Vísir - 06.06.1932, Page 3

Vísir - 06.06.1932, Page 3
V 1 S I R rúmið“ er samskonar saga, af manni sem altaf er á flugi og ferð, sem sögumaðurinn er al- staðar að reka sig á, en þráir heim til að deyja þar. fslend- ingar eru út um allan heim. Alt af er það liið sama sem ein- kennir þá, sterk heimþrá, eða föðurlandsást; ást á moldinní þar . sem þeir ólust upp; sú jnold er eini staðurinn, sem þeir geta dáið á. IV. Öþolinmæði þykir mér vera gimsteinninn í sögusafninu. Hver maður sem einhverju vill koma í framkvæmd þekkir það að stappa í jörðina til þess liún snúist fljótar, og eitthvað heldur beri við. Fyrir hvern Revkviking er sagan hreina gull, þvi hún lýsir Reykjavík fyrir hðugum 25 árum þegar Eiríkur E. Harold fór þaðan 15 ára, sendur af föðurlandinu á varasveitarsjóðinn í Kanada, og hann sér allan sinn lieim hverfa, af þilfarinu á gufuskip- inu „Laura" og sór þess eið með því að bita á jaxhnn að koma ríkur heim aftur í bæinn i Skuggahverfinu Reykjavik. Þessi „kotbær þar sem liver þekti annan og vissi .... tivaða fress væri faðir að ketl- ingum hverrar læðu í bænum.“ Sagan er innileg lýsing af sjálfs- afneitun fátækrar sjómanns- ekkju fyrir Eiríki meðan hann var að vaxa upp. Hann kemur aftur eftir 25 ára brennandi óþolinmæði og er þá með „Gullfossi“. Batterí- ið er liorfið og hann bhknar við. Pollarnir eru farnir úr Austur- -strætinu, og bærinn raflýstur. Hann leitar í Skuggaliverfinu. Þár sem bær móður lians stóð er nú þrílyft steinhús. Hann ætlaði að sökkva í jörðina af vonbrigðum. Hann* var orðinn miljónaeigajaíii og fór á gisti- húsið. „Færið þið mér hangi- kjöt.“ — Hangikjöt er ekki til, svaraði þjónn, en taldi upp ýmsa rétti á frönsku með ,, Y atna j ökuls-f ramb u rði“, því hann gat lesið í andliti gest- anna hvað mikið var í peninga- huddunni. „Færið mér ein- hvern fjandann“, sagði Harold, og þegar það kom, spurði hann þjóninn að hvajð það kostaði, og livar kirkjugarðsvörðurinn byggi. Þjónninn svaraði því. Mi'. Harold lagði 100 kr. seðil á borðið til að borga með. Þeir, sem ganga út í hans erindum og hafa fullar hendur fjár eru oftast örlátir. Endirinn á sögunni grípur lesandann um lijartað eins og endirinn á sumum stuttu sög- unum hans Bret Harte gerði fyrir 40 arum. Frágangurinn á útgáfunni er vandaður. Indr. Einarsson. Norskar loftskeytafregnir. —o--- NRP., 1. júni. FB. Brandt prófessor lést á rílcis- spítalanum í gær. Banamein Jians var lungnabólga. NRP., 1. júní. FB. Fregnir frá Stokkhólmi herma, að vixlar að upphæð kr. Ö0.575.000 liafi verið afsagðir í gær. Einn víxlanna var að upp- hæð 575.000 kr., en liver hinna 1.000.000 kr. — Útgefandi víxl- anna var Ivar Kreiigcr, en sam- þykkjandi Kreuger & Toll, sem •er gjaldþrota. II Bæjarfréttir fl Veðrið í morgun. Hiti í Reykjavík 10 stig, ísa- firði 15, Akureyri 16, Seyðis- firði 9, Yestmannaeyjum 9, Stykkishólmi 9, Hóliun í Horna- firði 10, Færeyjum 12, ,luli- anehaab 8, Jan Mayen' -f- 