Vísir - 08.03.1932, Qupperneq 3
V I S I R
heimtar rétt sinn. —- A þeim
degi verða ofstopar og' rang-
jndapúkar svinbeygðir, en siðar
lenda þeir á pólitiskum verð-
gangi.
Sjálfstæðisflokkurinn og Al-
þýðuflokkurinn liafa nú tekið
höndum saman í kjördæmamál-
inu. Og þess er að vænta, að
leiðir þeirra skiljist ekki í því
máli, fyrr en yfir lýknr. Það
væri flokkunum til mikillar
sæmdar, að vinna undirhyggju-
Jaust og í bróðerni að fram-
gaugi þessa mikla réttlætis-
máls og mannréttinda, þrátt
fyrir alt sem á milli ber. —
Kjósendur i beggja liði verða að
gera sér ljóst, að samvinna
flokkanna í þessu eina máli
merkir ekki samvinnu í öðrum
málum. Stefnumál flokkanna,
hvórs um sig, verða óbreytt
eftir sem áður. — Sjálfstæðis-
jflokkurinn og Alþýðuflokkurinn
eru og verða sennilega lcngi
hinir eiginlegu andstöðuflokkar
hér í landi, og þarf enginn að
.ótiast, að ágreiningsmál þeirra
lijaðni eða verði að engu, þó að
þeir stvðji hvor annan i kjör-
dæmamálinu. — Er þessa getið
hér sakir þess, að stölcu menn
virðast ætla, að um einhvers
konar samruna flokkanna eða
sambræðslu sé að ræða.
Nú er sókn liafin i kjör-
dæmaskipunarmálinu og l’or-
vígismenn flokkanna verða að
-vera þess minnugir, að kjósend-
urnir ætlasl til þess, að i engu
verði livikað frá setlu marki.
3En markmiðið er það, að allir
alþingiskjósendur hér á landi
hafi jafnan kosningarrétt. Þeg-
ar sá réttur er fenginn, ganga
allir flokkar jafnbúnir til hinn-
ar pólitisku orrahríðar. Þess
vegna ætti liver sá flokkur, sem
trúir á sigursæld málstaðar
sins, að ganga fagnandi að þvi
verki, að brjóta niður úrelt og'
ranglátt kosninga-skipulag. —
Sjálfstæðismenn og' Alþýðu-
flokksmenn trúa á sigursæld
málstaðar síns og taka liöndum
jsaman til þess, að koma rang-
lætinu á kné. •— Framsóknar-
fíokkurinn veil, að málstaður
lians er óverjandi að fleslu eða
öllu. Flokkurinn veit, að liann
stendur á fúnum fótum rang-
Jætisins, en liann þráir heitt, að
mega staulast á þessum andlegu
.„bægifótum“ óáreittur í lengstu
lög. — En honum verður ekki
íið ósk sinni.
F rj álsbornir íslendingar
heimta rétt sinn óskoraðan. —
Þeir fordæma ofbeldishug
stjórnarflokksins og krefjast
þess einum rómi, að ekki verði
jtiikað i kjördæmamálinu.
----------------
%
Innbrot
var frarnið í nótt í sýningarher-
bergi Ólafs Magnússonar ljósmynd-
ara, vi'Ö Templarasund, og stoliö 3
stórum ljósmyndum, innrömmutS-
um. Innbrotið var frami'ð kl. 5—6
og heyrði fólk i húsinu til þjófsins.
Lögreglan var kvödd á vettvang og
kom tafarlaust, en þá yar þjófurinn
-eða þjófarnir allir á brott. LeitaÖi
lögreglan hvarvetna þarna í kring
og i næstu götum, árangurslaust.
Hugsanlegt er, að þjófurinn hafi
sloppiÖ í bifreið eða að hann búi
eigi mjög langt frá þeiin stað, sem
ínnbrotið var framið.
19 kr.
ea
Nokkrip klólar
úr ull Tweed Jersey
aöeins 19 kr. (ádur 35-45 kr.
Ef ykur vantar hversdagskjól, þá skoð-
ið þessa hentugu og ódýru kjóla!
NINOK.
ALUTUQJTQXT! -12
Kaupmenn I
Kaupið R. R. R.-hveitið. Það er ódýrt og gott. Látið það
aldrei vauta i skúffuna, þvi húsmæður eru farnar að biðja um
það.
H. BENEDIKTSSON & CO.
Sími 8 (4 línur).
Kjör hljöðfæraleikara.
