mætustu
borgurum bæjarins.
Ari
kom frá Englandi í gær. —
Skipshöfnin var afskráð.
Belgiskur botnvörpungur
kom í nótt. Fer héðan vest-
ur á fjörðu og kaupir bátafisk.
Línuveiðarinn Þormóður
kom í morgun af veiðum. —
Farinn til Englands.
Frá Englandi
eru væntanlegir í dag Snorri
goði og Hafsteinn.
E.s. Goðafoss
er væntanlegur frá útlöndum
í nótt.
hæstaréttarmálaflutningsmaður
Skrifstofa: Hafnarstræti 5.
Sími 871. Viðtalstími kl. 10-12.
Til leigu.
Skrifstofuherbergi með hús-
gögnum er til leigu nú þegar i
félagi með öðrum. Nánari uppl.
gefur Siglivatur Brynjólfsson,
Bergstaðastræti 43, kl. 7—8
e. h. (401
Tvö litil herbergi, eða eitt
stórt, með aðgangi að eldunar-
tækjum, óskast í húsi í austur-
bænum. Tilboð merkt: „555“,
sendist Vísi. (397
3 herbergi og eldhús með öll-
um þægindum óskast 14. mai í
austurbænum. Ábyggileg
greiðsla. Fátt fólk i heimili.
Sími 2172. (398
Upphituð lierbergi fást fyrir
ferðamenn ódýrast á Hverfis-
götu 32. (385
Stofa með sérinngangi og
miðstöðvarhitun til leigu frá 1.
mars til 14. maí. Sími: 1839.
(281
3 herbergi og eldhús með
öllum þægindum óskast til leigu
14 maí. Uppl. í síma 2177. (369
Til leigu óskast 14. maí 2 her-
bergi og' eldliús í nýtísku liúsi
fyrir tvent fullorðið. Fyrirfram-
greiðsla og góð umgengni. Uppl.
í síma 132 og 1626. (385
Herbergi með eða án hús-
gagna til leigu, lítið eldunar-
pláss getur fylgt. Vesturgötu 24.
(411
3 herbergi og eldhús, i nýju
húsi á sólríkum stað, til leigu
14. maí. Uppl. í Ingólfsstræti
21 C, kl. 7—8. ' (410
3 herbergi með aðgangi að
eldhúsi eru til leigu nú þegar á
Ránargötu 13. — Uppl. frá kl.
(0/2—9. (408
Forstofuherbergi með hús-
gögnum, á sólríkum og góðum
stað, til leigu. Öldugötu 27. (406
Ein stór stofa eða tvö minni
herbergi og eldhús með þæg- *
indum óskast 14. mai. — Upþl. j
i síma 1534. (405
íbúð óskast, 2 herbergi og
eldhús, nú þegar eða 1. mars.
Mjög ábyggileg greiðsla. Sími
746, kl. 6—8 síðd. (403
KENSLA 1
Ungur Englendingur, magist-
er i ensku, vill gjarnan takast á
hendur kenslu í móðurmáli
sínu. En þar sem hann er bú-
settur utan íslands, yrði kenslan
að fara fram bréflega. Þeir, sem
kynnu að vilja sinna þessu,
sendi afgreiðslu blaðsins um-
slög með utanáskrift: „Enska“,
og láti fylgja nöfn sín og heim-
ilisfang. Verður ]x>im siðar til-
kvnt fvrirkomulag alí. Kenslan
er ódýr. (400
|"'>''™UPSKAPUR......|
Ódýrir túlípanar í Hellusundí'
6. Hyasintur komnar aftur.
Sími 230. Sent heim. (65
Barnavagn til sölu á Lauga-
vegi 53, uppi. (407
Tek að mér að sniða og
máta allskonar kápur og kjó-la.-
Berþóra Elfar, Óðinsgötu L
(395
Annast uppsetningu á lofU
netjum og viðgerð á útvarps*'
lækjum. Uleð rafgeyma. Vönd-*
uð og ódýr vinna. Sanngjarm-
verð. Uppl. í síma 1648, millí-
6—7. Ágúst Jöhannesson. (77
Við alt er hægt að gera, bæð!
dömu- og herrafatnað, hjá
Reykjavíkur elsta kemiska^
hreinsunar- og viðgerðarverk-
stæði. Rydelsborg-. — Sími 510.
(693
Góð stúlka óskast í vist á fá-
ment heimili. Verður að geta
sofið lieima lijá sér. — Uppl. á
Laugavegi 28 C. (404
Stúlka óskast i vist allan dag-
inn. Rauðarárstíg 13 C. (402-
ST. FRAMTÍÐIN nr. 173. Fund-
ur á mánudag 22. þ. m. stund-
víslega kl. 8V2. Kl. 9J4 hefsf
opinn fundur fyrir alla. —
Félagar, bjóðið gestum á
fundinn. (399
UNGLINGAST. BYLGJA. Fund-
ur á morgun sunnud. á venju-
legum stað og tíma. Gotf
skemtiatriði. Fjölmennið! —
Gæslumaður. (409
Helgi Helgason, Laugav. 11. Sími 93t
Líkkistur óvalt fyrirliggjandi;
Séð um jarðarfarir liér og í ná<*
grenninu.