0. (Skeyli vantar . frá Blönduósi, Raufarliöfn, Grindavík, Ang- magsalik, Hjaltlandi, Tyne- moutli og Kaupmannahöfn). Mestur hiti hér í gær 11 stig, minstur 8. Úrkoma 0,0 mm. Yfirlit: Grunn lægð um Jan Maven á liægri hrevfingu aust- ur eftir. Hæð fyrir suðvestan land. Horfur: Suðvesturland: Norðvestan kaldi. Úrkomulaust. Bjartviðri austan til. Faxaflói, Breiðafjörður: Vestan gola. Úr- komulaust. Vestfirðir, Norður- land, norðausturland, Austfirð- ir, suðausturland: Vestan gola. Víðasl bjartvirði. 87 ára ver'ður á morgun Guðrún Frið- finnsdóttir, Miðstræti 4. Trúlofuii. Síðastliðinn laugardag opinber- uðu trúlofun sína ungfrú Þóra Pálsdóttir, Grettisgötu 33, og Sig- urjón Sigurðsson, Akbraut á Akra- nesi. Gengið í dag. Sterlingspund .......... kr. 22.15 Dollar ................. — 6.oi)4 100 ríkismörk .......... — 142.82 — frakkn. fr............— 23-97 -— belgur .............. — 84.06 — svissn. fr............— 118.19 -— lírur ............... — 3I-I7 — pesetar ............. — 50.05 — gyllini . ........... — 244.80 — tékkóslóv. kr.....— 18.03 — sænskar kr. ......... — 113.90 —- norskar kr............— 110.81 — danskar kr............— 121.04 Gullverð ísl. krónu er nú 62.04. Haraldur Sigurðson, pianósnillingurinn góðkunni, var meðal farþega á Gullfossi síðast. Hann lieldur hljóm- leika í Gamla Bíó annað lcveld. Verða þeir vafalaust vel sóttir, því Haraldur er afburða snill- ingur í sinni grein. Skemtiför um Snæfellsnes. Nemendur 5. bekkjar Mentaskól- ans eru á skemtiför um Snæfells- nes þessa dagana. Fóru þeir héðan si'ðastliðinir föstudag, sjóleiðis til Borgarness, en þaðan var fer'ðinni lieitið til Stykkishólms. Gert var ráð fyrir, að þeir yrði að heiman hálfs- mánaðar tima. Pálmi rektor Hann- esson er með í förinni. í gær sím- uðu þeir hingað og létu hið.besta j'fir fer'ðalaginu. E.s. Gullfoss fer anna'ð kveld kl. 8 vestur og norður. E.s. Goðafoss fór frá Hamborg þ. 4. júni. E.s. Súðin kom úr hringferð í dag. E.s. Deítifoss kom hingá'ð í gærkveldi a'ð vest- an og norðan. E.s. Lagarfoss kom til Leith síðastliðinn laugar- dag. E.s. Selfoss fór frá Leith 3. júni. G.s. Botnía fór hé'ðan á laugardagskveld. OPEL Bíllinn, sem þúsundir manna hafa beðið eftir. OPEL er lítill bíll, en þó nokkru stærri en þeir smábílar, sem liér þekkjast. Þetta er rétti billinn, bú- inn öllum kostum stærri bíla, sérlega fagur og vand- aður, ódýr í rekstri og auðveldur með að fara. OPEL vinnur vel, vélin gengur titringslaust og bregður skjótt við. Hvílir í gúmmíklossum á fjórum stöðum. Stimplar úr léttum málmi. Blöndungurinn blandar bensín og loft ávalt í rétt- um hlutföllum, þó ökumaðurinn gleymi að stilla inn- sogið á verkfæraborðinu. Vegna þessa fer aldrei skökk bensínblöndun inn í vélina og getur ekki valdið skemdum. Bosch startari og kveikja, sjálfstillandi rafkveikja. Þrjú gír áfram, eitt afturábak. Grind með sex þver- bitum. Heilfjaðrir að aftan og framan úr