Vísir - 18.03.1932, Blaðsíða 2
V t S I R
XJ t ger 9 armenn I
HeildsOlubirgðir af 1. fl.
Fiskilínum,
biknðom og dbiknðnm.
Símskeyti
—o—
Genf 17. mars.
Unitcd Prcss. - FB.
Japanar hef ja heimflutning her-
liðsins frá Shanghai.
Hymans, forseti þings Þjóða-
bandalagsins, hefir tilkynt
þinginu, að opinberar tilkynn-
ingar séu fram komnar um að
ófriðnum á Shanghaivigstöðv-
unum sé lokið. — Sato, fulltrúi
Japana, lýsti því yfir, að heim-
flutningur herliðs Japana væri
hafinn. Fjórtán þúsund lier-
menn væri lagðir af stað heim-
leiðis.
Berlín 17. mars.
United Press. - FB.
Byltingartilraun Hitler-sinna.
Lögreglan um gervalt Prúss-
land hefir gert húsrannsókn á
bækistöðvum deilda Ilitlers-
manna, og er þetta einn liður
i undirbúningsstarfi til þess að
koma í veg fyrir, að ITitlers-
menn geti lirifsað til sin völd-
in í landinu með byltingu. —
Komið liefir í ljós, að orð þau,
sem uppreistarmenn ætluðu að
láta ganga mann frá manni til
merkis um, að uppreistin væri
hafin, voru þessi: „Anuna er
dáin, Max.“
London 17. mars.
United Press. - FB.
Gengi.
Gengi steríingspunds miðað
við dollar, er viðskifti liófust
;i6iy2, en 3.6114 cr viðskiftum
lauk.
New York: Gengi sterlings-
punds $ 3.61 ’/s—3.62.
Vínarhorg 17. mars.
United Press. - FB.
Forvaxtalækkanir.
Þjóðbankinn hefir lækkað
forvexti um 1% í 7%.
London 17. mars.
Unitcd Press. - FB.
Forvextir hafa lækkað um
%% i 31/2%.
Wasliington í mars.
Unitcd Press. - FB.
Þráðlaus talsambönd landa
í milli.
Þann 10. mars var 56 ára af-
mæli talsímans i Bandaríkjun-
um. Þann 10. mars 1876 liafði
Alexander Graham Bell full-
komnað svo talsímann, sem
hann fann upp, að hann gat not-
að hann til þess að tala við fé-
laga sinn. Nú er svo kornið, að
talsímanotendur í Bandaríkjun-
um geta talað við talsímanot-
endur í fjörutíu löndum, en i
þessum löndum, að Bandaríkj-
unum meðtöldum, eru 32.750.-
0G0 talsímar eða 92% allra
slíkra tækja í heiminum. Sér-
fræðingar sambandsstjórnar-
innar í Waslnnglon álíta, að
þess muni tiltölulega skamt að
biða, uns talsímasamband verði
komið á milli Bandaríkjanna
og allra annara landa. Sem
stendur eru að eins fjögur lönd,
sem livert um sig Iiefir meira
en 100.000 talsíma, sem Banda-
rikin liafa ekki samband við,
þ. c. Kína, Japan, Rússland og
Suður-Afríka.
Talsambands framfarirnar
landa milli liafa verið mestar
frá 1922. Þá höfðu Bandaríkin
að eins talsamband við Kúbu
og Canada. En nú liafa Banda-
ríkin talsamband við flest lönd
Evrópu, Mið- og Suður-Ame-
ríku, Nýja Sjáland, Ástralíu,
Marokko, Java, Sumatra og
Austur-lndland. Og síðastliðið
sumar var komið á talsambandi
við Hawaii í Kyrralxafi. Og þar
með voru Bandarikjamenn
2000 mílum nær því marki, að
í'á talsamband við Japan og
Kíria.
Talsímaiðnaðurinn er einn af
aðaliðnuðuin Bandarikjanna.
Hafa Bandaríkjamenn lagt í
þenna iðnað $ 5.250.000.000, en
til viðhalds, endurbóta og aukn-
ingar ver iðnaðurinn árlega
$ 500.000.000.
Qtan af landi
—s—
Gunnólfsvik, 29. febr. FB.
Fiskafli.