{ TAPAÐ - FUN DIÐ Jf
Gullhringur með plötu á,-
merktur: „B. B.“, tapgðist á-
danslcik Framfarafélags Sel-
tirninga síðastliðið laugardags-
kveld. Skilist á afgr. Visis. (39G
F JEL AGSPRENTSMIÐ J AN.
Klumbufótur.
minn kynti þá: Pfhal, höfuðsmaður — Meyer, liðs-
foringi .... og fleiri nöfn taldi hann upp, sem eg
er búinn að gleyma. Einn af þessum foringjum vant-
aði handlegg, annar var mjög lialtur, hinir voru ber-
sýnilega uppgjafahermenn.
„Þessi maður er Bandaríkjaþegn, og mjög vin-
veittur þjóð okkar.“ Á þennan hátt kynti foring-
inn mig fyrir löndum sínum. Mér var tekið með ber-
sýnilegri virðingu og eg undraðist það mjög eins og
áður. Þjóðverjar höfðu litlar mætur á Vetsurheims-
mönnum, sér í lagi síðan er þeir tóku að selja f jand-
mönnum þeirra sprengikúlur og annað til hernaðar.
Kom mér því í hug, að hermönnum þessum mundi
vera kunnara en mér sjálfum, um starf mitt og er-
indi til Þýskalands. Hermannaþjónn, sauðkindarleg-
ur á svip og með hvíta lianska á höndum, færði okk-
ur öl og samanlagðar brauðsneiðar með sardínum á
milli. Brauðið var reglulega ólystugt, og reyndist, er
eg bragðaði á því, að vera sannkallað „styrjaldar-
brauð“.
Eg leit i kringum mig í stofunni. Húsgögn voru
fá og hversdagsleg. Á veggjunum hengu ósmekkleg-
ar litmyndir af keisaranum og ríkiserfingjanum.
Fyrir neðan myndirnar hengu glerkassar með alls-
konar sigurmerkjum úr styrjöldinni miklu. Fekk það
mjög á mig ,er eg kom auga á sundurskotinn bresk-
an stálhjálm og fleira, sem auðsjáanlega hafði verið
tekið af breskum hermönnum. Mér kom þá í hug,
að VII. lierdeild væri einmitt upprunnin á þeim slóð-
um, þar sem eg nú væri staddur. Og VII. herdeild
hafði átt marga menn og vaska og veitt Bretum þung
högg og stór.
Við töluðumst við kurteislega um daginn og veg-
inn.
„Þegar svo ber undir, að við hittum menn af yðar
tagi,“ mælti foringinn halti, „opnast augu okkar fyr-
ir þvi, að vinir okkar fyrir handan hafið gera málum
Þjóðverja gagn.“
„Starf yðar hlýtur að vera skemtilegt viðfangs,“
sagði einn þeirra, er virtist liafa látið af herþjón-
ustu.
„Öllum erfiðleikum yðar er nú lokið,“ sagði yfir-
foringinn. „í kveld verðið þér kominn til Berlínar
og þar fáið þér vafalaust umbun verka yðar. Vestur-
heims-menn, sem eru Þjóðverjum vinveittir, eiga lík-
lega ekki miklum ástsældum að fagna í Lundúnum?“
Eg muldraði: „Tæpast!“
„Þér hljótið að vera mjög Iaginn, fyrst þér hafið
aldrei vakið grun á yður,“ sagði yfirforinginn.
„Það er óvist nema eg hafi vakið grun á mér ein-'
hversstaðar,“ sagði eg.
„Fyrirgefið herra minn,“ sagði yfirforinginn (eg
var kominn á þá skoðun að hann væri reglulega mál-
gefinn náungi). „Mér er að nokkuru kunnugt um er-
indi yðar og hversu áríðandi það muni vera. -— Við
erum hér i vinahóp — er ekki svo, herrar mínir? —
Og mér er því óhætt að tala við ykkur i trúnaði? Það
komu hingað sérstakar fyrirskipanir yður viðkom-
andi frá herstjóminni í Miinster. Sérlest var búin
að biða yðar í fjóra daga. Maðurinn, sem átti að taka
á móti yður liefir beðið yðar, fullur eftirvæntingar.
Hann var farinn af stöðinni í morgun þegar eg ....
.... hitti yður. Eg gerði honum orð, að finna yður
héma . ...“
Þetta varð æ sögulegra. Það var ekki um það að
villast, að eg var tiginn maður og mikils metinn.
„Hvaðan komið þér — eg á við — hvaðan úr Vest-
urheimi, dr. Semlin?“ spurði mannsrödd á hreinni
ensku. Foringi sá, er vantaði annan handlegginn,
hafði tekið til máls.
„Frá Brooklyn,“ svaraði eg ótrauður — en mér
fanst blóðið frjósa í æðum mér, er eg heyrði talaða
tungu feðra minna.
„Það heyrist ekkert á máli yðar,“ mælti liinn
ismeygilegum rómi.