Vísir - 13.07.1932, Blaðsíða 2
V I S I R
Frú Katrín Magnnsson
ekkja Guðmundar lieitinsMagn-
ússonar prófessors, andaðist í
morgun að heimili sínu hér i
bœ. — Þessarar merku og mik-
ilhæfu konu verður nánara get-
ið síðar.
Símskeyti
—o—
Washington, 12. júlí.
United Press. ~ FB.
Aukin seðlaútgáfa
í Bandaríkjum.
Öldungadeild þjóðþingsins
liefir samþykt frumvarp Borali
öldmigadeildar-þingmanns, um
aukna seðlaútgáfu. — Ráðgert
er að auka seðlaútgáfuna um
1.000.000.000 dollara.Verða þeir
látnir af hendi við „National“-
bankana, gegn tryggingum i
ríkisverðbréf um.
New York, i júlí.
United Press. - FB.
Flugferðalög að næturlagi.
Flugferðalög að næturlag'i
aukast mjög mikið í Banda-
rikjunum. Flestar hrað-póst-
flugvélar Bandaríkjanna eru
í póstferðum eigi síður að næt-
urlagi en að degi til nti orðið.
Farþegar eru nú eiimig fluttir
að næturlagi eigi síður en að
degi til, á öllum lielstu flugleið-
unum. Póst, farþega og flutn-
ingaflugvélar í Bandarikjun-
uin flugu alls 17,158,191 mílu
að degi til árið sem leið, en að
næturlagi um 7,500,000 mílur.
— Samskonar flugvéiar í Ev-
rópulöndum (að Rússl. und-
anteknu) flugu 23,000,000
mílna, en að eins 700,000 mílur
að næturlagi. -— Mesta nætur-
flugferðafélag í Bandarikjun-
um, United Air Lines, liefir 13
flugvélar í förum, sem eir-
göngu fljúga að næimlagi.
Flugvéiar þessa félags flugu ár-
ið sem leið 14,000,00(! milna,
þar af 6,000,000 að næturlagi.
Nevv York, i julí.
United Press. FB.
Kreppuárið 1931 voru 20,000
sjálfsinorð framin í Bandaríkj-
unum, samkvæmt skýrslum,
sem dr. Frederick Hoffman,
hagfræðingur, safnaði fyrir
timaritið ,Spectator‘ hér í borg.
— Árið 1908 náðu sjálfsmorð
hámarki í þessu landi, 21,5 á
100,000, 1915 20,8 á 100,000, en
í fyrra 20,5 á 100,000. — Tíð-
ust voru sjálfsmorð í rikinu
Wisconsin árið sem leið, en í
180 ameriskum borgum jókst
sjálfsmorðatalan úr 19,9 á
100,000, 1930 i 20,5 á 100,000,
1931. — Þó voru sjálfsmorð
tiðari i Evrópulxirgum árið sem
leið en í borgum Bandarikj-
anna. (Vínarborg 58,0 á 1(K),00('
Hainborg 51,0, Moskwa 24,9 o.
s. frv.).
Dr. Hoffman telur sjálfs-
inorðaaukninguna eiga rætur
sínar að rekja til atvinnuleysis
og annara erfiðleika af völdum
kreppunnar.
Buffalo, New York, í júlí.
United Press. FB.
Loftskipasmíð.
Smíði fjögurra stórra loft-
skipa til flugferða yfir Atlants-
haf hefst bráðlega, samkvæmt
tilkynningu frá Goodyear
Zeppelin Co. Tvö þeirra verða
smíðuð í Bandar, en hin í
Þýskalandi. — G. 'Z. Co. smið-
aði loftskipin Akron og Macon.
Hvar er gnllið?
—o--
Fyrirspurn til Tr. Þórhallssonar
—o—
I.
Það gekk ekki lítið á fyrir
svokölluðum framsóknarmönn-
um hérna um árið, þegar enska
ókjara-lánið var tekið, „lánið
lians Einars“. Timinn hélt þvi
fram, í alvöru að því er virtist,
að lánskjörin væri liin bestu.