—o—
Það er talsverður þjóðræknis-
hugur í okkur Islendinguin um
jiessar mundir. „Kaupið íslenskar
vörur !“ „Styðjið íslenskan iðnað !“
er hrópað um landið þvert og endi-
langt. Er ekki eðlilegt, að bæta við
þessi ávörp nýrri setningu: „Styðj-
ið íslenska menn til þeirrar atvinnu,
sem hér er a'Ö fá, og þeir eru færir
til!“
Líklega eru ísleuskir hljóðfæra-
leikarar fámennasta stéttin, sem hér
er til. Þeir eru líklega um þrír tugir
talsins, að meðtöldum útlendum
mönnum, sem hér hafa ílendst, sem
atvinnu hafa gert sér, að einhverju
eða öllu levti af hljóðfæraslætti, —
og þeir eru langflestir atvinnulaus-
ir. — En hér eru að minsta kosti
þrettán hljóðfæraleikarar útlendir,
ráðnir til margra mánaða, fyrir
hátt kaup.
Það mátti segja, að veitinga-
mönnum væri það vorkunn, þó að
þeir sæktu hljóðfæraleikara til út-
landa, á meðan ekki var völ á
mönnum hér. En nú er þetta að
breytast. Sannleikurinn er sá. að
méð dálitlu áf góðum vilja og ofur-
lítilli lagni, er nú hægt að skipa
hljómsveitir veitingahúsanna hljóð-
færaleikurum sem hér eru fyrir, svo
að vel mætti við una'. Að minsta
kosti væri hægt að skipa hljómsveit-
irnar að' íniklu lcyti íslenskum
mönnum, og bæta þá við einhverj-
um sérstökum útlendum hljóðfæra-
leikurum, ef mikils þætti við þurfa,
enda væri þeir þá af þeim mönn-
um, sem hér eru fyrir.
En veitingamennirnír eru ekki
einráðir um þetta. Gestir þeirra
ráða miklu og jafnvel mestu. Ef
veitingamaður kærir sig kollóttan
um þjóðerni, þá er honum ekki lá-
andi, þó að hann vilji gera gestum
sínum til hæfis, með því að hafa
svo skipaða hljómsveit, sem þeim^
líkar, jafnvel þó að hljóðfæraleik-
ararnir væri „halanegrar". Það er
þess vegna ekki síður koniið undir
almenningi en veitingamönnunum,
hvort íslenskum hljóðfæraleikurum
gefst nokkunitíma kostur á þeirri
atvinnu, sem nú er hér í höndum
útlendinga.
En það er ekki að eins á veit-
ingahúsunum, sem útlendingar
þessir hafa atvinnu af íslenskum
hljóðfæraleikurum. Á vetrum hafa
allmargir íslenskir hljóðfæraleikar-
ar atvinnu af þvi, að spila á dans-
leikjum. Inn á þetta svið hafa út-
lendingarnir líka seilst, — auðvitað
að ósk og vilja fólksins, sem dans-
leikina heldur. Þeir vinna það jafn-
vel til, að spila stöku sinnum undir
dansleik ókeypis, til a'Ö koma sér í
mjúkinn. Eg er ekki að lá þeim
Jietta, mönnunum, en eg lái þeim,
sem þetta þiggja. Og enn er eitt:
Scnnilcga brjóta t. d. þýsku liljód'-
fœralcikararnir, scm hcr cru, í bág
við atvinnuleyfi sín, scm stjórnar-
ráðið hcfir vcitt þeim, í livcrt sinn,
scm þcir spila annarsstaðar hcldur
cn á veitingahúsimmn, scm leyfi
þeirra eru bundin við.
Eg ætla að nefna eitt dæmi um
það, hveruig farið er með íslenska
hljóðfæraleikara, eða þeir láta fara
með sig. Jóhannes Jósefssoh er sá
eini veitingamaður hér, sem nú um
hríð hcfir geíið íslenskum hljóð-
færaleikurum nokkurn kost á at-
vinnu, og líklega er það hending
ein, a'ð á „Hótel Borg“ eru ekki
eingöngu íslenskir hljóðfæraleik-
arar. Á kveldin eru þar nú tveir
íslendingar í hljómsveitinni (og
einn og á daginn). Nú'stendur svo
á, að næstkomandi laugardagskveld
heldur eitt mesta íþróttafélag bæj-
arins dansleik á „Hótel Borg“.
Leika þá þessir íslendingar i'hljóm-
sveitinni sinn venjulega vinnutíma,
til kl. iiþý Eftir þann tíma er að
ræða um aukaþóknun, — og þá eru
íslendingarnir látnir fara. Útlend-
ingarnir sitja eftir, og Þjóðverjarn-
ir frá „Hótel ísland“ koma þeim
til liðsauka, og skiftast sí'ðan ílokk-
arnir á að spila undir dansinum,
það sem eftir er nætur, fyrir góða
borgun. — Þetta er ekkert eins-
dæmi.