Fyrir nokkru síðan varð fisk-
vart á Leiknisstöðum á Langa-
'nesi og síðan hefir verið þar
góður afli, þegar róið liefir ver-
ið. — Nýlega er farið að aflast
á Bakkafirði. Þar er ágætur afli,
en fiskurinn langt sóttur. Ann-
arstaðar hefir ekki orðið fisk-
vart enn þá hér.
Vöruskortur og peninga.
Að undanförnu hefir verið
allskonar vöruskortur í nær-
sveitunum. Verslanir virðasl
jafnvel takmarka mjög pantan-
ir á nauðsynjavörum. Sérstak-
lega liafi margir verið kaffilaus-
ir nú til lengri tíma. Almenn
vandræði vegna peningaskorts.
Bændur gæta hins mesta liófs í
hverskonar eyðslu og öllum
fjármálum. Mjög slæmar liorí-
ur, ef ekki raknar úr á ein-
livern hátt.
Útvarpið.
Nýlega voru sett upp útvarps-
viðtæki í Steintúni og eru það
önnur viðtækin, sem koma i
þcnna hrepp.
Tíðarlarið.
Einmuna góðviðri að undan-
förnu: Hita- og sólskinsblíður
og stafalogn. .Törð sumstaðar
farin að grænka. Flestar skepn-
ur ganga sjálfala.
Heilbrigði.
Heilsufar manna gott og cng-
ar farsóttir. Læknirinn, sem get-
ið var um í síðasla fréttabréfi
liéðan, að hcfði slasast, er nú
farinn að klæðast.
Frá Alþingi
í gær.
—0—
Efri deild.
Þar voru fimm mál á dagskrá
1. Frv. til 1. um heimild handa
atvinnumálaráðh. til að veita
Transamerican Airlines Corpo-
ration leyfi til loftferða á ís-
landi o. fl. Frh. 2. umr.
Frv. var samþ. og því vísað
til 3. umr.
2. Frv. til I. um breyt. á yfir-
setukvennalögum nr. 63, 19.
maí 1930. 2. umr.
Var tekið út af dagskrá.
3. Frv. til 1. um kartöflukjall-
ara og markaðsskála. 1. umr.
Frv. var vísað til 2. umr. og
landbn.
4. Frv. til framfærslulaga. 1.
uinr. Flm. Jón Baldvinsson.
Frv. þetta er að mestu gagn-
gerð breyting á núgildandi fá-
tækralögum. Eftir því verður
ríkið alt eitt sameiginlegt fram-
færslufélag og á þá lxver maður
framfærslu í dvalarsveit sinni.
Frv. var vísað lil 2. umr. og
allslin.
5. Frv. til 1. um veiting ríkis-
borgararéttar, 1. umr. Flm.:
Halldór Stefánsson.
Hans Jakob Ilansen, sem
fæddur er í Danmörku, skal
samkv. frv. öðlasl rikisborgara-
rétt hér á landi. Hann hefir
verið búsettur hér í 27 ár. Mál-
inu var vísað til 2. umr. og
allshn.
Neðri deild.
10 mál komu þar lil umræðu
í gær.
1. Frv. til 1. um próf leik-
fimi- og íþróttakennara. 3.
umr.
Frv. var samþ. og sent efri
deild.
2. Frv. til 1. um bifreiðaskatt
o. fl. 3. umr.
Málið var tekið út afdagskrá.
3. Frv. til 1. um framlenging
á gildi 1. um verðtoll. 3. umr.
Frv. var samþ. með 15 atkv.
gegn 4.
4. Frv. til 1. um breyt. á 1. nr.
36, 7. maí 1928 (gengisviðauki).
3. umr.
Frv. var samþ. með 15 atkv.
gegn einu.
5. Frv. til 1. um innflutning á
kartöflum o. fl. 3. umr.
Uinr. urðu nokkurar um
inálið og kofnu fram margar
brtt. við frv. Var málið loks tek-
ið út af dagskrá og umr. um það
frestað.
6. Frv. til 1. um eignarnám á
landspildu á Bolungarvíkurmöl-
um í Hólshreppi. 2. umr.
Frv. var samþ. og máliriu vís-
að til 3. umr.
7. Frv. til I. um eignarnám á
landspildu í Skeljavík við Hnífs-
dal. 2. umr.
Frv. var samþ. og inálinu
vísað til 3. umr.
8. Frv. til 1. um verðtoll af
tóbaksvörum. 2. umr.
Frv. var samþ. og málinu
vísað lil 3. umr.