Sannleikurinn væri sá, að
„láns“-maðurinn Einai- Áma-
son liefði snúið á Bretann í við-
skiftunum. Mun Einari liafa
þótt j>e'tta undarlegt fyrst í stað,
því að liann vissi ekki lil þess,
að hann liefði komið nálægt
nokkurri lántöku, en þegar
liann sá „Tímann“ lala um „lán
Einars Árnasonar“ viku eftir
,viku, fór hann víst að trúa því,
að líklega hefði hann nú eitt-
hvað verið við lántöku þessa
riðinn. Og á þinginu i f\Tra var
sagt, að hann hefði verið orð-
inn sannfærður um, að hann
hefði tekið lánið — liann og
enginn annar!
Því hefir oft verið lýst, liví-
lik ókjör íslendingar urðu að
sætta sig við, er lán þetla var
tekið. Alt var veðbundið að
kalla og svo hart að gengið, að
lántakandinn getur elcki lireyft
sig i fjármálum nema sam-
þykki lánardrottins komi til.
Hefir „Timinn“ oft fjargviðr-
ast iit af enska láninu, sem tek-
ið var i fjármálaráðherratið
Magnúsar Guðmundssonar, og
er þó vissulega lítið að þeirri
lántöku að finna, samanborið
við „lánið lians Einars“, þvi að
það er lang-versta og óhagstæð-
asta peningalán, sem íslenska
rikið hefir tekið.
Tiwggvi Þórhallsson lét blað
sitt þrástagast á því, um ]iað
leyti sem lánið var tekið, að
hverjum einasta eyri þessa
mikla Iáns yrði varið til eflingar
landbúnaðinum. Lánið var um
12 miljónir króna og Tr. Þ. lét
blað sitt staðliæfa hvað eftir
annað, að landbúnaðurinn
fengi hverja einustu krónu og
hvem einasta eyri. Likaði
bændum þetta vel og töluðu
mikið um umhyggju stjórnar-
innar fyrir málefnum landbún-
aðarins. Tólf miljónir lcróna er
mikið fé á okkar mælikvarða
og bændur töldu sjálfsagt, að
nú yrði hægt að fá fé að láni
með góðum kjörum. Þeir Iiöfðu
lesið það í „Timanum“ oftar en
einu sinni, að „Búnaðarbank-
inn“ hefði fengið þessar 12
miljónir öldungis óskertar,
hverja krónu og hvern eyri.
Hugðu þeir nú gott til um lán-
tökur og voru hinir ánægðustu.
En bráðlega fór að kvisast,
að gullpoki stjórnarinnar hefði
músétist og eiithvað sáldast
niður á leiðinni upp í bankann.
Þótti Einari þetta leiðinlegt,
sem von var, því að hann er
ráðvcndnin sjálf og vildi koma
öllu til skila i „bændabankann“,
enda biðu þar fyrir þrír banka-
stjórar gersamlega peninga-
lausir, en lánbeiðnirnar lágu
um alt í hrönnum. En svo segja
kunnugir, að þegar Einar rog-
aðist upp götuna með pokann,
liafi þeir Jónas og Tryggvi
gengið á eftir honum og rjálað
eitthvað við sitt pokaliornið
livor. En er uppeftir kom, virt-
ist pokinn gífurlega músétinn
á báðum homum, en mikið af
gullinu liorfið. Hafði Einari
þótt undarlegt, að pokinn skyldi
bila, þvi að jietta var þraut-
reyndur og niðsterkur eldivið-
arpoki að norðan. Var nú
Hannes, liflæknir stjómarinn-
ar, látinn skoða pokann, og
kvað liann upp þann úrskurð,
að lokinni mikilli og ákaflega
vísindalegri rannsókn, að músa-
nagið væri greinilegt. Kvað
hann enga von, að nokkur eldi-
viðarpoki þyldi slíkt nag og
liefði stjórninni verið nær, að
fara að sínum ráðuin og reiða
gullið lieim í svinsbelg. Geklc nú
Einar slóð sína niður í bæinn,
en fann hvergi gullið, enda var
ekki við þvi að búast. Ranglaði
liann niðurlútur og liugsandi
um götur bæjarins dag allan til
kvelds en fann engan pening.
En Jónas hnipti i Tryggva og
mælti á þessa leið: „Ætli það
sé nú ekki best, að við kennum
lánið við Einar, úr ]ivi sem
komið er.“ „Þú ræður, blessað-
ur húsbóndi minn, eins og vant
er,“ sagði Tryggvi, tók ofan
slóra liattinn, kraup á kné og
bauð herra sínum góðar nætur.
