Vísir - 17.07.1932, Síða 3
y i s i r
ur. Margir þekkja aö vísu ungfrú
Helgu Thorlacius, og vita það, aö
hún er í fremstu röö matreiöslu-
'kvenna vorra. Henni var því trú-,
vandi til aö hreyta saltsíld, hvönn,
•geitaskóf, skarfakáli, sölvum, og
fjallagrösum í lostæta fæöu. Enda
tókst henni þaö.
Það væri áreiöanlega mikill á-
hati íslenskum heimilum, ef ung-
frú Thorlacius fengi að miðla sem
flestum af þekkingu sinni, æfingu
>og reynslu á þessu sviöi, sem óneit-
anlega var'Öar þjóðina mjög mikils.
Eg tel það tæplega verjandi ef
ísleiisku húsfreyjunum gefst þess
ekki kostur, aö kynnast nytsemi
og meðferð á grænmetinu, sem hér
vex. Því fé sem varið væri til
þess aö afla húsmæðrunum hag-
nýtrar fræðslu um notkun .urtanna
•okkar, mundi áreiðanlega ekki á
glæ kastað. Vextir þess fjár skila
sér aftur, meðal annars i auknum
þrótti æskunnar, nýtni, ánægju,
heimilisrækni, og þeim sanna
.ilienningarbrag, sem einkennir
'jrroskaða þjóð.
Vel sé öllu starfi, sem að því
rsmarki miðar.
Reykjavík 14. júlí 1932.
Guðrún Lárusdóttir.
I _________________________
Iönsýnmgm.
—o----
í stofu nr. 20 sýnir Hjörtur
iBjörnsson Bankastræti 14
nokkurar gibssteyptar mynd-
ir, sem vert er að vekja at-
hygli manna á.
August Hákansson, Hverf-
ísgötu 30, hefir í sömu stofu
sýnishorn af gljáun (lökkun)
á ýmsum munum, svo sem
horði, bifreið (model) o. fl.
(Glerið i hifreiðinni er slípað
iijá Storr, sætið stoppað hjá
Erlingi, en hifreiðin „cellu-
loce-sprautuð“ af August
Hákansson).
Vinna A. H. virðist ágæt-
lega af liendi leyst.
Loks sýnir Félagsbókbandið
hand á ýmsum hókum í stofu
nr. 20, t. d. Islendingasögur og
..„1001 nótt“ i skinnbandi o. m.
fl„ einnig shirtingshand margs
konar, vélnnnið og vel unnið.
Félagshókbandið var setl á
.stofn árið 1908, en tiu árum
.-síðar eða 1918 keypti Þorl.
Gunnarsson hókhandsmeist-
_ari það. Tók hann upphaflega
j)ált í stofnun þess og liefir
tekið þátt i störfum þess frá
hyrjun.
Félagshókhandið er nú
.stærsta hókhandsvinnustofa
liér á landi og liefir ágætustu
tæki og áhöld, efni og annað
sem að iðninni lvtur. Vinnur
margt manna í Félagshók-
•handinu, alt æft fólk, og hefir
flest unnið þar lengi. Vélar
•tíru allar af fullkömnustu
.gerð, sem fyrr segir, t. d. má
mefna hrotvél, sem getur hrot-
íð alt að 20.000 arkir á dag,
innsaumunarvél, saumar all
uð 15.000 arkir á dag, vírliefti-
vél, gyllingarvél rnjög vand-
aða o. fl. Gyllingarletur fagurt
og fjölbreytt hefir Félagsbók-
bandið og „rammaform“ i
hundraða tali.
Fél agsh ókh andið v i n n ur
mikið að hindagerð (kompó'-
neruð hindi) og á meslan þátl
í, að slík vinna er nú nálega
oinvörðungu framkvæmd hér
á landi. Bækur þær, sem
bundnar hafa verið i „upp-
lajgahand“ i Félagsbókhand-
ínu seinustu 10—15 árin skifla
íuguin þúsunda. Enn fremur
«er mikið unnið i Félagsbók-
handinu að handi á höfuð-
bókuxn, enda hefir það full-
komnustu tæki til slíkrar
vinnu. — Vinnustofur Félags-
hókbandsiiis eru á efstu hæð í
húsi F élagsprentsmiðjunnar
við Ingólfsstræti, andspænis
Gamla Bíó.
Utan af landi.
—o—
Siglufirði, 16. júlí. FB.
Regn og súld mestalla vik-
una. Töður farnar að hrekjast.
Síld hefir ekki veiðst tvo síð-
ustu daga, en búist við, að nokk-
ur skip komi inn i kveld með
sild.
Rikishræðslan liefir tekið á
móti 2268 máltunnum og
Hjaltalín 1300. Sérsaltaðar voru
í fyrradag 798 hálftunnur, sem
allar fóru með Goðafossi í dag.