9. Frv. til 1. um breyt. á 1. nr.
45, 15. júní 1926, um almanna-
frið á helgidögum þjóðkirkj-
unnar. 1. umr.
Málinu var vísað til 2. umr.
og' allshn.
10. Frv. til 1. um stóríbúða-
skatt. 1. umr. Flm. Jónas Þor-
bergsson, Bergur Jónsson,
Hannes Jónsson, Sveinbjörn
Högnason.
Hver sá, scm býr í íbúð, sem
metin er að fasteignamati yíir
18000 kr. virði með tilheyrandi
lóð, og eigi hefir fleiri i lieimili
en 5 manns, skal greiða af henni
árlega stóribúðaskatt í ríkis-
sjóð. Fyrir livern heimilismann
umfram 5, skal hækka skatt-
frjálst ibúðarverð um 2500 kr.
og lækka um sömu uppliæð fyr-
ir livern mann, sem lieimilis-
menn eru færri en 5.
Héðinn Valdimarsson gat
þess, að alþýðuflokksmenn
mundu bera fram þá brtt. við
þetta frv., að stóríbúðaskattur-
inn skuli renna til verkamanna-
búslaða, en ekki til ríkissjóðs.
Mundu þeir ekki fylgja þessu
frv. nema að sú brtt. þeirra
næði fram að ganga.
Ólafur Thors benti á, að þetta
frv. mundi verða til þess að
draga úr byggingum, við það
mundi húsaleiga hækka og þar
með dýrtíðin aukast i Rvík.
Ilann væri og á móti því, að fá
stjórninrii meira fé í liendur til
sóunar, eins og til væri ætlast
með þcssu frv., sem væri beinn
skattur á Reykvíkinga.
Fundartíma var lokið áður
en málið væri útrætt og var því
uinr. frestað.
Rannsökn á vitamfnnm
í íslenskn'smjðrlflá
—o—
Á síðastliðnu vori birli eg í
„Vísi“ aðvörun til almennirigs
út af ógætilega orðuðmn aug-
lýsirigum frá snijörlíkisverk-
smiðjunum í Reylcjavík. Var í
auglýsingum þessuiri lialdið
fram, að smjörlíkið íslenska
væri auðugt að fjörefnum, og
jafnvel gefið í skyn, að það
myndi ekki staiula að baki
smjöri að þessu leyti.
Hr. M. Thorsteinsson svaraði
nieð æði langri grein í þessu
blaði þ. 30. apríl s.l. Var ekki
nema eðlilegt, að liann vild bera
hönd fyrir liöfuð. Eg bið hr.
M. Th. að misvirða ekki, þólt
dregist hafi fyrir mér að svara.
Við vorum báðir sammála um,
að ítarleg rannsókn væri æski-
leg. Nú er hún gerð, og fengin
vísindaleg prófun á vítamín-
gildi „Ljóma“-, „Ásgarðs“-
„Smára“- og „Svana“-smjör-
líkis. Er þvi timabært að
hreyfa málitiu á ný.
Eg fór þess á leit við heil-
brigðisfulltrúa Ágúsl Jósefssoh,
að Jiessi rannsókn yrði gerð á
opinberan kostnað. IJeilbrigð-
isfulltrúanum var ljóst, að hér
var um að ræða mikilsvert at-
riði öllum almenningi, og brást
vel við tilmælum mínum. Fékk
hann þvi framgengt, með, sam-
þykki heilbrigðisnefndar, að
þessi athugun færi fram.
Smjörlíki frá nofndum fjór-
um verksmiðjum senxli hr. Ág.
Jós. til „Stalens Vitamininsti-
tut“ í Osló. Norðmenn hafa ný-
lega komið á fót þessari ríkis-
stofnun, og er forstjóri licnnar
liinn viðkunni vísindamaður
próf. E. Poulsson, sem um
langt skeið var kennari i lyfja-
fræði við háskólann i Osló.
Rannsóknirnar tólui nokkura
mánuði. Tilliögun þeirra og
úrslitum lýsir próf. E. P., i
skýrslu sinni, á Jiessa leið:
Rannsóknin var gerð með
tilraunadýrum, og notaðir
nokkurir hópar af rottuyrð-
lingum. Var þeim valið fóður,
fullkomið að öðru leyti en því,
að A-fjörefnið vantaði. Það
fór fyrir þessuni yrðlingum,
eins og ætíð þegar Jiið ómiss-
andi A-vítamín vantar, að eft-
ir nokkurar vikur hættu þeir
að dafna og þroskast (þyngj-
ast), og tóku augnveiki. Nú
var kominn timi til þess að
prófa smjörlíkið frá íslandi,
og reyna hvort það gæti gefið
rottunum lieilsu og framför.