II.
Bændur eru lirekklausir
menn að cðlisfari og ólýgnir.
Þeim datt ekki í liug, að sjálf-
ur fosætisráðherrann væri að
láta blað sitt skrökva því, að
gullið enska væri ætlað þeim og
engum öðrum. Og þeim var
ljóst, að margt gæti bændastétt-
in lagfærl lijá sér heima fyrir
með 12 miljónum króna.
En bráðlega koma þar, að
því er kunnugir fullyrða, að
nokkur tregða færi að verða á
því, að lánbeiðnum bænda væri
sint í þeirra eigin banka. Þeir
vissu þó ekki betur, samkvæmt
frásögn „Timans", en að þarna
væri 12 miljónir króiia, sem
ætlaðar væri þeim einum. En
gullið vildi ekki koma, þó að
þeir sendi lánbeiðnir og öll
„plöggin“ væri í lagi. Þeim var
sagt að peningarnir væri ekki
til, nema kannske eittlivað of-
urlítið. — Og bændur urðu for-
viða. Ilvernig stóð á þessu?
Hvað var orðið af þessum 12
miljónum, sem stjómin kríaði
út úr Bretanum handa íslensk-
um bændum? — Lánið hafði
. l>ó fengist og stjómarblaðið
sagði, að landbúnaðurinn ætti
að fá alla summuna, „hvern
einasta eyri“.
Og nú var sagt að peningarn-
ir væri ekki til og hefði aldrei i
bankann komið, nema kannske
ein eða tvær miljónir, sem hægt
væri að miðla landbúnaðinum.
Sá, .scm þetta ritar, átti ný-
lega tal við bónda austan úr
sveitum. Hann var þá staddur
liér i bænum i lántöku-erindum.
Kvaðst liann hafa trúað því
statt og stöðugt, að mikill hluti
12 miljóna lánsins, sem bænd-
um var ætlað, væri óeyddur. Og
nú ætlaði hann að fá smálán, til
þess að létta sér róðurinn í
kreppunni. Veðið var ágætt og
áhættan engin fyrir bankann.
Hann taldi því víst, að pening-
arnir mundu fást „með orð-
inu“.
En það fór á aðra leið. Hon-
um var skýrt frá, að bankinn
hefði nú — því miður — ekkert
liandbært fé, sem hann gæti
lánað. Og því var bætt við, að
engar líkur væri til, að hann
gæti lánað honum þessa fjár-
liæð í bráð. Veðið væri prýði-
legt og ekkert að þvi að finna.
— Alt í lagi frá bóndans hálfu.
— En margir væri komnir á
undan — heil hersing af mönn-
um, sem líka liefði ágætis-veð,
og bankinn hefði þann fasta
sið, að afgreiða eftir röð. Þar
væri aldrei tekið fram lijá.
Bóndinn varð svo undrandi,
að hann sagði að sér hefði orðið
orðfall um liríð. Hann mintist
í liuga sínurn þeirra 12 miljóna,
isem „Tíminn“ sagði að bænd-
um væri ætlaðar, og nú var ekki
liægt að fá einar 12 liundruð
krónur. Hann, þessi góði og
gegni bóndi, gat ekki fengið
einn tiu-þiisundasta liluta þess
mikla fjár, sem stjórnin reiddi
í garð og ætlaði bændunum
einum, að því er hún lét blað
sitt prédika.
Sumir bændur eru þannig
gerðir, að þeir kunna betur við,
að fó glögg svör og greið við
spurningum sínum. Og bóndi
sá, er liér um ræðir, vildi ekki
liverfa frá með öllu, fyrr en
hann fengi ákveðin svör við
því, livenær liann gæti fengið
þessar krónur, sem hann hefði
talið sér vísar af „bændalán-
inu“. En svörin voru ekki sem
greiðust. Honum skildist að vel
gæti farið svo, að liann yrði að
bíða árum saman, því að pen-
ingarnir væri ekki í „liandr-
aða“ en bunki mikill af lán-
beiðnum fyrirliggjandi. En ein-
hver stakk því að honum, að
líklega væri réttara, að hann
lili inn aftur einhverntíma fyrir
1940. Bankinn vildi auðvitað alt
fyrir tiann gera eins og alla
aðra, en galhnn væri sá, að
þangað hefði engar 12 miljónir
komið, því væri nú skollans ver
og miður.