Chrome- Vanadium stáli, olíufyltir hristingsliemlar. Fóthemlar á öllum hjólum, handhemill bak við gírkassann. Ben- sín-geymir að aftan, bensínpumpa liægra megin vélar- innar. Lugtir af nýjustu gerð, stefnuljós, sjálfvirkur rúðuþurkari, liraðamælir, olíumælir, bensínmælir, raf- kveikja læst með lykli, fullkomið verkfærasett o. fl. Gúmmíst^rð 26x4.00, stáldiskalijól. Vinstrihand- arstýri. Hemlar og allir ganglimir innilokað og vatns- og rykþétt. OPEL er til af sjö gerðum, þar á meðal einkar handhægir bílar til léttra flutninga. OPEL fæst einnig af stærri tegund, en er ódýrari en sambærilegir bílar. Aðalumboð fyrir ísland: JÓH. ÓLAFSSON & CO., Hverfisgötu 18, Reykjavík. Símar: 584 og 1984. Munið, að OPEL er bygður hjá General Motors, stærsta og langöflugasta bifreiðafélagi i heiminum. — Það er besta tryggingin. Þaö ep ótrúlega audvelt að útrýma flugum, möl og kakalökum með „K. 0.“-skor- dýraeitrinu frá Melga Maguiissyui & Co. Farþegar á Gullfossi voru m. a.: Haraldur Sigurðs- son píanóleikari, Óli Vilhjálms- son, J. S. Kvaran, Einar 01- geirsson, Einar Marlcan, Helgi Pétursson og frú, A. Oben- liaupt, ungfrúrnar Jórunn Jó- hannesdóttir, Lára Kristins- dóttir, Guðrún Þorkelsdóttir, Oddný Jónsdóttir, Kristjana Guðmundsdóttir o. m. fl. óðinn kom í fyrrinótt með margt farþega. Lauk hann við hring- ferð Esju, er liún strandaði á Breiðafirði á dögunum. Botnvörpungarnir. Egill Skallagrímsson og Gull- toppur komu af veiðum i morg- un með ágætan afla. Otur býst á veiðar. Mun nokkur hluti afl- ans verða frystur. Sementsskip kom liingað í gær til H. Bene- diktsson & Co. Viðtalstími fyrir barnshafandi konur, sem ætla að leggjast á Land- spítalann, er á miðvikud. kl. 4—5. Allir K. R.-menn, sem ætla að taka þátt í frjáls- um íþróttum á allsherjarmót- inu 17. jiiní, eru beðnir að sækja fund, sem haldinn verður i kveld kl. 9% í K. R.-húsinu. Heimsóknartími Landspitalans er á virkum dögum kl. 3—4, á helgum dög- um kl. 2—4. (Aðeins 2 lieim- sóknir í einu til hverrar sæng- urkonu). Guðrún Halldórsdóttir, ljósmóðir, er flutt á Þórsgötu 19. Simi 1419. Sjá augl. Útvarpið í dag. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Hádegisútvarp. 16,00 Veðurfregnir. 19.30 Veðurfregnir. 19,40 Tónleikar: — Alþýðulög (Útvarpslcvartettinn). 20,00 Ivlukkusláttur. Lúðrasveit Reykjavíkur. Grammófón: Vals í Cis- moll og Etudes í F-moll og Ges-dúr, eftir Chopin, leikin af Brailowsky. 20.30 Fréttir. 21,00 Músik. „Knock onf Merkileg nýjnng! Skordýra-eitnr. Lengi hafa menn staðið varnar- litlir gegn þeini aragrúa af skor- kvikindum, sem sækja vill i liíbýli manna og veldur þar hæði heilsu- tjóni, eignatjóni og óþægindum. Til skams tíma hafa það aðallega ver- ið flugur og melur, sem á þennan hátt hafa angrað okkur íslendinga, en þó hefir í seinni tíð bæst við þriðja plágan og sú versta, sem sé kakalakarnir. Gegn þeim - hefir margra ráða verið leitað og sum þeirra hafa bakað bæði einstakling- um