Undirbúningur er nú tals-
verður undir sildarsöltun, þótt
ljóst sé, að söltun verði miklu
minni en vanalega.
Ivlukkurnar i nýju kirkjuna
komu á Goðafossi og voru sett-
ar upp í gær og liringt. Stærri
klukkan vegur að sögn 900 kg.
Eru klukkurnar gjöf frá spari-
sjóðnum hér og er nafn hans
letrað á þær. Ivlukkurnar em
einkar hljómfagrar. Ivirkjuna
er nú verið að mála að innan.
Mun hún sennilega verða vígð
siðla sumars.
Nokkur erlend síldveiðaskip
hafa komið liér inn síðustu
daga, aðallega finsk og sænsk.
Tvö norsk gufuskip losa hér
tunnur í dag.
Þorskveiðar ekkert stundað-
ar nú, nema handfæraveiðar
stunda menn lítilsháttar á smá-
bátum innanfjarðar.
Rikisbræðslan og Goos eru
farnar að bræða. ,
Hæstiréttur
liefir kjörið Eggert Briem
forseta réttarins um eins árs bil
frá 1. september n. k. að telja.
Afhjúpun
minnisvarða Leifs hepna fei'
fram í dag og hefst kl. 2 e. h.
Frá kl. IV2—2 leikur Lúðra-
sveit Reykjavíkur nokkur lög,
en kl. 2 lieldur Mr. F. W. B.
Coleman ræðu og afhendir
minnisvarðann fvrir hönd
stjórnar Iþmdarikjanna. Er Mr.
Coleman sendilierra Banda-
rík janna í Kaupmannahöfn. Að
ræðu lians lokinni leikur T liðra-
sveitin jijóðsöngva Bandaríkj-
anna og Islands. Að sjálfsögðu
munu menn alment sýna þeirri
þjóð, sem sýnt hefir vinarhug
sinn til íslands með því að gefa
henni veglegan minnisvarða í
tiíefni af 1000 ára afmæli Al-
þingis, þann virðingarvott, að
taka ofan, þegar þjóðsöngur
liennar er leikinn. — Forsætis-
ráðlierra þakkar þvi næst gjöf-
ina með ræðu. Þá leikur lúðra-
sveitin enn á ný og að þvi húnu
flytur K. Zimsen horgarstjóri
ræðu. Að lienni lokinni leikur
Lúðrasveitin lög til kl. 3)4.
Prentvilla,
sem rétt þykir að leiðrétta,
var i Visi í gær í greininni
„Fóstursynir“. Þar stóð (i 3.
dálki ofarlega): „og er að þvi
er fyrra atriðið snertir“ en átti
að vera: er þetta atriði snertir
o. s. frv.
Nýjar Kvöldvökur.
Apríl-júní : hefti 1932 hefir
Vísi verið sent fyrir skömnui.
Efni'ð er sem hér segir: Jóhann
Frímann: ' ,,Hrafna-Flóki“. —
Lars Hansen: ,,Hann sveif yfir
sæ — Sigfús Halldórs frá
Höfnum: „Mannætan á Mount
Austin“. — G. Geirdal: „Sam-
eining". — W. W. Jacobs: „Unt-
skiftingurinn". — Sigurður
Bjarnason: „Fnjóskdæla saga“ —-
„Rannsóknir á arfgengi“. — G.
Geirdal: „Gamlir svipir“. — „Gam-
ansögur“. — „Skrítlur". — Frá-
sögn Sigurðar Bjarnasonar frá
Snæbjarnarstöðum um Fnjóskdæli
tír fróðleg og víða vel rituð.
Gamla Bíó
sýnir þessi kveldin þýska tal- og
söngvamynd í 8 þáttum, sem kölluð
er „ÁstaróðurimT. Kvikm. er gerð
samkæmt skáldsögu Luigi Piran-
dello. AÖalhlutverk leika Renate
Múller og Gustaf Frölich. Kvik-
myndin er vel leikin og hugðnæm.
X.
Nýja Bíó
sýnir um þessar mundir ameriska
hljóm- og talmynd í 8 þáttum,
gerða af Fox félaginu. Aðalhlut-
verkin leika Janet Gaynor og Char-
les Farrell. Kvikmynd þessi hefir
átt miklum vinsældum að fagna er-
lendis Y.
Nordkap II,
norskt selveiðaskip, kom hingað
í gær. Fór það í nótt norður í höf.
Hafa Bandaríkjamenn þeir. sem
frá var sagt í Vísi nýlega, leigt
skip þetta í sumar. Áform þeirra er
að stunda aðallega bjarndýraveiðar.
Ráðgera þeir að verða 2 mánuði í
ferðinni og ílytur skipið þá til
Ameríku að veiðiferðinni lokinni.