Þegar hér var komið kvaðst
bóndi liafa spurt ýmsa fjár-
málamenn, livað orðið mundi
um bænda-gullið — þcssar 12
miljónir, sem teknar hefði ver-
ið að láni lianda bændum lands-
ins. — En það vissi enginn.
Hinsvegar var lionum sagt, að
Tryggvi Þórhallsson mundi nú
taka við stjórn bændabankans
innan skamms, og mætti vel
vera, að hann gæti leyst gátuna
og visað á gullið. Hægðist bónda
heldur við þetta, því að hann
hefir mætur á Tryggva.
Síðar trúði bóndi mér fyrir
þvi, að helst væri liann nú þeirr-
ar skoðunar, að Tryggvi mundi
luma á gullinu, liklega æði-
mikilli summu. Hann væri
„glúrinn“ maðurinn sá, og svo
rnundi hann ætla að skamta
bændunum sjálfur, þegar Iiann
væri kominn í ríki sitt þar í
bankanum. Og þá sæi nú karl-
arnir, að fleiri gæti skamtað
rausnarlega en Jónas.
Eg tók þessu fjarri og sagði
sem satt er, að skoðun mín væri
sú, að stjómin mundi búin að
sóa öllum þessum mörgu milj-
ónum, sem bændum hefði verið
gefin fyrirheit um, að til þeirra
iskyldi renna. Eyðslu-græðgi
stjórnarinnar liefði verið líkust
því, sem hún teldi líf sitt liggja
við, að öllu væri komið í lóg á
svipstundu. — Taldi eg fram
nokkurar lielstu stórsyndirnar
og liroðalegustu dæmin um æð-
isgengið fjárbruðl fyrverandi
ráðherra, og tók þá bóndi allur
að digna og lieykjast. Kvaðst
hann ekkert vita nema það, sem
í „Tíamnum“ stæði, og þar
kvæði jafnan við þann tón, að
alt væri í stakasta lagi. Væri nú
líklega ekki úr vegi, að liann
færi að líta i önnur blöð en
„Tímann“ og fylgjast ofurlítið
með því, sem væri að gerast.
Að lokum mæltist hann til
þess, að eg beindi þeirri spurn-
ingu til Tryggva Þórliallssonar,
hvar „bænda-gullið“ mundi nú
ávaxtað. — Landbúnaðinum
liefði verið heitið 12 miljónum
króna. Fjárliæðin hefði verið
tekin að láni í Bretlandi, en
bændum landsins, þeim mönn-
um, sem fyrirheitið var gefið,
mundi að mestu ókunnugt,
livar hún væri niður komin.
P-
Sjúmannafélagið og
h.f. Rveldúlfnr.
—o--
Fundur var haldinn í Sjó-
mannafélagi Reykjavíkur i
fyrrakveld, og var þar rætt um
tilboð þau, sem hf. Kveldúlfur
hafði gert sjómönnum um
ráðningarkjör yfir sildveiði-
tímann. Sjómenn höfnuðu
báðum tilhoðum lif. Kveldúlfs,
þ. e. tilboði um 150 kr. mán-
^aðarkaup og 3 aura premíu,
og tilboði um endurgjalds-
lausa leigu á skipunum síld-
veiðatímabilið og að hf. Kveld-
úlfur keypti af þeim sildina
fvrir 3 kr. málið.
Miklar umræður urðu á
íundinum.
Tillaga kom fram um það á
fundinum, að félagið léti sig
engu skifta ráðningarkjör á
Kveld ú I f s-bo t n vörj) ugu m yf-
ir sildveiðatímabilið. Tillagan
fékk litinn byr meðal fundar-
manna.
Tillögur komu fram um að
bjóða lif. Kveldúlfi, að farið
yrði fyrir 8 aura aflaverðlaun
og fæði, og önnur um 6 aura
aflaverðlaun og fæði, en livor-
ug tillagan fékk byr.
Samþykt náði tillaga um að
bjóða félaginu, að farið yrði
fyrir sama kaup og áður, en
aflaverðlaun væri lækkuð í 3
aura.
Ennfremur var samþvkt að
Allar verslunarbækur
og viösk:iftaeyðublö5
strikuð eftir ósk hvers eins,
fást í
Félagsprentsmiðj unni