á „Hótel Skjaldbreið“ eru þrír
danskir hljóðfæraleikarar. Eg ætla
ekkert um þá að segja. Ræð mönn-
um til a'ð hlusta á þá, og dæma um
það með sjálfum sér, hvort líklegt
sé, að sækja þurfi slíka hljóðfæra-
leikara langar leiðir.
Nýlega, var hér i bænum stoínað
„Félag íslenskra híjóðfær-aleikara“.
í því eru allflestir Jieir menn, bú-
settir hér, er hljóðfæraslátt stunda
sem atvinnu, að einhverju eða öllu
leyti. Tilgangur þessa félags er
meðal annars sá, að reyna að hæta
atvinnuskilyrði íslenskra hljó'ð-
færaleikara og stu'ðla að því, að
þeir geti verið við því búnir og fær-
ir um, að. koma í stað hinna út-
lendu manna. Félag þetta er ekki
fyrirferðarmikið og verður sjálf-
sagt ekki fyrst um sinn, en á það
verður lögð áhersla, að reyna að
af-la sér velvildar og trausts almenn-
ings og þeirra, sem það kanii að
eiga mök vi'ð. — En að því verður
stefnt, með hæversku og einurð, að
íslenskir hljoðfæraleikarar njóti
allrar þeirrar atvinnu, sem hér
verður um að ræða, og þeir eru
færir um. í stjórn þessa félags eru:
Bjarni Böðvarsson (fonn.), Theo-
dór Árnason (ritari) og Guðlaugur
Magnússon (gjaldk.), en í inntöku-
prófsnefnd: Georg Takács, Þór-
hallur Árnason og Theodór Árna-
son.
Th. A.
Föstuguðsþjónusta
í dóinkirkjunni kl. 6 annað
kveld. Sira Friðrik Friðriksson.
Föstuguðsþjónusta
í fríkirkjunni annað kveld kl. 8.
Síj'a Árni Sigurðsson.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavik t- 3 stig, Ak-
ureyri 1, Seyðisfirði 2, Vestmanna-
cyjum 1, Stvkkishólmi 2, Blöndu-
ósi 1, Raufarhöfn 2, Hólum í
Hornafirði 3, Grindavík o, Fær-
eyjum ~ 1, Julianehaab 2, Jan
Mayen 1, Angmagsalik -f- 5, Hjalt-
landi 2 og Tynemouth o. Skeyti
vantar írá Khöfn. — Mestur hiti
hér í gær 1 stig, mmstur 4 stig.
Sólskin í gær 4,6 st. — Yfirlit: Há-
þrýstisvæði fyrir norðan land, en
gfunn lægð fyrir suðaustan. ís inn
undir Hrisey, mikill ís á Siglufirði.
■— Horfur: Suðvesturland, Faxa-
flói: Norðaustan kaldi. Bjartviðri.
Breiðafjörður, Vestfirðir: Norð-
austan stinningskaldi. Dálítil snjó-
él. Norðurland, norðausturland,
Austfirðir: Norðaustan kaldi. Dá-
lítil snjóél. Suðausturland': Norð-
austan kaldi. Bjartviðri.
Dánarfregn.
Þóránna og Þorst. J. Sigurðsson
kaupm, hafa orðið fyrir þeirri sorg,
að missa efnilegan. dreng, 11 ára
gamlan. Drengurinn andaðist s.l.
laugardag.
Skip Eimskipafélagsins.
Gullfoss er á útleið. Fór frá
Vestm.eyjum á hádegi í dag. Lagar-
foss er á Hólmavík, fer þaðan til
Reykjarfjarðar, þegar fært er
vegna íss. Goðafoss er í Hull. Sel-
foss er hér. Brúarfoss fer í hring-
ferð austur um land í kveld, en
hraðferð Dettifoss vestur og norð-
ur er frestað.
9200 kjósendur
liér í bænum hafa 11Ú skrifað
undir áskorun til Alþingis um
réttláta kjördæmaskipun, en
margir listar eru enn ókomnir
og ver'ður undirskriftasöfnun
haldið áfram í dag og' ef til vill
lengur. Þeir, sem eiga eftir að
skrifa undir, eru beðnir að gera
aðvarl um það á skrifstofu sjálf-
stæðisflokksins í Varðarliúsinu,
svo að liægt verði að senda til
þeirra, eða koma sjálfir á skrif-
stofuna og skrifa þar undir. -—
Þess skal enn getið, að áskriftar-
listar liggja frammi á skrifstof-
um dagblaðanna (Vísis,Morgun-
blaðsins og Alþýðublaðsins) og
geta kjósendur skrifað sig á
lisla þar.
