Vísir - 10.07.1932, Qupperneq 3
V 1 S I R
li ©r
Trésmidja og timburyerslun
Hafnarfj arðar.
Flygenring & Co.
llefiF ávalt fyFÍFliggjancli allskonai* byggingaFefjai, svo sem: Timbup,
jápn, pappa, saum, skrár og lamir, stmga og pappíF, gler og sement o. fi. o. fl.
Einnig imrðir, glngga, elöliiis- og búrskápa og lista, allskonar. Alt
unnið úr svenskri íxrvals furu, sem verið lieíir í þurki 1-2 ár.
Ennfremur kiisgögn ýmiskonar, fyrirliggj andi og gerö eftir pöntun,
úr öllum algengum viðartegundum.
Yerðlag hvergi lægra. Timbur nýkomið trá Sviþjðð.
Símar nr. 5, 65, 37.
in húsgögn, hillur, kemhulár,
aska, tínur o. fl., alt i íslensk-
um stíl. Stefán Eiríksson var
óefað einhver mesti tréskurðar-
snilLingur — ef til vill sá mesti,
sem ísland hefir átt. Munir
Soffíu eru með sama snildar-
bragðinu og var hjá föður
hennar, enda lærði hún listina
hjá honum.
Jóhann Bjarnason, Húsavík,
sýnir útskoma muni, rúmfjöl,
bikar, lampa, öskjur o. fl. Eru
mimimir vel gerðij'. Margrét
TeitsdóLtir, Hóli í Hörðudal,
sýnir „salonsofið“ dívanteppi,
vel ofið, en Loftur Sigurðsson
húsgögn, vönduð að frágangi
og útlitsfögur.
í sömu stofu sýnir loks Bygg-
ingar- og landnámssjóður eftir-
liking af luisi i sveit, glugga ai
nýjustu gerð, sem revnslan
hefir sýnt, að er vatns og súg-
heldur, jxitt á hjörum sé, nokkr-
ar teikningar af sveitabygging-
um og torf, pressað og ópress-
að. Til nánari skýringa er þetta
tekið fram um eftirtaldar sýn-
ingarvörur Byggingar- og land-
náinssjóðs: Steinsteypumót,
þannig gerð, að liægt er að
stevpa i þeim mismunandi
þykka steina, bæði hola og
óhola. Mótin eni einkum hent-
ug, vegna heimilisiðnar. Stein-
ar steyptir i ofangreindu móti,
gerðir fyrir tvöfaldan útvegg
og má einnig nota þá i skilrúin
(einfalda). Holið í útveggnum
fyllist með mómold (svarðar-
rúst). Átta ára reynsla liefir
leitt í ljós, að hús með jiessari
yeggjagerð eru ágætlega lilý,
rakalaus og traust. — Veggina
má styrkja með jámum. Fáein
lítil sýnishom af torfi, pressuðu
og ópressuðu. Svona torf hefir
verið notað til skjóls innan i
steinsteypuveggi og yfirleitt
gefist vel, þótt það eigi jafngildi
að gæðum tvöföldum veggjum
með svarðamíst. Höfuðkostur
tvöföldu veggjanna er, að gólf-
in eru varin fyrir kulda og raka.
ög' tvöfaldir veggir vel járn-
bundnir, eru allra veggja traust-
astir, þvi að samtengingin
myndar stoð og jámin eru höfð
í báðum veggjum. — Pressað
torf mætti nota innan i útveggi
til skjóls mcðan sú aðferð tíðk-
ast og mætti sjálfsagt gera það
að verslunarvöru sem þiljuefni.
— Árið 1929 nam innflutningur
— fyrir allskonar þiljuefni L4
milj. króna. —
Stofa nr. 15 er „Akureyrar-
stofan“. Verksmiðjan Iðja sýnir
Jiar fægiduft, jurtapotta, liey-
hrifur úr Alúminium og ein-
angrunarsteininn „Vikril“.
Baldur Ifelgason sýnir hopp-
iskiði, Guðjón Bernliarðsson
silfurbúnað á skautbúning og'
upplilut, Vigfús Sigurgeirsson
ljósmyndir, Leikfangagerð Ak-
urevrar leikföng og Jón Krist-
jánsson, Akurevri, sild, með-
höndlaða á ýmsan hátt. Fram-
leiðsla Akureyringa, sem þama
er sýnd, virðist yfirleitt vera
vönduð og frágangurinn góður.
Sérstök ástæða þykir til að geta
um álúminíumhrífur verksm.