Margföld reynsla sýnir, að um
30 — þrjátíu — sentigrömm á
dag af venjulegu smjöri nægja,
á þessu stigi málsins, til þess
að bjarga liinum sjúku til-
rauna-rottum. Þær fara þá að
þyngjast á ný, og augun lækn-
ast. Próf. Poulsson lýsir því
nú, að smjörlíkinu frá Reykja-
vík liafi verið bætl i fóðrið.
Hver yrðlinga-liópur fékk að
eins smjörlíki frá einni og
sömu verksmiðju. En alt kom
fyrir ekki. Yrðlingunum lirak-
aði jalnl og þétt, og drápust
allir af uppdráttarsýki, eða
voru deyddir, þegar útséð var
um þá. Fengu flestir þungan
augnsjúkdóm, og ýmsa aðra
kvilla, svo sem eyrna-ígerðir,
lungnakvef og niðurgang. Hver
yrðlingur var tölusettur, og
fylgir skýrslunni nákvæm lýs-
ing á afdrifum liverrar skepnu.
Smjörlíkið hafði ekki í sér vita-
mín, lil þess að bjarga tilrauna-
dýrunum úr kyrkingi og sjúk-
dómi. Próf. Poulsson kemst svo
að orði: „Undersökelserne har
git negative resultater; ingen av
margarinerne kunde paa nogen
maaíe sammenlignes med
smör.“
Þetta eru skýr svör, og niður-
stöðurnar verða ekki véfengdar.
iÞær eru gerðar með visindalegri
nákvfémni, og Slatens Vitamin-
institut í Osó hefir alþjóða
traust, meðal lífeðlisfræðinga
og heilsufræðinga.
Nú bætir próf. Poulsson því
við, að smjörlíkið frá Rvík sé
að vísu ekki alveg fjörefnalaust,
þótt ekki gæti það bjargað til-
raunadýrunum, né jafnast að
neinu leyti á við smjör. A-efni
er og að finna í kjöti o. fl. mat-
artegundum. Það litla sem fanst
af fjörefnunum (m. litarpróf-
unum) reyndist ámóta í Svana-
og Ljóma-smjörliki. Virðist því
liið mjög básúnaða ,iEviunis“-
efni ekki hafa yfirburði yfir
önnur efni, sem verksmiðj urn-
ar kunna að blanda í margar-
inið. ÖIlu minna fanst í Smára-
og Ásgarðs-smjörlíki.
Menn og skepnur þurfa A-
efni í fæðuna, til þess að ná
þroska, og haída heilsu. Smjör,
þorskalýsi og bræðingur munii
auðugust af þessu efni, þeirra
matvæla, sem vér eigum úr að
velja. Bræðirigur og lýsi hafa
vafalaust haldið lifi i íslensku
þjóðinni, á hallæris- og þreng-
irigatímum, fyr á öldum. Sveita-
bændur, scm reka búskap með
nýtísku sniði, og senda nýmjólk-
ina jafnharðan til mjólkurbú-
anna, þurfa að hafa gát á sér.
Nýmjólk, rjómi og smjör
hverfa al' heimilunum, en í stað
þess kemur undanrenna og að-
flutt smjörlíki. Fæðið verður
bætiefna-rýrl. Hér cr liætta á
ferðum.
Smjör og einkanlega lýsi liafa
reyndar í sér tvensl onar fjör-
efni. Annað er A-efnið, sem er
ómissandi til vaxtar öllu ung-
viði, og viðhalds heilsunni. Hitt
er D-efnið, sem kemur í veg fyr-
ir beinkröm („ensku sýkina“).
Smjörlíki liefir vitanlega nær-
ingargildi sem liitagjafi, við
efnaskifti fæðunnar í likaman-
um, og er ómissandi verðsins
vegna. En vitamínin vantar enn
í smjörlíkið, svo nokkru nemi,
hvað sem um það er auglýst.
Málli reyndar vita þetla áður,
en tilraunir próf. Poulssons taka
af allan vafa. Á vísindastofnun-
um erlendis eru gerðar miklar
tilraunir til þess að framleiða