80 ára
verður á morgun frú Guðrún
Johnson, prestsekkja í Kaupmanna-
höfn (Hindeg. 9). Hún er dóttir
hins þjóðkunna prófasts Ólafs E.
Johnsens á Stað á Reykjanesi, en
ekkja síra Steingrínis Jónssonar í
Otrardal. Frú Guðrún liefir dvalið
í Kaupmannahöfn siðan 1889 og er
mörgum íslendingnm að góðu
kunn.
78 ára
er í dág Kristjana Jónsdóttir,
ekkja Sigurðar heit. Pálssonar fyrv.
verslunarstjóra á Hesteyri. Frú
Kristjana er til heimilis að Sand-
prýði við Laugarnesveg.
Sjötugsafmæli
átti í gær fyrv. hjúkrunark.
Guðríður Jensdóttir, Laufásvegi
20.
G.s. ísland
kom i gær kl. 4y2 til Kaup-
mannaliafnar.
E.s. Lyra
kom hingað í dag.
E.s. Nova
fór liéðan i morgun.
Gengið í dag.
Sterlingspund ..........kr. 22.15
Dollar.................. — 6.29)%
100 sænskar kr.......—- 122.03
— norskar kr..........— 121.00
— danskar kr..........— 121.97
—- ríkismörk........... —• 149.17
-— frakkn. fr..........— 24.88
— belgur ............ —• 87.39
— svissn. fr...........— 121.48
— lírur . . . ...... —■ 32.81
— pesetar ........... — 48.48
— gyllini .............— 252.91
— tékkósl. kr..........— 18.84
Gullverð
íslenskrar krónu er 59.28.
Gullfoss
fór héðan í gærkveldi áleiðis til
Kaupmannahafnar. Meðal farþega
til útlanda voru: Carl Finsen og
frú, Guðm. Pétursson, Páll Helga-
son, Haukur Þorleifsson o. fl. Auk
þess margir til Vestmannaeyja.
Iv. R.-félagar.
Fimleikaæfingar byrja í kvöld kl.
7—8 i telpnafl., kl. 8—9 1. fl.
kvenna, kl. 9—10 2. fl. karla, og
kl. 10 1. fl. karla. Verða æfingar
framvegis á þriðjudögum.
Meðal farþega
frá útlöndum á Dettifossi voru
Jieir Gunnar J. Möller, stúdent,
Gunnláugur Blöndal, listmálari,
Gunnl. G. Björnsson, Gísli Sigur-
björnsson og Sveinn Valfoss.
Leiðrétting.
í sléttubandavísu Ól. B. Ól. hér
í blaðinu í gær, hefir þriðja ljóð-
lína brjálast við leiðréttingu á próf-
örk. Vísan átti að vera Jiannig:
Njótið Jijóðar hylli hér,
högu óðar vinir.
Mótið ljóða orðspakt er,
fslands góðu synir.
Lorentz Hop,
fiðluleikari, var meðal íarþega á
Lyru. Samkvaunt áskorunum hélt
hann hljómleika í Vestmannaeyjum
og var fádæma vel tekið.
Leikhúsið.
„Fröken Júlía“ verður leikin í
Iðnó kl. 8)4 í kveld. A'ðsókn að
Jiessum merkilega leik hefir verið
ágæt.
Frá Trésmíðafélagi Reykjavíkur.
,,í fregninni um Trésmíðafélag
Reykjavíkur í Visi 7. mars, hefir af
vangá fallið burtu nafn gjaldkera
félagsins, Valdimars Runólfssonar,
Mímisvegi 2. Ennfremur leiðréttist
eftirfarandi: í staðinn fyrir Krist-
inn Guðmuudsson komi Kristvin
Guðmundsson, og fyrir gjaldkeri
fyrir byggingarsjóðinn komi gjald-
keri fyrir tryggingarsj óðinn.“
Esperantokensla
Þórbergs Þórðarsonar byrjaiþ
aftur i kveld.
Bethanía.
Samkoma i kveld kl. 8%. AH-
ir velkomnir.
Sendisveinafundur
verður haldinn í kveld i Varð-
arliúsinu kl. 8y>. Sjá augl.
L. F. K. R.
Baðstofukveld fimtudaginn
10. mars, kl. 8y> í Iv. R.-húsinu.
Upplestur: Mánaðarritið o. fl.
— Konur, takið handavinnu
með.