Iðja. Er skaft hrífanna, haus og
tindar alt úr alúminíum, sem
er léttur og sterkur málmur.
Hrífurnar eru gerðar úr sér-
stakri alúminiumblöndu, sem
húin er til í Ameríku. Svein-
björu Jónsson liefir látið smíða
hrífur þessar, fyrir livatning frú
Steinunnar Frímannsdóttur.
Iirifumar kosta að óögn um 10
kr. eða meira en helmingi meira
en tréluáfur, en endingin verður
vafalaust mikil. Þessi tilraun er
athyglisverð, en reynsla hænda
mun skera úr um hvort hrifur
úr þessu efni reynast betri en
tréhrífurnar og verða ódýrari,
jiegar tillit er tekið til alls.
Framh.
Kennaraskólanemendurnir
frá Jonstrup og' forstöðumað-
ur skólans, dr. Arne Möllei',
komu aftur til bæjarins á föstu-
dagskveld úr 5 daga ferðalagi
ur Árness- og Rangárvallasýsl-
ur og Borgarfjörð. Ivomu jieir
að Hliðarenda, gengu á Heklu,
komu við á Laugarvatni, Þing-
völlurn, Reykholti, Hvanneyri
og Saurbæ á Hvalfjarðarströnd.
Námssveinarnir fara héðan með
„Lyra“ á fimtudag. Á mánu-
dagskveld kl. 8V2 koma kennar-
ar þeir, sem staddir eru hér í
hænum, saman á Hótel Skjald-
hreið, til þess að kynnast
dönsku stéttarbræðrunum og
ræða um dönsk og íslensk
skólamál. Að lokum verður
sameiginleg kaffidrykkja.
Þýskt skemtiferðaskip,
„Sierra Cordoba", er væntanlegt
snemma í fyrramálið. Farþegar eru
um 200 talsins. K. Iv. Thomsen
kaupm. annast móttökur þeirra.
FerÖamennirnir fara austur á Þing-
völl og austur að Grýtu, til Hafn-
arfjarðar og inn í þvottalaugar. —
Hornaflokkur skipsins leikur að
likinduin nokkur lög fyrir bæjarbúa
á Austurvelli, seinni hluta dags.
Es. Goðafoss
kom í gærkvöldi kl. um 10 frá
útlöndum.
Sjúkravist.
Elliheimilið Grund auglýsir bér
í blaðinu í dag, að það geti nú og
framvegis tekið til dvalar sjúklinga,
sem eru ekki haldnir næmum eða
smitandi sjúkdómum. Meðgjöfin er
4 kr. um sólarhringinn.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir „Karlinn í kassanum" í
Reykholti í dag. Áður hefir leik-
urinn verið sýndur •— utan Reykja-
víkur — í Grindavík, Keflavík.
Hafnarfirði og á Akranesi. Aðsókn
hefir hvervetna verið hin besta og
fólk skemt sér ágætlega.
Iínattspyrnumóti íslands
lauk í fyrra kveld með kapp-
leik Iv. R. og Yals og varð jafn-
tefli, 2:2. Hafa úrslit íslands-
mótsins þvi orðið þau, að K. R.
har sigur úr býtum, með 7 stig'-
um. Valur fékk 5 stig og Fram
4 stig', Knattspyrnufél. Akur-
eyrar og Víkingur 0 stig. For-
seti í. S. I. afhenti sigurvegur-
unum íslandsbikarinn með
skörulégri ræðu, og' rakti í
stuttu máli sögu íslandsmóts-
ins, sem nú hefir verið háð í 20
ár. — Þann 2. júli 1912 var kept
! um bikarinn í fyrsta skifti. Iv.
R. héfir unnið íslandsbikarinn
8. sinnum, Fram 7 sinnum,
s Víkingur 2 sinnum og Valur 1
sinni en 3var sinnum liefir ekki
verið kept (1913, 1914, og
; 1923). Áliorfendur að^þessum
úrslitaleik íslandsmótsins voru
margir, enda veður ágætt. Kn.
„Víkingar“ í Vestmannaeyjum.
Eins og áður hefir verið skýrt
frá í blaðinu fór 2. aldursflokk-
ur Víkings til Vestinannaeyja
með „Dettifoss“ 6. júlí. Fj'rsti
knattspyrnukappleikiu' þeirra
við Evjaskeggja var i fyrradag
og lauk svo að Vikingar unnu
með 3:1. Leikurinn var mjög
skemtilegur, og veður gott.