og þvi opinbera ærin útgjöld. En nú hafa efnafræðingarnir leyst vandkvæði þetta, og eru það ÞjóS- verjar, sem hér eins og svo oft ella hafa höggvið Gordionsknútinn. Þeir hafa fundið upp ódýrt meðal, sem á einfaldan hátt útrýmir ófénaSin- um. MeSalið er duft, sem nefnist „Knock Out“. Hér er um engan hégóma a'ð ræða, heldur uppgötvun, sem búið er a'ð þrautreyna undir hinu strangasta eftirliti, og fjöldi opinherra vottorSa hefir verið gefinn út um það. K. O. duftið heyrir nú til fyrirskipaðs út- búnaðs á skipuni þýska verslunar- flotans, auk þess sem það er a'ð komast i almenna notkun í lieima- húsum, sjúkrahúsum, matvörubúð- um o. s. frv. Skordýraeitrið Iv. O. er selt í sprautu-öskjum úr pappa. Skal stinga með nál ofurlítiS gat á framhlið (odda) öskjunnar þar sem merlii er sett til leiðbeiningar. MeS þvi að taka svo öskjuna milli þum- alfingurs og vísifingurs á sama hátt og litla oliusprautu, má láta duftið gjósa úr henni á líkan hátt og þegar rýkur úr fýsisvepp. Eftir notkun er svo límt bréf (t d. frí- merkjajaðar) yfir gatið svo að duft- ið tapi sér ekki. Þegar útrýma skal kakalökum, maur, flóm, eða öðrum slikum ó- fögnuði, er K. O.-duftinu stráð í rif- ur á veggjum og gólfi eða aðra felu- staði, þar sem kvikindi þessi liafast við og timgast. Ivakalakarnir skríða þá strax fram úr fylgsnum sinum, velta á bakið og eru farnir veg allrar verald.ar eftir 5—10 mínútur. Til þess að útrýma flugum og mýi er henlugast að hlása K. O.-duftinu í glugga eða aðra verustaði slíkra ‘ skorkvikinda, og eflir 5—10 mínút- ur liggja kvikindin steindauð um alt lierbergið. Er hér um stórmerki- lega pýung að ræða, vegna þess aS ónauðsyniegt er að eltast við' a'ð sprauta á sjálf skorkvikindin, held- ur að eins á þá sla'ði, sem þau lialda sig heist á. Til varnar gegn mel skal strá K. O.-duftinu i falna'ð, loðföt, dúka, (teppi), stoppuð húsgögn og annaS slikt. Dufti'ð skemmir liluti þessa ekki hið allra minsta og ekki er erfiðara aS bursta það af en hvert annað ryk. Líka má auðveldlega svæla melinn út. Lsetur maður þá kolaglóð á skóflu, stráir þar yfir innihaldi einnar öskju og lætur sí'ð- an reykinn upp af þvi leggja inn i klæ'ðaskápinn, undir sófann o. s, frv. Reykurinn er til litilla óþæg- inda og hverfur hrátt út í loftiS í herberginu. K. O.-duftið fæst i lieildsölu og smásölu hjá Helga Magnússyni & Co., Hafnarstræti 19, og er sent gegn eftirkröfu hvert á lánd sem er. Inc. Ráðleggingarstöð fyrir barnshafandi konur, Bárugötu 2, opin fyrsta þriðju- dag i liverjum mánuði frá 3—4. Ungbarnavernd Liknar, Báru- götu 2, opin hvern fimtudag og föstudag frá 3—4. Sundnámskeiði I. S. í. lauk 31. f. m. Nemendur mótsins voru alls 41 og vi'ðsveg- ar að af landinu. Þó námskeiðið stæði að eins yfir mána'ðartíma, varð árangurinn mjög góður. Af námskeiðsmönnmn fengu 21 skírteini fyrir sundkuimáttll sína. — (í. S. I. — FB).

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.