Bandaríkjamennirnir eru 8 alls og
komu 2 á skipinu frá Noregi. Tveir
Bandaríkjamannanna eru nárns-
menn við Trinity College og 4 við
Yale-háskólann.
Trúlofun. *
sína opinberuðu síðastliðinn
fimtudag ungfrú Hi’efna Lárus-
dóttir frá Stykkishólmi og Ing-
vald Espesetli frá Álasundi.
G.s. Botnía
fór héðan í gærkveldi.
Bethanía.
Samkoma í kveld kl. 8)4-
Allir velkomnir. Trúboðsfélag
kvenna hefir útisamkomur i K.
F. U. M.-stykkinu (við Þvotta-
laugamar) kl. 4 e. h. Kaffi
vérður veitt á staðnum. Nesti er
liver beðinn að liafa með sér.
Allir velunnarar félagsnis eru
velkomnir.
Heimatrúboð leikmanna.
Vatnsstíg 3. Almenn sam-
koma í kveld kl. 8.
Skemtun
verður haldin á Lindarflöt i
Mosfellsdal i dag, og rennur
ágóðinn •. til Sj úkrastyrktarsjóðs
Mosfellshrepps.
Útvarpið í dag.
10,00 Messa í Dómkirkjunni
(Síra Ame Möller).
11,15 Veðurfregnir.
13,00 Erindi um Leif liepna.
(Þorkell Jóhannesson
niag.).
13.30 Afhjúpaður minnisvarði
Leifs hepna.
19.30 Veðurfregnir.
19,40 Bamatími.
20,00 Klukkusláttur.
Erindi: Ferðasaga. (Guð-
brandur Jónsson).
20.30 Fréttir.
Kaupmenn I
Kartöflumjöl, Haframjöl og Hrísmjöl seljum
við mjög ódýrt.
H. Benediktsson & Co.
Sími 8 (4 línur).
FIRG STO NE-Mfreiðagttmmí
höfum við nú fyrirliggjandi í mörgum stærðum, á far-
þega- og vöruflutningabíla.
Kaupið „Firestone“ ágæta bifreiðagúmmí, sem er
eitt hið allra besta, er til landsins flytst.
------ V e r ð i ð 1 á g t. -
Reiðhjðlaverksmiðjan Fálkinn.
Verslid vid-----
Kökugerdina Skjaldbreid.
------- Sími 549.
Slrias Gonsumsúkkulaðl
er gæðavara, sem þér aldrei
getið vilst á.
„Gratia“ nnddvélin
tekur burt óþarfa fitu, styrldr
taugarnar, eykur likamsfegurð
og starfsþrek. 10 mínútna dag-
Leg notkun jafnast á við 2 tíma
leikfimi.
Hárgreiðslustofan
Bergstaðastr. 1. Sími 895.
VlSIS KAFFH) gerir alla glaða.
21,00 Grammófóntónleikar;
Svmplionia Nr. 2 eftir
Beetlioven. — Kórsöng-
ur. Sandnes Kammera-
terne svngja: Lofsöng,
eftir Beethoven og
Hærra, minn Guð, til
þin, eftir Mason. Guld-
berg Akademiske Kor
svngja: Aandens Herre,
eftir Reissiger og Dejlig
cr Jorden. B B. C. kór-
inn syngur: Pilagrima-
sönginn úi’ „Tann-
hauser“, eftir Wagner.
Danslög til kl. 24.
Gjöf
til fátæku ekkjunnar afhent
Vísi: 3 kr. frá systkinuni.
Áheit á Strandarkirkju
afhent Visi: Eitt pund sterling
frá Brandi í Hull (sent i ábyrgð-
arbréfi til ritstjórans), 5 kr frá
Þ. V. S.
Langavegs Apðteks
er innréttuð með nýjum áhöld-
um frá Kodak. Öll vinna fram-
kvæmd af útlærðum mynda-
smið.
Filmur, sem eru afhentar fyr-
ir kl. 10 að morgni, eru jafn-
aðarlega tilbúnar kl. Gaðkveldi.
Framköllun — kopiering —
stækkun.
Hinir viðurkendu tónar Bosch-
flautunnar, bæði fyrir báta og
vagna, aðvara milt en greini-
lega. -— Flautan frá Bosch, sém
annað, endist mjög vel. <
BOSCH
Bræðnrnir Ormsson,
Reykjavík.
Sími: 867.
Til Borgarfjarðar
og Borgarness
alla mánudaga og fimtudaga.
Til Aknreyrar
á mánudögum. Lægst fargjöld.
Höfum ávalt til leigu 1. ttokks
drossíur fyrir lægst verð.
Nýja BiíreiðastOðin
Símar 1216 og 1870.