Vikingarnir koma heim aftur
með „Lyru“. Rn.
49 ára*
er í dag Sigurlína Ragnhild-
ur Rjarnadóttir, Bankastræti 2.
Ráðgjafarnefndarmennirnir
dönsku lögðu af stað frá
Kaupmannahöfn í gær. Þeir
verða hér i Reykjavik til 23. þ.
m.
Heimatrúboð leikmanna,
Vatnsstíg 3. Almenn sam-
koma í kveld ld. 8.
Áheit á Strandarkirkju,
aflient Vísi: Kr. 1,50 (gamalt
og nýtt) frá „háöldruðum“.
Gjafir
til fátælcu ekkjunnar afhent-
ar Vísi: 5 kr. frá X, 5 kr. frá
gömlum hjónum.
Tafhlaop.
—O—
■Þegar eg' fvrir fáum vikum
fitjaði upp á að liafa tafhlaup
við siðustu kappreiðar, urðu
ýmsir til að letja þá tilraun og
sumir fóru um það liáðulegum
orðum. Eg liirti ekki um það,
en byrjáði á að láta æfa þá fáu
hesta, sem þá voru fáanlegir, en
svo illa tókst til, að tveir af
fyrstu hestunum heltust úr
þeim lióp, annar tapaðist en
liinn dalt og varð fyrir smá
meiðslum. En hestur kom í
liests slað, og annar sá liestur
hlaut fyrstu verðlaun (Stökk-
ull). Sörli, sá sem önnur verð-
laun hlaut, kom fvrst á æfingu
föstudaginn fvrir kappreiðarn-
ar, en laugardaginn fvrir jȾr
hljóp liann yfir meter háa girð-
ingu með Höskuld Eyjólfsson,
og má það teljast vel hlaupið
þar sem Höskuldur mun vera
nær 100 kg. á þyngd. Báðum
fvr nefndum hestum reið Dan-
íel Ólafsson á kappreiðunum og
æfði Stökkul Sami D. Ó. vann
á siðustu kappreiðum fimm
verðlaun og er það meira en
nokkur knapi liefir áður gert.
Photomaton
6 myndir 2 kr.
Tilbúnar eftir 7 mínútur.
Templarasundi 3. Opið 1 til 7
alla daga.
Ný tegmid af ljósmyndapappír
kominn. Myndimar skýrari og
betri en nokkru sinni áður.
Daniel er óhræddur og hefir
gott lag á, að láta hesta gera sitt
itrasta án þess þó, að misbjóða.
þeim, t. d. notar hann aldrei
svipu né kippir óvægilega í
tauma.
Sumir af þeim hestum, sem
riðið var yfir girðingarnar,
stukku léttilega yfir lægri girð-
inguna, en vantaði æfingu til
þess, að lyfta sér léttilega yfir
þá hærri.
Eftir að kappreiðunum var
lokið, fengu tveir röskir menn
af Kjalarnesi leyfi til að
lileypa á girðingamar, þeir
töldu ríst að þeirra hestar, sem
báðir voru viljugir og fljótir,
mundu ekki verða eftirbátar
verðlaunaliestanna, en þær von-
ir sviku, þvi hvomgur liestur-
inn komst yfir liærri girðing-
una, og annar datt ofan á eig-
andann, og hepni að maður og
hestur sluppu þaðan óskaddað-
ir. Hinsvegar ber eg engar
brigður á, að liefðu þessir tveii'
hestar fengið nokkurar sefing-
ar, þá hefðu þeir Jiotið léttilega
yfir girðingamar.
Eg get þess ama hér til að
sýna ahnenningi, að við hvers-
konar í}»róttir sem iðka á em
æfingar bráðnauðsynlegar engu
síður lijá hestum en mönnum.
Þótt svo tækist til við þessi
fyrstu taflaup hér á landi, að
að eins tveir hestar lilypi
yfir grindurnar léttilega, þá
hafa þau fært mér og' öðrum,
sem á þau liorfðu, heim sann-
ínn um, að liestamir okkar eru
inargþættum kostum búnir, og
bíða eftir að vér með Hpurð og
góðri meðferð gefmn þeim
tækifæri til að leggja fram alt
það besta sem i þeim býr.
Verði ]»að gert, þá þori eg að
lullyrða, að verð þeirra má tvö-
falda og }>eir verða eftirsóttir
bæði utan lands og innan.
, Ilan. Daníelsson.